Þjóðviljinn - 23.01.1959, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.01.1959, Blaðsíða 3
— Föstudagur 23. janúar 1959 ÞJÓÐVILJINN (3 Kauplækkunarleiðin er röng Framhald af 1. síðu. Þannig hafði athugun sér- fræðinga ríkisstjórnarinnar á rekstri hraðfrystihúeanna um áramótin sýnt að reksturshag- ur þeirra hafði batnað svo, einkum vegna verðhækkana er- lendis og aukinnar framleiðslu, | að þau voru talin geta tekið á sig 5—9% grunnkaupshækkun bótalaust. Og um áramótin var öll staðan betri en áður. Út- flutningssjóður sem átti að standa undir bótunum liafði unnið upp skuldahalann frá tíð fyrrverandi stjórnar og hagur sjóðsins svo góður að líkur voru til að hann ætti fyllilega fyrir öllum útgjöldum. Sama var að segja um ríkissjóð. Hagur hans var einriig allgóður um áramót, svo ekki var þörf að afla hon- um tekna svo nokkru næmi. Út- flutningsframleiðslan viður- kenndi að mjög sæmilega væri að henni búið, og einn hluti hennar eýndi verulegan hagn- að, hraðfrystihúsin. Agreiningur um leiðir Eins og oftast urðu skiptar skoðanir um hvað gert skyldi. Þar komu til greina-ólíkar skoð- p,nir á orsök vandans. Sum- ir klifa á því í sífellu að kaup- gjaldið í landinu valdi öllum vandanum, kaupið sé að fær'a allt' úr skorðum, kaupið verði að lækka. Þessir menn miða allar s'tnar tillögur við launa- lækkun í einu eða öðru formi. Þeir leggja til að framkvæmd sé gengislækkun, kaupið sé bundið, vísitalan skorin niður bótalaust. Þeir segjast gera þetta allt í þeirri trú að of hátt kaup sé aðalvandamál at- vinnuveganna. Aðrir vilja ekki fallast á að almennt verkamannakaup í landinu sé of liátt, að þjóðfé- lagið geti ekki staðið undir því kaupi. Tveir kunnustu hag- fræðingar okkar, Jónas Haralz og Jóhannes Nordal, létu báðir hafa það eftir sér í sumar að þeir teldu kaupið ekki aðal- orsök þess vanda sem við væri að giínia nú í efnahagsmálun- um, og kauphækkanirnar væru fremur afleiðing en orsök verð- hækkananna. Hvað orsakar þennan vanda ? Eg er þess fullviss að það er rangt að telja að kaup verka- manna í landinu sé orsök hans, það er rangt mat að halda slíku fram. Margt annað hefur þar þyngri áhrif. Eg skal hér einungis il Ikja að einum þeirra þátta sem einna sterkust álirif haf!a á þá þróun, að verðlagið þýtur upp og kaupgjald fylgir á eftir. i Orsök verðbólgunnar Einn áhrifamesti þátturinn er fjármálastjóm ríkis og bæjar- félaga. Um mörg undanfarandi ár hefu.r fjármálastjórn ríkis- ins verið með þeim hætti að útgjöldin hækka miklu meira frá ári til árs en til samræmis við aðrar hækkanir í landinu. Á árunum 1955 til 1956 hækk- uðu rekstranitgjöld ríkisins um 27',5%, úr 513 milljónum í 653 mílljónir. Hækkun beinna út- gjalda ríkisins varð þó enn meiri ef litið-er á sjóðsyfirlit og á fjárfestinguna. A sama tíma hækkaði kaupgjald al- mennings í landinu ekki nema um 7—8%. Árið 1957 hæikkuðu rekstrarútgjöld ríkisins- úr 653 milljónum t 786 milljónir, eða um rúm 20%, Sama ár hækk- aði kaupgjald ekki nema nm 4%. Röng íjármálasteína og ábrií hennar á verðlags- málin í landinu Augljóst er ,að ekki er hægt að taka inn í ríkissjóðinn hundruð milljóna króna, aðal- lega með því að hækka tolla og skatta, og hækka þar með verðlag í landinu án þess að það segi einhvers staðar til sín. Útgjöld bæjar- og sveitar- félaga ha.fa einnig stóraúkizt á undanförnum árum. Það eru ekki sízt þessar aðgerðir sem valda því að kaupgjaldið hef- ur orðið að liækka. Þannig hefur verið haldið á- fram. 1 janúarlok 1956 va,r verið að stórauka tekjur rík- isins, í desember 1956 var það einnig gert, og í maí 1958 var enn verið að gera það sama. Og það var gert svo myndar- lega að mjög sennilegt er að hreinn greiðsluafgangur ríkis- sjóðs 1958 verði 60—70 milljón- ir. Með því að innheimta svo rösklega án þess að dregið sé úr eyðslunni á nokkurn hátt, hlýtur að segja til sín í hækk- uðu verðlagi, sem svo hækkar vísitöluna og loks kaupið. Að