Þjóðviljinn - 30.06.1959, Side 9
Þriðjudagur 30. júní 1959 — Þjóövirjinn — (9
ÍÞRÓTTM*
Lið Málmeyjar valið
(14.00).
Kringlukast: Leif Jönsson
(45) og Wachenfelt (42).
Spjótkast: Jan Stranberg
(63).
Sleggjukast: Lars Rocksen,
og S. G. Hassland (báðir yfir
50 m).
4x100 m: Norldbeek — Malm-
roos — Palm — Sjögren, 41,7.
4x400 m: Anderseon —
Malmroos — Strandberg —
Karlsson. — Báðar boðhlaups-
sveitirnar eru sænskir meist-
arar.
Lið Reykjavíkur.
Stjórn Frjálsíþróttaráðs R-
víkur gekk frá vali Reykjavík-
urliðsins á laugardaginn.
Reykjavík vinnur bæjakeppn-
ina við Malmö segir S. Anderson
Meira um Orænlandsilug en áður
1 byrjun síðustu viku var
bæjarlið Málmeyjar, sem keppa
á við A-lið Reykjavíkur á
vígslumóti Laugardalsvallar í
byrjun júlí, valið. Þó vantar
nöfn í 2 greinar.
Lið Málmeyjar er þannig
skipað (árangur í svigum):
100 m: Björn Malmroos
(10.6), Bertil Nordbeck (10.8),
báðir landsliðsmenn.
200 m: Björn Malmroos og
Bertil Nordbeck.
400 m: Malmroos og Bertil
Anderson, 48,5 og 49,0.
800 m: Bosse Karlsson (1.54)
og Olle Sjöstrand (1.55).
1500 m: Bo Karlsson (3.57)
og Leif Persson (4.02).
3000 m: Stig Jönsson og
Áke Nilsson, Jönsson keppti á
EM í fyrra.
5000 m: Stig Jönsson og
Áke Nilsson. Jönsson hefur
hiaupið á 14.35.
110 m. grind: Per Sjögren
og K. J. Eriksson, báðir 15,5.
400 m. grind: Per Sjögren
(50.0) og Kj. Áke Gunnarsson
(57.0).
Hástökk: Nils Bertil Nevrup,
fyrrv. sænskur meistari og Bo
Landin, báðir 1.90 m.
Stangarstökk: Tore Carbe
(4.07).
Langstökk: Jan Strandberg
6,87 og Bengt Palm.
Þrístökk: Jan Strandberg og
Bengt Palm.
Kúluvarp: T. von Wachenfelt
(16.00) og Leif Jönsson
Geðbilaðir fangar
gera uppreisn
1 geðveikrasjúkrahúsi ríkis-
fangelsisins í Springfield í
Bandaríkjunum hafa 115 geð-
bilaðir sjúklingar gert uppreisn.
Fangamir hafa tekið fimm
varðmenn fasta og hafa þá í
haldi sem gisla. Hóta hinir geð-
biluðu að drepa varðmennina,
ef fangelsisstjórnin ætlar sé
að beita valdi til þess að ná
þeim á sitt vald. Ekki er kunn-
Ugt um orsök uppreisnarinnar.
Lögreglulið, útbúið byssum
og táragasi, hefur slegið þre-
faldan hring um sjúkrahúsið.
fþróttasíðan átti stutt rabb
víð sænsku kfcppenduma að
lokinni keppni sjðara kvöld af-
mælismóts KR í frjálsum í-
þróttum, Sagði Sjg Anderson að
sér fyndist ailtof kalt hér og
að hann nyti sín ekki fil fulls,
eða að hann vaeri ekki vel fyrir
kailaður Þegar Stig var spurð-
ur um brautina sagði hann, að
sér fyndist hún of þung og hafa
of Htið fjaðurmagn. Hann sagð-
ist hafa keppt á 6 mótum í sum-
ar og stokkið nokkrum sinnum
yfir 2 m og einu sinni 2,03 m,
in bezti árangur sinn væri 2,05.
