Þjóðviljinn - 23.12.1959, Page 5
HimmimimMMiiiiiimiiiimimmimiiimmmmimiimmmmMmimmmmmiiiimmmiimiiimiiiiiiiiiii! mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiimmmiiimiimiiiiiiiiiiiiiimiiimiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiimmmmiimmmmimmmmmmmmmyii
Miðvikudagur 23. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
i[iEimmmmmiiiiiiimiimiiiiimimiiimimmmmiimmmiitmimiimimmii:immiii!imiiimmmimiimmmiimmmimiimmim!iiiiimn<::!iiiiiimiimiimiiiiiimmmmimiEimii!Mii!ii
a
mm Q
Skáldsaga
eftir HALLDÓR STEFÁNSSON
„Bankinn er ófreskjan, mannætan með
víðan belginn fullan af fólki. Vélar hans
skrölta allan daginn, gjósa úr sér töl-
um sem ákveða örlög manna eftir því
hvernig þær eru samsettar. Hann þen-
ur taugar starfsfól'ksins, dælir í það
andrúmslofti sínu, mótar það þangaðtil
það er búið að fá svipinn — bankasvip-
inn: dálítið stjarfan áhyggjusvip bland-
inn þykjastþekkingu og yfirlæti" . . .
Þannig hefst einn kafli þessarar spenn-
andi nútímasögu úr höfuðstaðarlífinu,
þar sem hinn slyngi höfundur lýsir sam-
skiptum fjögurra skólasystkina og rek-
ur örlagaþræði þeirra af mikilli skarp-
skyggni og samúð. Yngri kynslóðin mun
taka þessari bók fegins hendi.
endur osr orð
&
Ljoðabok |
eftir SIGFÚS DAÐASON
Vegir lands míns
eru einkennilegir vegir.
Þeim sem um þá fara
gœtu þeir virzt jar&neskari en
flestir aðrir vegir.
Þeir sem á þeim ganga
vaða aurinn af fullkominni
sjálfselsku.
Það vœri ugglaust rökréttara
að ganga berfœttur á þeim
vegum.
Þetta er upphaf eins ljóðsins 'í þessari
fallegu bók eftir hið unga og sérstæða
skáld sem vakti eftirtekt allra ljóð-
unnenda með fyrstu bók sinni. Þeir hin-
ir sömu munu ekki verða fyrir vonbrigð-
um með þessa sem þrungin er freskum
dulúðugum andblæ mikilla tímamóta.
*
Ritgerðir
Fyrra bindi
eftir MAO TSE-TUNG
Meginflokkar bókarinnar, sem er eitt
af grundvallarritum sósialismans, eru
þesir:
Um starfið
Um móthverfurnar
Nýtt lýðræði
Ræður um listir og bókmenntir
Um samstej'pustjórn
Þýðendur eru Ásgeir Bl. Magnússon,
Brynjólfur Bjarnason og Gísli Ás-
mundsson.
Þetta verður kjörbók þeirra sem hafa
áhuga á bakgrunni kínversku byltingar-
innar og þeirri þjóðfélagslegu stök’k-
breytingu sem af henni hefur leitt.
Byr undir vængjum
Ferðasaga frá Kína
eftir KRISTINN E. ANDRÉSSON
Hér segir af hinu mikla ævintýralandi austursins, þar sem
elzta og fjölmennasta menningarþjóð veraldar vakir trúlega
yfir arfi s’ínum, jafnframt því sem hún vinnu af furðulega
kappi að gagngerri endursköpun lands og lýðs.
Höfundurinn hefur rennt glöggu gestsauga sínu yfir und-
ur hins gamla og nýja Kína með þá tilfinningu í brjósti
sem ein getur brugðið skæru ljósi yfir land og þjóð og
sögu.
Bókin er stór í sniðum, prýdd fjölda fagurra mynda, þar
á meðal mörgum litmyndum, og er ein hin glæsilegasta jóla-
bók íslenzk sem hér hefur verið á boðstólum.
