Þjóðviljinn - 13.03.1960, Side 9
Sunnudagur 13. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN —- ,(9
:u
ÍEÍÍ'
fép
iá
ni'J
Bi;
lo
Rifstjóri: Frímann Helgason
Landsliðsmenn i fr|á9sum ífsróffum œfa ser-
staklega einu sinni í viku undir handleiðslu
Benedikfs Jakobssonar og Gabors þjálfara
Að því hefur verið vikið hér,
að frjálsíþróttamenn hafa í
mörg horn að líta á komandi
sumri. Öll venjuleg mót hér á
landi fara eðlilega fram sam-
kvæmt áætlun og undirbúning-
ur undir þau er alltaf eða að
minnsta kosti á alltaf að vera
í fullum gangi.
En það er meira en þetta,
sem frjálsíþróttamenn hafa í að
horfa. Það er í fyrsta lagi lands-
ieikur í Osló í fjögurra landa
keppni með einn mann í hverri
grein. í öðru lagi heimsókn til
Kanada með hóp frjálsíþrótta-
manna. Þá kemur í þriðja lagi
olymþíuför, þar sem gera má
ráð fyrir að nokkrir beztu
manna okkar fari, og svo í
fjórða l'agi landskeppnin við
Austur-Þjóðverja í september.
Eins og frá hefur verið sagt
hér á íþróttasíðunni, hafa æf-
ingar hafizt fyrir löngu úti í
félögunum, en þau annast eðli-
lega þjálfun manna sinna í að-
alatriðum og þá sérstaklega að
því er þol snertir, hafandi
huga hvað iramundan er hjá úr-
valsmönnum okkar.
FRÍ ræður Bénedikt og
Gabor til aðstoðar
Stjórn Frjálsíþróttasambands-
ins hefur með tilliti til þess sem
framundan er hjá sambandinu
í sumar valið 25 menn til sér-
stakra æfinga einu sinni í viku,
og fengið tvo færustu kennara í
frjálsum íþróttum sem völ er á
hér til aðstoðar við æfingar
þessar. Fara þær að nokkru
leyti fram í íþróttahúsi Háskól-
ans, en að sumu leyti úti, eftir
því sem hægt er.
í tilefni af þessu brá fréttarit-
ari íþróttasíðunnar sér á æf-
ingu til að kynnast þessu af eig-
in r.aun, og eins til að ræða við
Benedikt um þetta mál.
— Hvað vilt þú segja um æf-
ingar þessar; mæta menn vel
til þeirra?
— Það er nú varla hægt að
segja að þetta sé komið í full-
an gang, og allir þeir sem boðað-
ir hafa verið hafa ekki komið.
Það hafa verið svona 13 til 14
að jafnaði á æfingu. Annar.s æfa
menn þegar þeir geta og fara
þá eftir tímaseðli, sem þeim er
fenginn, eru þa§ sérstaklega
langhlaupararnir . sem æfa úti.
Það sem fyrst og fremst er
lögð áherzla á er tæknin, þolæf-
ingarnar eiga og hljóta að fara
fram í félögunum.
Þessar æfingar eru líka þáttur
í því að piltarnir séu saman og
að þeir kynnist sem bezt.
Annars má segja að æfingar
þessar séu á byrjunarstigi. og'
ekki næg festa komin í þær.
— Þið annizt tveir æfingarn-
ar?
— Já, annars er engin sér-
stök verkaskipting okkar í milli,
Gabors og mín; í framkvæmd-
inni er það kannski svo að ég
sé um upphitun manna en við
það tæknilega aðstoðum við
piltana og gefum þeim ráð og
tilsögn eftir því serh með þarf.
— Hvernig lýst þér á piltana?
Þorsteinn Löve æfir sig með stórri leðurkúlu.
eru mjög misjafnir.
í mjög góðri þjálfun
— Þeir
sumir eru
á þessum tíma, aðrir eru sæmi-
legir, og enn aðrir mjög slappir.
Það má eiginlega segja að þeir
séu eins misjafnir og þeir eru
margir. Sumir þeirra, sem vald-
ir hafa verið, hafa ekki komið
enn til æfinga og ekki heldur til
þolreynslu á hjólinu.
Er þolreynsluhjólið notáð
mikið?
Hilmar Þorbjörnsson á „þoIhjólmu“. Benedikt Jalcobsson fylgist með hjartslættimim meðan
Hilmar hjólar. —Ljósm. Þjóðviljinn, f/
■— Ekki nálægt því sem skyldi,
og í því efni erum við langt á
eftir öðrum þjóðum. Forustu-
mennirnir hafa enn ekki gefið
þessu tæki gaum, og eru ekki
nógu lifandi fyrir nauðsyn þess
að það sé tekið meira í notkun
við þjálfun manna. Ástæðan er
ef til vill sú að stærri sambönd-
in hafa ekki tök á félögunum og
félögin hafa ekki tök á félags-
mönnum sínum, og því verður
ekki hægt að framfylgj.a því
sem 'viturlegt er og sjálfsagt.
Hér kemur sem sagt til hið
margumtalaða agaleysi meðal
okkar Islendinga.
Rétt og stöðug notkun þol-
hjóls þessa miðar að því að hægt
sé að fylgjast svo vel með
íþróttamönnum sem þjálfa með
keppni fyrir augum, að í tíma
sé hægt að fyrirbyggja að menn
geti beðið tjón á líkama sínum
við iðkun íbr.ótta, og skilja allir
hversu þýðingarmikið það er.
Auk þess geta menn fylgzt með
sjálfum sér, hvort þeir taka
raunverulegum framförum eða
ekki.
Þess vegna hljHur það að
verða fyrr eða síðar að þetta
tæki verði meir. notað á vísinda-
legan hátt og í sambandi við
læknisskoðun, í sambandi við
allar íþróttagreinar.
Það er því lágmark, að allir
þeir sem valdir eru til að leg'gja
sérstaklega að sér við þjálfun
að þeir noti . þolreynsluhjólið
reglulega, allan tímann meðan
æfingatíminn og keppnistímabilið
stendur yfir. Gæti ég sagt nokk-
ur dæmi um það hvers ég hef
orðið vísari með hjálp hjólsins
um líkamlegar veilur, og þær
sumar hættulegar, en sleppi því
að sinni, sagði Benedikt að lok-
um.
OIympíu-„kandidatar“ í
Haukadal um páskana?
Íþróttasíðan hefur það eftir
allgóðum heimildum að um
páskana fari allt að 10 manna.
hópur til æfinga i Haukadal,
og æfi í íþróttaskólanum en sem
kunnugt er starfrækir Sigurður
Greipsson hann árlega. Ekki
mun vera búið að velja þá sem
fára eiga, en það mun gert
áður en langt um líður. Er ætl-
unin að nota tímann til áefmga
og fræðslu.
Leiðir allra sem ætla
kaupa eða selja
BlL
liggja til okkar.
BlLASALAN
Klapparstíg 37.
Sími 1-90-32.
eð
Rammalistar
myndarammar
gott úrval
gott verð
InarömmunarsfofðR
Njálsgötu 44
Trúlofunarhringir, Steir..
hringir, Hálsmen. 14 og
18 kt. gull.
Til sölu
Allar tegundir BÚVÉLA
Mikið úrval af öllum teg-
undum BIFREIÐA.
Bíla- og
Búvélasalan
Baldursgötu 8. SímJ 23136.