Þjóðviljinn - 08.09.1959, Page 12

Þjóðviljinn - 08.09.1959, Page 12
VfSræSur austurs og vesturs um af- vopnunarmálin hef jast á næsta ári Samkomulag um nefnd líu þjóða er kemur saman í Genf snemma á næsta ári Stjórnir Sovétrikjanna, Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands hafa náð samkomulagi um að stofna nefnd tíu rikja til þess að fjalla um afvopnun í heiminum. Fulltrúar í nefndinni verða frá stórveldunum fjórum, sem standa að stofnun nefndarinnar, og auk þess frá Kanada, Pól- landi, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu, Rúmeníu og ftalíu. Verða þannig fimm vestræn ríki, sem eiga fulltrúa í nefnd- I Lítill drengur höfukúpubrotnar í bílslysi Fimm ára gamall drengur varð fyrir bifreið hér í Reykja- vík sl. sunnudag og höfuðkúpu- brotnaði. Slysið varð skömmu eftir há- degi í fyrradag í Mávahlíð, er drengurinn Sveinbjörn Egill Hauksson, Mávahlíð 43, hljóp skyndilega út á götuna og varð fyrir bifreið. Drengurinn var fluttur í slysavarðstofuna og þaðan í Landspítalann, inni og fimm af sósíalisku ríkj- unum eiga þar fulltrúa. Opinberar tilkynningar um stofnun nefndarinnar voru birt- ar samtímis í Moskvu, París, Washington og London í gær. í tilkynningunum segir einnig að nefndin muni taka til starfa í Genf snemma á næsta ári. Mun nefndin ræða möguleika og leið- ir til að takmarka vígbúnað og fækkun á herliði einstakra ríkja, og einnig mun nefndin ræða al- Báturinn lá aí sér veður á Fljótavík í gær og fyrradag lýsti Slysa- varnafélagið eftir trillu frá Flat- eyri, Biika, sem farið var að óttast um, þar sem ekkert hafði til hans frétzt í nokkra daga. Síðdegis í gær spurðist svo til bátsins. Hafði hann legið af sér veður á Fljótavík og var ekk- ert að. Á Blika eru tveir menn. menna afvopnun í heiminum. Nefndin mun veita Sameinuðu þjóðunum stöðugar upplýsingar um störf sín, og standa vonir til að störf nefndarinnar geti skapað grundvöll undir sam- komulag um afvopnunarmál inn- an S. Þ. Eisenhower í Washington Eisenhower Bandaríkjaforseti kom í gær til Washington úr Evrópuför sinni, sem stóð í 13 daga. Nixon varaforseti og nokkrir ráðherrar tóku á móti honum á flugvellinum, svo og nokkur hundruð áhorfendur. Eisenhower hafði í hyggju að koma við á Keflavíkurflugvelli á heimleiðinni, en hætti við það vegna veðurs en hafði þess í stað viðdvöl á Nýfundnalandi. Forsetinn lét vel yfir för sinni og kvaðst hafa komizt að raun um að vesturveldin væru sammála um grundvallaratriði heimsmálanna en nauðsynlegt væri að umræður milli æðstu manna vesturveldanna færu sem oftast fram. Önnur fegurðarsamkeppni sum arsins í Tívolí um sl. helgi Fegurðarsamkeppni fór fram í skemmtigarðinum Tlvoli á sunnudaginn. Var þá keppt um titilinn „Ungfrú Reykjavík 1959“. Þetta var fyrrihluti kepon- innar; síðari hlutinn, úrslita- lceppnin, átti að fara fram i gærkvöld en var þá frestað um óákveðinn tíma vegna veðurs. Á sunnudaginn komu fram sjö stúlkur í keppninni: Ester Garðarsdóttir, Grenimel 25, 24 ára, Svanhildur Valsd., Berg- staðastræti 60, 20 ára, Heiða Guðjónsdóttir, Stórholti 14, 23 ára, Sigríður Clausen, Snekkju- vogi 15, 17 ára, Bergljót Berg- sveinsdóttir, Melgerði 32, 17 ára Dóróthea Sturludóttir, Efstasundi 79, 17 ára og Sig- rún Jónsdóttir Kleppsveg 36, 17 ára. Fyrstu verðlaun í fegurðar- samkeppni þessari eru ferð og nokkurra daga dvöl á Mallorca, 2. verðl, flugferð til Lundúna og Kaupmannahafnar, I dómnefnd eiga sæti Albert Guðmundsson heildsali, Erling- ur Þorsteinsson læknir, Gestur Einarsson Ijósmyndari, Helgi