Þegar hann var spurður um
keppinautinn Jón Pétursson,
sagði Stíg að hann gæti orðið
miklu betri með meiri keppni og
þátttöku í mótum. Vildi hann á-
líta að hann gæti komizt 10 sm
hærra en hann gerði á mótinu
(1,95) og sagðist hann hafa
veilt því a-thygii að hann hefði
verið um 10 sm íyrir ofan rána
þegar bann fór yfir síðast. Stig
sagðist hafa heyrt að Jón ætlaði
að fara til Svíþjóðar síðar í
sumar og taka þátt { keppnj á
nokkrum stöðum þar og sagði
hann að það gæti verið honum
góður skóli, og mundi það gleðja
sig að sjá hann þar aftur.
Hann sagðist hafa skoðað nýja
iþróttavöllinn í Laugardal og
iauk hlanin m,iklu jofsorði á
hann. Sagðist hann sannfærður
um, að hann yrði áður en langt
um liði fyrsta flokks kappnis-
völ’ur fyrir frjálsar íþróttir.
Þegar Stig var spurður um
það, hvernig að hann héldi að
bæjakeppnin Reykjavík Malmö í
frjálsum íþróttum rnundi fara,
svaraði hann samstundis að þar
mundi Reykjavík sigra örugg-
lega, og það þó Malrnö ætti
nokkra góða menn mundi það
ekki duga gegn jafnara liði hér.
Þegar hann var spurður hvað
væri framundan hjá honum,
þegar heim kæmi og hvort hann
fengi ekki hvíld um stund,
brosti hann aðeins og dró upp
minnisbók sína og blaðaði í
henni, Nei, það virðist sem ég
eigi að keppa í 7 daga af þeim
næstu 8 sem ég verð heima, og
er eitt mótanna í Karlstad, þar
sem Vilhjálmur Einarsson kepp-
ir í þrístökki en það er stórmót
með þátttöku víða að, sagði hinn
geðþekki Svíi að lokum.
I
Ánægður með árangurinn,
sagði KaUevágh
Þetta var skemmtileg keppni,
sagði Kallevágh eftir hlaupið.
Mér fannst brautin þó vera
þung og eins og að það vantaði í
hana meira fjaðurmagn. Svo get-
ur líka verið, bætti hann við,
að kuldinn hafj orkað svona á
mig, en mér finnst kalt hér.
Ég er ánægður með árangurinn,
þar fiem þetla er fyrsta keppni
mín í 5000 m hlaupi í ár. Hann
lék Hka lofsorði á Krisfleif, og
áleit hann mjög efnilegan lang-
hlaupara.
Kállevágh sagðist taka þátt í
víðavangshlaupum heima í Sví-
þjóð og heima { sinu héraði hefði
hann unnið hlaupið í vor, 4000
m. Hann sagðist einnig hafa
reynt við 1500 m og fékk tím-
ann 3,52,8 sem er góður tími.
Hvassviðrið sem gengið hef-
ur yfir landið að undanförnu
hefur haft miklar tafir á flug-
eamgöngum innanlands 'í för
með sér. Allt fram yfir 17.
júní varð að fresta flugferðum
og fella niður, svo til á hverj-
um degi og suma daga féllu
ferðir alveg niður, t.d. til Vest-
mannaeyja og til staða á Vest-
fjörðum. Þá hömluðu þokur og
dimmviðri einnig flugi til Norð-
urlands um tíma.
Eftir 18. júní hefur hinsveg-
ar breytzt til batnaðar og hafa
flugsamgöngur innanlands síð-
an farið fram samkvæmt áætl-
un. Viscountflugvélarnar eru
nú í vaxandi mæli notaðar til
innanlandsflugs, evo og Sky-
masterflugvél Flugfélags ís-
lands, Sólfaxi. Flugvélar Flug-
félags íslands hafa það sem
af er þessu ári farið fleiri
leiguflugferðir til Grænlands,
en nokkurntíma áður á sama
tíma.
Mest hefur verið flogið til
Kulusuk, Syðri-Straumfjarðar
og Thule, en einnig til Meistara-
Aftaka í Teheran
Einn af leiðtogum hins bann-
aða Tudeh-flokks í íran, Ali
Olovi, hefur verið tekinn af
lífi í fangelsisgarði í Teheran.
Hann hafði verið dæmdur fyrir
„samsæri gegn keisaranum og
ríkisstjórninni". Hann var
fyrst handtekinn árið 1948 og
þá dæmdur til dauða, en tókst
að sleppa úr fangelsi 1949.
1956 var hann handtekinn aft-
ur.
