Þjóðviljinn - 19.06.1960, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 19. júní 1960
Samtíningur um Suðurnes
Baráttan gegn herstöðvum í Japan
Framhald af 7. síðu.
sjálfra, sem leiddi til þess að.
þeir fóru fiokkum um landið
og drápu hverir aðra. Hér réð-
ust þeir gegn erlendum óvinum
og báru ávallt að lokum sigur
úr býtum.
' „GulSkista"
Suðurkjálkinn eða Reykja-
nesskaginn eins og sumir kalla
hann skagar eins og tröilauk-
inn öldubrjótur út á einhver
beztu mið veraldar. Hann er
þakinn eldhraunum, flestum
runn|um nokkru fyrir land-
námsöld, hrjóstrugur og grett-
ur, en þó einhver mesta land-
kostasveit á íslandi. Um Suð-
urkjálkann liðast engar ár, og
þar er jarðvegur svo grunnur,
að engjalönd eru nær engin
og túnrækt hefur verið mikl-
um erfiðleikum bundin til
þ^ssa; þér þarf jafnvel að
flytja mold að til þess að
hægt sé að hylja kistur í
kirkjugörðum. Engu að síður
oru kjarngóð beitilönd á Suð-
urkjálkanum og bújarðir góð-
ar. Þar hefur búpeningur geng-
ið sjálfala á vetrum allt frá
dögum Ingólfs Arnarsonar,
þangað til Herdísarvíkur-
Surtla féll fyrir hundum og
mönnum sællar minningar. En
skorti hér túnstæði og akur-
lönd, þá hafa löngum verið hér
gullkistur í hafinu við íúnfót-
inn. Eitt frægasta kennileiti á
leiðinni suður á nes er Voga-
stapi, sem nefnist Kvíguvága-
lojörg í Landnámu, en Gull-
kista í sóknarlýsingu frá 19.
öld „af því mikla fiskiríi, er
tíðkað var á færi á hrauninu
þar rétt upp undir í útilegum
• á nóttum“. Skúli Magnússon
landfógeti segir í Lýsingu
J> Gullbringu- og Kjósarsýslu:
,,Nú á tímum eru beztu íiski-
snið í Gullbringusýslu á vetr-
arvertíð á svæðinu frá Kefla-
vík um Njarðvík, Stapa og inn
eftir ströndinni til Brunna-
staða. En bezt eru þau talin
undir stapa, þar sem þorskur-
inn gýtur jafnvel á þriggja
iaðma dýpi; tekur hann þar
bezt beitu að næturlagi, þegar
dimmt er. Þarna hafa íiski-
veiðar tekið miklum framför-
um síðan 1756, vegna þess að
þorskanet hafa verið tekin í
notkun“.
Löngum hefur margs konar
hjátrú verið tengd stapanum,
hann verið talinn bústaður
álfa, og þar hefur þótt reimt;
einhverra þeirra sagna verður
síðar getið.
Undir Vogastapa eru Njarð-
víkur, einn af þeim fáu stöðum
á landi hér, sem kenndur er
við auðsæla siglingaguðinn
Njörð. Sennilega hefur þeim,
sem nafnið gaf, þótt guð auð-
sældarinnar eiga hér nokkurn
samastað. En tímarnir breyt-
ast og mennirnir með. Botn-
vörþungar eyðilögðu rniðin á
flóanum og menn tóku til við
vigvallargerð á Miðnesheiði og
mál er að linni.
Stapadraug-
ur og steinar
Löngum hefur verið talið
reimt mjög á Vogastapa, en
afturgöngur þar eru taldar
drauga kurteisastar, taka jafn-
vel ofan höfuðin fyrir tækni
nútímans. Á fyrri helmingi 19.
aldar bjó Jón Daníelsson hinn
ríki á Stóru-Vogum. Þá voru
þai< miklir rejimleikar. Þeir
voru þannig til komnir, að
bóndinn, sem bjó á Vogum á
undan Jóni, úthýsti manni,
köldum og svöngum í mis-
jöfnu veðri, en sá var á leið
út í Njarðvíkur. Þessi maður
varð úti á Vogastapa nærri
Grímshól. Líkið var borið
heim að Vogum, og varð
bónda svo bilt, er hann leit
það, að hann hneig niður.
Sumir segja, að hann hafi
rankað við aftur, en aldrei
orðið jafngóður og andazt
skömmu síðar, en aðrir, að
hann hafi orðið brákvaddur.