kippa vísitölunni úr sambandi Hitt er alröng skoðun að ætla að telja vísitöluna og vísitölu- kerfið orsök þess hvemig kom- ið er. Og það er engin lækning að „kippa vísitölunni úr sam- bandi“ eins og ýmsir leggja nú til. Ef ráðstafanir eru gerðar sem hækka verðlag um 100 milljónir er hætt við að fólk finni til þess, jafnvel þó búið væri að taka vísitöluna úr sambandi, og reyndi að hækka kaup sitt. Þá kæmi framleiðsl- an og segðist þurfa að hækka vöru sína, og allt eftir því. Það þarf enga vísitölu til þess að þetta geti gerzt. Þetta er meira að segja við urkennt af hagfræðingi Seðla- bankans, Jóhannesi Nordal. Hann segir í málgagni bank- ans m.a.: „Vísitölukerfið sjálft er í rauninni afleiðing, en ekki or- sök verðbólgunnar. Það er til- raun af hálfu launþega og framleiðenda að tryggja, að verðhækkanir verði ekki til þess að rýra afkomu þeirra. Það er þvi lítil von til þess, að tak- ast megi að draga úr áhrifum þessa kerfi-s til lengdar, hvað þá að afnema það, nema jafn- framt sé komið á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar ....“ Það er auðvitað fjarstæða að vísitalan eða vísitölukerfið sé orsök vandans, vísitalan segir einungis til um það sem hefur gerzt. Þessar mismunandi skoðanir á orsökum vandans valda mis munandi tlllögum um livað gert skuli. Þeir sem líta svo á að 4400 kr. kaup verkamanna á mánuði, eða 52 þús. kr. á ári hjá verkamanni sem vinnur alla rúmhelga daga sé of hátt, leggja til að skerða beri þetta kaup, og miða sínar aðgerðir við niðurskurð vísitölu og kaupbindingu í einhverju formi. En hinir sem telja að rikið og aðrir opinberir aðilar gangi of langt í því að stuðla að hækkuðu verðlagi, leggja til, að ríkið skili til baka því sem það tekui' af fólkinu umfram þarf- ir, gera tillögur um að draga úr útgjöldum hjá ríkinu, svo útgjöldin hækki ekki margfalt á við verðlag í landinu. Sama gildir um hækkanir bæjarfé- laga. Tillögur Alþýðubanda- lagsins Við Alþýðubandalagsmenn höfðum bent á::lau§p,.,,á,. vand- anum nú á þá leið áð við teld- um rétt að greidd yrðu niður 15 vísitöíústig og haft yrði fyllsta samráð við launþega- samtökin í landinu um það hvernig það yrði gert. Niður- greiðslur geta þýtt að verið sé að svindla á launþegum, og þess vegna Skiptir öllu máli að fullt samráð sé haft um þær við verkalýðssamtökin. Við erum því ekki út af fyrir sig and- vígir þeirri fyrirætlun ríkis-1 stjórnarinnar að greiða niður 13 vísitölustig En ríkisstjórnin hefur valið niðurgreiðsluleiðir sem líklega eru til að vekja tortryggni launþega. Niðurgreiðslur á kartöflum og smjörlíki eru rangiátar, þær miða að fölsun vísitölunnar. Við lögðum auk þess til að reynt yrði að komast að sam- komulagi við launþegasamtök- in og samtök framleiðenda um að færa kaupgjaldsvísitöluna niður um nokkur stig, gegn þeim bótum sem þessir aðilar viidu fallast á. Er reg- inmunur á þeirri tillögu og til- lögu ríkisstjórnarinnar nú um að strika út að minnsta kosti tíu vísitölustig, með öllu bóta ■ laust. Við bentum einnig á að fært mundi að taka nokkuð af tekju- afgangi ríkisins og nota hann í þessu skyni, og skila þannig aftur nokkur af álögum þeim sem teknar voru á sl. vori. Við töldum einnig að fært væri að færa niður ýmis útgjöld á fjárlögum, án þess að það kæmi verulega við nokkurn mann. Þá töldum við einnig að fært væri að afla 25—30 milljón kr. tekna í sambandi við einka- sölurekstur ríkisins, án þess að það þyrfti að hvíla þungt á almenningi. Með bessu hefði verið unrit að leysa vandanu án Jiess að slærða launakjör fólksins í landinu, miðað við það að út- flutningsframleiðslunni væri ætluð sambærileg kjör og hún hafði á sl. ári. Aðsto.ð við útgprðina auk- in umíram það, sem út- Igerðarmenn höíðu áður samið um Fí kisstjórnin hefur hins veg- ar samið um að liækka allveru- lega bæturnar, samtímis því að ráðist er á kaupið. Hækkun þessi mun nenia ekld minni upphæð en 60—70 milljónum króna, og er lík- lega ál.