Þjóðviljinn - 22.03.1959, Page 7

Þjóðviljinn - 22.03.1959, Page 7
Fj árhættuspilarar eftir Nikolaj Gogol Kvöldverður kardínálanna Sunmidagur 22. marz 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Þjóðleikhúsið: eftir Julio Dantas — Leikstjóri: Lárus Pálsson Það var vægast- sagt stutt gaman sem Þjóðleikhúsið flutti gestum sínum á miðvikudaginn var, tveir einþáttungar og tek- ur eina klukkustund að sýna antnan þeirra, en hálftíma hinn: það leyndi sér ekki að áhorf- endur urðu fyrir æmum von- brigðum. Stjóm léikhússins skýrði frá því í blöðum að ráðgert Kefði verið að Inge- borg Brams, hin mikla og in- dæla danska leikkona, kæmi hingað og f’ytti „Rejsen til de grðnne skygger“, en fyrir þann einleik sinn hefur hún hlotið mikinn orðstír; hið örstutta hugðnæma verk , Miðdegisverð- ur karínálanna" átti að fylgja þeirri sýningu. Ingeborg Brams gat ekki komið að sinni — en hvexsvegna í ósköpunum eru „Kardínálarnir“ ekki geymdir þangað til hún á þess kost að ur, til eru enn slóttugri, reynd- ari og ósvífnari svikahrappar í sömu grein og þeim tekst von- um fyrr að blekkja hann og pietta og rýja inn að skyrt- unni, Spilling sú, gróðafíkn og mútugimi, sem landlæg var í Rússlandi keisarans birtist hér i skýru ljósi eins og í öðrum verkum Gogols, og um efnið er farið meistarahöndum. Svo margslungin eru klækjabrögð þorparanna að fáir munu geta séð í gegnum þann blekkinga- vef fyrr en undir lokin. Leikurinn minnir í sumu á sígilda gleðileiki fyrri alda og eru þó persónurnar eðlilegri og raunsærri; leikstjóranum er lagður ærinn vandi á herðar. Lárus Pálsson hefur skipað vel í hlutverk, en tekst ekki þegar á allt er litið að gera hið mergjaða skop skáldsins svo hávaðasemi og ýktum hreyf- ingum. Jón Aðils er dulbúinn sem liðsforjngi og minnir helzt á Alexander Kerenskí, nokk- uð hlédrægur en tekur þó fjör- spretti, það er til fyrirmyndar þegar hann lyftir glasi eða faðmar að sér gesti. Sá þriðji þeirra félaga er Indriði Waage, búinn prýðilegu gervi og mjög refslegur á svip, en af því má líka of mikið gera. Gestur Pálsson er röggsam- legur og skemmtilegur í svika- gervi stórbóndans og viðkvæm- ar lýsingar hans á föðurást hans og átthagatryggð skopleg- ar í bezta lagi. Bessi Bjarnason er eitt af fórnardýrum svika- hrappanna, uppgerðin biriist í svip hans og orðum þegar við á, og þegar hann loks kastar grímunni eru viðbrögðin eðlileg og lifandi. Þorgrímur Einarsson Atriði úr „Kvöldverði kardínálaima“; Indriði Waage, Haraldur Björnsson og Jón Aðils. textans er því ógerlegt að dæma. „Fjárhættuspilurunum" var fálega tekið, en um „Kvöldverð kardínálanna" gegndi öðru máli. Höfundur leiksins Julio Dantas var portúgalskur stjórri- málamaður, fræðimaður og skáld og sendiherra í Danmörku um skeið, og þar var einþátt- ungur þessi frumsýndur og hef- ur ekki horfið af leikskrá Kon- unglega leikhússins síðan. Leik- urinn er ekki dramatískur í neinu, en hugþekkur og falleg- ur, stutt samtal í ljóði og á að gerast á miðri átjándu öld; þrír aldraðir kardínálar sitja yfir borðum í Vatikaninu að liðnum degi og rifja upp æsku- minningar sinar hver af öðrum. Sól þeirra er hnigin, en „end- urminningin merlar œ i mána- silfri hvað sem var“ — yfir leiknum hvílir angurvær og mildur blær ellinnar og höfug angan löngu horfinnar æsku. Ástin er almáttug og jafnvel kirkjuhöfðingjunum kaþólsku ríkust í huga, það er hún sem gefur minningunum hita og lif. En ólík eru viðhorf manna og hjörtu: barátta og sigur var spánska kardínálanum eitt og allt, og hann elskaði þá eina sem hann ekki hlaut; í annan stað mat franski kardínálinn sverðið einskis, en vann sína stóru ástarsigra með fögrum orðum, málsnilld og andríki; Portúgalinn missti unnustu sina kornungur, og er sá eini sem elskaði í raun og veru. Sýningin er smekkleg og fal- leg, leikstjórnin hnitmiðuð og fáguð út í fingurgóma, búning- ar og borðbúnaður með ágæt- um og svört tjöld réttilega not- uð í stað málaðra veggja. Þýð- ing Helga Hálfdanarsonar verð- ur ekki of hátt metin, gædd ljóðrænni mýkt og máltöfrum og stendur texta hins danska góðskálds Sófusar Michaelis í engu að baki. Öll eru hlutverk- in í góðum höndum, leikararnir þrír bera með heiðrj hárauðar skikkjur prelátanna. Mesta at- hygli vekur Haraldur Björnsson og hefur skapað spánska kard- ínálanum það gervi sem hon- um má bezt sóma, virðulegur maður og fríður og spánskur á- sýndum, unglegur eftir