Þjóðviljinn - 21.11.1959, Page 1
Laugardagur 21. nóvember 1959 — 24. árgangur — 256, tbl.
M þurfa öll samtök vinnandi stétta
að vera vel á verði nm hag og rétt
Einar Olgeirsson varar rikisstjórnina v7ð ráSstöfunum
sem skerSi kaupgetu og afkomu almennings
mennska
I fréttum ríkisútvarpsins í
gærkvöld var flutt í heild ræða
Ólafs Thors um stefnu núver-
andi stjórnar; hins vegar var
aðeins mjög lauslega vikið að
ræðum Einars Olgeirssonar og
Eysteins Jónssonar. 1 þing-
fréttatíma síðar um kvöldið
var ræða Ólafs Thors enn flutt
í heild (í þriðja sinn), en ekki
minnzt á það einu orði að Ein-
ar og Eysteinn hefðu lýst af-1
stöðu sinna flokka. Er þetta
vægast sagt kynleg frétta-
mennska hjá hinu „hlutlausa'*
ríkisútvarpi; og er mönnum
spurn hvort þetta sé fyrirboði
þess sem koma skal.
Á þingfundi í gær lýsti Einar Olgeirsson yfir andstöðu
Alþýðubandalagsins við hina nýju ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflokksins. Ræddi hann sérstaklega
ummæli Ólafs Thors um að þjóðin hefði lifað um efni
fram, varaði ríkisstjórnina alvarlega við því aö gera enn
frekari ráð'stafanir til aö skerða kjör verkfólks og skoraði
á öll alþýðusamtök aö vera vel á verði um hag sinn og
rétt.
Einar komst þannig að orði
í ræðu sinni:
„Alþýðubandalagið er í and-
stöðu við þessa ríkisstjórn.
Góðum málum mun það vissu-
lega fylgja, hvaðan sem þau
koma, en oss uggir að alþýða
manna megi vænta ihra tíð-
inda og árása á hag sinn, þeg-
ar ein ríkisstjórn byrjar að
berja, barlóminn um að þjóð-
in hafi lifað yfir efni fram.
Slíkur barlómur er venjulega
yfirskyn afturhalds og yfir-
stétta til þess að skapa það
pólitíska andrúmsloft, er geri
hægara fyrir um árásir á lífs-
kjör alþýðu.
Óstjórn á þjóðarbú-
skapnum.
Það er ekki aðalmeinsemd ís-
ienzks efnahagslífs, að þjóðin
hafi lifað yfir efni fram, —
heldur 'hitt að í heilan áratug
var vanrækt að auka svo efni
hennar, — þ.e. framleiðslutæk-
in, — að þau stæðu undir
eðlilegum og vaxandi kröfum
fólks til lífsins, og að enn
hefur ekki verið komið heild-
arstjórn á þjóðarbúskap Is-
lendinga, er sameinj krafta
þjóðarinnar til voldugra, sam-
stilltra átaka í uppbyggingu at-
vinnulífsins á grundvelli rétt-
látrar skiptingar þjóðartekn-
anna,
111 reynsla þegar fengin.
Þeir tveir flokkar, sem nú
hafa myndað sameiginlega rík-
• sstjórn, hófu í vetur harkalega
árás á lífskjör alþýðu og rétt-
índi verkalýðssamtakanna.
Stefnuyfirlýsing hæstvirtrar
ríkisstjórnar og ummæli stjórn-
5,rblaðanna gefa ástæðu til að
óttast að reynt verði að halda
áfram á þeirri óheillabraut
lífskjararýrnunar og réttinda-
skerðingar
„Sérfræðingar" slæmur
fyrirboði.
Það er venjulega vá fyrir
dyrum hjá almenningi, þegar
ríkisstjórn fer að boða rann-
sókn sérfræðinga, til að skapa
„traustan efnahagsgrundvölT*.
Frá því íslenzk yfirvöld hættu
að treysta eigin dómgreind í
slíkum málum og tóku að
sækja til útlenzkra efnahags-
ráðunauta til þess háttar ráð-
Framhald á 11. síðu.
