Þjóðviljinn - 08.09.1959, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Þnðjudagur 8. september 1959
Bæjarpósturinn
Framhald af 6. síðu.
ætti verzlunin á hættu að
sitja uppi með birgðir af rán-
dýrum kartöflum, þegar þær
lækka aftur, og það myndi
ekki þykja gott beldur. Og
svo hundskamma sumir fram-
leiðendur Grænmetisverzlunina
og segja, að hún hafi tekið
svo eða svo marga sekki af
hinurn eða þessum, en ekkert
af sér, hún sem sé kaupi kart-
öflur af framleiðendunum
samkvæmt einhverju mann-
greindaráliti, skilst mér.
Sjáifsagt má ýmislegt að
störfum Grænmetisverzlunar-
innar finna, en ég held, að
það sé ekki rétt, að hún
kaupi kartöflur samkvæmt
manngreinaráliti, ég held
meira að segja að hún hafi
jafnan reynt að taka eitthvað
af sem allra flestum framleið-
endum fyrst á haustin, en
skiljanlega hlýtur að verða
aðeins um lítið magn að ræða
frá hverjum fyrir sig, og
einhverjir hljóta að verða aí-
veg útundan, þar sem fram-
boðið á vörunni er svo miklu
meira en eftirspurnin. Svo eru
kaupmennirnir í vandræðum
líka, það vilja nefnilega allir
selja þeim kartöflur. Það er
sveimér ekkert grín að eiga
við þetta: Ef það vantar kart-
öflur á markaðinn nokkra
daga, ætlar allt að verða
vitlaust, og neytendurnir
skamma Grænmetisverzlunina
óbótaskömmum, og ef meira
en nóg framboð er á kartöfl-
um verður það sama uppi á
teningnum, nema hvað þá eru
það einkum framleiðendurnir,
sem skammast. Er ekki til
einhver jafnvægisnefnd, sem
gæti tekið þetta til yfirvegun-
ar? Annars ræktar pósturinn
sjálfur dálítið af kartöflum,
og þær eru svo góðar (gull-
auga og rauðar 'íslenzkar), að
ef þið smökkuðuð þær, þá er
ég viss um að 'þið munduð
aldrei borða aðrar kartöflur.
Bernliarð rekien í
neðsta sæti
Framsó'knarmenn hafa nú
birt framboðslista sína í nokkr-
um kjördæmum. I Norðurlands-
kjördæmi eystra er listi þeirra
þannig skipaður: Karl Kristj-
ánsson Húsavík, Gísli Guð-
mundsson alþm. Reykjavík,
Garðar Halldórsson Rifkels-
stöðum, Ingvar Gislason lögfr.
Akureyri, Jakob Frímannsson
kaupfélagsstj. Akureyri, Björn
Stefánsson kennari Ólafsfirði,
Þórhallur Björnsson kaupfé-
lagsstj. Kópaskeri, Edda Ei-
ríksdóttir frú Stokkahlöðum,
Teitur Björnsson bóndi Brún
og Bernharð Stefánsson alþm.
Akureyri.
Þjóðviljinn mun síðar birta
fleiri framboðslista hinna flokk-
anna.
Bretar gera
npp
Framhald af 5. síðu
að því að reyna að taka brezka
togara en raun varð á. Hann
kvaðst hafa meint það sem
hann sagði, þegar hann kvaddi
togaraflotann við leland með
orðunum: „Fari varðskipin bölv-
uð“, en sagði jafnframt að ís-
lenzka landhelgisgæzlan hefði
unnið störf sín vel. „Við mynd-
um hafa komið eins fram í
þeirra sporum", sagði Ander-
son.
LTtgerðarmenn
sem þurfa að fá stálnótabáta sína sandblásna og
málmhóðaða, ættu að láta okltur taka við þeim, nú er
síldarvertíð lýkur. — Grunnmálum einnig, ef þess er
óskað.
Ryðhreinsun & Málmhúðun s.f.,
Sími 35-400.
I SJÖMENN
athugið að til sölu er ca: 45 rúmlesta bátur, smíða-
ár 1948. — Bátur og allur vélbúnaður ný yfirfarinn.
Vél: AIPHA — DIESEL 3ja ára.
Báturinn er fullibúinn til veiða fyrir n.k. vetrarvertíð
Mjög hagstæð kjör (sama og engin útborgun) fyr-
ir duglega sjómenn, sem vildu gera bátinn út frá
einni af beztu verstöð\Sm landsins og leggja aflann
upp hjá seljandanum. Öll aðstaða í landi mjög góð.
Þeir sem óska frekari upplýsinga hringi í 17 - 500
virka daga.
Breytt fyrirkomulag Mat-
sveina- og veitingaþjónaskóEa
1 Fukien-héraði í Kína er ®
verið að Ijúka byggingu
raforkuvers, sem árlega á
að framleiða 400 milljón
kílóvattstundir rafmagns
til iðnaðar. Smíði orku-
versins hófst fyrir tveim
árum. Uppistöðuvá'tnið,
sem myndast fyrir ofan
stífluna, gerir það kleift
að hægt er að veita vatn-
inu á 13000 hektara land-
búnaðarlands og auka
þannig frjósemi þess.
Kosningarnar
Framhald af 2. síðu.
Stjómmálafréttaritarar eru á
einu máli um að Macmillan. hafi
beðið um hinn sérstaka fund
sinn með drottningunni til þess
að biðja hana að rjúfa þing og
boða nýjar kosningar, sem fram
skuli fara í næsta mánuði.
