Þjóðviljinn - 25.02.1959, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 25.02.1959, Qupperneq 12
ing útflutnlngsins sl. árrösklega 37 millj. kr. meirf en innf lutningsins Alls nam innflufningurinn 1958 nœr 1406 millj., en útflufningurinn um 1069 millj. Samkvæmt nýútkomnum Hagtíðindum fluttu íslendingar inn vörur á síðasta ári fyrir 1405 millj. 946 þús. kr., en út- flutningur íslenzkra afurða nam á sama tíma 1069 millj. 144 þús. kr. Samsvarandi tölur fyrir árið 1957 voru: Inn- flutningur 1361 millj. 705 þús. kr. og útflutningur 987 millj. 602 þús. kr. Eins og sjá má af þessum tölum liefur innflutningurinn á érinu 1958 aukizt um 44 millj. 241- þús kr., en útflutningur- inn um 81 millj. 542 þús kr. Hins vegar hefur innflutning- urinn 1958 verið 336 millj. 802 þús. kr meiri en útflutningur- inn, en érið 1957 var mismun- urinn á inn- og útflutningi 374 millj. 103 þús. kr. eða 37 millj. og 301 þús. kr. meiri en í fyrra. Viðskiptin við einstök lönd ■ Á árinu 1958 skiptu Islend- ingar mest við Sovétríkin. Inn- flutningur þaðan nam 244 millj. 510 þús. kr. (278 m. 451 þ.) og útflutningurinn til þeirra 176 millj. 249 þús. kr. (212 m. 947 þ.). Tölurnar í svigunum sýna inn- og út- flutninginn 1957. Næst í röð inni voru Bandaríkin. Frá þeim fluttum við inn fyrir 193 millj. 491 þús. kr. (181 m. 231 þ.) og til þeirra fyrir 133 millj. 034 þús. kr. (90 m. 798 þús.). Önnur mestu innflutnings- löndin voru þessi: Bretland 150 millj. 332 þús. kr. (158 m. 151 iþús.), Danmörk 134 millj. 742 þús. kr. (95 m. 048 þ.), V-Þýzkaland 131 millj. 845 þús. kr. (104 m. 208 þ.), Tékkóslóvakía 107 millj. 168 þús. kr. (75 millj. 120 þús. kr.), Finnland 66 millj. 512 þús. kr. (63 m. 406 þ.), A- Þýzkaland 64 millj. 111 þús. kr. (61 m. 397 þ.). Helztu löndin, sem flutt var út til, önnur en Sovétríkin og Bandaríkin voru: V-Þýzkaland 112 millj. 570 þús. kr. (84 m. 483 þ.), A-Þýzkaland 81 millj. 761 þús. kr. (43 m. 992 þ.), Bretland 81 millj. 104 þús. kr. (93 m. 237 þ.), Tékkóslóvakía 73 millj. 061 þús. kr. (56 m. 677 þ.), Svíþjóð 55 millj. 977 þús. kr. (46 m. 353 þ.). Aukin viðskipti Heildarviðskiptin, inn- og út- flutningur, hafa aukizt mest á árinu við V-Þýzkaland, innfl. um 27 millj. 637 þús. Ikr. og útfl. um 28 millj. 087 þús. kr. Þá koma Bandaríkin, innfl. þaðan hefur aukizt um 42 millj. 236 þús. kr., en útfl. þangað um 12 millj. 260 þús. kr. Þriðja í röðinni er Tékkó- slóvakía með 32 miilj. 048 þús. kr. aukningu á innfl. það- an og 16 millj. 384 þús. kr. aukningu á útfl. þangað. Litlu minni er aukningini á viðskipt- unum við Danmörku og A- Þýzkaland. Um inn- og útflutning ein stakra vörutegunda á árinv sem leið verður síðar getið hér í blaðinu. ÓÐVILflNN Miðvikudagur 25. febrúar 1959 — 24. árgangur — 46. tölublað. 500. fyndtir Hins íslenzka prentaraféiags fgölsóttur Hið íslenzka prentarafélag hélt 500. félagsfund sinn sl. sunnudag'. Var fundurinn haldinn 1 Framsóknar- húsinu við Fríkirkjuveg og' var mjög fjölsóttur. I fundarbyrjun minntist for- maður félagsins, Magnús Ást- marsson, sjómannanna sem fór- ust með b.v. Júlí og v.s. Her- móði, en síðan var samþykkt að félagið legði 5000 kr. í hina al- mennu söfnun til stuðnings að- standendum þeirra er fórust. Iíeppa rnn skák- meistaratitil Reykjavíkur Enda þótt enn sé ólokið nokkrum skákum úr níundu og síðustu umferð í