Þjóðviljinn - 26.06.1959, Qupperneq 5
Föstudagur 26. júni 1959 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Sovétstjórnin bar í gær fram tillögu um svæði án
kjamorkuvopna og eldflauga í Evrópulöndum viö aust-
anvert Miðjarðarhaf.
Sendiherrum þeirra ríkja sem
hlut eiga að máli og Vestur-'
veldaima þriggja var í gær af-
hent orðsending um þetta efni j
í utanríkisráðuneytinu í Mosk-
va.
Þar er lagt til að engum:
kjarnorkuvopnum verði komið
fyrir né eldflaugnastöðvum
komið upp í Rúmeníu, Júgó-
slavíu, Búlgaríu, Albaníu,
Grikklandi, Tyrklandi og á
Ítalíu. Gert er ráð fyrir að
alþjóðlegu eftirlitskerfi verði
komið á til að sjá um að
samningur um þetta efni sé
haldinn.
í orðsendingunni segir, að fyr-
irætlanir Bandarikjamanna um
að koma sér upp stöðvum fyrir
kjarnorkueldflaugar á Ítalíu og
í Tyrklandi ógni friði og öryggi
um suðaustanverða Evrópu.
Þegar Krústjoff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, var á ferð
í Albaníu í vor, sagði hann að
eldflauga- og kjarnorkustöðv-
ftigning hindraði
heimsmeistarasiag
um í löndum A-bandalagsins á
þessu svæði hlyti að verða svar-
að í sömu mynt í löndum Var-
sjárbandalagsins. Lagði hann til
að Balkanskagi og löndin við
Adríahaf yrðu gerð að svæði án
kjarnorkuvopna og eldflauga.
Sigurður Kristjánsson
Ekkert varð af því að Patt-
erson og Bergman kepptu um
heimsmeistaratitilinn í hnefa-
leikum í gær. í New York
gerði úrhellis rigningu og leik-
vangurinn Yankee Stadium
blötnaði svo að tíu klukkutíma
samfellt sóJskin þarf til að gera
hann keppnishæfan á ný. Ekki
er víst að unnt verði að hafa
keppnina heldur í dag, því að
meiri rigningu er spáð.
Sigurður Kristjánsson skip-
stjóri á Ármanni, einum bát-
anna sem gerðir eru út frá Rifi,
var afiakóngur við Breiðaíjörð
og á Vestfjörðum. Var afli
bátsins 954 lestir.
Alls voru gerðir út 6 bátar
frá Rifi í vetur og var heildar-
afli þeirra 3340 lestir. Á ver-
tíðinni í fyrra var afli Rifsháta
2450 lestir og voru bátarnir
þá einnig 6.
Hvað hef ur
lækkað?
Framhald af 12. síðu.
mjólk er engin raunveru-
leg verðlækkun, heldur er
hún eingöngu framkvæmd
með niðurgreiðsium úr
ríkissjóði — og eins og
Ólafur Thors hefur játað:
,,AlIt það fé á fólkið sjálft
eítir að greiða, ýmist með
nýjum sköttum eða
minnkandi framkvæmdum
liins opinbera í þágu al-
mennings.“
Metkaupkraía frá
þrem milljónusn
Samband félaga verkamianna
i skipasmíðaiðnaðinum í Bret-
landi samþykkti í gær á árs-
þingi í Eastbourne að bera
fram kröfur um hækkað kaup,
styttan vinnutíma og lengt or-
lof til handa yfir þrem milljón-
um félagsmanna. Forseti vél-
smiða sagði, að þetta væri
mesta kjarabótakrafa sem sam-
bandið hefði nokkru sinni gert.
Samninga-
boð í Kerala
Fylkjsstjórn kommúnjsta í
Kcrala í Indlandi bauð í gær
stjórnarandstöðuflokkunum vjð-
ræður um ágreiningsmál, sem
valda því að stjórnarandstaðan
hefur beitt sér fyrir óhlýðnis-
herferð til að hrekja stjómina
frá völdum. Nambúdiripad for-
sætisráðherra kvaðst gera þetta
boð að tillögu Nehru, forsætis-
ráðherra Indlands, sem er ný-
kominn úr ferðalagi um Kerala.
Við komuna til Delhi sagði
Nehru, að hann gæti ekki fall-
izt á starfsaðferðir flokks. síns
í Kerala. Ilægt værj að gera út
um deiluna með því að efna
til nýrra kosninga, en það væri
fylkisstjórnarinnar að ákveða,
hvort horfið yrði að því ráði.
Indlandsstjórn hefði engar fyr-
irætlanir um að skipta sér af
deilunni í Kerala sem stendur.
Skæðtir dýrbítur
í Þmgvallasveit
Dýrbítur leggst nú á fé
bænda í Þingvallasveit og hafa
a.m.k. 20 kindur fundizt þeg-
ar dauðar. Fé það sem finnst
dautt er aðallega í Gjábakka-
og Svartagilslandi. Smölun hef-
ur ekki verið framkvæmd og
óttast menn að fleira kunni að
finnast þegar að er gáð. Veiði-
málastjóri mun hafa farið aust-
ur í gær til að athuga málið.
