Þjóðviljinn - 11.11.1959, Blaðsíða 5
—Miðvikudagur 11. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
„Heima í Virginía hefði negrinn
verið laminn til dauða”
Bandarískur sjóðliði barði negra til óbóta
Bandarískur sjóliði af skipi sem dvelur í höfn í Kaup-
mannaliöfn, hefur lent í höndum lögreglunnar vegna fá-
dæma, fúlmennsku sem hann sýndi þeldökkum landa sín-
um.
Negrinn, sem er í banda-
ríska hernum, en dvaldi
í orlofi í Kaupmannahöfn, sat
á veitingahúsi í mestu róleg-
heitum þegar sjóliðinn kom þar
inn.
Sjóliðanum líkaði greinilega
ekkj nærvera negrans, því
skyndilega hljóp hann til
landa síns og réðist umsvifa-
laust á hann með barsmíð.
Negrinn hlaut míkil meiðsli, m.
a. barði sjóliðinn úr honum
þrjár tennur Varð að flytja
hermanninn á sjúkrahús á eft-
ir.
Sjóliðinn var tekinn fastur.
Serkfr ræ<la
griðaboð
Á lögreglustöðinni gaf hann þá
skýringu að negrinn hefði star-
að á sig, og þessvegna hafi sig
langað til að slá harin niður.
„Hefði þetta verið heima í
Virginia, hefði negrinn verið
barinn í hel“, sagði sjóliðinn
einnig.
Dönsk blöð, sem skýra frá
atburðinum, leggja til að yf-
irvöldin skýri bandaríska sendi-
ráðinu frá þvi, að í Danmörku
sé ekkj kynþáttamisrétti við
lýði, og negrar séu þar jafn-
réttháir hvítum mönnum.
llétiarbóÉ í
Rnanda-
Uriincli
Finnar hafa byggt ísbrjót, sem Rússar ltaupa samkvæmt verzlunarsainningi landanna. Þeg-
ar Mikojan varaforsætisráðherra var í heimsókn í Finnlandi nýlega var þessum ísbrjóti hleypr
af stokkunum í Helsinki og gefið nafnið „Leningrad“. Hann er 122 metrar á lengd og aflvél
hans er 22000 hestöfl. íhaldsöflin í Finnlandi hafa undanfarið reynt að spilla öllu verzlunar-
sambandi við Sovétrákin, en við lieimsókn Mikojans urðu íhaldsöflin að láta í lægra lialdi.
Gerður var verzlunarsamningur milli landanna til fimm ára, sem gerir Finnum kleyft að
sigrast á miklmn hluta atvinnuleysis og halda við vinnu í mikilvægum atvinnugreinum, svo
sem skipasmíðum og vélaiðnaði.
De Gaulle Frakklandsforseti
sagði fréttamönnum í gær, að
sendiráðum Frakka í Túnis og
Mamkkó hefði verið heimilað
að gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að samningamenn sem
útlagastjórn Alsír kynni að
vilja senda til Parísar til við-
ræðna við frönsk stjórnarvöld
gætu farið í griðum.
Útlagastjórnin sagði eftir að
ummæli de Gaulle urðu kunn,
að hún þyrfti sólarhrings frest
til að taka afstöðu til þeirra.
Stjómin sat á fundi í Túnis
í gærkvöld.
Nú þegar blóðugir bardagar
hafa blossað upp á belgiska
'verndargæzlusvæðinu Ruanda-
Urundi, hefur Belg'íustjórn átt-
&ð sig á að tími sé til kominn
að veita landsmönnum nokkra
sjálfstjórn. Á þingi í Brussel
í gær sagði de Scryever ný-
lendumálaráðherra, að stjórn-
ín ætlaði að koma á laggirnar
þjóðarráðum 'í báðum landshlut-
um fyrir lok næsta árs. Mark-
miðið væri að gera Ruanda-
Urundi eitt sjálfstætt ríki í
samræmi við óskir SÞ, sem þar
ihafa yfirumsjón.
íslendingar meðal þjóða. er for-
dæma kynþáttamisréttið
Kynþáttamisrétti íordæmt hvar sem er
í heiminum
Fulltrúar 36 þjóöa hjá Sameinuðu þjóðunum hafa á
allsherjarþinginu lagt fram tillögu um að víta misréttis-
stefnu stjórnar Suður-Afríku í kynþáttamálum.
Meðal flutningsaðila tillög-
unnar eru tsland, Noregur,
Svíþjóð, Indland og allmargar
þjóðir í Afríku og Asíu og
nokkrar Suðurameríkuþjóðir.
Samkvæmt tillögunni er lagt
til að allsherjarþingið mótmæli
kynþáttamisrétti hvar sem það
viðgengst í heiminum, og skor-
að er á allar meðlimaþjóðirnar
að haga stefnu sinni og að-
Framhald á 9. síðu
Þessi unga
kínverska
stúlka hefur
áunnið sér
frægð í
heimalandi
sínu fyrir frá-
bæra vinnu
við uppskeru-
störf, og nýj-
ungar sem
hún hefur
innleitt á
hnísgrjónaakri
kommúnunnar
sem hún er í.
