Þjóðviljinn - 11.11.1959, Side 6

Þjóðviljinn - 11.11.1959, Side 6
6) —- ÞJÓÖVILJINN — Miðvikudagur 11. nóvember 1959 þlÓÐVILIINN OtKeXaudl: Sameiningarfloitltur alÞýOn - ðöslallstafloklcunnn. - Ritstjörar. BLJart&nsson <áb.i. ðiKurður Ouðmundsson - PréttarltstJórl: Jón BJarnason. - Blaðamenn: Asmundur Slgurjónsson. Eystelnn Þorvaldsson. Onðmundur Vlgfússon,. ívar H. Jónsson. Magnús Torfl Ólafsson. ðlKurður T FriðÞJófsson. - Auglýslngastjórt: Guögelr Magnússon.^ — RltstJórn af- cT*iösia. auglýslngar. prentsmlðja: Skólavörðustig \9 - Síml 17-500 (H Itnur). - Askrlftarverð kr 30 á mánuðl - Lausasöluverð kr 3 Prentsmlðja ÞJóðvllj»n* Skilningur á nýungum I»ær breytingar er nú verið að gera á fyrsta nýsköpun- artogáranum sem kom til ís- ianrlgy Ingóífi Arnarsyni, að verið er að setia í hann dísii- vél í stað olíukyntrar gufu- vélar.,.sem verið hefur í skip- inu. Aí ' bessu tiiefni skrifar Morgunblaðið forustugrein í gaer. þar sem það minnist á þessa breytingu sem ■ sönnun þess hversu fljótir íslendingar séir að t.ileinka sér nýungar og segir: ..íslenzka þjóðin hefur á síðari tímum verið mjög fljót að tileinka sér tæknilegar ný- ungar og hefurj það oftast leitt til blessunar. Þegar um er að ræða endurnýjun togaraflot- ans, er það sérstaklega nauð- synlegt að ekkert fari fram hjá landsmönnum, er til framfara horfir, og má fullyrða, að svo mun ekki verða, þar sem ís- iendingar eiga svo marga sér- fróða og þaulreynda menn í þessum efnum“. Sjálfsagt er að taka undir hvatningarorð Morgun- blaðsins um það að íslending- ar láti ekkert það fram hjá sér íará sem horfir til framfara, en dísilvélin í Ingólf Arnarson ér því miður ekki dæmi um það hversu fljótir forráðamenn togaraútgerðarinnar éru að til- einka sér nýungar, heldur hið gagnstæða. Þegar Einar Ol- geirsson boðaði nýsköpunar- stefnuna í ræðu sinni 11. sept- ember 1944 gerði hann það sérstaklega að tillögu sinni að keyptir yrðu til landsins „20— 30 nýir dísiltogarar af beztu gerð“. Þegar samningar höfðu tekizt um nýsköpunarstefnuna og farið var að ræða fram- kværnd hennar við útgerðar- menn í nýbyggingarráði, kom í ljós að útgerðarmenn voru algerlega fráhverfir því að kaupa dísiltogara; þeir vildu í staðinn að keyptir yrðu kola- togarar! Varð úm þetta al.1- ' íhikifl ágreiningur, og j Sóh- stakri togarakaupanefnd ' sém skipuð var, var að lokum gerð sú málamiðlun að keyptir skyldu... olíutogarar. 17ngu að síður ákvað nýbygg- ingarráð að láta gera tvo dísiltogara til þess að reynsla fengist af þeim við íslenzkar aðstæður. Þegar farið var að úthluta togurunum kom í ijós að enginn útgerðarmaður vildi taka við dísiltogurunum! Voru þeir að lokum dæmdir upp á Bæjarútgerð Reykjavíkur, og fékk hún 6 olíutogara og tvo dísiltogara. Komst þá einn af forráðamönnum Bæjarútgerðar- innar svo að orði að sú stofn- un væri grátt leikin — hún fengi aðeins sex togara! Með dísiltogurunum kvaðst hann alls ekki vilja reikna; þeir væru ekki ávinningur heldur baggi. I IT'immtán ár eru nú liðin síðan ■*• Einar Olgeirsson flutti til- lögu sína um kaup á dísiltogur- um. Afmælisins er minnzt með því að Ingólfur Arnarson, sem forráðamenn útgerðarinnar vildu að yrði kolakyntur, en varð olíukyntur, verður nú eft- irleiðis knúinn dísilvél. Og Morgunblaðið skrifar forustu- grein um það hversu fljótir ráðamenn útgerðarinnar á ís- landi séu að tileinka sér ný- ungar. Mættum við fá að smakka? Sölujúí&töð hraðfrystihúsanna hefur, áð undanförnu geng- izt fyrir miklum áróðri til að vegsama verksmiðju eina sem f ölumiðstöðin hefur komið upp í Bandaríkjunum og hefur gert það að sérgrein sinni að búa íiskflök á sem beztan og þægi- iegasta hátt upp í hendur hús- mæðra. Fer af því mikið orð hversu ljúffeng flök þessi séu og hversu lítið húsmæður þurfi íyrir því að hafa að búa þau ti' matar. Ekki hefur Sölumið- ítöðin neitt minnzt á gjaldeyris- mál í þessu sambandi, og hefur þó sérstaklega verið