Þjóðviljinn - 20.03.1960, Side 5
Sunnudagur 20. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Þa'ö má ráða þaö af skrifum brezkra blaöa að undan-
förnu að í Bretlandi fer nú ört vaxandi ótti manna viö hið
nýja þýzka herveldi og þá stefnu Bandaríkjamanna að
hlaöa undir Vestur-Þýzkaland.
Emanuel Shinwell, fyrrver-
andi landvarnaráðherra í stjórn
Verkamannaflokksins, segir í
grein í Sunday Expi’ess að
hann óttist að „bandaríska
stjómin hafi ákveðið að gera
V-Þýzkaland að öflugasta her-
veldi heims næst Sovétríkjun-
um.“
Hann telur að sambúð Bret-
Iands og Bandaríkjanna hafi í
„áratugi ekki verið- verri en
nú“. Svipaðar skoðanir eru
látnar í ljós í forystugreinum
annarra brezkra blaða.
Sknrðir á Marz
sprungur í ís?
Hinir dularfullu skurðir sem
menn hafa þótzt sjá á yfirborði
Marz eru ekki annað en sprung-
ur í ísnum sem þekur mikinn
hluta plánetunnar, segir sov-
ézkur vísindamaður, Davídoff,
í grein í Komomolskaja Pravda.
Pravda-
Davídoff álitur að á Marz sé
álíka mikið af vatni og á jörð-
inni. Hitinn á yfirborðinu er
þar milli mínus 10 og mínus 20
stig á Celsíus, vegna þess að
Marz er fjær sólu en jörðin.
Davídoff telur að jarðskjálftar
verði á Marz samkvæmt somu
lögmálum og á jörðinni. ísinn
springi þá og vel geti verið
að líf dafni í sprungunum
vegna hitaútstreymis innan úr
plánetunni. Af þeim ástæðum
fái sprungurnar annan lit en
umhverfið og verði þannig sýni-
legar.
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti hefur þegið boð um að
koma í opinbera heimsókn til
Portúgal, þegar hann kemur af
fundi æðstu manna í vor.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii:iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiEiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii(imuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin:im]iiiiiiiiiiiiHimiiii
I mörgum blöðum kemur
einn'g frám óánægja vegna
þess h'.utskiptis sem Bretum sé
ætlað innan Atlanzhafsbanda-1
lagsins.
Sunday öraphic segir að í;
Washington sitji ráðleysingjar |
við völd sem viti hvorki í þenn-
an heim né annan:
— Svo virðist sem Bretlandi j
sé ætlað að vera attaníoss, það 1
eigi að hlíta í öllu fyrirmæium
óviturra bandarískra stjórn-
málamanna.
Ihaldsþingmaðurinn Ted
Leather skrifar í, sama blað
í grein frá Washington að
Bandaríkin séu alls ófær til að
gegna forystuhlutverki meðan
þeim sé stjórnað af „vingjarn-
legum, hálfringluðum og barna-
legum forseta". Hann segir að
hver höndm sé upp á móti amr-
arri í bandaríska utanríkisráðu-
neytinu og bætir við að Banda-
ríkjamenn sem kunnugir séu
öllum hnútum hafi beðið sig
að koma þessu á framfæri: —
í guðanna bænum gerið þér
ríkisstjórn yðar ljóst að hún
má alls ekki treysta á nokkurn
hátt utanríkisráðuneyti okkar.
Þeim sem þar ráða verður
helzt líkt við naut í glervöru-
verzlun.
Konur í Genf fá
kosningarétt
Kvenfólkið í Genf hefur nú
loks öðlazt almenn mannrétt-
indi. Karlmenn þar í borg sam-
þykktu í almennri atkvæða-
greiðslu með 18.152 atkvæðum
gegn 14.593 að veita kvenfólk-
inu almennan kosningarétt og
kjörgengi. Enn hafa konur 1
nítján af 22 kantónum Sviss-
lands ekki kosningarétt.
