Þjóðviljinn - 25.01.1959, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 25.01.1959, Blaðsíða 7
Swmudagur 25. janúar 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Ertu með eða móti kauplækkun? Ertu með því að samningsréttur verkalýSsfélaganna sé skertur? Um það ffrst og fremst er kosið í Dacsgsbrún í dag Úr ræðu Eðvarðs Sigurðssonar á Dagsbrúnarfundi í fyrradag Góðir félagar. Enn stendur stjórnarkjör fyr- ir dyrum í félagi okkar, og þá liggur náttúrlega fyrir að meta störf fráfarandi stjórnar. enda er um þau kosið hverju sinni, og þeir sem upp stilla gegn til- lögum uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs félagsins gera það sjálfsagt ekki af neinum leik- araskap heldur í fullri alvöru vegna þess að margt megi bet- ur fara og aðrir eigi að stjórna fétaginu og gera það betur heldur en þeir sem með stjóm félagsins hafa farið s.l. ár. Það eru núna aðeins liðugir þrír mánuðir siðan seinast var kos- ið i Dagsbrún. Þá var farið að félaginu jafnvel með meira offorsi, og ég vil segja blekk- ingum en oft áður. Eg þarf ekki að minna ykkur frekar á þetta, þetta voru kosningarnar til Al- þýðusambandsþingsins, rétt að nýafstöðnum samningum sem félagið hafði gert, og einkum í sambandi við þá var sérlega grófum blekkingum beitt. Upp- skeran af þessu kosningastriði, sem háð var með öllum þeim lækjum sem fullkomnustu kosningavélar í þessum bæ hafa yfjr að ráða varð sú að stjórnin kom sterkari út úr þessum kosningum heldur en kosningunum í janúar, og B- listamennimir komu veikari heldur en þeir gerðu í kosning- unum í janúar. 9 KOSIÐ UM KJARASKERÐ- INGARFRUMVARPIÐ Dagsbrúnarmenn voru þess vel vitandi núna fyrir þessa uppstiilingu, að yfirleitt var ó- vild rikjandi í liði þeirra B- listamanna gegn því að fara nú að bjóða fram aftur, enda eng- in félagsleg rök tjl þess að gera það. En þetta eitt dugði ekki, húsbændurnir á heimil- inu gáfu sínar skipanir og þá varð að hlýða; það voru verka- lýðsforirgar á borð við Birgi Kjaran og slíka menn sem þvi réðn. Og hver var þá ástæðan til þess að nú var stillt upp? Eg held það sé ekki neinn efi á þvi, að þar hafi mestu um ráðið fyrirætlanir Sjálfstæðis- flokksins 02 atvinnurekenda- valdsjns að koma fram kaup- lækkunum, og til þess þurftu þeir talsmenn inni í verka- mannafélaginu Dagsbrún til þess að reyna að blekkja verka menn til fylgis við þessar fyr- irætlanir. Og síðan var Al- ■þýðuflokknum skipað að vera með : rr,— og það stóð að sjálf- sögðu ekki á honum. Eg held þess vegna að þessar kosning- ar núna muni áreiðanlega snú- ast að miklu -minna léyti um . félagsmál verkamannafélagsins Dagsbrúnar heldur én oft áður, og það muni þess vegna verða kösið um allt annað en innri félagsmál Dagsbrúnar, enda hafa B-listamenn þar enga fót- féstu. l»að á að kjósa um núna þá kauplækkunarkröfu Sjájf- stæðisflokksins sem hann lief- ur skipað Alþýðuflokksríkis- stjórn sinni að framkvæma. Eg ætla þess vegna ekki að þessu sinni að eyða tima í það að rifja upp liðið ár, það er mönnum í fersku minni, og ég held við höfum gert þetta af og til, ekkj sízt núna í haust fyrir Alþýðusambands- kosningarnar og einnig núna á fundi eftir að Alþýðusam- bandsþingið var haldið'. Eg vil því snúa mér beint að þessu máli málanna, sem áreiðániega ér efst á baugi þessa dagana, og ekki bara Þá heldur næstu