Þjóðviljinn - 12.11.1959, Qupperneq 9
-•— Fimmtudagur 12. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN ■— (9
SÖLUSKATTUR
]
Mugsmilegt að í sömu ferð rerði keppt
rið Uen elux~löndin og Frákkland
Dráttarvextir falla á söluskatt og útflutningssjóðs-
gjald. svo og farmiða- og iðgjaldaskatt samkv. 40.
—42. gr. laga nr. 33 frá 1958, fyrir 3. ársfjórðung
1959, svo og vangreiddan söluskatt og útflutnings-
sjóðsgjald eldri ára, hafi gjöld þessi ekki verið greidd
5 síðasta lagi 15. þ.m.
V
Að þeim tíma liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá
skilað gjöldunum.
Stjórn Handknattleikssam-
bands íslands ræddi við frétta-
menn og skýrði frá því að um
iangan tíma liefðu staðið yfir
bréfaskipti inilli Vestur-Þjóð-
verja og HSÍ og væru miklar
líkur til þess að úr landsleik
yrði. Þó sagði Ásbjörn Sigur-
jónsson, formaður HSl, að
endanlega væri ekki frá þessu
gengið.
Þá sagði Ásbjörn að ef af
þessu yrði væri í ráði að leita
hófanna við Belgíu, Lúxem-
borg, Holland og Frakkland
um landsleiki í sömu ferðinni
og þegar ákveðið væri um leik-
inn við Þýzkaland yrði hafizt
handa um samninga við lönd
þessi.
Er ætlunin að leikurinn við
Þjóðverja hér heima fari fram
í maí, og gert er ráð fyrir
að liann fari fram á Laugar-
dalsleikvanginum. Aftur á
móti er ætlunin að fara utan
með landsliðið íslenzka í marz.
Þjálfun landsliðsins ákveðin
Þá gat formaðurinn þess að
stjórnin hefði fengið einn tíma
í viku í Iþróttahúsi Vals til
æfinga fyrir landsliðið, og auk
þess ætlaði Benedikt Jakobsson
að æfa þá í þrekþjálfun einn
tíma í viku, og yrði sá tími
á laugardögum.
Hallsteinn Hinriksson hefur
verið ráðinn til að þjálfa liðið
og annast æfingarnar á mið-
vikudögum.
Landsliðið verður valið eftir
að Reykjavíkurmótinu lýkur
og verða valdir um 20 menn
til æfinga, en þann hóp velur
landsliðsnefndin sem nýlega
hefur verið sett á laggirnar Og
er skipuð þessum ' mönnum:
Hannes Þ. Sigurðsson, Þórður
Þorkelsson og Bjarni Bjöms-
son.
Verður hafizt har.da um
þjálfun landsliðsins eins fljótt
og kostur er. Mun sjálfsagt
ekki af veita, ef við eigum að
geta staðið eitthvað í hinum
sterku V-Þjóðverjum, sem eru
með beztu þjóðum heims í
handknattleik.
Vafalaust er það ætlun
stjórnar HSl að æfingar þær
sem landsliðið á að sækja á
vegum þess komi sem viðbót
við þær æfingar sem félögin
veita, annars ná þær ekki fylli-
lega þvi sem þeim er ætlað.
Það getur líka haft sín slæmu
áhrif ef þær yrðu til þess að
Jeikmenn stunduðu ekki æfing-
ar í félögunum, en þau verða
að vera sá vettvangur sem er
undirstaða undir almennum
góðum handknattleik.
Þá .gat formaðurinn þess að
skipuð hefði verið laga- og
Jeikreglnanefnd og í lienni
væru Hannes Sigurðsson, Frí-
mann Gunnlaugsson og Sveinn
Ragnarsson, Ættu þeir einir
að taka fyrir mótafyrirkomu-
lag i framtíðinni og skila áliti
í vor.
Skattur af íslandsmótum
til HSl!
Ásbjörn gat þess að mikið
hefði verið rætt um fjármál á
nýafstöðnu þingi sambandsins,
enda ætti sambandið við fjár-
hagsörðugleika að stríða. Það
nýmæli hefði þó verið sam-
Síðari keppnin sem Badmin-
tonfélagið efndi til fyrir
dönsku badmintonleikarana,
var á sunnudaginn og vöktu
þeir þá ekki síður athygli fyr-
ir snjallan leik, bæði í tvíliða-
leik og eins í einliðakeppni.
Fyrsti leikur þeirra var í tví-
liðakeppni og voru þeir sam-
an, en á móti þeim léku bræð-
urnir Óskar og Lárus. Mun
leikur þessi hafa átt að sýna,
hvað okkar menn af bezta fl.