meistaraflokki á Skákþingi Reykjavíkur, er nú Ijóst hverjir keppa munu um meistaratitilinn. Eins og kunnugt er var meistaraflokki skipt í tvo riðla og keppa þrír þeir efstu úr hvorum riðli til úrslita. I A- liði eru það Stefán Briem sem hefur hlotið vinning, Ingi R. Jóhannsson 7 vinninga og biðskák og Arinbjörn Guð- mundsson 6j/2 vinning. Úr B- riðli komast í úrslitakeppnina Benóný Benediktsson sem hlot- ið hefur 6 vinninga, Jón Þor- steinsson einnig með 6 vinninga og Jónas Þorvaldsson með 5V2 vinning. Einstæð samþykkt í sögu verkalýðssamtakanna Framsób biðnr EmO ú Jtalda fasf vil meiri kanplæbkanir Verkakvennafélagið Framsókn hélt aðalfund sinn s. 1. sunnudag. Fundur þessi gerði þá samþykkt — sem er einstæð í sögu nokkurra verkalýðssamtaka, að skora á ríkisstjóm Alþýðuflokksins sem Sjálfstæðisflokkurinn myndaði, að „halda fast“ við þá stefnu að lækka kaupið! Þjóðviljinn hefur fengið eft- irfarandi frá Verkakvennafélag- inu Framsókn: Formaður félagsins frú Jó- hanna Egilsdóttir flutti skýrslu félagsstjómar og kom m.a. fram í henni að kaup félagskvenna hefði hækkað tvisvar á sl. ári, samkvæmt samningum við at- vinnurekendur. Fyrri kauphækkunin tók gildi 3. ágúst, og hækkuðu þá allir taxtar um 6%, en eftir að Dags- brún hafði samið um kauphækk- un í okt. sl. fór félagsstjómin þess á leit við atvinnurekendur að fá samsvarandi hækkun án uppsagnar samninga. Eftir nokkrar viðræður féll- ust vinnuveitendur á að hækka taxtann samsvarandi þeirri hækkun sem verkamenn höfðu fengið og tók sú hækkun gildi 19. okt. s.l. Við samningagerð félagsins um kaup og kjör félagskvenna, er taka mánaðarkaup hjá Mjálkur- stöðinni og Bæ j arþvottahúsinu náðist fram sú kjarabót m. a. að eftir tveggja ára samfellt starf hækkar kaupið um 5%. Þegar löggjöf var sett á s.i. vori um dýrtíðarráðstafanir, þar sem lögboðin var 5—7% launa- hækkun þá var reynt að fá nokkra launahækkun til þeirra lægst launuðu, þ.e. að fá nokkuð dregið á karlmennina og þannig fengust þessi 7% til kvenna, sem lögin ákváðu. Þá vakti hún athygli á lög- gjöf þeirri, sem sett var um uppsagnarfresti og veikinda- réttindi verkafólks. Loks ræddi hún nokkuð um nýjustu aðgerðir ríkisstjórnar- innar í efnahagsmálum, og lagði stjórnin fram svofellda tillögu, sem að loknum umræðum var samþykkt einróma: „Forseti Aiþýðusambandsins lagði þær upplýsingar fyrir síð- asta þing Alþýðusambandsins að verðbólga og vaxandi dýrtíð Framh. á 3. síðu Þjófótti kéngurinn Ein af. i>ersónunum í barnaleikritmu „Undraglerj- unum“ eftir Óskar Kjartans- son, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu kl. 6 síðdegis á morgun, er þjófótti kóng- urinn. Valdimar Ilelgason leikur kónginn og sést hann hér á myndinni, sem tekin var á æfingu um helgina. Stjórn Félags blikksmiða endur- kjörin Félag blikksmiða hélt aðal- fund sinn e.l. laugardag. Stjórn félagsins var öll endurkjörin, en hana skipa: Magnús Magn- ússon formaður, Bjarni Helga- son ritari, Ólafur Á. Jóhannes- son gjaHkeri. I varastjórn voru kjörnir: Jón Rögnvaldsson og Einar Finnbogason. Skálholtsbækurnar 4 seldusi í gær fyrir Fimmtán jwsnnd og fimm bundruð k Skálholtsbókin frá 1688 — fjórar bækur bundnar saman — seldist fyrir 15500.00 kr. á uppboði Sigurðar Benediktssonar í gær. Auk þessa boös var óvenjumikið líf í tuskunum á uppboöinu, þótt kannske sé ekki hægt að segja