Þjóðviljinn - 02.06.1960, Page 5

Þjóðviljinn - 02.06.1960, Page 5
Fimmtudagur 2. júrií 1960 — ÞJÖÐVILJINN — (5 Krústjoff telur að Eisenhower eigi ekki sjálfur sök á því hvernig Parísarfundinum lauk í ræöu þeirri sem Krústjoff, forsætisráöherra Sovét- ríkjarma, flutti á. verkalýðsráðstefnu í Kreml fyrir helg- ina, sagöi hann aö það væri ekki fyrst og fremst sök | Eisenhowers Bandaríkjaforseta aö stórveldaráðstefnan í París fór út um þúfur, heldur miklu fremur þeirra manna sem aö baki honum slanda. Krústjoff svaraði fullyrð- ingum ráðamanna á vesturlönd- um að þeim stafi hætta af Sov- étríkjunum með því að segja að sú hætta væri ekki fólgin í sovézku flugskeytunum, enda þótt þau væru mestu og full- komnustu vopn nútímans. — Annars höfum við ákveð- ið, sagði hann, að hætta fram- leiðslu á ákveðnum flugskeyta- gerðum. Flugskeyti eru ekki ávextir, þau er ekki hægt að borða, og aðeins tiltekinn fjöldi þeirra nægir til að svara árás. Hann sagði að auðvaldslönd- unum stafaði að vísu ein hætta frá Sovétríkjunum, en sú ha:tta væri fólgin í friðsamlegri sam- keppni á efnahagssviðinu. Hann ræddi um njósnaflugið: „Við vitum vel að lögmál a uðvaldsþjóðfélagsins staðfesta rétt hinna ríku til að arðræna hina fátæku og ýmsan annan órétt, en á okkar tímum verða hins vegar að vera vissar al- þjóðlegar réttarreglur. Hverju ríki er skylt að virða alþjóða- lög. Séu þau brotin, verður tortímingarstríð ekki umflúið. Séu virt að vettugi frumatriði alþjóðaréttar sem eiga að vernda landamæri rikja og koma í veg fyrir að ráðizt sé yfir þau aukast viðsjár í al- þjóðamálum. Það hefur gerzt nú og stjórn Bandaríkjanna á sök á því.“ Eisemhower vill frið Krústjoff lagði siðan meg- ináherzlu á friðarstefnu Sov- étríkjanna og rakti viðleitni hennar til að koma á allsherj- ar afvopnun. Iíann sagðist hafa komizt að þeirri niður- stöðu í viðræðum sínum við Eisenhower Bandaríkjaforseta að hann vildi í rauninni frið og bætta sambúð stórveldanna. Síðan bætti hann við: „Ég verð að segja að ég trúi því enn sem fyrr að forsetinn vilji sjálfur frið. En eitt eru frómar óskir forsetans, en ann- að utanríkisstefna Bandaríkj- anna. Ég sagði við Eisenhow- er forseta þegar er við hitt- umst í Camp David að aðstaða mín væri önnur en hans, þvi að j mínu landi væri öll ríkis- Stóðuust ekki dóm reynslunnar Framhald af 1. síðu að reyna að fá samþykktar á því breytingar. Hins vegar væri það táknrænt, að síðasta verk þings yrði að afgreiða þetta frumvarp, sem borið væri fram vegna þess, að efna- hagsaðgerðir ríkisstjómarinnar liefðu ekki staðizt dóm reynsl- unnar. Málinu var vísað til 3. umræðu. Útsvörin voru tekin af dag- Skrá að þessu sinni. stjórnin, öll þjóðin og flokk- urinn sömu skoðunar, þ.e. vildu stefna að því að draga úr við- sjám í heiminum. En að baki forseta Bandaríkjanna má sjá menn sem koma í veg fyrir að óskir um friðsamlega þróun rætist.