Þjóðviljinn - 23.12.1959, Qupperneq 7
Miðvikudagur 23. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Eftir hádegi í fyrrad. fóru blaöamaður og Ijósmyndari frá Þjóöviljanum í nokkrar verzlanir í bænum til þess að taka myndir af önnum köfmi
verzluharfólki og fá fréttir af pví hvernig salan gengi í jólakauptíðinni. Alls staðar var margt fólk að verzla og nóg að g,era fyrir afgreiðslu-
fólkið, þótt þetta vœri taunar ekki mesti annatími dagsins. — Allir, sem til var leitað, brugðust þó góofúslega við, gáfu sér tíma til þess að
svara nokkrum spurningum og leyfðu að teknar vœru af þeim myndir. Og viðskiptavigirnir biðu þolinmóðir (?) á meðan.
I
' TémsfundðbiiðÍEiíil
Livsrpoo
I Markaðnum
Fyrsti áfangastaðurinn var
kjötbúð Sláturfélags Suður-
lands á Skólavörðustíg 22. Þar
var margt fólk að kaupa í jóla-
matinn og við vorum svo
lieppnir að ná mynd af sjálfum
verzlunarstjóranum, honum
,,Lárusi í Sláturfélaginu“, þar
sem hann stóð við afgreiðsluna.
Á eftir töfðum við hann stund-
arkorn með nokkrum spurning-
um.
— Er ekki mikið að gera
fyrir jólin?
— Jú, það er gríðarmikil
verzlun, hún er alltaf að auk-
ast, en maður ætti nú að vera
farinn að kunna á þetta.
— Hvað ertu búinn að vera
lengi við verzlun?
— 29 ár. Eg hef verið hér á
Skólavörðustignum síðan 1940.
— Hver er mesti annadagur-
inn fyrir jólin?
— Það er mest keypt á Þor-
láksmfsaiijfttiii;,vigöeílfflfcrj# þlúri
ín að undirbÚQ þetta anzi : vel
með því að vakp dag og inótt.
Annars ev orðið miklu léttara
að eiga við þetta núna en áð-
Ur var, ba?ði vegna bættra að-
stæðna og svo er fólkið orðið
skilningsbetra.
— Það er nvlokið gagnger-
um breytingum á verzluninni og
Lárus sýnir okkur húsakynnin,
sem eru bæði rúmgóð og vel
búin.
— Borgarlæknir sagði, að
þetta væri alveg til fyrirmynd-
ar, segir Lárus, og við erum
ihonum samdóma um það. Að
lokum sýnir Lárvis okkur e’d-
húsið, þar sem heitur matur er
framleiddur.
—- Salan á heita matnum er
alltaf að aukast segir Lárus
Við revnum að hafa þann mat
sem fólki hentar bezt. einfaldar
mat og eins ódýran og hægt er
¥
Við komum næst í Markað-
inn að Laugavegi 89. Þar hitt-
um við verzlunarstjórann, Rúnu
Guðmundsdóttur, sem er að
sýna viðskiptavini nýjustu
kjólana á markaðnum. Á með-
an konan fer inn að máta
skjótum við að nokkrum spurn-
ingum.
— Er ekki mikil verzlun
núna ?
-— Jú, sem betur fer.
— Svipað og undanfarin ár?
— Ekki lakara. Það er dá-
lítið öðruvísi en áður. Við selj-
um meira af eigin framleiðslu,
flytjum ekki eins mikið inn.
Það er eiginlega fyrst núna og
rriiocf In
tali af Hermanni Kristjánssyni
verzlunarstjóra.
-—• Er keypt mikið af gler-
vöru og búsáhöldum núna?
— Já, það er alltaf mikið
verzlað fyrir jólin.
— Hvenær byrjar jólaösin?
— Ja liún er nú aðallega
síðustu vikuna, en þess fer að
verða vart strax í byrjun des-
ember, að jólin eru í nánd.
I þessu kemur ljósmyndarinn
til okkar harðánægður á svip-
inn. Hann náði mynd af tveim
afgreiðslustúlkum í einu ,skoti“
þeim Kristínu Pálsdóttur og
Sigríði Sigurbjörnsdóttur.
i fyrra, sem fólk er farið að
Skilja að innlend framleiðsla er
mikið betri og auk þess ódýr-
ari miðað við gæðin.
— Það tekur sinn tíma að
fá fólk til þess að meta inn-
lenda framleiðslu.
— Já það var erfitt fyrst.
En nú höfum við líka meira úr-
val á boðstólum, meiri fjöl-
breytni bæði I efnum og gerð-
um.
I Bókabúð Kron er Þorvarð-
ur verzlunarstjóri ekki við, en
við tölum við Ingu Dóru í hans
stað og erum ekkert sorg-
mæddir yfir" þeim skiptum.
— Hver er mest keypta jóla-
bókin í ár?
— Áreiðanlega Virkisvetur.
-— Hverjar heldurðu að
gangi næst ?
— Það er ekki gott að segja,
þær eru margar nokkuð jafnar.
Kannske þessi bætir Inga Dóra
við og leggur höndina á ævi-
söguna hans Kristmanns.
— Hvað eruð þið venjulega
mörg víð afgreiðslu hérna í
búðinni ?
— Við erum þrjú.
— Þurfið þið ekki að bæta
við mörgu fólki, þegar svona
mikið er að gera ?
— Jú, við eru núna ein 8,
eða 9.
*
Síðasti áfangastaðurinn að
þessu sinni er Tómstundabúðin
í Austurstræti. Þar er þröng á
þingi, en við náum þó snöggv-
ast tali af verzlunarstjóran-
um, Þórhalli Filippussyni og
leggjum fyrir hann nokkrar
spurningar. _
— Hér er mikið að gera sé
ég.
— Já, þetta eru beztu jól
hjá okkur fram að þsssu.
—- Hvenær hófst jó’aösin?
— Hún byrjaði eiginlega í
miðjúm nóvember. Þá var áber-
andi mikið af utanbæjarfólki að
verzla.
— Hvað -v.erzlið þið. aðallega
með?
r
— Efni til tómstundavinnu
fyrir unglinga. Við erum eina
verzlunin, sem hefur eitthvað
á boðstólum til slíkrar dægra-
styttingar. Svo erum við líka
með lei'kföng
— Er þetta ekki ung verzl-
un?
— Hún er 5 ára. Við. vorum
þrjú ár á Laugaveginum, urð-
um að flytja þaðan vegna
þrengs’a og erum b'i;n að vera
tvö ár hér. Við erum að
sprengja þetta utan af okkur
lika.
Nú voru bæði blaðamsðurinn
og ljósmyndarinn orðnir þreytt-
ir á að ganga búð úr búð, svo
að þeir urðu ásáttir um að
hætta þessari verzlanaferð
að sinni. En í dag v.erðið það
þið, lesendur góðir, sem gangið
búð úr búð að kaupa jólagjaf-
irnar og þá fær afgreiðslufólkið
áreiðanlega nóg að gera.
Frá markaðnum liggur leið-
| in i Liverpool, búsáhaldadeild.
Á meðan ljósmyndarinn situr
um færi til þess að ná mynd
: af fallegum afgreiðslustúlkum,
tekst blaðamanninum að ná