Þjóðviljinn - 20.03.1960, Side 9
Sunnudagur 20. marz 1960
ÞJÓÐVILJINN — (9
I b íi ð i r
Nokkrar íbúðir hafa losnað í 2. flokki B.s.f. Framtaks.
Allar nánari upplýsingar a • skrifstofú félagsins að
Sólheimum 32 í dag — sunnudag kl. 14 til 18 og
næstu kvöld frá kl_ 20,30. til 22. Sími 3-52-40.
B.S.F. Framtak.
Ritstjéri: Frímann Helgason
Dallees Long og heimsmet
hans í kúluvarpi
í fréttum sem bárust um fyrri
helgi frá Bandaríkjunum var
frá því skýrt, að hinn 19 ára
gamli Dallas Long hefði varpað
kúlu 19,38 m eða 13 em lengra
en landi hans Parry O'Brien. Er
þetta nýtt heimsmet.
Það eru um það bil 2 ár síðan
fréttir fóru að berast af Dallas
Long. Var það á móti í Arisona
1958, að frá því v-ar sagt að
hann hefði varpað drengjakúl-
unni 20,47 m og litlu síðar, eða
í maí, varpaði hann henni enn
lengra eða 21,10 m.
Þá þegar var farið að tala um
að hér væri á ferðinni maður-
inn sem myndi gera það „ómögu-
lega“, að varpa kúlunni yfir 20
m. Á þeim tíma var Parri'
O’Brien heimsmethafi í kúlu-
varpi, en samt var Dallas aðal-
keppinautur hans í mótum sem
báðir tóku þátt í.
í lok maí þetta ár tóku báð-
ir þátt í móti, þar sem 0’Brien
varpaði kúlunni 18,35 m og Dall-
as 17,78. Aðeins viku síðar varp-
aði Brien 19,22 og Dallas 18,27
metra.
Árangur Dallas á fyrstu stór-
mótunum varð að sjálfsögðu
mjög athyglisverður, en þjálfari
hans, Jeff Mortenson, sagði að
það væru smámunir samanborið
við það sem af honum mætti
vænta. Þessi ungi maður frá
Arisona er ekkert smásmíði, hann
vegur 113 kg. og er 1,98 sm á
hæð.
Framhald af 7. síðu.
eingöngu stöðvar fyrir árásar-
her Bandaríkjanna.
Ætla má ef til styrjaldar
kemur milli austurs og vesturs,
að slík styrjöld standi mjög
stutt og styrjaldaraðilar hafi
alls ekki tima til þess að koma
sér upp nýjum herstöðvum
meðan styrjöldin geysar. Hins
vegar munu styrjaldaraðilar
fyrst og fremst reyna að ger-
eyða strax árásarstöðvum hvors
annars. Á þetta benda til
dæmis nýleg ummæli yfir-
manns sprengjuflugvéladeilda
Bandaríkjanna (Strategic Air
Command) þar sem hann ótt-
ast að flugskeyti Rússa muni
geta eyðilagt allar sprengju-
flugvélar SAC á, jörðu niðri á
flugvöllum í Bandaríkjunum á
30 mínútum. Augljóst er að
bandarískar herstöðvar á ís-
landi myndu fá sömu útreið.
Menn verða því að gera sér
ljóst, að Bandaríkjaher hefur
hér ekki neinar varnarstöðvar
eða varnarlið til þess að verja
líf og eignir landsmanna. Hér
eru og verða ef áfram er hald-
ið, einungis árásarstöðvar, sem
Árið 1959 v-ar naumast byrj-
að þegar fyrsta stórfréttin barst
af afrekum Dallas. Ilann hafði
sett nýtt heimsmet og var árang-
urinn 19,37 m. Síðar var þó
frá'því skýrt, að ekki væri hægt
að staðfesta metið, þar sem vell-
inum hallaði aðeins.
Það stóð ekki lengi á annarri
stórfrétt af ferli þessa ung'a
kappa. í marz jafnaði hann
heimsmet Parry O’Briens 19,25
m. Á því móti. sigraði hann í
fyrsta skipti sjálfan meistarann
O’Brien, og jafnaði sem sagt
heimsmet hans.
Það má því segja að á milli
þessara tveggja jötn-a hafi verið
hörð keppni, sem fylgzt hefur
verið með um allan heim. Mönn-
um var það greinilega Ijóst að
þessi tveir menn voru miklir
jafningjar, og mátti vart á milli
sjá hvor hefði betur.
Hverju sinni sem Dallas komst
yfir heimsmet O’Briens var allt-af
eitthvað sem kom í veg fyrir
það að hægt væri að staðfesta
metið. Annaðhvort var það völl-
urinn eða þá að árangurinn
náðist á sýningu. Dallas lét sér
þetta þó í léttu rúmi liggja.
hann hafði tímann fyrir sér, að-
eins 19 ára!
