Þjóðviljinn - 31.03.1960, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 31. marz 1960
Æ S K ULÝÐSSÍÐAN
\ ___________
að stóra átakið félagar!
„Þegar mikið liggur við reyn
ast félagarnir bezt”
1 gær hóíst happdrætti bygg-
ingarsjóðs Æskuiýðsfylkingar-
innar. „Það er mesta fjárhags-
lega átak. sem hreyfingin hef-
ur Iagt útí“, sagði Örn Erlends-
son formaður Æ.F.R. þegar við
koraum að taka viðtalið.
— Markið er sett hátt að
þessu sinni.
— Þetta er eðlilegt mark.
Það takmarkaða húsnæði, sem
samtökin hafa nú ráð á, setur
öllu íélagsstarfi þröngar skorð-
ur. Meiriháttar fundir og
skemmtanir hafa verið haldn-
ar í Fram-
sóknarhús-
inu. Við bú-
um við minni
húsakost en
önnur póli-
tísk samtök.
En við svo
búið má ekki
Örn standa von úr
viti. Æsku-
lýðsfylkingin hefur nú riðið á
vaðið. Það er búið að stofna
byggingarsjóð og þetta verður
fyrsta stóra fjáröflunin í hann.
Sósíalistaflokkurinn mun svo
væntanlega koma til samstarfs
við okkur um að levsa hús-
næðisvandamál sósíalista var-
anlega.
— Heldurðu að nú náist sá
árðngur, sem þarf til að geta
hafizt handa?
— Þessu happdrætti er
hrundið af stað af bjartsýnum
óhugamönnum innan félagsins.
Þeir hafa haft veg og vanda
af undirbúningnum. Ég efast
ekki um, að sá áhugi og bjart-
sýni á eftir að smita út irá
sér og virkja alla félaga í
þessu þýðingarmikla átaki. Fé-
lagarnir hafa jafnan sýnt, að
þegar mikið liggur við, geta
þeir gert stóra hluti. Þetta er
heldur ekki eins erfitt og kann
að virðast í fljótu bragði. Hver
l'ylkingarfélagi þarf t.d. ekki
að selja nema fimm blokkir
til að við seljum upp. Það
verða 50 miðar á tveim mánuð-
um. Ég efast ekki um að við
munum selja upp. Þess má
geta, að til þess að örva söl-
una verða haldnar nokkrar
skemmtanir, og það verða veitt
glæsileg söluverðlaun. En frá
því verður sagt síðar.
— Er meiningin að þetta
verði samkomuhús. líkt og
önnur pólitísk samtök eiga?
— Við stefnum að því að
þetta verði hús sem kemur
æskulýð bæjarins að betri not-
um en þau. Það er ekki brýn
nauðsyn að fjölga danshúsum
fyrir borgarana. Aftur á móti
er mikil þörf að fjölga þeim
stöðum þar sem æskan á eitt-
hvað athvarf í tómstundum og
með ýmsa félagsstarfsemi. Við
vonumst til að geta orðið að
liði við að bæta úr því.
• — Og það sem þú vilt segja
að lokum?
— Við alla fylkingarfélaga
vil ég segja; látum árangurinn
af þessu happdrætti verða slík-
an. að við getum fljótlega far-
ið að vinna saman við að reisa
myndarlegt hús. Ég veit að hin-
ir ýmsu meðlimir samtakanna
s.s. arkitektar, verkfræðingar,
rafvirkjar, múrarar, verka-
menn og svo íramvegis eru
fúsir að leggja fram mikla
vinnu til að koma takmark-
inu í framkvæmd. En til þess
að 'þeir kraítar fái notið sín
verða félagar að bregðast rösk-
lega við, þegar leitað verður
til þeirra með miða og nota
vel allan tímann.
— Og það sem þú vildir
segja að lokum?
— Við hefjum þetta happ-
drætti á sögulegum degi úr
baráttu alþýðunnar gegn inn-
lendu og erlendu afturhaldi.
Við verðum að láta árangur
þess varpa enn meiri Ijóma á
þann dag. Sumum kann að
virðast í fljótu bragði, að það
sé of hátt markmið hjá okkar
samtökum að ætla að koma
upp stórhýsi. En við eigum
margar vinnufúsar hendur og
eigum von á góðu samstarfi við
Sósíalistaflokkinn. Og ég vil
undirstrika. að ef sá áhugí, sem
þegar er f.yrir hendi, heldur
ófram að breiðast út þá mun
þetta frumkvæði Æskulýðs-
fylkingarinnar verða til að gera
þetta markmið að raunveru-
leika.
Við eigum margar vinnu-
fúsar hendur”
— Sala happdrættismiðanna
mun fara fram um allt land,
sagði Guðmundur Magnússon
forseti Æskulýðsfylkingarinnar.
— Hver verður þá hlutur
sambandsins og deildanna úti
um land í b.yggingarsjóðnum og
happdrættinu? spyrjum við
fyrst.
— Hlutur sambandsins í
byggingarsjóðnum er Vi á móti
% hlutum Æ.F.R. Þess vegna
munu 25% af nettó ágóða í
sölu deild-
anna úti á
landi renna í
byggingar-
sjóðinn. Af-
gangurinn fer
til starfsemi
deildanna þar
og einnig í
erindrekasjóð
Æ.F., sem
auðvitað mun koma deildunum
úti á landi að miklum notum.