Morðmffinn fannst eftir
tveggja mánaða leit
27 ára gamall maður, Joseph
Byrne, var leiddur fyrir rétt í
Binningham á dögunum, sak-
aður um að luifa myft 29 ára
gamla stúlku í húsi KFUK í
Birmingham um jólaleytið-
Mþrðinginn hafði hlutað líkið
í sundur eftir ódæðið.
Leitin að morðingjanum var
sú umfangsmesta sem nokkru
sinni hefur verið gerð í Bret-
landi. I Birmingham og ná-
grenni og reyndar víðar í Bret-
landi var kvenfóllt gripið ofsa-
hræðslu við morðingjann, og
engar konur áræddu út fyrir
hússins dyr að kvölidlagi. Eitt
kunnasta knattspyrnulið Bret-
lands hætti við að fara úr
borginni til leiks annars staðar,
af því að leikmennirnir þorðu
ekki að skilja konur sínar eft-
ir einar, meðan morðinginn var
ófundinn.
Það tók lögregluna tæpa tvo
mánuði að hafa upp á honum.
Nóttina eftir morðið hafði
Byrne gist í húsi í nágrenni
við morðstaðinn en hann fór úr
borginni daginn eftir- Hver ein-
asti maður sem dvalizt hafði
í grennd við morðstaðinn þegar
morðið var framið var yfir-
heyrður og lögreglan hafði upp
á Byrne 6. febrúar. Hún hafði
þó enga sérstaka ástæðu til að
gruna hann um morðið, svo að
honum var sleppt þá. En hann
var aftur tekinn til yfirheyrslu
og játaði loks verknaðinn.
Enda þótt Kislii, forsætis-
ráðherra Japans, hafi nýlega
undirritað samnin.g við Banda-
rikin um áframlialdandi
bandaríska hersc>tu í Japan,
linnir ekki baráttunni gegn
samningnum, enda á þingið
eftir að fullgilda hann. Verka-
lýðslireyfingin, sósíaiistar og
kommúnistar, standa fyri r
þeirri baráttu sem kemur
fram í ýmsum myndimi, eins-
og t.d. þeim nýsO'Arlega
,,körfuakstri“ sem sést á
myndinni.
Marka'tengur
Sauðaklippur
Hrossakambar
Járnvöruverzlun
Jes Zimsen h.f.
Reykjavík
Östytt og óbrengluð útgáfa
af œviminningum Casanova
Hið þekkía þýzka forlag
F.A. Brockhaus boðar „viðburð
sem bókmenntaheimurinn hef-
ur beðið eftir í 140 ár“: 21. ap-
ríl n.k. hefst útgáfa á æviminn-
ingum ítalslia ævintýramanns-
ins Giocoumo Casanova, sú
fyrsta þar sem engu er sleppt
og engu breytt.
Bókin er gefin út eftir frum-
textanum, en Casanova skrif-
aði endurminningar sinar á
frönsku, sem er oft nokkuð
ítölskuskotin.
Æviminningarnar, Histoire de
ma vie (Ævisaga mín), skrif-
aði Casanova (1725-’98) á efri
áruip sínum og mun aldrei
hafa ætlazt til að þær yrðu
gefnar út. Hann segir þar með
furðulegri nákvæmni frá um-
hleypingasamri ævi sinni og f jöl
mörgum ævintýrum, ekki hvað
sízt ástarævintýrum, sem hann
lenti í um dagana. Hann lét sér
fátt mannleg óviðkomandi, var
doktor í lögum, prestlingur,
diplómat, einkaritari kardínála,
melludólgur, fiðluleikari, leilc-
hússtjóri, iðnrekandi, fjárhættu
spilari, skáld og afkastamikill
rithöfundur — hann skrifaði 43
bækur um hin óskyldustu efni
—, en hvað sem hann tók sér
fyrir hendur, lauk því ævinlega
svo að hann varð gjaldþrota-
Fyrir 200 dali
Um 20 árum eftir dauða
Casanova komst Brockhausfor-
lagið yfir handritið að ævisögu
hans, 1.800 þéttskrifuð blöð.
