Þjóðviljinn - 19.06.1960, Page 3
Sunnudagur 19. júní 1960 — ÞJÓÐYILJINN — (3
Ivefla-
víkur-
gangan
í kvöld
Þjóðhátíðin á Siglufirði
Siglufirði í gær. Frá
fréttar. Þjóðviljans.
Þjóðliátíðaliökiin fóru frain
meíl svipuðu sniði og venjulega
'Veð'ur var allsæniilegt, kclnaði
t»ó nokkuð er á daginn leið..
Þóttu liátíðaliöldin takast vel
og vera hin ánægjulegustu. j
Hátiðahöld hófust kl. 1.30 á
Heíðursfélagi í
V. F. í.
Steingrímur Jónsson rafmagns-
stjóri var kjörinn heiðursfélagi
V erkfræðingaféíags íslands á
sjötugsafmæli hans í gær. Heim-
sótti stjórn félagsins Steingrim
á afmælisdaginn og flutti for-
maðurinn Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri ávarp og af-
henti afmælisbarninu heiðursfé-
lagaskjal „fyrir langt og heilla-
ríkt brautrvðjendastarf við raf-
væðingu landsins, forgöngu og
stuðning við fjölda verklegra og
vísindalegra framfafamála og
framiag j-ðar til íslenzks tækni-
og vísindamáls“, eins og í skjal-
inu segir.
Yfir hafinu suður af íslandi
er mikil hæð en grunnar lægðir
kaldi, þokuloft og riguiug eða
hreyfingu norðaustur. Veður-
horfur: Suðvestan stinnings-
yfir sunnanverðu Grænlandi á
súld (>ðru liverju.
Ráðhústorgi, en þaðan var
gengið í allfjölmennri skrúð-
göngu um nokkrar götur mið-
bæjarins að barnaskólanum.
Ræðumenn voru Guðbrandur
Magnússon kennari og frú Guð
rún Björnsdóttir, Kirkjukór-
Siglufjarðar söng og Lúðra-
sveit Siglufjarðar lék. Kl. 5
hópust ýmiskonar skemmti-
atriði á íþróttavellinum: nagla-
boðhlaup, tunnu- og eggjahlaup
knattspyrna milli leikara og
bílstjóra hæjarins og 17. júní-
hlaupið svonefnda. Sigurvegari
í hlaupinu varð Sigurjón Hall-
grímsson, úr Fljótum, sá
hinn sami og athygli vakti fyr-
ir sigur í 30 km göngu á síð-
asta skíðalandsmóti. Um kvöld
ið kepptu norður- og suðurbæ-
ingar 'i knattspyrnu og sigruðu
hinir fyrrnefndu. Dansað var í
Hótel Höfn til kl. 2 eftir mið-
nætti.
Amma
gengur
Já, víssulega er það rétt
hjá frænda Þórbergi, að
Keflavíkurgangan ætti eng-
um meðalhraustum manni
að vera ofraun, ef hugur
fylgir máli, því hvað er hún
hjá þeirri andlegu þræla-
göngu sem þjóðin hefur ver-
ið keyrð í, 20 ára hersetu.
Veit ég miðaldra ekkju,
móður og ellefu barna
ömmu, sem hyggst fara i
gönguna með glöðu geði.
Man ég föður minn Einar
Pálsson, sem árið 1903
lagði land undir fót með
fimm ára dóttur sunnan úr
Skaftafellssýslu til Djúpa-
vogs og með skipi til Vopna-
fjarðar, en síðan þaðan
landveg upp á efsta bæ á
Jökuldal, iBrú, og talaði um
að skreppa þegar hann fór
igangandi frá Vopnafirði til
Hornafjarðar i kynnisför.
Mér er það mikið gleðiefni
að dóttursyni hans og nafna
skuli auðnast að vera með
í göngunni, þó ég geti það
ekki nema 'í anda, og ef bezt
lætur síðasta spölinn.
