Þjóðviljinn - 29.05.1960, Page 12
þJÚÐVIUINN
Sunnudagur 29 maí 1960 — 25. árgangur — 122. tölublað
Fyrirspurn til Jónasar Haralz:
Myndin var tekin í
Xryggvagötu á uppstign-
ingardag, er þrír ungir
piltar voru þar á ferð með
bát á kerru. Þeir voru að
koma frá höfninni, þar
sem þeir höfðu siglt á
bátnum góða stund.
Fjórði drengurinn á
myndinni (til hægri) kom
aðvífandi um það leyti
sem ljjósmyndarinn
„smellti af“ og vildi hafa
hönd á bátnum, eu það
var litið óhýru auga af
hinum, eins og sjá má.
(Ljósm. Þjóðv. A.K.)
lllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllliillllilllllillilllllilliliiiilillllllllllllllllllllllllllllllllllllllil,
Munaði þrem atkvæðum að
tveir íéllu úr stjórn SH
Hörö átök uröu í stjórnarkosningu á aöalfundi Sölu-
miöstöövar hraðfrystihúsanna í fyrrinótt.
Ekki munaði nema þrem at-
kvæðum að tveir stjórnarmenn,
Einar Sigurðsson ríki og Jón
Gíslason, yrðu felldir frá end-
urkjöri.
LÍÚ-menn.
Gegn þeim var stungið upp á
Einar Guðfinnssyni í Bolunga-
vík og Ingólfi Flygenring 'í
Hafnarfiði Fengu þeir Einar
ríki og Jón 29 atkvæði en hin-
ir 26. Stjórnarformaðurinn Elí-
as Þorsteinsson og Sigurður
Ágústsson voru endurkjörnir
nær einróma, en fimmti stjórn-
armaðurinn, Jón Ámason, fékk
nokkru fle'ri atkvæði en beir
nafni hans Gíslason og Einar
ríki.
Að baki tilrauninni til stjórn-
arbreytingar stóð hópur sem
nýtur stuðnings LlÚ, en eins
og kunnugt er hafa ráðamenn
þar og í SH bæði með hönd-
um útgerð og frystihúsarekst-
Jón á eftir tímanum.
Óánægjan með þá Einar og
Jón stafar ekki sízt af því að
þeir eru eindregnustu stuðn-
ingsmenn Jóns Gunnarssonar
alheimssölustjóra í stjórn SH.
Ýmsir frystihúsaeigendur, og
ekki s'íður starfsmenn SH,
telja að starfsaðferðir hans
séu langt á eftir tímanum.
Frystingu fiskjar og dreifingu
vörunnar hefur fleygt fram
víða um heim síðasta áratug-
inn, en kerfið sem Jón kom á
fyrir 17 árum má heita óbreytt
til þessa da,gs. Er það útbreidd
skoðun að Jón sé dragbítur á
umbætur og nýjungar.
Eldhúsumræður
Almennar stjórnm.álaumræð-
ur, „e’dhúsdagsumræður", fara
fram á Alj ingi annað kvöld
(mámidag) og þriðjudagskvöld.
Verður þeim úfvarpað samkv.
þingskÖpum.
Ræðumenn fyrra kvöldið
verða þessir: Frá Alþýðu-
bandalaginu: Karl Guðjónsson
og Alfreð Gíslason; frá Al-
þýðuflokknum: Gylfi Þ. Gísla
son og Birgir Finnsson; frá
Sjálfstæðisflokknum: Ól. Thors,
Gunnar Thoroddsen og Birgir
Kjaran; Frá Framsókn: Her-
mann Jónasson, Jón Skaftason
og Halldór E. Sigurðsson.
111111111111111111111111111111111111111111111111111111M111111111111111II11111111111111111111111111111) 11111111111111111111 i 11111111111111111111
90 þúsund tunnur bíða síldarvertíðarinnar
Hagfræðingar ríkisstjórnar-
innar segjast hafa reiknað út
alla viðreisnina í einstökum
atriðum og séð allt fyrir (þótt
ýmsar skekkjur sem nema
nokkrum hundruðum milljóna
hafi að vísu þegar komið i
ljós). Þeir segjast hafa reiknað
úf afkomu útgerðarinnar,
fiskvinnslustöðvanna, verzlun-
Þýzkir kanpa vik-
ur í Hafnarfirði
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
undirritaði í fyrradag samning
við þýzkt fyrirtæki sem ætlar
að flytja út vikur úr landi
Hafnarfjarðar og um Hafnar-
fjarðarhöfn. Verður vikurinn
tekinn í Óbrýnnishólum og
komið fyrir færibandakerfi í
höfninni til útskipunar. Samið
var um að þýzka fyrirtækið
greiði 1 þýzkt mark fyrir hvert
tonn vikurs og 1 mark í hafn-
argjöld fyrir tonnið, þó aldrei
minna en 100.000 mörk á ári
í hvorttveggja. Einnig greiðir
fyrirtækið fyrir leigu á landi
og annað s!íkt og sér að sjálf-
sögðu um allan kostnað. Samn-
ingur þessi g: dir í 10 ár, og
framlengist í sjö ár verði hon-
um ekki sagt upþ.
arinnar, iðnaðarins o.s.frv. og
birt niðurstöður sinar í hvítri
bók og víðar. Það er aðeins eitt
sem ekki hefur komið fram í
reikningum og áætlunum hinna.
vísu manna:
Hvernig á verkafólk að
fara að því að lifa eftir við-
reisnina ?