aldri og gæddur ósviknu lífsfjöri og þrótti; orðræður hans fágaðar og ríkar að blæbrigðum. Jón Aði,’s er líka málsnjall og leik- ur hans hugbekkur og fastur i snjðum. og mjög geðfelldur og æruverður er Indriði Waage í gervi aldursforsetar.s, hins portúgalska kardínála. Á. Hj. Atriði úr ,,Fjárliættuspilurunum“: Indriði Waage, Jón Aðils, os Kúrik Haraldsson. Æ\^ar Kvaran, Gestur Pálsson koma hingað til lands sem von- andi verður skammt að bíða? Væntanlega lætur leikhúsið hina frægu listakonu ekki úr greipum sér ganga, það hefur vist fleirum en mér þótt rúm hennar óþægilega autt á þess- ari sýningu. , * „Fjárhættuspilarax'“ er stutt- ur enr snjall skopleikur og ís- lendingum áður kunnur af út- varpi og leiksviði, en höfund- urinn Nikolaj Gogol eitt af stórskáldum Rússa á nítjándu öld og höfundur „Eftirlits- mannsins" fræga, einhvers mergjaðasta og djarflegasta háðleiks allra tíma; einþáttung- ur þessi er um margt búinn sömu kostUm. Ungur fjárhættu. spilari sezt að í gistihúsi úti á landi óðfús að freista gæf- unnar,- hann hefur hugsað upp hin slungnustu svikabrögð og hefur bjargfasta trú á klækjum sínum og gáfum, en æ því mið- lifandi að áhorfendur hrífist af og hlæi af hjartans rótum. Og þó að leikendur fari yfirleitt vel með hlutverk sín virðist þá stundum skorta nægan áhuga, hvað sem veldur; óheppileg mismæli á frumsýningu verða að sjálfsöaðu ekki endurtekin, en tala sínu máli. Rúrik Har- aldsson leikur svikarann sem ósieurinn biður og er í öllu sú manngerð sem ætlast er til, gervilegur og mikill á lofti, góðmannleeur og svo auðtrúa að hann hlýtur að lúla í lægra haldi í þessum dáradansi. En þrátt fyrir hnitmiðaðan og fág- aðan leik tekst Rúrik ekki nægilega að draga að sér at- hyglina vantar einhvem innri þrótt til að bera leikinn uppi. Ævar Kvaran er sá sem orð hefur fvi'ir andstæðingunum, . hinum þorpurunum. og skox'tir ekki öx-yggi í framgöngu, fjör og mælsku heldur innilega kímni, og beitir á stöku stað gjallandi heldur vel á litlu hlutvei'ki „skrifarans,1* myndai'legur mað- ur og fyrirmannlega búinn. í lejknum segir að náungi þessi sé „í sóðalegum frakka“ og það á hann auðvitað að vera, það er óþai-ft af leikstjóranum að gleyma sóðaskap og eymd keis- aratímans. Baldvin Halldórs- son leikur ungan þjón í gisti- húsinu, hæfilega prakkaraleg- ur. vikalipur og mútuþægur; Valdimar Helgason gegnir líka þjónshlutverki, hann er ef til vill óþarflega hávær, en gervi og göngulag vel við hæfi rúss- nesks kotbónda. Lárus Ingólfsson hefur málað skemmtilega rússneska bjálka- stofu, fyrir gluggum úti blasa við' gyllt hvolfþök hinnar grískkaþólsku kirkju. Mál Hei'- steins Pálssonar er ósvikin ís- lenzka, en ekki frá því skýrt úr hvaða tungu leiknum er sr.úið; um nákvæmni og gæði Undirbwngur sé hofism oð útgófns árbókar ReykfavÉkur Tillaga Alírsðs Gíslasonar í bæiarstjórn Á bæjarstjórnarfundinum í fyrradag flutti Alfreð Gíslason tillögu um að hafinn verði undirbúningur aö útgáfu árbókar Reykjavíkur. Tillaga Alfreðs var svohljóð- andi: „Bæjarstjórnin felur bæjar- ráði og borgarstjóra að undir-. búa útgáfu árbókar Reykja- víkur og skal miðað við, að útgáfan geti hafizt eigi síðar en á næsta ári. 1 árbckinni skulu vera up-ilýsingar um yf- irstjórn bæjarins, stjórn ein- stakra deilda bæjarrekstursins og framkvæmdir, allar stofn- anir hans og starfandj nefnd- ir. Enn fremur skal að finna þar gildandi samþykktir og reglugerðir, hagskýrslur og annaa fróðleik, er bæjarfélagið varðar sérstaklega." I framsöguræðu sinni minnti Alfreð á að Reykjavíkurbær hefði áður gefið út árskýrslur, sem Björn heitinn Björnsson hagfræðingur bæjarins hefði í tekið sáman á sínum tíma. Ár- bækur þær, sem miðað væri við í tillögunni, yrðu með nokkru öðru sniði, þ.e. þeim væri ætlað að koma út árlega en ekki á no'kkurra ára fresti, og einn-. ig yrði í þeim ekki einimgis að finna hagskýrslur og tölur einar saman heldur og ýmis- konar annan fróðleik varðandi bæjarreksturinn. Benti ræðu- maður á að ýmsar borgir á Norðurlöndum, t.d. Osló, gæftii árlega út slíkar handbækur og upplýsingarit. Gunnar Thoroddsen kvað æskilegt að gefið yrði út ár- lega upplýsingarit um bæjar- starfsemina, en taldi eðlilegt að umræðu um tillögu Alfreða yrði frestað og jafnframt leit- að upplýsinga og álits hag- fræðings bæjarins á málinu. Var sú tillaga borgarstjóra samþykkt samhljóða.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.