“ I þessu sambandi nefndi Krústjoff þá ákvörðun Banda- ríkjastjórnar að hefja aftur til- raunir með kjarnavopn, ræð- anjarðar, ræður þær sem þrír af æðstu embættismönnum hennar, Herter, Nixon ogDillon fluttu rétt fyrir stórveldafund- inn, ummæli og ðgerðir valda- manna í V- Þýzkalandi og síð- an njósnaflugið yfir Sovétrík- in, 9. apr. og 1. maí. Af öllu þessu dró Sovétstj. þá ályktun að ætlun Bandaríkjanna væri að auðmýkja Sovétríkin og sýna alheimi að Bandaríkin gætu sagt þeim fyrir verkum. Og ofan á allt þetta bættist að rétt í þann mund þegar stór- veldaráðstefnan var að hefjast var fyrirskipaður allsherjar viðbúnaður á herstöðvum Bandaríkjanna um allan heim. Hvers vegna einmitt nú? Krústjoff drap á það atriði í útvarpsræðu Eisenhowers 25. maí þar sem hann þóttist ekki skilja hvers vegna Sovétstjórn- in hefði gert svona mikið veður út af njósnarfluginu einmitt nú, þegar henni hefði verið kunnugt um það í mörg ár að Bandaríkjamenn stunduðu slíkt flug yfir sovézku landi: „Við höfum margsinnis mót- mælt flugi bandarískra flug- véla yfir land okkar, en Banda- ríkin báru alltaf á móti stað- reyndunum og héldu því fram að það væru ekki njósnarflug- vélar sem farið hefðu yfir Sovétríkin. Ég minritist ekki á þetta við Bandaríkjaforseta í Camp David. Ástæðan var ekki sú að ég teldi ekki njósnar- flugið skipta jafn miklu máli og ég tel nú. Sú var tíðin að við gátum ekki skotið þessar flugvélar niður af því að þær flugu svo hátt. En nú liafa sovézkir vísindamenn og verka- menn búið til framúrskarandi flugskeyti. Og bandarísku her- foringjarnir gáfu okkur gott tækifæri til að sýna hvers þau væru megnug. Asíuríkin verði með Krústjoff lagði áherzlu á að .Sovétstjórninni væri nú sem fyrr reiðubúin til samningavið- ræðna við vesturveldin, en þó því aðeins að þau sýni einhvern snefil þess að þau vilji semja um afvopnun. Hins vegar myndu slíkar við- ræður ekki bera tilætlaðan árangur nema því aðeins að hinar miklu þjóðir Asíu tækju þátt í þeim, og þá fyrst og fremst Kínverjar, Indverjar og Indónesar. Fléðbylgjan sem skall me'ö heljarkrafti á Japan í síöustu viku eftir aö hafa fariö 16.000 km leiö yfir Kyrrahaf frá upptökunum á jarö- skjálftasvœöimi viö Chile molaöi allt sem fyrir varö. í höfnum og viö alla austur- ströndina œgöi saman hvers konar vogreki, braki úr húsum, skipum, húsgögnum, tunnum o.s.frv. Myndin er tekin í hafnarbænum Magawa. Moskvuútvarpið hefur sagfc frá yfirheyrslum yfir banda- ríska njósnaflugmanninum á flugvélinni, sem skotin var niður yfir Sovétríkjunum 1. maí. Powers sagði að hann hefði síðan árið 1956 þegar hann fór Úr bandaríska flughernum unn- ið „á skrifstofu". Aðspurður sagði hann að þessi skrifstofa hefði verið sameiginleg stofnun fyrir herflug og farþegaflug. Stofnunin var leynileg og hafði dulnefnið 10-10. — Hvaða verkefni hafði þessi stofnun, var hann spurð- ur, og svaraði að henni væri fyrst og fremst ætlað að hafa upp á radarstöðvum og eld- flaugastöðvum. — Hver er Shelton ofursti? — Plann er yfirmaður 10-10. — Gerið þér yður Ijóst fyr- ir hvað þér eruð ákærður? — Já. lands, íran og Afganistans. Auk þess fór ég á árunum 1956-1957 þrjár eða fjórar flug- ferðir yfir Svartahaf án þess þó að fara inn yfir sovézkt land. Eg man e'kki vel hve oft ég fór í slíkar ferðir, en mörgum sinnum var það. Á flugi mínu miðuðu sérstök tæki merki frá sovézkum útvarps- og radar- stöðvum. A.m.k. var mér sagt að svo væri, en ég get ekkert sagt með vissu um hvort tæk- in í flugvélinni miðuðu útvarps- og radarstöðvarnar, þar sem mér hafði ekki