Þjóðviljinn - 21.11.1959, Blaðsíða 12
Fjögra manna póker, ný skáld-
saga eftir Halldór Stefánsson
Heimskrinqla gefur út fimm nýjar bækur,
þ.á.m. nýjar barnabækur eftir Jóhannes
úr Kötlum og Jakobínu Sigurðardóttur
Bókaútgáfan Heimskringla hefur gefið út nýja skáld-
sögu eftir Halldór Stefánsson rithöfund. Nefnist hún
Fjögra manna póker.
Þetta er önnur skáldsaga Hall-
dórs Stefánssonar; hin fyrri var
Innan sviga, sem út kom hjá
Máli og menningu 1945. Annars
hefur Halldór getið sér mest orð
sem smásagnahöfundur; hafa
komið eftir hann fjögur smá-
sagnasöfn; einnig gaf Heims-
kringla í hitteðfyrra út úrval
úr þeim; hafa margar smásögur
Halldórs vakið mikla athygli,
Alþýðubandalag
Vesturlands
efnir til
Kvöldfagnaður
í samkomuhúsinu í Borg-
arnesi í kvöld kl. 9.
Ðagskrá:
1. Skemmtunin sett.
2. Upplestur: Gísli Hall-
dórsson.
3. Gamanvísur; Sólrún
Ingvadóttir.
4. Eftirhermur; Karl
Guðmundsson.
5. Ræða: Ingi R. Helga-
son.
6. Dans.
FuIItrúaráðið.
einnig erlendis þar sem þær
hafa verið þýddar. í>á hefur Hall-
dór einnig samið stutt leikrit og
sum þeirra verið flutt í út-
varpi; auk þess er hann sem
kunnugt er mikilvirkur og snjall
þýðandi. — Skáldsagan Fjögra
manna póker er 279 síður, prent-
uð í Hólum. Hún gerist í Reykja-
vík, og mun mörgum forvitni á
að kynnast henni.
Þá hefur Heimskringla gefið
út safn smásagna eftir færeyska
rithöfundinn William Heinesen,
og nefnist safnið í töfrabirtu.
Þetta er þýðing á bókinni Det
fortryllede lys sem út kom í
Kaupmannahöfn 1957, og hefur
Hannes Sigfússon rithöfundur
annazt þýðinguna. Áður hafa
komið út þrjár bækur Heinesens
á íslenzku, Nóatún, Ketiilinn
(sem útvarpssaga) og Slagur
vindhörpunnar. f töfrabirtu er
147 blaðsíður og smásögurnar eru
níu talsins. Bókin er prentuð í
Ilólum.
Halldór Stefánsson.
Þá hefur Heimskringla gefið út
þrjár barnabækur. Sagan af
Snæbjörtu Eldsdóttur og Ketil-
ríði Kotungsdóttur nefnist ævin-
týri eftir Jakobínu Sigurðardótt-
ur skáldkonu, sem kunn er af
snjöilum Ijóðum sínum. Bókin
er 84 síður og skreytt teikning-
um eftir listakonuna Barböru
Árnason. Vísur Ingu Dóru nefn-
ist bók sem hefur að geyma 10
barnaljóð eftir Jóhannes úr
Kötlum. Henni fylgja teikningar
eftir Gunnar Ek, og eru þetta
hvort tveggja hinar smekkleg-
ustu bækur og munu vekja mikla
ánægju hjá yngstu lesendunum.
Þá kemur fjórða bindið af hin-
um vinsælu Skottubókum, og
nefnist þessi Skotta fer enn á
stúfana, en Málfríður Einarsdótt-
irl þýðir. Allar eru bækur þessar
prentaðar í Hólum.
Serkir er Frakkar rændu
skipaðir i samninganefnd
Útlagastjórn Serkja hefur skipaö fimm menn sem
Frakkar náðu á sitt vald með svikum til að semja við de
Gaulle um vopnahlé í Alsír.
Maður fellur
af vinnupalli
Laust fyrir kl. fjögur í gær
varð það slys í rafstöðinni við
Elliðaár, að maður sem var að
vinna þar féll niður af vinnu-
palli og meiddist allmikið,
bæði handleggsbrotnaði og
skarst nokkuð. Maðurinn sem
heitir Óskar Þórðarson og á
heima í Blesugróf, var þegar
fluttur á slysavarðstofuna.
Fulltrúar 51 ríkis greiddu at-
kvæði með tillögu Afríku- og
Asíuríkja, þar sem látinn er í
ljós uggur vegna fyrirhugaðra
tilrauna með kjarnorkusprengjur
í Sahara og skorað á frönsku
stjórnina að hætta við þær.
