Þjóðviljinn - 19.06.1960, Qupperneq 9
Sunnudagur 19 júní 1960 — ÞJÖÐVILJINN — (9
Ritstjóri: Frímann Helgason
Þetta eru stúlkurnar sem eiga að keppa í Svíþjóð,
Handknattleiksst úlkur héðan faka
þátt i Norðurlan damófi í Svíþjóð
Eins og áður hefur verið frá
sagt tekur ísland þátt í Norður-
landamóti kvenna í handknatt-
leik, sem fram fer í Svíþjóð
dagana 24.—25. og 26. júní n.k.
Leggur flokkurinn í för þessa
á þriðjudaginn kemur, og fer
með flugvél til Kaupmannahafn-
ar og þaðan til Vesterás.
Er þetta í þriðja sinn, sem
kvennalið í handknattleik tekur
þátt í Norðurlandameistaramóti
kvenna. í tilefni af förinni hafði
formaður HSÍ, Ásbjörn Sigur-
jónsson, og annar fararstjórinn
Axel Einarsson, stutt samtal við
fréttamenn.
Þeir lögðu mikla áherzlu á,
að stúlkurnar hefðu lagt mikið
að sér við æfingar og yrði vart
á betra kosið. Töldu þeir að
framfai'ir hefuð orðið hjá stúlk-
unum frá því í fyrra og þær
væru alltaf að fá meiri og meiri
leikreynslu, sem væri þýðingar-
mikil í svona leikjum.
Þá lögðu þeir ekki siður á-
herzlu á það í frásögninni, að
þær hefðu sjálfar aflað sem svar
ar 80% af farareyrinum, og vildi
Ásbjöm halda því fram, að það
mundi það síðasta, sem eftir
væri af slíku fórnar- og áhuga-
starfi innan íþróttahreyfi'ngarinn-
ar, og bæri að halda því á lofti.
Félagsandinn og samstarfið væri
með ágætum að gaman væri að
taka þátt í þessu starfi.
Mótið hér 1964?
Þá gátu þeir þess, að stjómin
legði mikla áherzlu á, að mótið
yrði haldið hér 1964. Ákvörðun
um þetta verður tekin á ráð-
stefnu þátttökulandanna sem
haldin verður í sambandi við
mótið. f fyrra var ákveðið að
tiér eftir skuli mótið haldið á 4
ira fresti. Töldu þeir þetta
sanngimiskröíu og að slíkt mót
gæli orðið lyftistöng íyrir kven-
handknattleikinn á íslandi.
ísland hefur leikið 8 landsleiki
í handknattleik kvenna.
Fyrsti landsleikur kvenna fór
fram í Oslo 19. júní 1956 og við
landslið Norðmanna og fóru leik-
ar þannig að Noregur vann 10:7.
Aðrir leikir hafa farið þannig
(allir leiknir í Norðurlandamót-
um);
ísland — Danmörk 2:11
—ísland — Noregur 3:9
ísland — Svíþjóð 3:13
ísland — Finnland 6:5
ísland — Svíþjóð 5:8
ísland — Noregur 7:5
ísland — Danmörk 1:11.
í þessum 8 leikjum hefur
-andsliðið sigrað tvisvar sinnum
og má það kallast góð frammi-
staða hjá svo ungu liði og lítt
vönu í stórleikjum.
Mótið mun fara fram í Bergs-
lagen í Vástmanland og sér
Vástmanlands Handbollförbund
um mótið.
Dregið hefur verið um leikja-
röð og er hún þessi:
1. leikdagur:
Danmörk — Noregur
Svíþjóð — ísland
2. leikdagur;
Danmörk — ísland
Noregur — Svíþjóð
3. leikdagur:
fsland — Noregur
Svíþjóð — Danmörk.
Keppendur:
Katrín Gústafsdóttir Þróttur,
fyrirliði
Sigríður Lúthersdóttir, Ármann
Sigríður Sigurðardóttir, Valur
Erla H. ísaksen, KR.
Sigríður Kjartansdóttir, Ármann
Rut Guðmundsdóttir, Ármann
Rannveig Laxdal, Víkingur
Perla Guðmundsdóttir, K.R.
Gerða S. Jónsdóttir, K.R.
Kristín Jóhannsdóttir, Ármann
Ólína Jónsdóttir, Fram
Jóna Bárðardóttir, Ármann
Sylvía Hallsteinsdóttir, F.H.
Liselotte Oddsdóttir, Ármann
Sigurlína Björgvinsdóttir, F.Il.
Fararstjórar:
Axel Einarsson og Rúnar Bjarna-
son, þjálfari: Pétur Bjarnason,
dómari: Valur Benediktsson.
. Elzti keppandinn er 27 ára, en
sá yngsti 15 ára en meðalaldur
keppenda er um 19 ár.
Af skránni má sjá, að aðeins
tvær hafa leikið 8 landsieiki
eða alla, og ef ekkert kemur
fyrir, má gera ráð fyrir, að þær
komist í 10 leiki í þessari ferð,
en þessar stúlkur eru Rut Guð-
mundsdóttir og Sigríður Lúthers-
dóttir. Af þeim 15, sem valdar
hafa verið til fararinnar, eru 7,
sem aldrei hafa leikið lands-
leiki. Fyrirliði landsliðsins. Kat-
rín Gústafsdóttir úr Þrótti, var
einnig á blaðamannafundinum,
en hún hefur leikið með Þrótti
undanfarin 6—7 ár og leikur nú
miðframvörð, og er liði sínu
stoð og' stytta.