tímana meðan þetta allt saman er að ganga yfir. KAUPGJALDSVlSITALAN LÆKKUÐ UM 27 STIG Og hvað felst þá í frumvarpi því sem ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi? Frumvarpið ber mjög sakleysislegt nafn; ef ég man rétt, þá er það nið- urfærsla verðlags, launa og fl. sem það heitir. í þessu frum- varpi felst það, að frá 1. febrúar eigi að greiða vísitölu á allt kaupgjáld sem er 175 stig. Eins og þið vitið þá fáum við núna greitt eftir vísitölu 202 stig og sjáanlegt er að það er ekkert smáræði sem á að gera til þess að færa kaupið niður. Og þessi visitala 202-stig, hún svarar engan veginn til verð- lagsins eins og það er núna. HVERSU MIKIÐ LÆKKAR KAUPIÐ? Hvaða áhrif hefur þetta á kjör manria, áð borga eigi eftir vísitölu 175? Við skulum taka það fyrst, hvað kaupið verður reiknað með þessari vísitölu. Tímakaup almennra verkamanna, þ. e. a. s. lág- markstaxtinn lækkar úr 23,86 niður í 20 kr. 67 aura eða um 3,19 á tímanu. Aðrir taxtar Iækka samsvarandi, og hæsti taxti Dagsbrúnar lækkar um 4,49 kr. á liverju klukkustund. Vikukaup fyrir 8 stunda dag- vinnu á lægsta taxtanum lækk- ar um 153,12 kr. eða nákvæm- lega 7656,00 kr. á ári, einvörð- ungu núðað við dagvinnu. Mánaðarkaup almennra verka- manna, sem eru á mánaðar- kaupi Dagsbrúnar lækkar um 659,99 kr. á mánuði. kaup bíl- stjóra lækkar um 705,35 kr. á mámuði. 10 AlSITÖLUSTIG ÓBÆTT Hvað á að koma á móti þess- um kauplækkunum? í frufnv. sjálfu segir ekkert þar um. Þar segir aðeins það eitt að þessa vísitölu eigi að greiða f-rá og með 1. febr. n.k. í greinargerð frumvarpsins er hinsvegar því heitið að 1. marz skuli framfærsluvísitalan, eins og hún er mæld núna, ekki verða yfir 202 stig. Við vitum að nú þegar er búið að borga niður. .vöruverð sem nemur 12,6 vísitölustigum, sem þýðir 13 stig í framkvæmd. En til þess að koma verðlaginu þann- ig fyrir að vísitalan 202 s'tig verði spegilmynd af útsölu- verði' varanna þarf að greiða niður a. -m. k. 6 stig í viðbót, en þá falla óbætt 10 vísitölu- stig, algerlega bótalaust. Þetta. jafngildir því að 3 til 314% eru eftir að kauphækkuninni sem varð í liaust. Og er þá ekkert tillit tekið til þess að niður- gi-eiðslurnar liafa að sjálf- sögðu sín álirif, bæði á kaup- mátt launanna og eins á þær byrðar Mem að launþegtrtnir verða að bera vegna aukins kostnaðar í rekstri þjóðarbús- ins. ÍIEFDU 1TI.JAÐ AFSALA VÍSITÖLUBÖTUNUM I E ESEMBER Okkur er sagt að þetta eigi að jafngilda kaupmættinum eins og hann var í október í haust. Hvað þýðir þetta nú í raun og veru, að hann eigi að jafngilda kaupmættinum ,í október? Það merkir það, að í október í haust hefðu þessir meiin, sem nú túlka þessar ráð- stafanir, verið reiðubúnir til þess að afsala sér 15 vísitölu- stigum, gefa þau algjörlega eft- ir, lækka kaupið sem þeim nam. Hvað sögðu nú B-listamenn- irnjr í október í haust og mán- uðina þar áður? Sjálfsagt mun- ið þið það jafnvel og ég. Þá var nú öðru nær en þeir væru á þeim buxunum, öll tækifæri voru notuð til þess að ófrægja stjórn félagsins fyrir mjög slæ- lega framgöngu í því að fá kaup félagsmanna hækkað! Og þegar kaupið var hækkað um 9J4% þá voru það svo sem ekki neinir fyrirmyndar samn- ingar að þeirra dómi, heldur hefði verið hægt að gera þá fyrr og betri. Eða hvað lialdið þið að þess- ir menn liefðu sagt í sumar, eða bara í október, ef við hefðum lagt til að við gæfum þetta eftir, að menn afsöluðu sér 15 vísitölustigum? Það ætla þeir nú að sætta sig við, — og ekki aðeins sætta sig við held- ur gerast ákveðnir málsvarar fyrir. VITA EKKI UM IIVAÐ ÞEIR ERU AÐ TAL.4 Önnuf rökin eru þau, að þetta sé nákvæmlega það sama og gert var í september 1956. Er þetta nú rétt? Hvað gerðist í september 1956? Þá voru felld niður 6 vísitölustig. En hvers vegna?’ Vegna þess að það var vitað að verð á landbúnaðarvör um átti að hækka örfáum dög- um siðar, liækka um rösklega 11%. — og þessa liækkun áttu launþcgarnir enga von til þcss að fá bætta. Hvers vegna? Vegna þess að þá voru í gildi þau ákvæði úr gengislækkunar- lögunum frá 1950 að ekki skyldi tekið tillit til þeirrar hækkunar á verðlagi landbún- aðarvara sem orsakaðist af þvi að bændur fengju meira kaup i sinn hlut, vegna þess að kaup verkamanna hefði hækk- að. Þetta hefði þess vegna fallið niður algerlega^bótalaust. En hvað kom i móti að 6 stig- in voru felld niður? Það að landbúnaðarverð hækkaði ekki og allt verðlag var sett fast í 4 mánuði, og vitað var að þá voru miklar hækkanir á leið- inni. Þeir menn sem bera þetta, að afsala sér tíu vísitölustigum — sem algeru lágmarki — al- veg bótalaust, saman við það sem verkalýðshreyfingin gekk inná að gert yrði í september 1956, þeir vita alls ckki um hvað þeir eru að tala. HVERJU FÓRNA AÐRIR? Sagt er: allir verða að fórna, allir verða að láta eitthvað af höndum. Hvað er nú hið sanna í þessu? Jú, i frumvarpinu er gert ráð fyrir að bændur láti að sínum hluta það sem þessi kauplækkun, sem nemur 10 vísitölustigum, samsvarar í kaupi þeirra, bæði því kaupi sem þeim er reiknað í verðlags- grundvellinum og aðkeyptri vinnu. Verzlunin á að fórna. Hverju á hún að fórna? Hún á að fórna því sem þessi kauplækkun svarar í verðlagningu var- anna — og hagnaði, er sagt, —■ en liver á að meta liagnaðinn?! Um það er ekkert sagt. Og eins aðrir sem þjónustu selja. For- sætisráðherra, Emil Jónsson, sagði sl. fimmtudag, að allt þetta, allt það sem aðrir ættu að fórna, bændurnir, verzlun- arstéttin, þ. e. kaupmennirnir og allir sem þjónustu selja, ætti að neira sem svarar 4 stig- um i visitölurni. Það þýðir áð þetta verður vart merkjanlegt á vörunum. Eg gæti trúað því að lijá bændunum myndi þetta kannski þýða það, að þeir 85 aurar, eða raunar króna í smásölu, sem beir tóku ranglega — ég segi ekki beint stálu — myndi e. t. v. falla niður. Eg held það yrði öll þeirra fórn. ÍIVAÐ KOSTAR ÞETÍA? Sagt er; enga^ t ný^r, ^þögur verða lagðar á almenning til að standa straum af kostnaðin- um. Það segja kauplækkunar- postularnir. Við skulum at- huga hvað þetta raunverulega kostar. Samkvæmt upplýsing- um sem forsætisráðherra gaf í Alþingi á fimmtudaginn kost- ar þessi lagasetning eftirfar- andi: niðurgreiísiurnar, þessi 12,6 stig kosta 75,5 millj. kr. á ári. Ríkissjóður þarf að fá 22,2 millj. til viðbótar. Varð- andi niðurgreiðslurnar vil ég segja það, að ef á að síanda við loforðin um að framfærslu- vísitalan verði 202 stig 1. marz þá kostar þetta áreiðanlega meira, þá kostar það niður- greiðslu a. m. k. á 6 stigum í viðbót, og það þýðir sennilega nær 40 eða 30 millj. kr., svo að þessi uppliæð á örugglega cftir að hækka. Ffamhald á 10. síðu. (

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.