Árásaraiaðiir
haadtekiim
Dómstóll í París úrskurðaði
í gær Robert Pesc,uet, fyrrver-
andi þingmann, í varðhald.
Pesq(uet viðurkennir að hann
hafj skipulagt skothríð á bíl
Francois Mitterand, eins af
þingmönnum vinstriflokkanna,
en segist hafa gert það að
beiðni Mitterands. (Erlend tíð-
indi fjalla í dag um þetta mál).
Útlagastjórnin lýsti yfir í Tún-
is í gær, að Ben Bella aðstoðar-
forsætisráðherra og fjórir Serk-
ir aðrir hefðu umboð hennar til
að ræða við frönsk stjórnarvöld
um skilyrði og tryggingar fyrir
framkvæmd gefins loforðs um
sjálfsákvörðunarrétt alsírsku
þjóðarinnar.
Ben Bella og hinir mennirnir
fjórir hafa setið í frönskum
Sextán fulltrúar greiddu atkvæði
gegn tillögunni, en 15 sátu hjá.
Tillagan er afgreidd sem á-
lyktun ^AIlsherjarþingsins, en við
atkvæðagreiðslu í stjórnmála-
nefndinni fvrir nokkrum dög-
um náði hún ekki því atkvæða-
magni, tveim þriðju, sem til þess
þarf. Aukið fylgi við tillöguna
kom mörgum á óvart.
Þrjú A-bandalagsríki, Dan-
mörk. ísland og Noregur, greiddu
atkvæði gegn Frakklandi, og tvö,
Grikkland og Tyrkland, sátu
hjá. Bandaríkin og Bretland
stóðu með Frakklandi.
Jules Moch, fulltrúi Frakk-
lands, sagði að franska stjórn-
in myndi hafa ályktunina að
engu og sprengia sínar kjarn-
orkuspreng'jur eftir nokkra mán-
uði.
fangelsum síðan haustið 1956,
þegar franskar herflugvélar
neyddu flugvél sem þeir ferðuð-
ust með til að lenda í Algeirs-
borg, þrátt fyrir loforð um að
hún skyldi látin óáreitt.
Útlagastjórnin segir, að
vopnahlé komi ekki til greina
fyrr en fengin sé trygging fyrir
að Alsírbúar fái í raun og veru
að neyta sjálfsákvörðunarréttar.
de Gaulle sagði í gær í Col-
mar, að hann hefði boðið Serkj-
um sem berðust í Alsír en ekki
mönnum sem gerðir hefðu verið
óvígir til, viðræðna um að koma
á friði.
Embættismenn í París sögðu,
að boði útlagastjórnarinnar yrði
ekki tekið, en þar með væri ekki
sagt að friðarumleitanir væru
farnar út um þúfur. Boðið væri
aðeins einn leikur í flóknu tafli.
Úrslit í smásagna-
keppni Vikunnar
I gær voru veitt verðlaunin
í þeirri smásagnakeppni sem
Vikan efndi til á s.l. vori. 65
smásögur bárust og varð dóm-
nefndin sammála um að veita
Ingimar Erlendi Sigurðssyni í
Reykjavík fyrstu verðlaun
(flugferð til Kaupmannahafn-
ar), Davíð Áskelss. Kópavogi
2. verðlaun (2000 kr.) og Guð-
nýju Sigurðardóttur í Reykja-
vík 3. verðlaun (1000 kr.).
Dómnefnd skipuou Sigurður
Á. Magnússon blaðam . Ándrés
Björnsson mag. og GiÁIi S'g-
urðsson ritstjóri Vikunnar.
Yfirgnæfandi meirihluti á
móti kjarnsprengingu
Vítur á fyrirhugaðár kjarnorkusprengingar Frakka
voru samþykktar í gær á Allsherjarþingi SÞ með yfir-
gnæfandi meirihluta.
blÓÐVIUINN
Laugardagur 21. nóvember 1959 — 24. árgangur — 256. tbl.
Rafmagnsskortur enn á
orkusvæði Laxár
Akureyri í gær.
Rafmagnsleysi þjáir enn A'kureyringa og aðra sem á
orkuvirkjunarsvæði Laxár búa. .