Oddsson verzlunarmaður, frú Elín Ingvarsdóttir og ungfrú Rúna Brynjólfsdóttir. Stúlkurnar sjö, sem þátt tóku í fegrurðarsamkeppninni í Tí- volí í fyrrakvöld. Þær eru (taldar frá vinstri); Ester Garðarsdóttir, Svanhildur Valsdóttir, Heiða Guðjóns- dóttir, Sigríður Clausen, Berg- ljót Bergsveinsdóttir, Dórót- hea Sturludóttir og Sigrún Jónsdóttir. (Ljósm. Studio). Einn sœkir um skólameisfara- embœttið ML Um embætti skólameistara við Menntaskólann á Laugar- vatni hefur borizt ein umsókn. frá Jóhanni Hannessyni, M.A., bókaverði við Fiskesafnið í Cornellháskóla í Iþöku. (Frá menntamálaráðu. neytinu). þlÓÐVlUINN Þriðjudagur 8. september 1959 — 24. árgangur — 192. tölublað. KR-ingar taka við fslandsbikarnum Síðasti leikur Íslandsmótsins í knattspyrmi (1. deild) fór fram á Laugardalsvellinum liér í Reykjavík sl. sunnudag. Kepptu þá KR-ingar, sem þagar fyrir leikinn höfðu tryggt sér Islandsmeistaratitilinn, og Akurnesingar, ís- landsmeistarar fyrra árs. Leikar fóru svo að KR-ingar sigruðu með 4 mörkum gegn 2. — Myndin hér fyrir ofan var tekin að leik Ioknum, er Björgvin Schram, formaður Knattspyrnusambands íslands, afhenti sigurvegurunum Islandsbikarinn, verðlaunagripinn sem um var keppt. Það er fyrirliði KR-inga á leikvelli, Gunnar Guðmannsson, sem tekur við bikarnum úr hendi Björgvins. — Ljósm.: Bjarnleifur, Fyrsta umferð á kandidata- mótinu var tefld í gærdag Mótið var sett á sunnudaginn og dregið um röð keppenda, önnur umferð tefld í dag Kandidatamótið í skák var sett sl. sunnudag í borginni Bled í Júgóslavíu, en fyrsta umferð var tefld í gær. Á sunnudaginn var dregið um röð keppendanna og er hún þessi: 1. Smisloff, 2. Keres, 3. Þetrosjan,' 4. Benkö, 5. Gligoric, 6. Friðrik, 7,,'Fischer og 8. Tai. Samkvæmt því hafa þessir telft saman í fyrstu umferðinni og sá haft hvítt, er á undan er talinn: Smisioff og Tai, Keres og Fisch- er, Petrosjan og Friðrik, Benkö og Giigoric. í dag teflir Tal við Gligoric, Friðrik við Benkö, Fischer við Petrosjan og Smisl- Framhald á 6. síðu. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna kom í gær saman til þess að ræða ástandið í Laos. Banda ríkjamenn lögðu fram tillögu um að skipuð yrði nefnd fjög- urra rikja til þess að fara ' til Laos og kynna sér ástandið.þar Lögðu þeir til að í nefndinni verði fulltrúar ítalíu, Argen- tínu, Japans og Túnis. Fulltrúar Suðausturasíu- hernaðarbandalagsins ræddu í gær við varautanríkisráðherra Bandaríkjanna um það hvort hernaðarbandalagið mætti sker- ast í leikinn í Laos gegn upp- reisnarmönnum. Bretar eru aðilar að banda- laginu, en ýmis brezk blöð vör- uðu í gær við því glapræði að senda herlið frá bandalaginu til Laos. Forsætisráðherra Norður- Vietnam hefur sent mótmæli gegn ásökunum Laosstjórnar um íhlutun frá Norður-Vietnam í Laos. Mótmælin voru send Hammarskjöld framkvæmda* stjóra S.Þ., forseta allsherjar- þingsins og Öryggisráðinu. Sukarno, forseti Indónesíu, hefur boðizt til þess að reyna að miðla málum í Laos, ef mál- ið leysist ekki á vegum S.Þ. Segir hann að ef skipuð verði eftirlitsnefnd til að kanna á- standið í Laos, vérði hún að vera skipuð fulltrúum hlut- lausra ríkja. Styðja mótmæli Marokkóstjórnar Arababandaiagið hefur sam- þykkt að styðja mótmæli stjórn- ar Márokkó gegn kjarnaspreng- ingum Frakka í Sahara. Mar- okkóstjórn hefur feent mótmæli gegn kjarnasprengingunum til Sameinuðu þjóðanna. Þetta var tilkynnt á ráðstefnu Arababandalagsins, sem nú stendur yfir í Casablanca.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.