að uppboðstiyll i ng'ur hafi gripið um stg — almennt. Hér eru nokkur dæmi: tíma- ritin Perlur og Rauðir pennar fóru hvort um sig fyrir 500 krónur. Ársrit Skógræþtarfé- lagsins (allt) fór fyrir 510 kr., og ýmis lítt merkileg tímarit, fóru fyrir hlutfallslega hærra verð. Fuglatal Benedikts Grön- dals, smárit, fyrir 210 kr., —- fyrsta útgáfa af Ljóðmælum Jónasar Hallgrímssonar árituð af Brynjólfi Péturssyni seldist fyrir 1050.00 kr., Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen seldist nú fyrir 1850.00 kr. — en verð- ið hefur stundum skipt nokkr- um þúsundum, svo sá markað- ur virðist eenn mettur. Orða- bók Sigfúsar Blöndals, fyrsta útg. í alskinni, fór nú fyrir að- eins 550.00 kr. —- en „Grútar“- biblían (titilblaðslaus) seldist á 160.00 kr. Norðurfari Gísla Brynjólfssonar fór á 975 kr. og „Eðlisútmálun manneskjunn- ar“, géfin út á Leirá, seldist á 800.00 kr. — Guðhræddur mað- ur keypti „Heilagra manna sögur“ fyrir 550.00 kr. — auk allmargra annarra guðsorða- bóka er hafa fátt sér til ágætis annað en ellina — og veri menn svo með ásakanir um að „guðs- orð“ eé fyrirlitið í landinu! — Nokkrar sögur Laxnéss seldust nú á „hálfvirði“, þ.e. 650 kr. en hafa hæst farið á 3 þús. kr. Öður einyrkjans seldist fyrir 500.00 krónur. — Auk þess er áður segir um Skálholtsbækurnar þá mun sá maður er mest keypti hafa ,á þessu uppboði keypt fyrir eitt- hvað á sjötta þúsund krónur. Magnús Ástmarsson flutti þessu næst ávarp og minntist hinna merku tímamóta í sögu H.I.P., en síðan las ritari fé- lagsins Árni Guðlaugsson, fyrstu fundargerðina frá 4. apríl 1897. Þá fluttu fjórir heiðursfélagar ávörp. Jón Árna- son, sá eini af stofnendum Hins íslenzka prentarafélags sem enn lifir, talaði fyrstur, en síðan þrír fyrrverandi formenn fé- lagsins: Ágúst Jósefsson, Ein- ar Hermannsson og Hallbjörn Halldórsson. Ellert Magnússon, varafor- maður H.I.P., tilkynnti að fé- lagsstjómin hefði ákveðið i til- efni af 70 ára afmæli Hall- björns Halldórssonar á s.l. ári að láta gera málverk af hon- um og var það afhjúpað á fund- inum. Þá skýrði Björgvin Bene- diktsson prentari frá því, að samstarfsmenn Magnúsar H. Jónssonar, sem um langt skeið var einn af forystumönnum H.I.P., hefðu látið gera málverk af honum og var það afhent félaginu að gjöf. I fundarlok drukku fundar- menn kaffi Lboði félagsins og flutti þá Hannibal Valdimars- son, forseti Alþýðusambands Is- lanids, ávarp. Síðan vár kvik- myndasýning og m.a. sýnd mynd frá ferð prentara til Hóla 1940. Fyrirtœki heiti ísl. nöfnum Frumvörp ílutt á Alþingi um það mál Gunnlaugur Þórðarson hefur tekið sæti á Alþingi í fjarveru Péturs Péturssonar. Ilefur Gunnlaugur þegar flutt tvö frumvörp og miða bæði að því að skylda eigendur fyrirtækja á Islandi til þess að láta fyrir- tækin bera íslenzk nöfn. 1 greinargerð frumvarpsine vitnar flutningsmaður í nöfn eins og City Hotel á fyrirhug- uðu hóteli hér í bæ og Lido, sem er „baðstaður í Feneyjum, Orðið er ítalskt og merkir sand- rif“. Sem fylgiskjal hirtir Gunnlaugur útvarpsþátt er Árni Böðvarsson flutti nýlega um málspjöll af völdum elíkra nafngifta. Sósíalistafélag Akraness heklur skemmtifund fyrir fé- laga og gesti í Baðstoíunni kl. 9 í kvöld, miðvikudag. Dagskrá: Upplestur. Ferðaminningar frá Póllandi. Félagsvist. Skemmtinefndin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.