í tvíliðaleik gætu í viðureign
við þessa snjöllu menn, en Lár-
us og Öskar eru í betri hópi
badmintonleikara hér. Leikur-
inn varð ærið ójafn, því að
Jörgen og Henning unnu fyrri
leikinn með 15:0 og þann síð-
ari með 15:2. Danir þessir
leika að jafnaði saman í tví-
liðaleik i Danmörku og eru því
samleiknir, en það þurfti ekki
til; yfirburðir þeirra hvað
leikni snerti voru svo miklir,
að úrslit leikjanna segja nokk-
uð til um mismuninn.
Næsti leikur var eir.nig tví-
liðakeppni, en nú voru þeir
ekki eaman, heldur höfðu sinn
Islendinginn hvor: Jörgen
hafði Einar Jónsson og Henn-
ing hafði Vagn með sér. Leikir
þessir voru mun betri en á
miðvikudaginn, og var greini-
legt að þeir féllu miklu betur
saman en þá. Það fór líka svo,
að leika varð aukaleik. Fyrsta
ieiþinn unnu Jörgen og Einar
15:10, en Vagn og Henning
unnu næsta með yfirburðum
eða 15:4, og þeir unnu líka
þann síðasta með 15:10.
Eini leikurinn þar sem Is-
lendingar voru eingöngu kepp-
endur var tvenndarkeppni. Þar
kepptu Þórir Jónsson og Júlí-
ana Isebarn annarsvegar og
Þorvaldur Ásgeirsson og Hulda
Guðmundsdóttir hinsvegar. —-
Þórir og Júlíana byrja vel og
vinna fyrri leikinn með 15:2,
en svo brá við að næsta leik
unnu þau Þorvaldur og Hulda
með 15:11. Þórir og Júlíana
byrja aukaleikinn vel en hin
sækja sig og ná jöfnu 12:12,
en í lokasprettinum veitti Þóri
og Júlíönu betur og unnu
15:12.
þykkt að greiða skyldi eina
krónu af hverjum seldum að-
göngumiða á leikjum Islands-
móta. Mundi fjárhagurinn lag-
ast nokkuð við það.
Lagt hafði verið til að skatt-
ur yrði líka lagður á. erlend-
ar heimsóknir en það var fellt
með nokkrum meirihluta þings-
ins.
Úr 5:13 í 14:14!
Síðasti leikur keppninnar
var milli gestanna í einliðaleik,
og var hann frá byrjun
skemmtilegur; sýndu báðir góð
tilþrif og ekki síður Jörgen,
þótt hann tapaði. Fyrri leikur-
inn endáði með 15:8 fyrir
Henning. Þá var sem Jörgen
vildi þó það sem eftir væri
gera landa sínum lífið svolítið
erfitt. Og nú tók hann fram
frábæran leik og notaði allar
tegundir högga, sem fékk á-
horfemlur til að æpa og klappa
og linnti þessum látum ekki
fyrr en leikar stóðu 14:14, og
var það afrek útaf fyrir sig
gegn manni eins og Henning
er. I lokasprettinum varð
Henning svo harðari og vann
17:15.
Góðir fulltrúar íþróttar sinnar
Það má fullyrða að þessir
tveir menn eru þeir snjöllustu
sem hingað hafa komið og sýnt
badminton, enda hafa þeir orð-
ið meistarar í mörgum löndum.
Tilgangur Tennis- og bad-
mintonfélagsins með heimboði
manna þessara var án efa sá
að sýna badmintonleikendum
badmintonleik, sem er í flokki
þess bezta sem völ er á í heim-
inum. Tilganginum var sannar-
lega náð, og munu margir hafa
kunnað að meta það. Þó munu
margir þeirra sem töluvert æfa
badminton ekki hafa notað sér
,,kennslu“ þessara -snillinga, og
tæpast horft á þá. Ágætur bad-
mintonmaður lét í ljósi við I-
þróttasíðuna að það mætti telja
merkilegt að það skyldi takast
að fá svo góða menn hingað
til að sýna badminton, og af
þeim hefði verið ákaflega
margt að Iæra.
Að keppninni lokinni var
gestunum haldin veizla og var
þeim boðið hangikjöt og flat-
kökur m.a. og borðuðu þeir
það með beztu lyst.
Farið var með gestina til
Þingvalla og komið við hjá
Grýtu og var hún svo vin-
samleg að gjósa fyrir þá. —
Fannst þeim mikið til koma
um gosið og lanidslagið þar
eystra. Þeir fóru heim á
mánudag6morgun.
Snilli dönsku kdiinionleikaranna
nant sín ekki síiur á sunnudapn
Reykjavík. 9. nóvember 1959.
Tollstjóraskrifstofan,
Arnarhvoli.
VÖRUMERKI
vandaðrar fram-
leiðslu aí öllum gerð-
um teppa og dregla
í fjölbreyttu úrvali
munstra, lita og gæða.
ALULLAR-
HÁR- og HAMP-
TEPPIOG DREGLAR
CENTROTEX 6701 — PRAHA
EINKAUMBOÐ:
Páll Jóh. Þorleifsson h.f.
Umboðs- og hcildverzlun, Reykjavik.
Skólavörðustíg 38 — Símar: 15416, 15417.