Þjóðviljinn vill beina þessari
spurningu sérstaklega til Jón-
asar H. Haralz, sem hefur
haft forustu fyrir hagfræðing-
unum. Hann hlýtur að hafa
reiknað sérstaklega út það
frumatriði, þá algeru forsendu,
að verkafólk geti komizt af í
landinu eftir að kerfi hans er
komið til framkvæmda. Þjóð-
Þingi að Ijúka
Ákveðið hefur verið að ljúka
störfum Alþingis fyrir hvíta-
sunnu, og hafa verið langir
fundir og margt mála á dag-
skrá s;ðn=tu daga.
Á fundi sameinaðs þdngs í
fyrradag voru afgreiddar all-
margar þingsályktunartiliögur,
og á kvöldfundum deildanna á
föstudag var ha’dið áfram um-
ræðum um nokkur mál, sem
ætlunin er að afgreiða. Frá
þeim verður skýrt síðar.
Jónas Haralz
viljinn skorar því á Jónas að
birta niðurstöður sínar:
Hvernig á fjölskylda
Dagsbrúnarverkamanns —
af sömu stærð og vísitölu-
fjölskyldan — að lifa af kr.
4.134 á mánuði miðað við
verðlagið í dag? Hvernig
eru búreikningar slíkrar
fjölskyldu hugsaðir í ein-
stökum atriðum?
Þjóðviljinn skorar á Jónas
H. Haralz að svara þessum
einföldu spurningum og hsitir
honum rúmi í blaðinu fyrir
svör sín.
Akureyri, 24. maí
Vinnu í Tunnuverksmiðj-
á Akureyri lauk að þessu
sinni 21. þ.m., og' liafði þá
verið unnið að tunnusmíði
samfellt frá því skömmu fyr-
ir áramót. Alls voru nú siníð-
aðar í verksmiðjunni 57.500
tunnur, en auk þess eru til
hjá verksmiðjunni frá því í
fyrra um 34 þúsund tunnur.
Það eru því samtals yfir 90
þúsund tunnur, sem hér bíða
komandi síldarvertíðar.
Tunnuverksmiðjan hér býr
við lélegan húsakost, sem
þyrft.i að endurbæta eða þá
bygg.ia nýja verksmiðju. Til-
finnanlegast er þó, að engin
geymsla er hér fyrir fram-
leiðslu verksmiðjunnar, og
tunnunum er staflað úti,
eins og meðfylgjandi mynd
sýnir. Af þessum sökum verða
á þeim meiri og minni
skemmdir, þegar þær verða
til skiptis að þola snjó og
rigningu eða sólarhita.
Fyrir ári síðan fékk verk-
smiðjan lóð fyrir nýja ver!k-
smiðjubyggingu og geymslu-
skýli á Oddeyrartanga, og þá
var talað um, að bygginga-
framkvæmdir myndu hefjast
á liðnu sumri. Ekkert varð þó
af bví. Á síða=tliðnu hausti *
fengu svo skrítnir msnn í
Síldarútvegsnefnd þá flugu í
hausinn, að þjóðráð væri að
flytja verksmiðjuna frá Ak-
ureyri og út í sveit, 'að Dag-
verðareyri. Því var kröftug-
lega mótmælt af Verka-
mannafélagi Akureyrarkaup'-
staðar, og síðan hefur ekki
frétzt af þeirri fyrirætlan
meira, og ekki bólar heldur á
neinum framkvæmdum á lóð
þeirri, sem verksmiðjan fékk
á Oddeyri.
Akureyringar, og þá ekki
sízt verkamennirnir, sem lijá
verksmiðjunni vinna á vetr-
um, vona, að bygging nýrrar
verksmiðju verði hafin í sum-
ar liér í bænum. Og' síklar-
saltendur vona, að það ó-
fremdarástand taki sem fyrst
enda, að tunnurner þurfi að
geyinii úti mánuðum saman
óvarðar fyr>r regni. sól og
vindum. Tiinnuverksmiðian
bíður líka árlega stórtjóri
vegna skemmda á tunnun-
um, þegar þær eru gevmdar
á Ifennan frumstæða hátt.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Eftir 5 dapa verður harðnar daq frá degi
dreqið í bygaingar- og bessir síðustu dagar
happdrætti ÆF. Keppn- munu skera úr um það,
in um söluverðlauniri hverjir það verða, sem
hljóta þau glæsilegu verðlaun, sem um er keppt. Notið sunnudaginn vel. Það getur fært ykkur sigur í samkeppninni.