Sýning kosninga-
SJOÖS
Framh. af 12. síðu.
mundsson og óþekktan höf-
und. Ennfremur allmargar
endurprentanir, hæði eftir
innlenda málara og erlenda,
m. a. gullfallegar endurprent-
anir af málverkum gamalla
meistara eins og Rembrandts
og Rafaels.
Allar eru myndirnar á sýn.
ingunni seldar afar lágu
verði, endurprentanirnar t. d.
innrammaðar á kr. 75—200
hver. Býðst fólki því ein-
stakt tækifæri til að eignast
falleg listaverk til heimilis-
prýði fyrir lítinn pening, um
leið og lagt er af mörkum
til kosningasjóðs Alþýðu-
bandalagsins.
Alþýðuflokkurinn heldur því fram að hann hafi liug
á að stöðva verðbólguna. Því er þó öfugt farið. Það
var Alþýðubandalagið sem knúði fram stöðvunarstefn-
una í tíð vinstristjórnarinnar. 1 upphafi árs 1958 hróp-.
aði Alþýðublaðið hins vegar hástöfum dag eftir dag:
Stöðvunarstefiaán hefur gengið sér til liúðar. Og um
sömu muridir báru ráðherrar Alþýðuflokksins f'ram í
ríkisstjórninni tillögur um stórfellda .gengislækkun eða
að minnsta kosti 90% yfirfærslugjald. Þeir fengu, því
ekki ráðið, en þeir komu fram 55% hækkun á yfirfærslu-
gjaldinu, en sú ráðstöfun leiddi til mikillar verðbólgu-
skriðu. Og í útvarpsumræðunum í fyrradag talaði
Gylfi Þ. Gíslason af miklum skilningi um þær tillögur
Sjálfstæðisflokksins að gengið skyldi lækkað og kaup-
ið bundið, m.a. með breyttri vinnulöggjöf, en þær að-
gerðir myndu 'í senn magna verðbólguna um allan
helming og brjóta rriður mótstöðukra.í't launþega gegn
henni. Þarf ekki að rökstyðja hver álirif slík stefna
myndi t.d. hafa á kjör þeirra sem eigh afkomu sína
undir hinmn naumt skönuntuðu bótum trygginganna.
Sf-Lawrence-
leiom vigú
Eisenhower Bandaríkjaforseti
og Elísabet Bretadrottning vígja
í dag skipaleiðina eftir St.-
Láwrence-fljóti frá Atlanzhafi
til vatnanna miklu í miðri Norð-
ur-Ameríku. Er nú hafskipum
fær leiðin til Chicago og ann-
arra borga við vötnin.
eait mefnad
itám
Stúdentar í Höfðaborg efndu
til mótmælafundar í gær, vegna
þess að stjórn Suður-Afríku
bannaði svertingjastúdent að
fara úr landi til náms. Stúd-
entinn hafði fengið styrk til
náms við háskólann í Osló, en
daginn sem hann átti að leggja
af stað til Noregs var hann
sviptur vegabréfi og þar með
kyrsettur. Segja yfirvöldin, að
hann hafi staðið í sambandi við
,,undirróðursöfl“ og fái því
ekki að stunda nám erlendis.
Sýningin í salnum Þing-
holtsstræti 27 verður opin
í dag og á morgun kl. 1—7
síðdegis.
Louis Hrmsfrong
berst við daaðann
Jassleikarinn Louis Arm-
strong liggur þungt haldinn í
sjúkrahúsi í Spoleto á ítalíu.
Um tíma í gærmorgun var hon-
um ekki hugað líf, en hann
hjarnaði heldur við þegar á
rdaginn leið. Enn er hann þó
milli heims og helju.
Líflæknir Armstrongs sagði
blaðamönnum í gær, að hann
væri með bráða lungnabólgu.
Það gerði illt verra að lungna-
blöðrurnar væru óeðlilega
þandar út af 45 ára stöðugri
áreynslu við trompetblástur.
Armstrong er 59 ára gamall.
Síjöntur óku
á addá-endur
Þrjátíu manns duttu í gær og
margir þeirra meiddust, þegar
kvikmyndaleikarinn Gerini ók
bíl sínum á fullri ferð á mann-
fjölda í borginni Cosenza í Ral-
abríu á ítaþu. Fólk hafði safn-
azt saman um bíl hans við
benzinstöð, en Anita Ekberg var
í bílnum með honum. Þegar
búið var að láta benzín á bíl-
inn sté Gerini benzíngjöfina í
botn og ók beint á aðdáendur
þeirra skötuhjúa. Þrettán ára
telpa slasaðjst hættulega.
Í.S.I Landsleikurinn (01ympíu-keppnin> K.S.Í
ÍSLAND -------------- DANMðRK
íer íram á Laugardalsvellinum í kvöld, íöstudaginn 26. júní klukkan 8,30.*
Forsala á aðgöngumiðum á Melavellinum og í ftusturstræti við Útvegsbankann.
Aðeins þessi eini leikur.
K.S.Í