Miskí í umslögum
Ymsir munu kannast við að
það getur verið óþægilegt að
burðast með viskíflösku í vasan-
um til að dreypa á þegar þörf
krefur. Nú hefur verið ráðin
bót á vandræðuní slíkra manna,
því að brezkt viskífirma hefur
nú tekið upp á því að selja
smáskammta af viskí í alumin-
íumumslögum sem lítið fer fyr-
ir og ekkert ber á.
víkur og Narssarssuaq.
Áætlunarflug félagsins milli
landa hefur þrátt fyrir erfiða
veðráttu gengið mjög vel og
hafa tafir verið fátíðar. Eins
og skýrt var frá í fréttum ný-
lega, áformar Flugfélag íslands
að opna nýja áætlunarflugleið
í haust fáist til þess nauðsyn-
leg leyfi.
Þessi nýja áætlunarleið er
frá Reykjavik til Palma á eyj-
unni Mallorca, sem eins og
kunugt er, er ein Spánareyja
og cr mjög annáluð fyrir feg-
urð og gott loftslag.
Harður bardagi
háður í Alsír
Einn harðasti bardagi styrj-
aldarinnar í Alsír var háður
við hafnarborgina Bone á aust-
urströnd Alsír, skammt frá
landamærum Túnjs, í fyrrinótt-
Allstór herflokkur Serkja gerði
áhlaup á úthverfi borgarinnar
og hörfaði ekki fyrr en eftir
átta klukkustunda bardaga. Þá
sögðust Frakkar hafa fellt 45
þeirra. Um tíma var vegasam-
band milli borgarinnar og flug-
vallarins fyrir utan hana rofið
og borgarbúar heyrðu greinilega
vopnagnýinn. ,
Fátt er svo með
öllu illt. . .
Fangi nokkur í fylkisfangels-
inu í Cincinnati í Bandaríkjun-
um, Travis Zellis að nafni, sem
afplánaði þriggja mánaða fang-
elsi fyrir þjófnað, hefur verið
látinn laus fyrir lok refsitímans.
Ástæðan var sú, að Zellis hraut
svo óskaplega, að meðfangar
hans höfðu aldrei svefnfrið.
Auglýsið í
Þjóðviljanum
Hjartans þakkir flyt ég ykkur öllum er glöddu
mig meö heimsóknum, skeytum og gjöfum á
sjötugs afmælinu mínu, 26. júní. Guð blessi
ykkur öll.
ODDUR JÓNSSON,
Fagradal, Sogamýri.
Geislaverkun
evkur krabbamein
Þeir sem lifðu af kjarnorku-
árásina á Hirosliima liafa
reynzt vera mun móttækilegri
fyrir krabbamein en fólk al-
mennt.
Þetta er niðurstaða rann-
sókna sem hópur japanskra
lækna hefur gert. Samkvæmt
skýrslu þeirra er manndauði af
völdum krabbameins fimmtungi
algengari þegar um að að ræða
fólk sem orðið hefur fyrir geisla
verkun en þegar það eru
„venjulegir krabbameinssjúk-
lingar".
Krahbameinsdauðinn var al-
gengastur meðal þeirra sem
staddir voru næst sjálfum
sprengistaðnum í Hiroshima.
íslandsmótið — Meistaraflokkur
í kvöld kl. 8.30 leika
Fram — Akranes
Dómari: Helgi H. Helgason.
Línuverðir: Gunnar Vagnsson og Baldur
Þórðarson.
Leikjaskrá K.R.R. er til sölu hjá Lárusi Blön-
dal, Vesturveri, og Bókaverzlun Braga Brynj-
ólfssonar og veitingasölunni íþróttavellinum.
MÓTANEFNDIN.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Þakka af alhug þeim er minntust mín á 70
ára afmœlinu, 20. júní. Lifiö heil.
ANNA JÓNSDÓTTIR,
Brœðraborgarstíg 49.
KAPUSALAN
auglýsir: Úrval af léttum sumarkápum. Tízkusnið
og litir. — Einnig stórar stærðir. — Svartar, grá-
ar og bláar dag- og leikhúsdragtir. — Selt með
miklum aflsætti.
Kápusalan.
Laugaveg 11. (efstu hæð). Sími 1—59—82.
Ath. Kápusalan er á efstu hæð.
í