verið kennt á þau og ég fékk aldrei neitt að vita um árangur af starfi mínu. Áður en við lögðum upp í slíkar flugferðir fengum við fyrirmæli um yfir hvaða stöð- um við ættum að kveikja eða slökkva á tækjunum. — Hað fluguð þér hátt þeg- ar flugvél yðar var skotin nið- ur ? — í 68.000 feta (20.750 metra) liæð. — Hvaða verðlaun bjuggust þér við að fá fyrir þessa flug- ferð ? — Alls engin. Ég fæ 2.400 dollara laun á mánuði (um 100.000 krónur) fyrir að leysa af her.di það sem mér er falið. í þetta sinn var mér falið að fljúga frá Pakistan til Noregs. Eimreiðin 65 ára — Játið þér sekt yðar.? — Ég játa að ég hafi flogið inn í sovézka lofthelgi, yfir þá staði sem merktir voru á flug- kortið, að ég kvéikti og slökkti á sérstökum tækjum í flugvél minni og að ég taldi að til- gangurinn með fluginu væri að afla upplýsinga um Sovétríkin. — Segið nokkru nánar frá því sem þér játið yður sek- an um. — Samkvæmt þeim samningi sem ég gerði við bandarísku leyniþjónustuna var ég flug- maður í hinum sérstöku sveit- um sem hafa það hlutverk að afla upplýsinga um útvarps- og radarstöðvar á sovézku landi og ég býst við líka eld- flaugastöðvar. Flugsveitir okkar hafa fast aðsetur á tyrknesku flugstöð- inni Incirlik nálægt borginni Adana. Ég hef starfað í stöð- inni síðan í ágúst 1955 og hef mörgum sinnum á ári flogið flugvél af gerðinni U-2 sem sérstaklega er ætluð til flugs í mikilli hæð meðfram landa- mærum Sovétríkjanna, Tyrk- Timaritið Eimreiðin 1. heft.i þessa árs er komin út. Tíma- ritið er að yanda fjölbreytt að efni, en hefur breytt allverulega um útlit. Letur smækkað og spássíur mjókkaðar svo mun meira lesmál rúmast í blaðinu nú en áður. Á þessu ári munu koma út tvö önnur hefti af tíma- ritinu og verða því alls þrjú hefti á ári framvegis, í stað fjögurra. Eimreiðin var stofnuð í Kaup- mannahöfn árið 1895 og hefur komið út óslitið síðan eða í 65 ár og aldrei hefur árgangur ver- ið felldur niður. Fyrstu 23 ár- gangarnir voru gefnir út i Kaup- mannahöfn og var Valtýr Guð- mundsson ritstjóri tímaritsins allan þann tíma. Árið 1918 flutt- ist tímaritið heim og var um fimm ára skeið í eigu Ársæls Árnasonar bóksala, en ritstjóri þess þá var Magnús Jónsson pró- fessor. Árið 1923 gerðist Sveinn Sigurðsson ritstjóri og eigandi Eimreiðarinnar og gaf hana út til 1955, er félag íslenskra rit- höfunda og nokkrir félagar úr því keyptu ritið og stofnuðu um það hlutafélag. Þá varð Guð- mundur Hagalín ritstjóri Eim- reiðarinnar tvö næstu árin og þriðja árið ásamt þeim Helga Sæmundssyni og Indriða G. Þorsteinssyni. Síðastliðið ár var Þóroddur Guðmundsson frá Sandi ritstjóri Eimreiðarinnar. En nú hefur Ingólfur Kristjáns- son tekið við ritstjórn tímarits- ins og er jafnframt aðaleigandi, því hann hefur keypt hluti allra félagsmanna og á Eimreiðina einn á móti Félagi íslenzkra rit- höfunda. Eimreiðin hefur komið lengur út en nokkurt annað sambærilegt islenzkt bókmenntatímarit, og lengi framan af var hún eina íagurfræðilega tímarit lándsins og þó að ýmis hliðstæð tímarit hafi verið stofnuð og komizt til nokkurs þroska, hafa þau fiest lagzt niður af ýmsum ástæðum, eftir lengri eða skemmri útkomu- tíma.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.