íka mikil og sú kaup- lækkun sem .verið er að reyna að knýja fram, með ófyrirsjá- j anlegum afleiðingum. Ríkis- stjórnin hikar . ekki við að hækka rekstursgrundvöll út- f'utningsframleiðslunnar veru- I legia fram yfir það sem menn hennar hafa talið sæmilegt, en Framhald á 11. síðu Á árinu I05S komn ails 5922 sjúklingar i r í ki sspí talana Það á fjórða hundraS fleira en árið 1957 Á árinu 1958 voru alls til meðferðar 5.922 sjúklingar og legudagar voru 271.065. Sambærilegar tölur frá ár- inu 1957 eru 5.613 sjúklingar og 268.969 legudagar. Eftir stofnunum skiptist sjúklinga- og legudagafjöld- inn sem hér segir: Landsspítali; í ársbyrjun voru sjúkli'ngar 185, á árinu komu 4.840, eða til meðferðar á árinu samtals 5.025 s.iúklingar. Legudagar voru alls 83.319, meðaltal sjúklinga á dag 228,3 og meðaltal legu- daga á sjúkling 16,6. Á iyf- lsékningadeild voru til meðferð- ar 767 sjúklingar, legudagar voru 20.416, meðaltal á dag 55.9 og meðaltal iegudaga á sjúkling 26,6. Á handlækninga- deild voru til meðferðar 1.245 sjúklingar, legudagar voru 23. 679, meðaltal á dag 64.9 og meðaltal legudaga á sjúkling 19.0. Á fæðingardeiid voru til meðferðar 2.334 sjúklingar, legudagar voru 23.493, meðai- tai á dag 64,4 og meðaltal legu- daga á sjúkling 10,1. Á húð- og kynsjúkdómadeild voru til með- ferðar 99 sjúklingar, legudagar voru 4573, meðaltal á dag 12,5 og meðaltal iegudaga á sjúkling 46,2. Á barnadeild voru til meðferðar 580 sjúklingar, legudagar voru 11.158, meðal- tal á dag 30,6 og meðaltal legudaga á sjúkling 19,2. Fæðingar voru alls 1,747 og þar af tvíburafæðingar 19. Sveinbörn og meybörn fæddust jafn mqrg, 883 af hvoru kyni, eða samtals 1766 börn. Vifilstaðahælið: 1 ársbyrjun voru sjúklingar á hælinu 82, á árinu komu H3, eða samtals til meðferðar 265 sjúklingar. Legudagar voru alls 34.911, meðaltal sjúklinga á dag 95,6 og meðaltal dvalardaga á sjúkling' 155,2 Kristneshæli: í ársbyrjun voru 58 sjúkling- ar, á árinu komu á hælið 36, eða til meðferðar samtals 94 sjúklingar. Legudagar voru 17. 698, meðaltal sjúklinga á dag 48,5 og meðaltal legudaga á sjúkling 187,7. Kleppsspítalinn: í ársbyrjun voru 322 sjúkl- ingar í spitalanum, á árinu komu 171, eða til meðferðar samtais 473 sjúklirigar. Dvalar- dagar voru 108,395, meðaltal sjúklinga á dag 296,7 og meðal- tal dvalardaga á sjúkling 229,0. í þessum tölum eru meðtaldir 21 sjúkUngur, sem dvelja á vegum Kleppsspitalans í Stykk- ishólmsspítala. Fávitahælið Kópavogi: í ársbyrjun voru í hælinu 42 sjúklingar, á árinu komu 33, eða samtals til meðferðar 75. Af þeini 33, sem komu nýjir á árinu.komu 23 frá Kleppjáms- reykjahælinu þar eð hælis- rekstri var þar hætt á árinu. Dvalardágar voru 20.232, meðal- meðaltal dvalardaga á sjúkling 269,8. í framangreindum töiu- um eru meðtaldir 3 sjúklingar, sem dveija á vegum hælisins að Efra-Seli við Stokkseyri. Kleppjárnsreykjahælið: í ársbyrjun voru 24 sjúkling- ar. 16.. juní 1958 voru allir sjúkl. fluttir til nýja fávitahælisins í Kópavogi, til dvalar þar, ,og hælisrekstri á Kleppjárnsreykj- um þar með lokið. Dvalardagar voru alls 4.712. Hælisreksur á Kleppjárrsrcykjum byrjaði 13. fchrúar 1944 í gömlu læknis- húsi. Holdsveikraspíalmn í Kópavogi: í ársbyrjun voru í hælinu 24 á árinu dó 1 sjúklingur, og í árslok voru 5. Dvalardagar voru 1.888. Uppökuheinrilið i Elliðahvanuni: í ársbyrjun voru 3 börn, á árinu komu 65 og í árslok var 1 barn.. Dvalardagar voru alls 1.185( og meðalal á dag 3,2 börn. Gæsl u vi:tta rlieim'lið í Gunnarsholti: ■ í ársbyrjun voru í hæljnu 24 vistmenn, á árinu komu 71 og í árslok voru þeir 29. Dvalar- dagar voru ahs 6.669, meðalial vistmanna á dag 18,3 og meðal- tal dvalardaga á vistmann 70,2. í framangreindum heildartöl- um ríkisspítalanna er Upptöku- heimilið og Gæzjuvistárhæiið tal sjúklinga á dag 55,4 og, * ekki meðtalið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.