Þjóðviljinn - 30.06.1959, Blaðsíða 8
8) — Þjóðviljinn — Þriðjudagur 30. júní 1959
ÞJÓDLEIKHÚSID
i
BETLISTÚDENTIN N
Sýning í kvöld 02 annað kvóld
kl. 20.
Síðasta sinn.
UPPSELT
KRISTIN LAVRANSDATTER
leikrit eftir Tormod Skagestad
gert eftir samnefndri sögu
SIGRID UNDSET
Kópavogshíó
Sími 19185
Goubbiah
Óvenjuleg frönsk stórmynd
um ást og mannraunir með:
Jean Marais
Delia Scala
Kerima
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum yngri en
16 ára.
Myndin hefur ekki áður verið
sýnd hér á land.i
SÍMI 1-64-44
Fósturdóttir
götunnar
Sönn og áhrifarík sænsk stór-
mynd um líf vændiskonu
Maj Britt Nilsson
Peíer Lindgren
Bönnuð innan 16 ára
Endursýnd kl. 5, 7 og 9
Leikstjóri: Tormod Skagestad
Gestaleikur frá Det Norske
Teatret { Osló.
Sýning fimmtudag, föstudag
og laugadag kl. 20.
Aðgöngumiðasala opin frá kf.
13,15 til 20. Pantanir sækist
daginn fyrir sýningardag.
Sími 19—345
[ NÝJA BÍÓ
StMI 11544
Leyndarmál
skáldsins
(The View from Pompey’s
Head)
Ný amerísk Cinema Scope
litmynd byggð á skáldsögu
eftir Hamilton Barson.
Aðalhlutverk:
Richard Egan
Cameron Miíchelf
Dana Wynter
Sýnd kl. 5, 7 og 9
[ Stjörmibíó
SÍMI 18936
Landræningjarnir
(Utah Blaine)
Hörkuspennandi og viðburða-
rík ný amerísk mynd um rán
og hefndir
Rory Cajhoun
Susan Cummings
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 12 ára
NAFMAR hrðí
SÍMI 50184
Gift ríkum manni
Þýzk úrvalsmynd
Johanna Matz
Horsf Buchholz
Sýnd kl. 9
Myndin hefur ekki verið sýnd
áður hér á landi
Heimasæturnar
á Hofi
Þýzk gamanmynd í litum.
Margir íslenzkir hestar koma
fram í myndinni.
Sýnd kl. 7.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5.
Góð bílastæði
Sérstök ferð úr Lækjagötu kl.
8,40 og il baka frá bíóinu kr.
11,05
SÍMI 22140
Umbúðalaus
sannleikur
(The naked truth)
Leikandi létt ný sakamála-
mynd frá J. A. Rank. Brand-
aramynd sem kemur öllum í
gott skap.
Aðalhlutverk:
Terris Thomas
Peter Sellers
Peggy Mount.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
rr > 'l'i "
I npohhio
SÍMI 1-11-82
Víkingarnir
(The Vikings)
Heimsfræg, stórbrotin og við-
burðarík, ný, amerísk stór-
mynd frá Víkingaöldinni.
Myndin er tekin í litum og
CinemaScope á sögustöðvun-
um í Noregi og Bretlandi.
Kirk Dougtas
Tony Curtis
Ernest Borgnine
Janet Leigh
Þessi stórkostlegt Víkinga-
mynd er fyrsta myndin er bú-
in til um líf víkinganna, og
hefur hún allsstaðar verið
sýnd við metaðsókn.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
Hafnarfjarííarbíö
Sími 50 - 249
Ungar ástir
Hrífandi ný dönsk kvikmjmd
um ungar ástir og alvöru lífs-
ins
Aðalhlutverk:
Suzanne Bech
Klaus Pagh
Sýnd kl. 9.
Maðurinn sem aldrei
var til
Sýnd kl. 7.
SÍMI 11475
Óvænt málalok
(Beyond a Reasonable Doubt)
Spennandi og vel gerð amer-
ísk sakamálamynd
Dana Andrews
Joan Fontaine
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 12 ára
Áusturbæjarbíó
StMI 11384
Bravo, Caterina
Sérstaklega skemmtileg og
falleg, ný, þýzk söngva- og
gamanmynd { litum.— Dansk-
ur texti
Aðalhlutverkið leikur og
syngur vinsælasta söngkona
Evrópu:
Caierina Vajente
Hljómsveit Ku'rt Edelhagens
Sýnd kl. 9.
Auglýsið í
binðviljanum
MAGNÚS JÓNSS0N, óperusöngvari
SÖNGSKEMTUN
í Gamla bíó þriðjudaginn 30. júní kl. 7.15 síð’d.
Við hljóðfærið Fritz Weisshappel.