um þau spurt í sambandi við verk- smiðju þessa og annað dreif-. ingarkerfi Sölumiðstöðvarinnar erlendis. Tj’n það er einnig annað sem ■^ vekur nokkra furðu. Hvers vegna hefur Sölumiðstöð hrað- frystihúsanria ekki haft neinn áhuga á því að koma slíkri verksmiðju upp hérlendis, til að tryggja íslenzkum húsmæðr- um litla fyrirhöfn og góða og ljúffenga fæðu? Það er tvíbent ánægja sem íslenzkar húsmæð- ur hafa af því að frétta hversu góður og vel fram boðinn ís- lenzkur fiskur sé í útlöndum, á sama tíma og hér fæst lang- timum saman ekkert annað en úrkast sem er algerlega ósam- bóðið mestu fiskveiðaþjóð heims. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna myndi eflaust hagnast á því að koma upp slíkri verksmiðju hérlendis. Og jafrjyel þótt hagn-; aðurinn yrði eitthvað minni en í Bandaríkjunum, mætti stofn- unin sýna það í einhverju að hún kann að meta það að öll starfsemi hennar er greidd í neyzlusköttum af íslenzkum fiskætum. Þorvaldur Þórarinsson Við felldum báðir hug til sömu stúlkunnar og höfum síð- an verið að hittast öðru hvoru, og alltaf á hennar leiðum. Ég man eftir þér í forustu rót- tækra stúdenta. Þú gekkst ein- arður fram og vildir snemma standa í bardaga, og ef þú hefðir verið uppi á dögum Egils er ekki að vita hvað ungur þú hefðir „höggvið mann og annan“. Tímarnir voru líka bardaga- hcitir: kreppá. stöðugar kröfu- göngur. ve.rkfön og oft slags- mál. nazístaStrólar að vaða uppi og bæjarstjórnin eins og hún var. Við fórum í hverja kröfugöngu með öðrum at- vinnuleysingjum. Og þá hófst stríðið vegna skáldskaparins. Við mættum henni oft og manstu hvað hún brosti stundum örvandi? Þeg- ar Halldór var beðinn að hætta lestri á Þórði halta í Iðnó reiddumst við úr hófi fram og stofnuðum til mótmælafundar í Nýja Bíó með háreysti svo að þakið ætlaði af húsinu. Og eft- ir það gengum við í Hvíta- sunnusöfnuð Kiljans, sem Þór- bergur kallar svo heitur af af- brýðisemi, vitandi ekki sjálfur að hann er okkar eini guð en Halldór bara skáldið, í hæsta lagi skáld guðs. Þá var ekki verið að setja Ijós sitt undir mæliker, stofn- að byltingarfélag rithöfunda og bókaútgáfur með stórum nöfn- um. Og þú varst úr hópi ungra sveina valinn verzlunarstjóri Heimskringlu, áttir með öðrum orðum að koma byltingunni á markaðinn. Og hver var bylt- ingin; Halldór, Þórbergur, Gunnar, Jóhannes úr Kötlum, Steinn Steinarr, Halldór Stef- ánsson og aðrir fuglar sem fáir vildu á þeim árum sjá bók eftir. Þær þóttu ýmist lúsugar eða með hrökkálum; þar sem menn nú finna ilm rósa og heyra þrastasöng í skógi. Á Heimskringlu hlóðust skuldir og víxlar, og ef þér tókst að reyta upp í víxil var það ekki fyrr en á síðasta degi eftir lokun- artíma í bönkum svo að varð að leita til við bakdyrnar. En hví skyldi ég vera að rekja þetta lengur? Þú fórst til Bandaríkjanna að forframa þig, varst lengi í burtu, en einhvernveginn vissi ég alltaf af þér, því að þú ert þannig gerður að ef maður einu sinni kynnist þér þá liggja til þín svo sterkar taugar. Og svo var stúlkan öðru hvoru að minna mig á þig. Eftir að þú komst heim höf- um við oft orðið samferða og hitzt á hennar leiðum. Her- námið kom og þær særingar allar gegn þjóðinni, og þú safn- aðir yfir 28 þúsund íslending- um til að mótmæla refsingu þeirra sem vildu forða landinu frá smán. Og síðustu árin höf- um við haft einstaklega skemmtilegt samstarf í MÍR: alltaí að mennta þjóðina og reyna að koma viti fyrir hana. Menn eru undarlegir og þú ert einn af þeim. Ég skil vel ! Í 111 Íll ,tll g li F að þú reiddist Þórði halta. Hann vildi fara að öllu með lagi. bú vilt ekki fara að neinu með lagi. Og að hinu leyti finnst mér þú hvergi eiga bet- ur heima en í háu diplómatíi og ættir helzt að vera ambassa- dor í Washington. Þú ert með afbrigðum félagslyndur. en ert þotinn á fjöll áður en nokkur veit af og' dorgar einn þíns liðs í ám eða vötnum tímun- um saman. Enginn er bundnari Flokknum, en þó