Fyrra sunnudag virðist hann
loks hafa haft heppnina með
sér og að árangur hans, 19,38 m
fái st-aðfestingu, og allt bendir
til þess að löglegar aðstæður
hafi verið fyrir hendi. Það er
mundu strax verða fyrir árás-
um ef styrjöld skellur á. Ef
þessar stöðvar yrðu lagðar nið-
ur og eyðilagðar er engin á-
stæða til þess að ætla að
væntanlegum styrjaldaraðilum
gæfist timi til þess að koma
hér upp herstöðvum. Væri því
mikið öryggi fengið fyrir ís-
lendinga fyrir því að hér kæmi
alls ekki til hernaðarátaka.
Kjarnorku-
vopn? .
Herstöðvamálin eru nú mjög
á döfinni vegna hagsmuna
bandaríska flotans (og þá sér-
staklega Hvalfjörður). Því er
það nú tímabært að íslenzk
stjórnarvöld veiti almenningi
íullar upplýsingar um þessi
mál, og sérstaklega ættu þau
að upplýsa hvort k'jarnorku-
vopn séu geymd í byggingum á
Keflavíkurflugvelli sem eru út-
búnar sérstökum loftræsti-
tækjum, sem nauðsynleg eru
þar sem geislavirk vopn eru
geymd,
Heimamaður á vellinum.
Dallas Long
staðfest, að halli vallarins hafði
ekki verið of mikill, og ekki var
kúlan heldur of létt, eins og
oft vill koma fyrir, hún var 400
grömmum of þung!
Þetta bendir til þess að Dallas
sé í mjög góðri þjálíun.
Dallas Long er stórhuga, og
hann telur að hægt sé að varpa
kúlunni 70 ensk fet eða hvorki
meira né minna en 21,36 m. Ef
til vill er þetta ekki svo fjar-
stæðukennt, þegar litið er á
þróunina í heimsmeti kúluvarps-
ins á liðnum árum. Muna má,
þegar Jack Torrance setti heims-
met sitt í Osló, 17,40, þá þótti
afrekið mjög ótrúlegt, var næst-
um talið „ómögulegt“, og vakti
gífurlega athygli. Með tilliti til
þessa má segja að það sé frá-
leitt að bæta það met um næst-
um 4 metra!
Þessi 19 ára piltur hefur á
tveim árum 1 bætt árangur sinn
um 2 metra. og svolítið betur.
og ef hann heldur áfram á sömu
braut, er ekki gott að segja hvað
honum er mögulegt.
Víst er um það að bak við
þessi ummæli Dallas stendur ó-
venjulegur efniviður frá náttúr-
unnar hendi, sem æfir ákaflega
markvisst og reglubundið, mað-
ur með sterkan vilja að ná
toppnum. Og tvítugur maður
með þessa eiginleika ætti að
geta náð langt, og víst er að
margir munu veita honum at-
hygli á komandi mótum vestra,
og viðureign þeirra landanna
O’Briens og Long, og þá ekki
sízt í Róm í sumar.
„Djúpir eru Islands álar“
Breiðfirðingaheimilið
Aðalfundur Breiðfirðingaheimilisins h.f. verður hald-
inn í Breiðfirðingabúð föstudaginn 22. apríl 1960 og
hefst kl. 8,30 e.h Tekin verður ákvörðun um tillöga
frá Breiðfirðingafélaginu varðandi ráðstöfun á arði
hlutabréfa.
Að öðru leyti er dagskrá samkvæmt félagslögum.
Reikningar félagsins liggja frammi hluthöfum til
sýnis hjá gjaldkera félagsins, Skipholtj 17.
Stjórnin.
Facts about Iceland
Ný og endurskoðuð útgáfa hins handhæga og vinsæla
kynningarrits Ólafs Hanssonar er komin í bókabúðir.
Sama rit fæst einnig á dönsku, þýzku og spænsku.
Verð kr. 25.00.
Lög og réttur
Nauðsynleg handbók á hverju heimilt.
Verð kr. 165.00 í bandi.
Xvvrði I-IV
í bandi. — Verð kr. 150.00. 1
Tækniorðabók
Verð kr. 150.00. ’S
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS.
Ný bók:
Uppruni Islendinga
Ritgerðasafn eftir Barða Guðmundsson.
Skúli Þórðarson og Stefán Pjétursson önnuðnst
útgáfuna.
I bó'k þessa hefur verið safnað
öllum ritgerðum Barða Guð-
mundssonar sagnfræðilegs efn-
is, prentuðum jafnt sem óprent-
uðum, öðrum en þeim, er hann
reit um höfund Njálu og Bóka-
útgáfa Menningarsjóðs gaf úfc
1958.
Meginhluti ritsins fjallar unt
uppruna og fornsögu íslend-
inga. Er þar með nýstárleg-
um rökum og á frumlegan
hátt fjallað um harla merki-
legt efni, enda kemst höfundur
að niðurstöðu, sem hrýtur mjög
í bág við fyrri kenningar fræði-
manna.
Þrjár síðustu ritgerðir bókarinnar fást við rann*
sóknarefni úr fornsögu Norðmanna, Svía og- Breta.
Allir, sein áhuga hafa á í.slenzkri og norræmii sa.gn-,
fræði, verða að kynna sér efni þessarar bókar.
Verð 135.00 kr. ib., 185.00 í skinnungsbandi,
220.00 í sktinnbandi. í
BÖKAÚTGÁFA MENNINGARSJÖÐS. | 1 j