Þjóðviljinn - 22.11.1959, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 22.11.1959, Blaðsíða 7
Sunnudagur 22. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Kæri vin — Síðbúinn er ég, að óska þér hamingju í trö’p- um hins heiiaga tugar. En gjöri það nú. Ekki þarf ég að eyða orð- um að því, hversu mikið við soknum þ'n héðan og þar sem nú hefur 'engzt gatan millum okkar, langar mig að senda þ)ér línu En fleiri varðar efni þess erindis. Kýs ég því að birta bréfið í víðlesnu blaði. Ég heyrði að þú hefðir ver- ið kosinn formaður í samtök- um rithöfunda, livar ég er með’.:‘mur, en kjör listamanna liggja mér þungt á hjarta. Eg vil því ræða við þig hug- leiðingar m:nar um hvernig ráða megj hér bót á miklu vandamáli. Það væri þér verðugt verk- efni að vera foringi fyrir baráttuliði an^rra listgreina, til að knýiá fram þá sjálf- sögðu kröfu. að íslenzka rík- ið tryggi nú þegar öllum sæmilegum listamönnum lág- marks lífeyri. Laun svipað því og t.d. prestar og kenn- arar hafa. Vissulega mætti það vekja undrun að þetta mál skuii ekki þegar vera leyst. Það ætti raunar ekki að vera okk- ar hlutverk, að berjast fyrir því, einfaldlega hefði ríkis- vaidið átt að taka þetta upp hjá sjálfu sér fyrir löngu. Eg hef sem fyrr segir hugs- að þetta nokkuð og rætt við ýmsa nú í sumar, skal því reyna að rökstyðja þessa hug- mynd, ef ske kynni að ein- hverjum fyndist hún mikil krafa og ósanngjörn. Allir þekkja hinn langleiða skrípaleik. sem kenndur er við „styrki“ til listamanna. Nafngiftin sjálf er tífalt öf- ugmæli. T.d. væri réttara að kalla þetta „styrki" til þeirra bæjar- og sveitafélaga, sem eru svo óheppin að hýsa lista- menn. Við erum allajafna litl- ir fjáraflamenn og langoft- ast renna þessih ,,styrkir“ beint uppí vangreidd opinber gjöld og hrökkva þó ósjaldan illa. Okkur geta þeir jafnvel orðið hálfgjör.ð. hefndargjöf, þar sem þau eru ekki einu sinni skattfrjáls. í einstaka tilfelli geta þeir beinlínis rænt þiggjanda liærri styrkj- um t.d. sé hann öryrki ell- egar ellilaunaþegi, með því að hækka aðrar smátekjur yf- ir hungurtakmark þeirra rétt- indaaðstöðu. Þessir blessað- ir „styrkir“ hafa svo óneit- anlega dregizt aftur úr í vaxt- arhraða annarra hækkana í landi voru. sem vitað er. Þá þarf ekki að fjölyrða um þá aðferð, að einn úr hverjum flokki úthluti þessu náðar- brauði. Hvað tákna eiginlega slík vinnubrögð ? Hefur kannski Sjálfstæðisflokkur verið skikkaður til þess af Alþingi að skipa þar til sér- fræðing sinn í tónlist, Al- þýðuflokkur leiklistarrýni, Sósíalistar mvndlistarsérfræð- ing ellegar Framsókn bók- menntaráðunaut. Nei, þess 'hefur fæþlega orðið vart. Eg held við drögum því tjald íyrir þessa löngu /,,revíu“, áð- ur en hún snýst uppí full- kornið drama. Áður en rætt er nánar um sæmilega lausn þessara mála er nauðsynlegt að fá jákvætt svar við eftirfarandi spurn- ingu. Telur þjóðin sér vegs- auka og andlega þörf að hér séu framleidd listaverk? I trausti þess, að svo sé skal áfram haldið bréfinu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að hver ein- asti fjölskyldufaðir á Islandi, verður að þræla myrkranna á milli til þess að geta full- nægt brýnustu nauðþurftum sínum og sinna. Einstaklingar eru þar litlu betur settir. Við sem berum i brjósti þrá til listsköpunar, erum vitan- lega undir sömu sök seldir. Hvernig er þá hægt að bú- ast við því að við höfum móð í okkiir til að skapa og fága list í hjáverkum svo nokkru nemi? Sumir okkar verða jafnvel að bygg^a yfir sig um nætur, alveg eins og svo margir hafa slitið sér út á árum saman. Nei, listskö^un krefst ó- þreytts og óþreytandi manns. Óendanlegs tíma, en þó um fram allt rð viðkomandi sé ekki þrúgaður af áhyggjum vegna lífsafkomu