Þjóðviljinn - 21.11.1959, Page 5

Þjóðviljinn - 21.11.1959, Page 5
Laugardagur 21. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5 nGeriS skyldu ykkar", agSi Dale dómari s álsókn Um tveir tugir grímu- manna ruddust í apríl í voru inn í fangelsi í Poplarville í Mississippi í Bandaríkjunum 'og höfðu fangann Mack Charles Parker, 23 ára svertingja, á brott með sér. Nokkrum dögum síðar fannst lík Parkers með mörgum skotsárum 1 á í nágrenninu. í fyrri viku úrskurð- aði kviðdómur í Pearl River sýslu, að engin á- stæða væri til málshöfð- unar gegn þeim sem myrtu Parker. Rannsókn morðsins var fal- in alríkislögreglu Bandaríkj- anna, sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði ver- ið farið með Parker yfir fylkjamörk og því ætti fylk- iedómstóll en ekki alríkis- dómstóil að fjalla um mál hans. Tíu nefndir Alríkislögreglan skilaði 378 blaðsíðna skýrslu um rann- sókn sína til Colemans fylk- isstjóra í Mississippi. Þar voru tíu menn úr morðingja- hópnum nafngreindir. Þessi skýrsla var send Vernon Broom, opinberum saksóknara í Pearl River sýslu. I fyrri riku kom svo kvið- dómur saman til að kynna sér .málavexti í málum sem búið er að rannsaka og kveða á um málshöfðanir. Kviðdómurinn starfaði und- ir yfirumsjón Sebe Dale idóm- ara, en Parker var tekinn úr fengelsinu og myrtur tveim dögum áður en hann átti að koma fyrir Dale og svara á- kæru um að hafa nauðgað hvítri konu. „Þið heyið nú orustu“ Áður en kviðdómurinn tók til starfa hélt Dale dómari ræðu yfir kviðdómendum, þar sem hann sagði meðal ann- ars: „Þið heyið nú bardaga fyr- ir lög okkar og dómstóla, fyr- ir varðveizlu frelsis okkar og lífshátta . . . Okkur ber að standa teinréttum gegn hverskonar harðstjórn . . . þar á meðal félagsfræð- inganefndinni sem klædd er dómaraskikkjum og sækir foridæmi sín til Gunnars Myr- dal“. Síðustu orðin eru sneið til Hæstaréttar Bandaríkjanna, lengi verið krafizt að hóp- morð verði látin koma undir alríkislöggjöf, en því hefur ekki fengizt framgengt. Til athugunar Rogers, dómsmálaráðherra Banidaríkjanna, hefur ákveð-'®" ið að höfða mál fyrir alríkis- dómstóli gegn morðingjum Parkers með þe:m rökum að þeir hafi brotið borgararétt- indi á fanganum og gert sam- særi um að meina honum að njóta lögverndaðs réttar síns. Auk þess hefur Rogers gef- ið í skyn að ríkisstjórnin kunni að beita sér fyrir laga- setningu sem koma hópmorð- um undir lögsögu alríkisdóm- stóla. Hann hefur kallað að- farir kviðdómsins í Pearl River sýslu „skrípamynd af réttarfari, svo ósvífið og yfir- vegað réttarbrot að ég hef aldrei kynnzt neinu þvílíku". Fangelsisklefinn í Poplarville eins og hann leit út eftir að morðingjarnir höfðu dregið Parker þaðan burt. Ættargripir undan rúmi taldir ómetanleg list Tíu málverk ítalskra meistara sögð fundin í Kaliíorníu Tíu gömul málverk sem ítalskur innflytjandi í Kali- fomíu geymdi undir rúmi sínu hafa, veriS úrskurðuð týnd verk meistara ítalskrar málaralistar. Málverkin fundust í svefn- herbergi italskrar innflytj- endafjölskyldu í borginni Sal- inas. Ættingi fjölskyldunnar Sebe Dale dómari Mack Charles Parker sem vitnaði í úrskurði sín- um um afnám kynþáttaað- skilnaðar í skólum til rits Myrdalshjónanna sænsku um hlutskipti svertingja í Banda- ríkjunum. „Gangið inn í kviðdóms- herbergið eins og menn, gerið ekyldu okkar, komið út eins og menn og gætið tungu ykk- ar“, sagði Dale dómari að lokum við kviðdómendur. Engin niðurstaða Kviðdómendur leystu störf sín af hendi þannig að Dale dómari mátti vel við una. Þeir úrskurðuðu að engin nið- urstaða væri fengin í morð- máli Parkers. I ljós kom að kviðdómnum var ekki einu sinni sýnd skýrsla ríkislög- reglunnar. Lögregluþjónarnir sem þá rannsókn fram- kvæmdu höfðu