Það keypti það af fjarskyldum
ættingja Casanova fyrir 200
dali, og mun forlagið sennilega
aldrei hafa gert betri kaup.
Það hefur hingað til gefið út
tvær útgáfur af ævisögunni,
báðar mjög ritskoðaðar, styttar
og beinlínis brenglaðar. Sú fyrri
kom út á árunum 1822—1828
og var þýzk þýðing. Sú síðari,
á frummálinu, kom út á ár-
unum 1826—1838, og allar aðr-
ar útgáfur þessa mikla verks,
og þær skipta áreiðanlega
hundruðum á langflestum
tungumálum heims, byggja á
þessum tveimur útgáfum.
Stórfalsaðar
Það hefur lengi verið vitað
að útgáfur Brockhaus hafa
verið mjög brenglaðar, svo
ekki sé meira sagt. Casanova
var sonur átjándu aldarinnar,
fríþenkjari og efasemdamaður,
batt yfirleitt ekki bagga sína
sömu hnútum og samferða-
mennirnir, og forlagið taldi sér
ekki óhætt að gefa út æviminn-
ingarnar óbreyttar. Það mun
hafa haft nokkuð til síns máls
því að jafnvel hinar ritskoð-
uðu útgáfur voru hvað eftir
annað bannaðar í ýmsum lönd-
um.
Það eru ekki einungis ást-
arfarslýringarnar sem hafa
verið „lagaðar til“, en að sögn
hefur þeim verið breytt svo að
þær eru óþekkjanlegar með
öllu. Þannig er ástmeyjum Casa-
nova t.d. í hinum fyrri útgáfum
jafnan líkt við rómverskar eða
grískar gyðjur, a.m.k- meðan
allt leikur í lyndi, en nú á eft-
jir að koma í ljós að lýsingar
I hans voru fremur líffræðilegs
’eðlis en goðsagnalegs.
Enginn hefur fengið að sjá
handritið
I um 140 ár hefur handrit
Casanova legið harðlæst inni í
peningaskáp Brockhausforlágs-
ins, og hefur éngum verið
hleypt í það nema stjórnendum
forlagsins, ekki einu sinni vís-
indamönnum og sagnfræðing-
um sem hafa þó haft ástæðu
til að ætla að þarna væri mik-
ill fjársrjóður fólginn, fróðleiks-
náma um sögu átjándu aldar.
Fram eftir nítjándu öld var
því trúað að ævisaga Casanova
væri uppspum emn, og var
jafnvel efast um að hann hefði
sjálfur nokkurn tima verið til.
Ýmsar getgátur voru um höf-
undinn, og hölluðust margir
helzt að því að hann myndi
vera Stendhal, hið .fræga
franska ská’d, — og var það i
sjálfu sér ekki slæmur vitnis-
burður um bókmenntagildi ævi-
sögunnar.
Það er þó fyrir löngu ljóst
orðið að endurminningar Casa-
nova eru frábær sagnfræðileg'
heimild, má heita að hvert at-
i’iði í bókinni sem skiptir má'i
og liægt er að sannprófa hafi
staðizt slíkt próf. Það er þvl
ekki að furða þótt fræðimönn-
um og reyndar- almennum les-
endum líka hafi lengi leikið
hugur á að fá æv’söguna
óstytta og óbrenglaða í liend-
ur.
Þetta verður mikið rit, um
4.C00 síður, kemur út í sex tvö-
földum bindum og kostar hvert
þeirra 25 þýzk mörk. Síðar er
ætlunin að gefa út ljósprentaða
útgáfu af handritinu, ef nægi-
lega margir kaupendur fást, og
ætti það að vera frekari trygg-
ing fyrir því að nýja útgáfan
sé áreiðanleg.