sinnar, eða finnist hann vera að steia stundum þeim, sem heigast listinni. Og listin sjálf geldur slíkra kjara verst. Enda- er meirihluti verka okkar aðeins hálfslípaður kristall og verð- ur aldrei annað nema létt sé af okkur oki brauðstritsins listamenn eigi að setja á föst ríkislaun? Við því er aðeins eitt svar: Stofna þarf list- ráð, er skipað sé a.m.k. tveim sérfróðum mönnum um hverja listgrein. (Þurfa e'kki að hafa flokksmerki í barmi). Þeirra dómi yrðum við að lúta. Verk- efni listráðsins yrði þá fyrst að skera úr um það, hverjir dkkar séu búnir að skapa eða líklegir til að skapa þau verðmæti, er réttl^ti - þetta tækifæri efnahagslega frjáls manns til einbeitingar. Sýni það sig að listamaður þoli ekkj slíkt ,,meðlæti“ má mín vegna fella hann útaf launa- skrá að liðnum nokkurra ára revnslutíma, og ætti þó sína rétt ef úr rættist. Einnig skal ráðið vaka yf- ir efnilegum byrjendum og koma skjótlega til hjálpar með tækifæri til náms óg starfs — þyki sýnt að það beri ekk; árangur, efniviðurinn sé ekki árangur, efniviðurinn sé leyfi — þá má senda þá sinn veg. Annars er rétt að undir- strika, að tíu „óverðskuldað- ir“ listamenn á launum, eru ódýrari en sá einn snillingur sem núverandi aðstaða kæfir eða hrekur á annan vinnu- markað. En þess eru dæmin. Þá kemur að þeirri spurn- Kristján írá Djúpalæk: litlir fjárplógsmenn. Hvernig má þá draga úr útgjöldum ríkisins okkar vegna ? Hvað fær það í staðinn? (sleppum tilverurétti þjóðar, sem menningarþjóðar). Hreint og beint fjárhagslega? Áthugum það nánar: Viðkomandi nokkrum listgremum er vand- inn nokkuð auð’eystur. Tök- um tónlistarmenn, aðra en Jóliannes úr Kötlum tcnskáld og t.d. leikara. Rík- isstofnanir svo sem þjóðleik- hús, ríkisútvarp og fleiri menningarfyrirtæki þurfa á síauknu starfsliði að halda, og ég tel þeim listamanni vel Bréf tíl Jóhannesar úr Kötlum og stríðustu áhyggjum vegna þess. Öruggar tekjur, þótt lágar séu, eru listamann; það sama og vængur fuglinum. Vilji nú einhver spyrja: 'Hvernig fóru fyrirrennarar ykkar að, og voru ykkur þó um flest fremri? Þeim vil ég t.d. benda á 28. kaflann í Bréfi til Láru og kynnast þeir þá kjörum nok'kurra skálda og fræðimanna. En þó væri ekkj síður rétt að lesa bréf Stephans G. Ekkert grætur það ofurmenni meir en að geta ekki snyrt og fág- að kvæði sín, sökum ófrjórra anna. Og stundum fannst honum skáldgyðjan myndi yf- irgefa sig, svo mjög sem hann hafi hana útundan í skipt- ingu tíma síns er allt kallaði að. Og hver veit svo um þann arf, sem við fórum á mis við, vegna skilningsleys- is liðinna valdhafa gagnvart gengnum listamönnum. Hung- ursvipan skapar ekki list. Hún knýr aðeins fram ang- istarvein eða í bezta falli bitra ádeilu og ekki æfinlega sungna eftir nótum. Næst yrði þá kannski spurt: Hverjir eiga svo að skera úr um það hvaða ingu, sem margir myndu setja fyrsta? Hefur ríkið efni á þessu? Já, og meir en það. Hinu hefur þjóð vor ekki efni á, að tilviljun ráði ein um listsköpun hennar. Óbæt- anlegt er hvert það manns- efni, sem í súginn fer, en þó mest sé þar skapandi andi. Eg er óglöggur reiknings- maður. En ætli 50—60 þús. króna árslaun til ea 100 listamanna næmu meir en V2 prósenti af þjóðartekjum okkar? Það skyldi svo ekki vera sameiginlegt, að lista- menn okkar greiði hærri op- inber gjöld samanlagt, en hinu rausnarlega framlagi til þeirra nemur — ja, svo er það a.m.k. hér í sveit. Fjármál þessi má enn og lengi ræða, meta og und’rbúa. List er ekki einskis virði. Verður jafnvel metin til fjár. Það má selja bók, mynd, tón- smíð og ekki fæst ókeypis að- gangur að söng og leik. Van- sköpuð þyrping húsa, sem kallast bær og borg þyrfti vissulega á læknishöndum listamanna að halda. Arktitekti