lýst sig fúsa til að bera vitni, en enginn þeirra var beðinn að koma fyrir kviðdóminn. Hópmorð á svertingjum sem ekki hafa þótt tök á að fá drepna samkvæmt dómi og lögum hafa legið í landi í Mississippi áratugum saman. Morðingjarnir sleppa jafnan við refsingu, því að mál þeirra eru látin kom fyrir fylkisdómstóla. Þess hefur Stúlkur reknar úr skólum TÍr að neita flenffingu Mótspyrnuhreyfi ng gegn hýðingum er komin meðal stúlkna í unglingaskólum í Skotlandi. upp Þar eins og annahsstaðar í skólum Bretlands tíðkast 22,11 metra fall- Joseph Killinger, bandarískur höfuðsmaður í flughernum, varp- aði sér í1 gær til jarðar úr loft- belg sem kominn var í 22.800 m. hæð. Fyrstu 19.800 metrana datt hann eins og steinn, en í 3000 metra hæð yfir eyðimörkinni í Arizona þandist út fallhlíf sem tryggði mjúka lendingu. Fyrra met í failhlífarstökki var 16.500 metrar. Sænska stjórnin hefur látið semja frumvarp um rafmagns- skömmtun, sem lagt verður fyrir þingið ef þörf krefur. Rafmagns- skortur er orðinn svo mikill sumstaðar í Svíþjóð að rekstur verksmiðja hefur torveldazt og jafnvel stöðvazt. Rafmagnsskort- urinn stafar af því að ár eru óvenju vatnslitar eftir þurrka- samt sumar. líkamlegar refsingar. Börn og unglingar eru barin með prik- um og ólum fyrir margvísleg- ar yfirsjónir. Skilyrði fyrir skólavist Um síðustu mánaðamót gerðist það í unglingaskólanum Bellshill Academy að tvær 14 ára stúlkur neituðu að láta leggja á sig hýðingar sem skólastjórinn hafði úrskurðað að þær skyldu þola. Foreldrar stúlknanna stóðu með þeim. Skólastjórinn rak þá stúlk- urnar úr skólanum, og kvað allan aga þar myndi fara úr skorðum, ef einistakir nem- endur slyppu við réttmætar refsingar. Ósiðlegt Nokkru síðar kom samskon- ar mál upp í Battlefield ung- lingaskólanum í Glasgow. Fjórtán ára stúlka, Jeanette Rooney, neitaði að láta James Garland skólast.jóra flengja sig fjögur ólarhögg. Hún hafði lent í stympingum við skóla- systur sína í skólabíl. Jeanette var tafarlaust rek- in úr skóla. Foreldrar hennar og hinna stúlknanna tveggja hafa nú snúið sér til fræðslu- málastjórnarinnar, Andstæð- ingar líkamsrefsinga benda á, að auk þess sem þær eru grimmdarlegar er það blátt áfram ósiðlegt að karlmenn skuli hýða hálfvaxnar stúlkur, jafnvel þótt það sé gert utan á fötin. hafði skilið þau þar eftir árið 1948. 160 milijóna virði. Nú hafa málverkin verið hreinsuð, og listfræðingur einn hefur kveðið upp þann úrskurð að meðal þeirra séu verk eftir meistarana Tizian, Tintoretto, Lorenzo og Caravaggio. Met- ur hann öll málverkin á 160 milljónir 'króna, en tekur fram að eitt þeirra, María Magda- lena eftir Caravaggio, verði í rauninnj ekki metið til fjár. Bandarísk blöð tala iim mesta listaverkafund aldarinn- ar, en ýmsir listfræðingar eru enn tortryggnir. Benda þeir á að ekki sé talið öruggt að svona gömul málverk séu ó- fölsuð nema að minnsta kósti þrem sérfræðingum beri sam- hn um uppruna þeirra. ítalska fjölskyldan sem í hlut á, segir að málverkin hafi verið í eigu forfeðra sinna í marga ættliði. Á sínum tírna hafi átt þau kardínáli sem dó 1887, og hann hafi fengið ein- hver þeirra frá Ferdínand, síð- asta konungi í Napoli. Gagntillaga frá Nehr'u Nehru hefur svarað tillögu Sjú Enlæ um afvopnað belti á umdeildum landamærum Ind- lands og Kína með gagntillögu. Vill Nehru að Kínverjar fari með her sinn í Ladakh austur- fyrir þá línu sem Indveriar telja vera landamærin, gegn því að indverski herinn fari vestur fyrir linuna sem Kín- verjar telja að s'kipti löndum. Nehru segir, að ekki sé til neins gagns að þeir Sjú hittist fyrr en búið sé að koma á bráðabirgðasamkomulagi sem tryggi kyrrð á landamærun- um.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.