I gærkvöld varð rafmagnslaust um stund vegna smá-
bilunar við Laxá. í dag hefur verið rafmagnsskortur frá
kl. 11 í morgun og mun orsökin sú að jakahröngl barst
niður í túrbínu í nýju virkjuninni, og er unnið að hreins-
un hennar. Á meðan er aðeins eldrj virkjunin í gangi, en
hún framleiðir aðeins nokkuð á 4. þús. kw., en raf-
magnsþörf Akureyrar einnar er nokkuð yfir 6 þús. kw.
Heildarorka Laxárvirkjunarinnar er talin 12 þús. 560 kw
I dag hefur aðeins u.þ.b. helmingur bæjarins haft
rafmagn í senn. — Gert er ráð fyrir að hreinsun og
viðgerð ljúki í nótt.
Svoboda, heimskoimr stjómandi
stjérnar Siffcínlljónisveitinni
á hljémleikum heunar á þsiðjudagskvöldið
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika n.k. þriðju-
dagskvöld og verður stjórnandi sveitarinnar þá Tékkinn
Henry Svoboda.
Jón Þórarinsson framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar skýrði fréttamönnum frá
þessu í gær. Kvaðst hann árum
saman hafa haft augastað á
því að fá Svoboda til að stjórna
sveitinni, og hefði tvisvar,
þrisvar setið fyrir honum á
flugvellinum er hann hefði átt
leið um hér, og nú loks hefði
þetta tekizt.
Henry Svoboda er fædidur í
Prag og nam við tónlistarskól-
ann þar og háskólann og síðar
í Vín. Hann varð tónlistar-
stjóri tékkneska útvarpsins í
Prag, en stjórnaði auk þess
Minningarathöfn
á Húsavík
Húsavík í gær. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Þriðjudaginn 17. þ. m. fór fram
hér á Húsavík minningarathöfn
um Kristján Stefán Jónsson og
Aðalstein Ara Baldursson, er
fórust með vélbátnum Maí 21.
október sl. Prófasturinn, séra
Friðrik A. Friðriksson flutti
minningarorð og kveðjur, Valdi-
mar Hólm Hallstað flutti kveðju-
Ijóð, Jóhann Konráðsson frá Ak-
ureyri söng einsöng og Haraldur
Sigurgeirsson lék einleik á orgel.
Auk þess sungu bæði kirkjukór
Húsavíkur og karlakórinn Þrym-
ur. Öllum skrifstofum og sölu-
búðum var lokað og vinna féll
niður frá hádegi. Athöfnin var
fjölmennari en hér hefur sézt
um árabil og fór mjog virðu-
léga fram.
sem gestur sinfóníuhljómsveit-
um í Edinborg, Berlín, Dresden
og Vín.
Á valdadögum Hitlers fór
hann til Bandaríkjanna og
hefur átt heima þar síðan. I
Bandaríkjunum hefur hann
stjórnað tónlistarflutningi og
upptöku tónlistar á plötur. Á
síðustu árum hefur hann ferð-
azt um og stjórnað fjölmörg-
um frægustu hljómsveitum í
Suður-Ameríku og flestum
löndum Vestur-Evrópu.
Á þriðjudaginn mun Sinfón-
íuhljómsveitin flytja Fantasíu
— nótt á reginfjöllum, eftir
Mosussorgský, Sinfóníu kons-
ertante eftir Haydn, og Sinfón-
íu nr. 7 op. 92 eftir Beethoven,
sem stundum hefur verið nefnd
danssinfónían.
Svoboda kvað sér hafa leikið
mikil forvitni á að kynnast því
hverskonar tónlist þróaðist í
svo litlu landi sem íslandi.
Hann kvaðst hafa vitað að Is-
lendingar væru mikil og gömul
bókaþjóð, og hann hefði séð
verk eftir íslenzka málara, en
sér væri alls ókunnugt um tón-
listarlífið.
Ágæt síldveiði
I gær komu 49 bátar til
Grindavíkur með um 4 þúsund
tunnur síl'dar. Rafnkell var
hæstur af hringnótabátunum
með 167 tunnu en Júlía hæst
reknetabáta með 160 tunnur.
Tíu bátar komu til Sandgerðis
með um 800 tunnur og fjórir
til Keflavíkur með 250 tunnur.
gsvist annað kvöld kl.
Spilakvöld Sósíalistaféla.gs Reykjavíkur verður ann-
að kvöld kl. 9 í Tjarnar.götu 20. Auk félagsvistarinnar
munu þrír félagar skemmta með söng og slagliörpu-
leik. Veitingat' verða á staðnum og verðlaun veitt.
Þessa verður nánar getið í blaðinu á niorgun.