Þetta hlýtur að teljast eðlilegt
fyrirkomulag. Það er mjög
mikilvægt fyrir sambandið að
eiga góðan samastað, en auð-
vitað kemur væntanlegt hús
að beinni notum fyrir Æ. F. R.
en deildirnar úti á landi.
— Verður ekki eitthvað gert
til að hjálpa til og örva söluna
úti á landi?
— Ætlunin er að senda er-
indreka til deildanna til að
hjálpa þeim í þessu átaki,
koma á skemmtunum til að
vekja athygli á happdrættinu.
Deildunum verða sett mörk og
komið á keppni milli þeirra
innbyrðis. Einnig verða sölu-
verðlaun, sem nánar verður
skýrt frá seinna.
Guðmundur
/
o-Avarp
Æskulýðsfylkinqin hefur undanfarið verið
að auka starfsemi sína, öllum sósíalistum
til mikillar ánægju. Það er sönn unun hin-
um eldri að sjá vaxandi áhuga þeirra, sem
við eiga að taka.
Nú efnir Æskulýðsfylkingin til haÐpdrætt-
is, til þess að afla fjár í nýstofnaðan bygging-
arsjóð sinn, og leggja grundvöll að aukinni
starfsemi.
Æskan rétftir oss nú örvandi hönd. Lálnm
hana finna í verkinu stuðnincr hinna eldri!
Eflum hanndrætti Æskulvðsfvlkingarinnar
og iátum þá ungu finna að alþýðan metnr
áhuga þeirra og starf.
Einar Olgeirsson
<8>-
V ’
&
Æ.F.R.-FÉLAGAR!
Munið að koma á skrifstofuna
frá klukkan 6—10 í kvöld
og taka.happdrættismiða til sölu.
Happdrættissímar ÆFR eru
17513 og 24651.
Glæsileg söluverðlaun verða
tilkynnt 20. apríl.
Seljum hvern einasta miða!
Genfarróðstefnan
Framh. af 1. síðu
Bandaríska ttillagan er órétt-
lát og skilyrði hennar óhæf,
sagði fulltrúinn ennfremur. Ó-
mögulegt er að hafa eftirlit með
því að skilyrðin verði haldin, og
allur kostnaður við slíkt mun
lenda á strandrikinu. — Hvernig
er hægt að þekkja í sundur hver
hluti aflans er veiddur innan
12 mílna og hver hluti á úthaf-
inu? spurði fulltrúinn.
Sérréttindaákvæði bandarísku
tillögunnar myndu skerða sjálf-
stæði strandríkisins og veita
vissum erlendum ríkjum eilíf í-
tök í vfirráðasvæði þess. Sam-
kvæmt tillögu USA verður
strandrikið að bíða með rétt
sinn ef deila r:s, þangað til að
gerðardómur hefur fellt úrskurð.
Þetta samsvarar því að erlerit
ríki hafi fullveldi í landhelgi
annars rikis, f bandarísku til-
lögunni er ekki um söguleg rétt-
indi að ræða, heldur er þar hald-
ið fram kenningum um áunnin
rétt, sem er leyfar nýlendustefn-
unnar. Það er ósamrýmanlegt
anda Sameinuðu þjóðanna að
beita slíkri stefnu og sviíta ríki
þjóðlegum auðæfum sínum. Það
er engin hætta á að strandríki
muni ekki sjálf nýta fiskistofn-
inn við strendur sínar til fulls.
Viðurkenning svokallaðra rétt-
inda myndu aðeins leiða til sí-
fellds misskilnings og deilna milli
ríkja, en það er nauðsynlegt að
forðast slíka árekstra. Júgó-
slav'a er andvíg öllum tillögum.
sem takmarka réttindi strandrik-
is innan 12 mílna, sagði júgó-
slavneski fulltrúinn að lokum.
Vesturveldin á móti
Fulltrúi Róllands studdi tillög-
una um 12 mílna landhelgi á
fundinum í gær. Fulltrúar Portú-
gals, Japans og Vestur-Þýzka-
lands vildú hins vegar aðeins
þriggja mílna landhelgi.
Fulltrúi íslands talar á ráð-
stefnunni í dag, og sömuleiðis
íulltrúar Mexíkó, Indlands,
Ástralíu og Noregs. .
Brezka blaðið Daily Telegraph
þykist vita, að franska nefndin
muni bera fram málamiðlunar-
tillögu um að „ sögulegur rétt-
ur“ á yfir 6 mílna belti verði
látinn gilda í 10—20 ár. Blaðið
segir. að brezkir togaraeigend-
ur telji þá tillögu sæmilega
varðandi veiðar við ísland,
Grænland og Noreg.
Krústjoff
ánægður
Krústjoff forsætisráðherra
er nú að ljúka ferðalagi sínu
um Frakkland og á morgun
munu viðræður hans og
de Gaulle sennilega hefjast að
nýju.
í gær kom Krústjoff til
Rúðuborgar í Normandí. Krúst-
joff var mjög ánægður með
vel heppnað ferðalag Hann
kvaðst telja mjög góðar horfur
á því að samkomulag myndi
bráðlega nást um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn.
Sovétríkin hefðu nú komið til
móts við vesturveldin til að ná
samkomulagi, og nú stæði að-
eins á því að vesturveldin vildui
samþykkja sínar eigin tillögur.