Sá er úti var gekk aftur og
gerði mönnum skráveifur, en
að lokum flæmdi Jón Daníels-
son draugsa að búð einni í
Vogum, sem hét Tuðra. „Þar
kom hann honum fyrir og bað
hann sökkva þar niður til hins
neðsta og versta helvítis, það-
an sem hann væri kominn, og
gera aldrei framar mein af
sér í Vogum.“ Eftir það hurfu
reimleikarnir, og telja menn
draugsa hafa hlýtt fyrirmælun-
um.
Voga-Jón var talinn fram-
sýnn og margfróður. Eitt sinn
á gamalsaldri kom til hans
maður, sem jafnan var óhepp-
inn með afla, og bað hann
kenna sér ráð gegn óheppn-
inni. Jón sagði honum að fara
með austurtrog út í Mölvík
undir Vogastapa, en hún er
niður undan Grímshól, og
koma með það fullt af malar-
steinum, og færa sér. Sá ó-
heppni gerði svo. Jón leitaði
í austurtroginu, brá steinun-
um í munn sér og þefaði af
þeim. Loks fann hann einn
stein, sem honum líkaði, og
fékk manninum, og sagði, að
hann skyldi jafnan hafa hann
með sér er hann réri til fiskj-
ar. Eftir þetta brá svo við, í
%
hvert skipti, sem maðurinn
reri, að hann dró stanslausan
fisk með háseta sínum, en
hann var jafnan við annan
mann. Þegar svo hafði gengið
um hrið, sagði karl hásetanum,
hvað Jón Daníelsson hefði gef-
ið sér og sýndi honum stein-
inn. Eftir það brá svo við, að
hann fékk aldrei bein úr sjó,
og kenndi hann það mælgi
sinni.
Framhald af 1. síðu.
Kishi kvaddi þá saman
skyndifund ráðuneytis síns í
forsætisráðherrabústaðnum en
mannfjöldinn streymdi þá
þangað og krafðist þess að
stjórnin segði af sér og að her-
stöðvasamningurinn yrði ónýtt-
ur. Meðal kröfugöngumanna
var fjöldi starfsmanna úr ráðu-
neytisskrifstofum stjórnarinn-
ar. Tugþúsundir manna voru
stöðugt fyrir utan bandaríska
sendiráðið í Tokio og hrópuðu
ókvæðisorð um Bandaríkin og
hernaðarstefnu þeirra.
Skotið á mannfjöldann
Sturdu áður en samnmgur-
inn átti að taka gildi höfðu
nær hálf milljón manna safn-
ast saman fyrir utan þinghús-
ið, en þar hafði lögreglan gert
öflug vígi og raðað sér með
vélbyssur umhverfis húsið og
varði það.
Hundruð þúsunda söfnuðust
einnig saman fyrir framan að-
allögreglustöðina. Þar hóf lög-
reglan skothríð á mannfjöld-
ann. Ekki var kunnugt um
manntjón, þegar blaðið fór í
prentun, en margir höfðu særst
í þessari skotárás.
Samningurinn fullgiltur
Stjórn Kishis ákvað að láta
samninginn öðlast fullgildingu
án þess að efrideild þingsins
samþykkti hann, og tilkynnti
að stjórnlög landsins heimil-
uðu slíkt.
Brezka útvarpið hafði það
eftir fréttaritara sínum í Tokio
í gær, að talið væri vist að
Kishi myndi segja af sér eftir
að samningurinn heifði verið
fullgiltur. Yrði þá efnt til þing-
kosninga.
Keflavíkurgangaii
Framhald af 1. síðu
bænum til að taka á móti göng-
unni geta slegizt í hópinn á
leið hennar í gegnum bæinn
síðasta spölinn. Gangan fer af
Reykjanesbraut yfir á Löngu-
hlíð, beygir vestur Miklubraut,
norður Rauðarárstíg, niður
Laugaveg og Bankastræti og
nemur staðar í Lækjargötu við
Miðbæjarskólann. Þar verða
göngumenn og þeir sem komn-
ir eru að taka á móti göng-
unni ávarpaðir. Ræðumenn
verða þeir Jóhannes úr Kötlum
Jónas Árnason, Gils Guðmunds-
son, Þorvarður Örnólfsson og
Magnús Kjartansson.
íþróttir
F’-qmhald af 9 sífiu
maðurinn Christop mjög á ó
vart á sundmóti í Berlín um
daginn, synti 100 m baksund
á '1,03,2 og daginn eftir synti
hann vegalengdina á 1,03,6,
Austur-Þjóðverjinn Wagner
varð annar á 1,04,3.
Á sama móti setti þýzka
sundkonan Göbel nýtt met á
200 m bringusundi á 2,51,4.
Talsmaður sósíaldemókrata-
lýsti yfir því í gær að flokk-
ur sinn myndi aldrei viður-
kenna herstöðvarsamninginn.