íii beita w
Lýðréttindi afnumin og hernaðareinræði sett í stað-
- Sorgleg afdrif sjálfstæðis
inn
í nóvembermánuði í fyrra tóku erindrekar heimsvalda-
sinna aftur völdin í Súdan, sem nýlega hafði hlotið sjálf-
stæði. Meö hernaðarupphlaupi tókst hinum afturhalds-
sömustu öflum að ná völdunum, og síðan er þjóöinni
haldið í járngreipum réttindasviftingar og ófrelsis.
Abdullah Khalil fyrrverandi
forsætisráðherra og Wahab
hershöfðingi, höfðu forustuna
fyrir valdatöku afturhaldsafl-
anna, sem fengu ríkulegan
stuðning erlendis frá Þegar í
stað ríkti ógnarástand um allt
landið, Fjöldahreyfingar, sem
stofnaðar höfðu verið til að
berjast gegn heimsvaldastefn-
unni, voru leystar upp. Þing
þjóðarinnar var leyst upp,
stjórnmálaflokkar, verkalýðs-
félög og allar fjöldahreyfingar
voru bannaðar og sömuleiðis
vinstrisinnuð og frjálslynd
blöð. Stjórnarskrá landsins var
afnumin og hernaðarástandi
lýst yfir. Slíkt ástand varir
enn og lýst hefur verið yfir
hernaðareinræði í landinu.
Þar með er þó ekki öll sag-
an sögð. Lög í fasistískum stíl
hafa verið innleidd. Hin svo-
kölluðu „Lög til verndar Súd-
an“ veita lögreglunni heimild
til. að gera húsrannsókn og
taka menn til spurninga án
no'kkurrar ástæðu. Hægt er að
halda fólkj í fangelsi ótakmark-
aðan tíma án þess að gefa upp
neina ástæðu
Verkalýðsleiðtogar fangelsaðir.
Þetta hafa einræðisvöldin
notað sér út í æsar. 70 vinstri-
sinnaðir leiðtogar eru í fang-
elsi og margir hafa verið send-
ir í útlegð í hin afskekktu og
einangruðu héruð í suðurhluta
landsins. Enginn veit hvenær
yfirvöldunum þóknast að höfða
mál gegn þeim, eða hvort þau
ætla að gera það.
18. júní sl. handtók lögregl-
an Abdel Khalic Mahgoub, for-
mann Bandalags heimsveldis-
andstæðinga, en þau samtök
hafði einræðisstjórnin leyst
upp. Fimm sinnum hefur lög-
reglan látið 1 veðri vaka að
honum yrði sleppt, en hann er
samt enn í haldi.
iÞó hafa yfirvöldin tilkynnt
að Mahgoúb verði stefnt fyrir
rétt og hann sakaður um
kommúnisma. En honum hefur
verið neitað um verjanda. Lög-
,fræðingurinn Hag E1 Tahir var
þegar í stað handtekinn, þegar
fréttist að hann ihefði í hyggju
að gerast verjandi verkalýðs-
leiðtogans,
Mikil ólga er í Súdan út af
hinum sorglegu afdrifum hins
nýfengna sjálfstæðis landsins.
Mörgum þykir nú sækja í sama
horf og var á verstu nýlendu-
árunum.
Krefst 30 rnillj. kr. skaðabóta
fyrir að fá ekki að svindla
Sjónvarpshneykslin í Bandaríkjunum æsa
upp aurasýkina í þeim sem engin
verðlaun unnu
Kona ein sem er lögfræðing-
ur í New York hefur höfðað
mál gegn sjóvarps- og útvarps-
fyrirtæki vegna þess að henni
Var, að eigin áliti, mismunað i
hinuni alræmdu spurningaþátt-
nm bandarískra sjónvarps-
stöðva.
1 ákæru sinni orðar kven-
Íögfræðingurinn þetta þannig,
að hún hafj „á sviksamlegan
hátt“ verið látin missa af verð-
launum, sem nema nærri 8
millj. ísl. króna í sjónvarps-
spurningaþætti.
Málshöfðun frúarinar er í
beinu samhandi við nýlega upp-
komin svik 'í slíkum spurninga-
þáttum, þar sem nok'krir þátt-
takendanna fengu svörin við
spurningunum fyrirfram með
þeim afleiðingum, að þeir unnu
geysiháar f járhæðir fj’rir mikla
bg víðtæka „þekkingu“.
Kvenlögfræðingurinn, sem
heitir Ethel Davidson, fullyrðir
að sá sem hún keppti við í
spurningaþættinum, Herhert
Stepmel, hafi fengið hjálp hjá
forráðamönnum sjónvarpsins.
Sjálf hafi hún, þegar hún tap-
aði, verið „ofurseld ljótu og ó-
þægilegu opinberu slúðri, og
menn hafi gert grín að sér.“