Borghildup Einarsdóttir
frá Eskifirði.
Samið við RK ura
rekstur sumar-
dvalarheimilis
Samþykkt var á eíðasta bæj-
arstjórnarfundi tillaga um að
heimila borgarstjóra að semja
v;ð Rauða krossinn um rekst-
ur sumardvalarheimilisins fyr-
ir börn á aldrinum 7-11 ár.
Landlækni Dana
boðið til íslands
Háskóli íslands hefur í sam-
ráði við heilbrigðisstjórnina boð-
ið landlækni Dana, dr. med. Jo-
hannes Frandsen, o? Helgu konu
hans til 10 daga dvalar hér á
landi. Voru þau hjónin væntan-
leg hingað til Reykjavíkur með
millilandaflugvél Flugfélags ís-
lands á fimmtudag.
‘;-Til bessa heimboðs er efnt til
að votta dr. Frandsen þakkir ís-
lenzku þjóðarinnar fyrir hjálp-
semi hans og vináttu í garð ís-
lenzkrar læknastéttar á undan-
förnum árum.
Kosinn í s!|órn Spari-
sjóðs vélsljóra
Gísli Jcnsson a'þingismaður
var á síðasta fundi bæjar-
stjómar Reykjavíkur kosinn í
stjórn Sparisjóðs vélstjóra.
10. landsfimdur Kvenréttinda-
félags Islands hefst í dag
Tíundi landsfundur Kvenréttindafélags íslands hefst
hér í Reykjavík síðdegis í dag, 19. júní, á kvenréttinda-
daginn.
Fundurinn hefst kl. 3.30 síð-
degis í Framsóknarhúsinu og
stendur fram á miðvikudags-
kvöld. Munu fulltrúar utan af
landi fjölmenna á fundinn en
á honum verða rædd ýmis
áhugamál kvenna. Allar konur
eru velkomnar á fundinn alla
fundardagana meðan húsrúm
leyfir.
I kvöld verður 19. júní-hóf
í Framsóknarhúsinu. Hefst það
kl.. 8.30 og er þess fastlega
vænzt að konur fjölmenni
þangað.
Fjölbre.vtt og
myndarlegt kvennablað
Blað kvenna, 19 jún.í kemur
út í dag, sérstaklega fjölbreytt
að efni. Af helzta efni blaðs-
ins má nefna: Síðustu ár Þóru
Gunnarsdóttur eftir Sigrúnu
Ingólfsdóttur, „Ég er alltaf að
leita“, viðtal við dr. Selmu
Jónsdóttur listfræðing eftir
Elsu E. Guðjónsson, Lögvernd-
að launajafnrétti eftir Val-
borgu Bentsdóttur, Islenzkt
skyr eftir Hólmfríði Péturs-
dóttur, Hálfur annar dagur eft-
ir Halldóru B. Björnsson, Vin-
ir á visum stað eftir Ólöfu D.
Árnadóttur, Vemd eftir Þóm
Einarsdóttur, viðtöl við marg-
ar konur sem lagt hafa inn á
nýjar starfsleiðir, grein um
Auði Auðuns borgarstjóra eft-
ir Sigríði J. Magnússon, minn-
ingarorð um látna félaga kven-
réttindafélagsins og ýmislegt
fleira. Ritstjóri 19 júní er
Fór í gær til
Sovétríkjanna
Gylfi Þ. Gislason or kona hans
fóru í gærmorgun, 18. júní, í
lieimsókn til Sovétríkjanna í
boði menntamálaráðherra Sovét-
ríkjanna. Munu ráðherrarnir eiga
viðræður um samskipti land-
anna um menningarmál. Ráð-
herrahjónin munu heimsækja
menningar- og vísindastofnanir í
Sovétr.'kjunum og ferðast um
landið. Þau munu dveljast í 14
daga í Sovétríkjunum.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Guðrún P. Helgadóttir en út-
gefandi Kvenréttindafélag Is-
iands.