Yrði öflugri baráttu haldið á-
fram til að hindra að liann
yrði framkvæmdur.
Reiði í USA.
Mikil reiði virðist hafa grip-
ið bandaríska ráðamenn vegna
þess að Eisenhower var gerður
afturreka úr Japansförinni.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
ræddi í fyrradag fjárhagsað-
stoð við vinveitt ríki. Urðu
mikil hróp og köll í þingsölum,
þegar rætt var um aðstoð við
Japan Kröfðust margir þing-
menn að Japönum yrði ekki
veittur eyrir í aðstoð.
Ymis verzlunarfyrirtæki í
I Bandaríkjunum hafa tilkynnt,
að þau muni hætta að kaupa
vörur frá Japan, vegna þess
, að Japansstjórn gerði Eisen-
hower afturreka.
Niðurlæging Eiseuhowers.
Eisenhower kom í gær til
Tapei, höfuðborgar Formósu.
•Hann hélt ræðu á flugvellinum,
og sagði að (Bandaríkin myndu
aldrei fallast á að „hernaðar-
og ógnarstjórnin 5 Peking“
yrði fulltrúi allrar kínversku
þjóðarinnar. Bandaríkjastjórn
myndi áfram styðja Sjan Kai-
sék og aðild Formósustjórnar-
innar að Sameinuðu þjóðunum.
Blöð um allan heim ræða at-
burðina í Japan og flest stór-
blaðanna tel ja að eftir að fund-
ur æðstu manna fór út um þúf-
ur, þá hafi Eisenhower beðið
annan diplómatískan stórósig-
ur sinn þegar hann varð að
hætta við heimsóknina til Jap-
ans.
Daily Mirror, sem styður
sósíaldemókrata í Bretlandi,
segir í gær, að allir hljóti að
vorkenna Eisenhower. Banda-
ríkjastjórn verði nú að horf-
ast í augu við þá staðreynd,
að steifna hnnar í Asíu hafi
beðið skipbrot.
Ihaldsblaðið Daily Telegraph
segir að það séu hryggileg
endalok á embættisferli for-
setans að leiðtogafundurinn
skyldi mistakast og að heim-
sókn hans til Japans skyldi
fara út um þúfur.
Die Welt í Hamborg (óháð)
segir að enginn bandarískur
forseti hafi orðið að þola aðra
eins niðurlægingu og Eisenhow-
er á fundi æðstu manna og í
Asíuför sinni.
íhaldsblaðið Daily Express
og frjálslynda blaðið News
Chronicle í Bretlandi segja
bæði í gær, að það sé fárán-
legt af 'Bandarikjastjórn að
þrjóskast við að viðurkenna
Pekingstjórnina.
Brotizt inn í
Golfskálann
í fyrrinótt var framið innbrot
í Golfskálann og stolið þar 950
krónum í peningum, Kodak-
myndavél og nokkru af sígarett-
um.
Stýrisbilun
olli slysi
Tvennt meiddist þegar bíll fór
út af veginum við Lágafell í
gær. Kona sem í bílnum var
skarst á læri og fékk heilahrist-
ing og karlmaður fékk einnig
heilahristing. Stýrisútbúnaður
mun hafa bilað. Konan heitir
Sigríður Þorgeirsdóttir og karl-
maðurinn Sigurður Þorgrímsson.
Krústjoff er
I Rumeniu
Krústjoíf, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, kom til Búkarest,
höfuðborgar Rúmeníu, í gær-
morgun. Þar mun hann sitja
flokksþing Verkamannaflokks
Rúmeníu, sem hefst á morgun.
Krústjoff dvaldist um tíma í
orlofi í Rúmeníu s.l. haust, en
hefur ekki komið í opinbera
heimsókn til landsins síðan 1956.
Leiðrétting
Villur komust í frásögn blaðs-
ins á íimmtud. af slysinu á ísaf.
Faðir litla drengsins sem drukkn-
aði heitir Jón Þórðarson og er
múrari.
Takið eftir-Takið eftir
Ntí ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ EIGNAST
HÚSGÖGN MEÐ LÉTTU MÓTI
Til 15. júli n.k. seljum við öll okkar húsgögn með
jöfnum afborgunum, þannig, að allt andvirði hús-
gagnanna greiðist með jöfaum afborgunum
mánaðarlega.
Fyrirliggjandi: Sófasett, þar á meðal létt sett,
svefnstólar, eins og tveggja manna, stakir stólar,
•kommóður, sófaborð, símaborð, reykborð.
ALLT Á GAMLA VERBINU
BÓÍ STURCERÐIN H.F.
Skipliolti 19 (Nóatúnsmegin) — Sími 10388.