SAGAN AF
Snæbjörtu Eldsdóttur
OG
Ketilríði Kotungsdóttur
eftir JAKOBÍNU SIGDRBARDÖTTUR
með teikningum eftir BARBÖRU M. ÁRNASON
Hér hafa tvær listakonur skapað sérstæða bók handa ungu
kynslóðinni og ,,þeirri alþýðu manna er að vísu hefur týnt
hlóðasteinum mæðra sinna og hestasteinum feðra, en renn-
ur þó enn 'í æðum hið sama blóð og fyrr knúði hjörtu sem
nú eru að dufti orðin“, eins og segir í bókarlok.
/Com/ði skoBiS og kaupiS
Smásögur
eftir WILLIAM HEINESEN
Sögurnar heita Sumaniótt, Djöflaklóin,
Grýlan, Vargavetur, Vængjað myrkur,
Himinninn brosir, í töfrabirtu, Tar-
taros og Sagan af skáldinu Lín Pe og
tömdu trönunni hans.
Djöflaklóin byrjar þannig: ,,I þúsund
ára sögu Færeyja hafa tröll, djöflar og
afturgöngur verið sérstaklega aðsóps-
mikil, já, það liggur við að allar hetj-
ur og stórmenni, sem vor litla þjóð
getur stært sig af að hafa alið, hafi
staðið með annan fótinn í heimi þjóð-
sögunnar".
Smásagnasafn þetta, sem Hannes
skáld Sigfússon hefur 'íslenzkað, er talið
búa yfir einna mestri kynngi af öllum
verkurn þessa frábæra höfundar. Heine-
sen er nú talinn einna magnaðastur
norrænna skálda, enda hefur hann oft-
ar en einu sinni verður nefndur til
Nóbelsverðlauna.
nam
staðar í Eboli
Skáldsaga
eftir CARLO LEVI
Þessi ítalski höfundur nam í öndverðu
læknisfræði, en sneri sér bráðlega að
málaralist. Hann var mikill fjandmað-
ur fasismans og lenti hvað eftir annað
í fangelsi. Á dögum Abessiníustríðsins
afplánaði hann útlegðardóm í Lúkan'íu-
héraði á Suðurítalíu. Þar leituðu þorps-
bændurnir í Gagliano til hans í raun-
um sínum þegar þeir vissu um læknis-
list hans og tókst þar mikil vinátta.
Frá þessu segir í bók þessari, sem Jón
Óskar skáld hefur íslenzkað, og er hún
í senn skarplega gerð þjóðlífslýsing frá
afskekktum eyðislóðum og snjallt og
samúðarríkt listaverk, sem útlagit hef-
ur verið á tuttugu þjóðtungur.
Vísur Ingu Bóru
Tíu smábarnaljóð
eítir JÓHANNES ÚR KÖTLUM
Miðvísan úr fyrsta kvæðinu er svona:
Á lambinu er lítil snoppa
litla snoppan er að kroppa
kroppa grasið græna
Þá fer hún aö lioppa og skoppa
heimasætan væna.
Bókin er ætluð yngstu lesendunum og
þeim sem ekki eru farnir að læra les-
galdurinn, en fyrir þau börnin er hægt
að raula textana sem flestir eru ortir
undir gamal'kunnum lögum.
Þessi bók mun verða svipaður fengur
og Jólin koma og Ömmusögur voru í
gamla daga og eru raunar enn. Og
ekki munu hinar bráðskemmtilegu
teikningar Gunnars Ek spilla fyrir.
Bókabúð Máls og menningar SkóEavörðustíg 21 - Sími 15055 |
11111111 m 111111 n n 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 mi 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 fi 11 n 1111111, | j |) 11111IM11111, | M |, |,, 1111,1111111111M1111 [: 11 {| 11, M |, 11 ((| s