Þegar hún var spurð um. hvort
hún héldi, að liðið væri sterkara
nú en í fyrra, sagði hún að hún
teldi það betra. Stúlkurnar væru
í betri þjálfun, því nú byggju
þær að undirbúningsþjálfuninni,
sem þær fengu í fyrsta sinn þá,
og lítið hlé varð þar til farið var
að vinna að undirbúningi undir
þetta mót, sem við erum nú að
fara til. Hún sagði að meðalald-
urinn væri að vísu lægri en
þá, en það væri sama liðið í
heild virtist sér sterkara.
Er þessum ágæta flokki sem
kunnugt er talinn bera merki á-
hugamanna hér á landi, árnað
allra heilla í þessari þriðju för
sinni til keppni í Norðurlanda-
meistaramóti kvenna.
Kínverskir íþróttamenn á
keppnisferðalagi í Evrópu
Á síðustu árum hefur íþrótt-
um fleygt fram í Kína svo
undrum sætir, en fram að þessu
hafa íþróttasambönd þeirra
ekki fengið inngöngu i alþjóðleg
íþróttasambönd. Nú er þetta að
lagast og eru þeir nú sem óðast
að koma meir með í alþjóðlega
samvinnu á sviði íþrótta.
Fyx-ir nokkru lagði 20 manna
íþróttaflokkur af stað frá Kína
til þess að taka þátt í íþrótta-
mótum í Evrópu og afla sér
þannig keppnisreynslu, en um
þessar mundir eru mörg mót
víðsvegar í álfunni.
A flokkur þessi að keppa í
Rússlandi, Austur-Þýzkalandi,
Tékkóslóvakíu og víðar. í hópi
þessum eru íþróttamenn, seni
hafa þegar náð góðum árangri
á alþjóðamælikvarða. Má þar
nefna stangai’stökkvarana Tsai
Yi-Shu, sem hefur stokkið 4.50.
Spretthlaupara, sem hefur
hlaupið 100 m á 10,5. Grinda-
hlauparann Chou Lion-Li, sem
hefur hlaupið 110 m grind á
14.3.
Af stúlkunum má nefna
Chiang Yu-Min, sem hefur
hlaupið 100 á 11.6 og 200 m á
24.4. Er hún kölluð fljótasta
kona Asíu“. Li Cheng hefur líka
hlaupið 80 m grindahlaup á 10,
Þá má geta Feng-Jung, sein.
um skeið átti heimsmet kvenna
í hástökki.
Hollenzku stúlkurnar
bæta heiinsmet í sundi
Um síðustu helgi fór fram
þriggja landa keppni í sundi,
milli Hollands, Austur-Þýzka-
lands og Bretlands. Á móti
þessu náðist góður árangur í
nokkrum greinum og voru þar
sett Evrópumet og heimsmet.
Hollenzka stúlkan, Marianne
Heebskerk, setti heimsmet á
200 m flugsundi kvenna og
var tíminn 2.34,4, gamla metið
átti Bandaríska stúlkan ÍBecky
Collins og var það 2,37,0, sett
árið 1957. Önnur hollenzk
stúlka setti nýtt Evrópumet á
200 m baksundi, og var árang-
ur hennar 2,36,2. Heitir hún
Catharina Dobber og átti hún
sjálf eldra metið, sem var
2,37,5. Þá setti Hollendingur-
inn Lambourg Evrópumet á 200
m skriðsundi á tímanum 2,21,5.
Eldra metið átti einnig Hol-
lendingur Corrie Schillel og var
það 2,22,1.
Eitt heimsmet enn sá dags-
ins ljós í móti þessu og var
það stúlkan Aia van Velsen.
frá Hollandi sem synti 100 m
baksund á 1,11,0 og bætti þar-
með heimsmet bandarísku
stúlkunnar Carin Cones, en:
en það var 1,11,4.
Hollenzku stúlkurnar settu
ennfremur Evrópumet á 4x100
m skriðsundi, þar sem tíminn.
varð 4,18,2; var það 4,7 sek
betra en það gamla, sem Sví-
ar áttu.
Víða góður árangur í sundi.
Eins og venjulega, rétt fyrir
Olympíuleiki, berast fréttir
víða að um góðan árangur í
sundi (sem og raunar öðruru
greinum).
Framhald á 10. síðu.
Helztu úrslit á 17 .júní mótinu
17. júní mótið fór fram á
Melavellinum dagana 16. og 17.
júní. Helztu úrsht voru sem
hér segir:
Valbjörn Þoi'láksson stökk
4,30 m í stangarstökki, Jón Pét-
ursson stökk 1,92 m í hástökki,
Húseby sigraði í kúluvarpi,
kastað'i 15,07. Hilmar Þorbjörns-
son sigraði í 110 m hlaeupi á
11,0 sek (hljóp á 10,8 í undan-
úrslitum). Pétur Rögnvaldssou
sigi'aði í 110 m grindahl. á 15.9»
sek. Vilhjálmur Einarsson stökk
7,34 í langstökki. Hörður H&r-
aldsson hljóp 400 m gr.hl. á:
58.0. Valbjörn hljóp 200 m hl-
á 22,6 sek. Svavar Markússoa
hljóp 800 m á 1,54,3 mín. ;