Fréttaritarar segja að kosning-
arnar eigi að fara fram um
miðjan næsta mánuð. Búizt er
við Macmillan komi aftúr til
London, og þá verði gefin út
tilkynning um kosningarnar.
<
Gaitskell og Bevan hraða
sér heim
Þegar Verkamannaflokksfor-
ingjarnir Gáitskell og Bevan,
sem nú eru í heimsókn í Moskvu,
heyrðu um ferðir Macmillans,
brugðu þeir við skjótt og gerðu
ráðstafanir til þess að stytta
dvöl sína í Sovétríkjunum og
hætta við fyrirhugaða heimsókn
sína til Póllands, og vilja þeir
eðlilega hraða sér heim til kosn-
ingaundirbúnings.
Þeir Gaitskell og Bevan hafa
birt tilkynningu um heimsókn
sína til Sovétríkjanna. Segjast
þeir þar hafa komizt að raun
um að mikið skorti á að brezk
og sovézk stjórnarvöld séu nægi-
lega fróð um ástand og hagi
hvors annars. Nauðsynlegt sé að
koma á víðtækari og frjálsari
skiptum á upplýsingum um
stjðrnarmálefni landanna.
Föstudaginn 4. sept. var Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólinn
settur í húsakynnum skólans í
Sjómannaskólahúsinu. Við-
staddir skólasetninguna voru
auk skólastjóra, skólanefndar
og nemenda allmargir mat-
reiðslu- og framreiðslumenn er
luku sveinsprófi fyrir 10 árum,
og einnig voru viðstaddir fleiri
gestir.
Skólasjórinn, Tryggvi Þor-
finnsson, setti skólann með
ræðu. í upphafi minntist hann
nýlátins prófdómara í fram-
reiðslu, Páls Arnljótssonar for-
manns Sambands matreiðslu-
og framreiðslumanna, en hann
lézt í sumar eftir stutta en
erfiða sjókdómslegu. Heiðruðu
allir viðstaddir minningu hans
með því að rísa úr sætum. í
ræðu sinni lýsti skólastjóri
starfsemi skólans og kennara-
liði sem í vetur verður svipað
og í fyrra. Eftir beiðni skóla-
nefndar skólans fól fyrrv. ráð-
herra, Hannibal Valdimarsson,
skólariefnd ásamt skólastjóra,
yfirkennara og fulltrúa ' Iðn-
fræðsluráðs, Óskari Hallgríms-
syni, að en’durskoða reglugerð
skólans, og gerðu þessir aðilar
tillögur að nýrri reglugerð fyr-
ir skólann er samgöngumála-
ráðuneytið staðfesti 31. júlí s.l.
Er um að ræða ýmsar breyt-
ingar á fyrirkomulagi við
kennslu og námsgreinum. Skóla-
árinu var breytt þannig að
skólinn hefst eftirleiðis 1. sept.
í stað 1. okt. áður og lýkur í
lok aprílmánaðar í stað lok
maímánaðar áður.
Er skólastjóri hafði lokið
móli sínu tók Sveinn Símonar-
son matreiðslumaður til máls,
og tilkynnti að hann hefði á-
kveðið að gefa peningagjöf sem
vísi að stofnun sjóðs sem
styrkja ætti efnilega mat-
reiðslumenn til framhaldsnáms
erlendis, og bað Sveinn Símon-
arson skólanefnd og skólastjóra
að semja með sér reglur fyrir
hinn væntanlega sjóð. Formað-
ur skólanefndar, Böðvar Stein-
þórsson matreiðslumaður, þakk-
aði gjöfina og sagði skólanefnd
vera fúsa til að semja þessar
reglur eins og beðið væri um.
í ræðu sinni minntist Böðvar
Steinþórsson fyrsta sveinsprófs
í matreiðslu- og framreiðslu
sem haldið var í húsakynnum
skólans nú fyrir réttum 10 ár-
um en Sveinn Símonarson var
einn þeirra er þá lauk sveins-
prófi og er gjöfin gefin í tilefni
þess. Formaður skólanefndar
ræddi um ýms óleyst mál varð-
andi matreiðslu- framreiðslu- og
veitingamannastéttirnar, og
hvatti sérstaklega þau samtök
er stéttirnar varða að samein-
ast um framgang þeirra.
Símon Sigurjónsson fram-
reiðslumaður tók til máls, og
tilkynnti fyrir hönd 11 fram-
reiðslumanna er sveinsprófi
luku fyrir 10 árum að þeir
hefðu ákveðið að gefa skólan-
um peningagjöf að upphæð 11
þúsund krónur, og var skóla-
stjóra afhent sparisjóðsbók með
þeirri upphæð. Skal peningum
þessum varið til kaupa á ýms-
um kennslutækjum fyrir fram-
reiðsludeild skólans eftir nánari
ókvörðun skólastjóra, yfirkenn-
ara og fulltrúa gefenda. Skóla-
stjóri þakkaði hinar höfðing-
legu gjafir og þá ræktarsemi
við skólann er bak við stæði.
Skólastjóri Matsveina- og
veitingaþjónaskólans er Tryggvi
Þorfinnsson en Sigurður B.
Gröndal er yfirkennari.
• AUGLÝSIÐ 1
ÞJÓÐVILJANUM
Dregíð í 9. flokki á fimmtudðg
ÁSeins fveir söludagar effir -
Happdrœffi Háskóla Islands