Þorkell tekur við
af Giumari
Gunnar Gunnarsson heíur látið
af formannsstöríum í bók-
menntaráði Almenna bókafélags-
ins en við tekið Þorkell Jóhann-
esson háskólarektor. Baldvip
Tryggvason cand. jur. hefur ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri fé-
iagsins í stað Eyjólfs K. Jóns-
sonar.
Kveðja f rá ÆF
á Akureyri
Við fögnum þeirri ágætu á-
kvörðun hernámsandstæðinga í
Reykjavík að beita sér fyrir
mótmælagöngu gegn hersetu
Bandaríkjamann á íslenzkri
grund. Öllum hugsandi mönn-
um er ljóst, að herstöðvar
Bandaríkjanna á íslandi stofna
lífi þjóðarinnar í voða, auk þess
sem þær eru smánarblettur á
okkar unga lýðveldi. Öll alþýða
íslands vill losna undan vernd
Georgs liðþjálfa. Hin leiða þrá-
seta Ameríkumanna hér á landi
er eingöngu sök spilltra íor-
ystumanna íslenzks auðvalds.
Það eina og aðeins það eina, sem
getur leitt málstað íslendinga til
sigurs eru samstillt og kröftug
samtök allra hernámsandstæð-
inga. Sú ríkisstjórn, sem nú
hangir við völd hefur ekki í
þessum efnum fremur en öðr-
um áhuga á því að fara að vilja
fólksins í landinu.
Fjölmenn Keflavíkurganga
mætti verða til þess að ýta við
hinu sótsvarta afturhaldi þessa
lands. Þess vegna hvetja ungir
sósíalistar Norðanlands alla, sem
því geta við komið, að sýna hug
sinn og gera Keflavíkurgönguna
eftirminndega.
halda áfram að mófmœla
Erindrekar Bandaríkja-
manna á íslandi hafa lofað
sína herra af snilli og með
rómantískri andagift. Fram-
koma og hegðun amerískra
soldáta á Islandi bæði fyrr
og uú, ásamt stuðningi
Bandarikjamanna og vernd
þeirra á málstað Islendinga
í landhelgismálinu, virðast í
augum talsmanna vesturs-
ip.s að vera með þeim ágæt-
um, að líkja mætti við einn
geislandi helgibaug dreng-
skapar og hetjudáð, sem
orðið geti Islendingum að
andlegu blysi frelsis og rétt-
lætis um ókomna tíma.
En menn eru stundum
öðru vísi í augum annarra
en í sínum eigin. Við Is-
lendingar lítum ekki á Ame-
r'ikana — með sitt herlið,
sina vernd ásamt stuðningi
þeirra við óvinveitta þjóð
eins og Breta — sem vini,
verndara eða „velkomna
gesti“. I augum okkar eru
hinir amerísku soldátar fólk
sem okkur stafar hætta af;
fólk sem er okkur til leið-
inda og skammar, fólk sem
sezt upp í húsum manna og
ógerningur er að losna við.
Þetta er reynslan og hún er
ólygnust. Islendingar vilja
ekki hafa útlendan her í
sínu landi, og við erum hvað
þessu viðkemur nákvæmlega
eins og aðrar þjóðir í öðrum
löndum. Og við mótmælum
nú í dag, og við munum
halda áfram að mótmæla,
halda áfram að þrjóskast og
hatast við átroðning út-
lendra soldáta. — Og það
mun alltaf blakta á skarinu
hjá okkur — nú sem fyrr —
og þó biðin kunni að verða
löng, þó hún kynni að verða
þúsund og aftur þúsund
sinnum lengri en gangan frá
Keflavík. Við munum engu
gleyma, en halda — hvernig
sem allt kann að velta —
fast og óbifanlega við rétt
okkar og umráð yfir íslandi.
Gunnlaugur Scheving.