myndhöggvari, skreytimeist- ari. Nóg er starfið. En af- komuöryggið vantar okkur alla, bakhjarlinn. Við erum borgið, sem ráðinn er á líf- vænleg kjör í sinni sérgrein hjá ríkinu. Málarar og myndhöggvar- ar skapa mjög verðmæta list. Listasafnið gæti keypt af þeim 1 — 2 verk árlega fyrir fyrrgreind lágmarks- laun þeirra til öryggis þeim, og ríkisstofnun um leið eign- azt gu’lgild verðmæti, sem jafnvel mætti breyta í gjald- eyri ef of mikið safnaðist fyr- ir. Vegna okkar rithöfunia skal stofna ríkisútgáfu, og ég skal fúslega leggja henni handrit upp í mín laun á nokkurra ára fresti a.m.k. til útgáfu eitt sinn. Sérsamning þyrfti að gera vegna þýðinga, útvarpsflutnings og erfðarétt- ar. Þótt bókaútgáfa þyki ekki gróðafyrirtæki að jafnaði, starfa hér bókaforlög með öruggan áskrifendafjölda og þetta nýja ríkisfyrirtæki stæði ekki verr að vígi. — Þannig ynnist það tvennt, að okkur væru sköpuð vinnuskil- yrði ög ríkið fengi nokkuð fyrir sinn snúð, og í þriðja lagi, að verkin kæmust fyrir augu þjóðarinnar, en það er ekki minnst um vert fyrir höfunda. Tónskáld eru sennilega sú stétt manna, sem örðugast er án að vera nú. En sala verka þeirra hérlendis óarðbær að sögn. Ég býst því við að þau teldu sér sæmilega borg- ið ef svipað form væri við- haft um þeirra hag, og minnzt hefur verið á viðvíkj- andi rithöfundum, þ.e. sjá þeim fyrir vinnufriði og koma verkum þeirra á fram- færi. Það er kannski hægt að lifa án mynda, ljóða og leiks, og mörgum nægja eflaust ■ iagblöð og æsirit til lestrar. Ég vona svo bara að þús- und ára fyrirlitning og sult- arkjör listamanna hafi ekki sýkt svo þá, er nú lifa, að þeir líti á sjálfa sig sem ölm- usu- og utangarðslýð. Að sú hugmynd borgarans, að list skuli vera ' cgreidd aukavinna um alla framtíð, hafi ekki fest rætur hjá okkur, er sár- ast finnum til þess að geta aldrei helgað listinni krafta okkar. Því verki sem á hug- ann leitar í það og það sinn- ið. Þó er það þrjóðin sjálf er sárast geldur þess, ef list hennar er aðeins hálfunnin — hráefni, sem skapandi var neyddur til að senda frá sér vegna sljóvgandi brauðstrits —, því hvað er þjóð í augum heimsins, annað en sá orðstír, sem andinn skcp? Fyrst þjóðin hefur ekkert lært á ur.dangengnum öldum. Þótt hvert ,,séníið“ af öðru fari í hundana vegna sinnu- leysis valdhafanna, þá verð- um við sjálfir að taka í taum- ana. Ekki fyrst og fremst vegna okkar, ' heldur vegna framtíðar- og fósturlands. Boginn er sannarlega ekki hátt spenntur hér — og þetta er ekki án fordæmis. Aðrar stéttir hafa fyrir löngu tryggt sér lágmarkskjör og sumar he’dur betur. Bændum er á- byrgzt fullt verð á sínar af- urðir. Útgerðarmönnum einn- ig. Verkalýður hefur a.m.k. aflað sér siðferðilegs réttar til starfs og launa. Ég vona að þingmenn séu ekki í þagn- skylduvinnu og gefi sér því betri tíma til að ganga frá frumvarpi um framtíðar lausn á vandamá'um lista- manna. — Þetta bréf gæti verið þeim holl ábending. Þing er komið saman. Við viljum fá að starfa ótrufl- aðir í þeim víngarði er for- lög vistuðu okkur í. Það er erda oftast lítið lið í okkur á almennum vinnustað. Okk- ur næg’r ekki þótt nokkrir listamenn njóti þeirra „rétt- inda“ að hið opinbera gjaldi sjálfu sér skatt útá þeirra nef. Kæri vin. Þetta er orðið nokkuð langt, en af nógu er að taka, og málið þolir ekki bið. Kveiktu nú enn elii í brjóti baráttuliðs fyrir góðu máli. Þú og þínir jafnaldrar sem svo mikið hafið gefið þjóðinni, ættuð að búa i höll og á heiðurslaunum, því þið hafið skapað ódauðleg verð- mæti þegar. • Ég kveð þig með bróður- kveðju og bið að heilsa öll- um vinum og ættingjum lista- gyðjunnar á íslandi. Hv. í nóv. 1959. Kristján frá Djúpalæk.1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.