Aðgöngumiðasala hjá Eymundsen og Lárusi
5. VIKA
Liane, nakta stúlkan
Sýnd kl, 7
Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri.
íslenshan á sextugsafmæli Jóns
Framhald af 7. síðu.
ur er eftilvill einn mestur á-
vinníngur 'islenskrar skóla-
kenslu á okkar tímum. Það
er siæmt að tapa hljóðunum í
móðurmáli sínu; ég held ég
sé a.m.k. ,,sannleikans hástól
nærri“, þegar ég segi að Jón
Helgason hafi einhversstaðar
látið í Ijós þá skoðun að
missir hljóðsins y, sem varð
að mig minnir á 14. eða 15.
öld, sé eftilvill mest tjón sem
íslenska þjóðin hafi orðið
fyrir síðan hún tók bólfestu í
landi. En skrílmenníngin
hefndi sín þegar flámælinu
var útrýmt: þágufallssýkin,
krakkamál úr Reykjavík, ó-
hugsandi fyrirbrigði hjá full-
orðnu fólki fyrir tveim-þrem
áratugum, hefur risið einsog
pestarbylgja úr göturæsum
höfuðstaðarins og ekki aðeins
sýkt heimilin, þannig að full-
orðna fólkið hefur tekið
þágufallsambögurnar eftir
málviltum börnum sinum,
heldur brotið veggi skólanna,
svo sjálfir barnakennararnir
hafa í mörgu falli lyppast nið-
ur fyrir túngutaki óburðug-
ustu skjólstæðínga sinna;
þágufallssjúkir menn eru út-
skrifaðir úr Háskóla íslands.
Öskubuskur fornar rísa sem
tignardrotníngar yfir skóla-
géingnar kynsystur sínar
þágufallssjúkar á þeim tíma
sem nú er að líða. Og þó eru
að minsta kosti tveir flokk-
ar endemis í túngumáli á lægra
stigi en skrílmál einsog flá-
mæli og þágufallssýki; blaða-
mannamálið, sem ég var að
tala um áðan, og það mál sem
þvi er skyldast, þýðíngamál
sem svo hefur verið nefnt.
Skrílmál hefur það sér til á-
gætis að oft er hægt að géra
gys að því svo menn skamm-
ist sín fyrir það; en enginn
endist til að skopast að blaða-
mannamáli, þaðanafsíður
þýðingamáli. (Vitaskuld eru
til á dagblöðum greinar á
góðrí 'íslensku eingu síður en
þýddar bækur geta verið á
góðu máli. En þegar þessar
tegundir máls eru orðnar góS
íslenska, heita þær ekki leing-
ur blaðamannamál og þýð-
íngamál.)
Á fyrri árum hafði Jón
Helgason þann sið að taka
skrolj úr íslenskum stúdent-
um sem komu til Hafnar
haldnir þessum leiða ávana.
Heyrst hefur aðeins um einn
landa sem vildi fyrir eingan
mun láta taka úr sér skroll.
Áf Jóni Helgasyni hafa flest-
ir kunníngjar hans lært að
virða fagurt mál og siðan
reynt, hver eftir mætti og
kríngumstæðum sínum að
vanda málfar sitt. Eg veit að
Jón Helgason hefur hærra
nafn í sinni grein, norrænni
málfræði, en aðrir menn sem
nú eru uppi, en ég sleppi að
tala um það. Hugnæmari er
sú skoðun sem ég fékk af
rökræðu við hann, að vöndun
túngunnar, þessa þreifanlega
og tilfinnanlega eil'ífðarþáttar
sem teingir hug horfinna
lángfeðga og óborinna niðja,
sé ein frumskylda manns.
Halldór K. Laxness.
Úthlutun skömmtisnarseðla
í Reykjavík
Úthlutun skömmtunarseola íyrir þriðia
ársíjórðuna 1859 íer íram í Góðtemplara-
húsinu næstkomandi miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag 1., 2. og 3. júlí kl. 9—6
alla daga. Seðlararnir verða afhentir gegn
stofni af fvrri skömmtunarseðlum greini-
lega árituðum.
ÖTB0Ð
Tilboð óskast í að framlengja bátabryggj-
una í Höfnum í Hafnahreppi.
Uppdrættir og útboðslýsing fæst í Vita-
málaskrifstofunni gegn 200 kr. skila-
tryggingu,
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 12 á há-
degi laugardaginn 4. júlí n.k. og verða þau
þá opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Vitamálastj'óri
Atökin um landhelgismáiið
■*t&ír Magnús Kjartánsson, ritstjóra.
Lesið þetta umdeilda rit Magnúsar um eitt aðal-
deilumálið nú í kosningunum.
Fæst í næstu bókabúð eða næsta blaðsölustað.
Kostar aðeins kr. 10.00