finnst mér þú alltaf standa einn í flokki. Einu sinni afneitaði Brynjólfur þér á sjálfu Alþingi, það var í eina skipti sem þú vildir fara að Þorvaldur Þórarinsson með lagi, og það var við dana- konung. En þú tókst ekkert mark á þessari afneitun. Hvað oft sem þér kynni að verða af- neitað yrðir þú eftir sem áður innstur í Flokknum. Og eitt hef ég aldrei skilið: hvað þú ert gefinn fyrir að þrátta á fund- um. Mér finnst fundir beztir þegar allir þegja nema Einar. En hver er stúlkan? Hún er töframær. Á dögum Jónasar var hún með rauðan skúf á peysu. Þorsteini var hún eina lífið og hann sá hana í bjartri mynd. Ég hef grun um að í þínum augum sé hún mjög björt. Jóhannes úr Kötlum mætti henni á hjóli með drengjakoll. En þegar ég sá hana síðast var hún með tindr- andi svört augu og þykkar fléttur niður á bak. Hún er síung og verður fegri með hverjum degi. í fvrsta sinn sem ég sá að hún hló við þér varð svipur binn svo bjartur og augun svo hlý að ég get ekki gle.ymt því. Meðan hún er á leið þinni þarftu ekki að* ótt- ast neinn aldur. Ég óska þér til hamingju með samfylgd hennar. Kr.E.A. ★ Svo stendur á bókum að Þor- valdur Þórarinsson sé fimm- tugur í dag'. Þetta má vel satt vera þó að aldrei hafi mér til hugar komið að líta á Þorvald öðruvísi en sem ungan mann. Hann hefur sem sé til að bera þann hæíileika sem öðrum ‘fremur heldur mönnum ung- um: óslökkvandi áhuga á mörgum eínum og ólíkum svið- um. -Lærdómsgrein hans og meginstarf, lögfræðin. er mér lokuð bók; kunningsskapur - okkar er ekki af lögfræðilegum toga. Hins vegar þykir mér fullvíst að þau einkenni Þor- valds sem ég hef kynnzt og met mest séu honum betri en engin í daglegu starfi. Ég á hér ekki sérstaklega við harð- vítugan baráttuvil.ia hans í stjórnmálum og félagsmálum, scm hefur þó verið drjúgur þáttur í ævistarfi hans, Ég á miklu fremur við hitt að mér er til efs að Þorvaldur hafi nokkru sinni setið sig viljandi úr færi á að fylgjast með því sem til menningar má teljast á þessu landi. og það allt að einu þó að afleiðingin hafi orðið næt-. urvinna og svefnmissa. Hjálp- fús maður á ævinlega naumt skammtaðar tómstundir. En Þorvaldur hefur notað sér þær vel; hann er með ólíkindum fróður um marga hlutit ekki sízt í bókmenntum og tónlist. Og hann hefur áunnið sér það viðhorf og þann skilning á fræðimennsku og vísindum sem oft skortir á þessu landi: að gera skýran mun á káki og því sem unnið er af trúmennsku, í hverium fræðum sem vera skal. að mæla ekki afrek ís- lenzkra manna við innlendar hundaþúfur heldur á alþjóð- legan mælikvarða. Þorvaldur hefur löngum ver- ið mikill laxveiðimaður og ferðamaður. Leyndardómar lax- veiðinnar eru mér litlu skiljan- legri en lögfræði; en ég hef verið með Þorvaldi á ferðalög- um og lært að meta dugnað hans og félagslyndi, en engu síður tilfinningu hans fyrir ís- lenzkri náttúru og trú hans á landið og fólkið sem það bygg- ir. Það skal því verða afmælis- ósk mín að honum megi verða að trú sinni. Jakob Benediktsson. ★ Undanfarna morgna frá kl. rúmlega sjö til um 11 hefi ég setið á skrifstofu Þor- valdar Þórarinssonar við yf- irlestur á handriti um jarð- veg, sem ég vinn nú að. Þor- valdur er mjög málhagur, og því leitaði ég aðstoðar hans um orðaval, orðalag o. fl. Væri hann einráður, mynd- um við hefja yfirlesturinn kl. sex að morgni, til þess að geta unnið sem lengst ótrufl- aðir af símahringingum og heimsóknum' á lögfræðiskrif-5 stofuna. Það lýsir raunar vel skapgerð Þorvaldar, að hann, skuli í mikilli önn lögfræði- og félagsstarfa leggja svo hart að sér- vegna jarðvegs- fræðilegra verkefna, en þessi skapgerðareinkenni eru ó- venjulega alhliða áhugi og víðtæk þekking, hjálpfýsi og vandvirkni. Kunningsskapur okkar Þor- valdar hófst haustið 1941, er við urðum samskipa og sam- ferða til íþöku í Bandaríkjun- um, þar sem Cornell háskóli er til húsa. Þorvaldur. Iagði Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.