Forseti íslands flytur þingsetningarræðu sína. Hann er í nýjiim
rœðustól, og eru frainan á stólnum landvættir Islands, skornir
af Sveini Ólafssyni. Fyrir aftan sést „virki“ það sem gert hef-
ur verið kringum stól þingforseta o.g ritara; bæði það og ræðu-
stóllinn eru úr reyktri eik, en Hörður Bjarnason og Sveinn
Iíjarval hafa staðið fyrir Iiimim nýju íramkvæmdum.
Sérfræðingar eru að reikna úf
„bjargráð" nýju stj ór nar innar
Ólafur Thors forsætisráðherra
flutti í gær á þingi stefnuyfir-
lýsinau hinnar nýju stjórnar.
Fer hún í heild hér á eftir:
„Að undanförnu hafa sérfræð-
inear unnið að ýtarlegri rann-
sókn á efnahagsmálum þjóðar-
innar. Skjótlega eftir að þeirri
rannsókn er lokið mun ríkis-
stiórnin leaeja fvrir Alþingi til-
löeur um löefestingu þeirra úr-
ræða, er hún telur þörf á. At-
hueanirnar hafa þó þegar leitt
í liós, að þjóðin hefur um langt
skeið lifað um efni fram, að
hættulega' mikill haili hefur ver-
ið á viðskiptum þjóðarinnar við
útiönd, tekin hafa verið lán
erlendis til að greiða þennan
halla og að erlend lán til stutts
tíma eru orðin hærri en heil-
brigt verður talið. Munu tillög-
ur ríkisstjórnarinnar miðast við
að ráðast að þessum k’jarna
vandamálanna, þar eð það er
meginstefna ríkisstjórnarinnar að
vinna að því, að efnahagslíf
þjóðarinnar komist á traustan
og heiibrigðan grundvöll, þannig
■að skiiyrði skapist fyrir sem
örastri framleiðsluaukningu, aliir
hafi áfram stöðuga atvinnu og
lífskjör þjóðarinnar geti í fram-
tíðinni enn farið batnandi. í því
sambandi leggur ríkisstjórnin á-
herzlu á, að kapphlaup hefjist
ekki á nýjan leik miili verðlags
og kaupgjalds og að þannig sé
haldið á efnahagsmálum þjóðar-
innar, að ekki leiði til verð-
bólgu.
Til að tryggja, að þær heildar-
ráðstafanir, sem gera þarf, verði
sem réttiátastar gagnvart öllum
almenningi, he.fur ríkisstjórnin
ákveðið:
1) að hækka verulega bætur al-
mannatrygginganna, einkurrt
fjölskyldubætur, ellilífeyri og
örorkuiífeyri.
2) að afla lánsfjár til íbúðabygg-
inga almennings.
3) að koma lánasjóðum atvinnu-
veganna á traustan grundvöll.
4) að endurskoða skattakerfið
með það fyrir augum fvrst
Framhald á 10. síðu.
Fríverzlunarsvæðið
komið á laggirnar
í gær var gengið í Stokkhólmi frá samkomulagi sjö
Vestur-Evrópuríkja um stofnun fríverzlunarsvæöis.
Ráðherrar frá Austurríki,
Danmörku, Bretlandi, Noregi,
Portúgal, Sviss og Svíþjóð settu
fangamörk sín undir samning
um stofnun fríverzlunarsvæðis-
ins.
Ríkin sjö hyggjast afnema tolla
á iðnaðarvörum hvert gagnvart
öðru á tíu árum. Gert er ráð
fyrir að þing allra aðildarríkja
staðfesti samninginn fyrir marz-
lok, svo að fyrsta tollalækkunin
geti komið iil framkvæmda í
júlíbyrjun.
Frystur fiskur
Eitt síðasta ágreiningsefnið var
útflutningur Norðurlanda aí
frystum fiski til Bretlands. f
fyrrinótt náðist samkomulag
milli fulltrúa Norðmanna og
Breta um að Bretar flytji inri
árlega ailt . að 24.000 lestir af
frystum fiski frá Danmörku,-
Noregi og Svíþjóð með sömu
tollaívilnunum og iðnaðarvarn-
ingurinn nýtur. Á síðasta ári
seldu þessi ríki 5000 lestir af
Framhald á 11. síðu,
Deíldafundir
Fundir í öllum deildum
á mánudagskvöld.
Sósíalistafél. Reykjavíkur