Þjóðviljinn - 25.06.1960, Qupperneq 5
Hörð gagnrýiii á stefnu Banda-
ríkjanna í utanríkismálum
Heimsblöðin ræða Asíuiör Eisenhowers
Bandansk blöð liafa uiulan-
íarna daga birt ailharða gagn-
rýni á utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna í sambandi við atburð-
ina í dapan undanfarið og
lirakfarir Eisenhowers varð-
andi f yrirliugaða heimsólm
Jjangað. Allt til þessa höfðu
blöðin beint gagmýni sinni
gegn hinum léiegu ráðgjöfum
Eisenhowers, ea nú beinist
gagnrýniii aðalíega gegn for-
setanum sjálfum og gegn Nix-
on varaíorseta.
Bandaríski blaðamaðurinn
Sulzberger, sem fylgidi Eisen-
liower í Alsírförinni, skrifar
m.a, eftirfarandi í blaðið New
York Times s.l. sunnudag.
,,Það er ekki hægt að loka
augunum fyrir þeirri staðreynd
að Bandáríkin hafa stórlega
tapað virðingu sinni vegna þess
hve hraksmánarlega Eisenhow-
er var meðhöndlaður í sam-
bandi við Japansheimsóknina. .
Við höfum stórum lækkað í
áliti í Asíu, —- einmitt þar
sem mest lá við“.
Flctti frá raunveru-
leikanum
James Reston, sem alit fram
að fundi æðstu manna varði
einarðlega stefnu Bandaríkja-
stjómar, er ennþá harðorðari
í gagnrýni sinni á Eisenhower,
og segir að forsetinn reyni að
flýja raunvemleikann. Og enn-
fremur skrifar hann:
„Stjórnarvöldin halda áfram
að láta sem þau séu saklaus
en móðg-uð og særð, þrátt fyrir
tvær auðmýkingar og diplómat-
íska ósigra í nútímasögu Banda
rikjanna, Þetta er opinber
sjálfsblekking“.
Mörg stórblöð í Evrópu hafa
gagnrýnt utanríkisstefnu Banda
ríkjanna. Áhrifamesta blaðið í
Sviss, „Neue Ziiricher Zeitung"
segir:
„I annað sinn á einum mán-
liði er bandarísk utanríkis-
stefna. í rústum“.
Daily Mail i Bretlandi dreg-
pr gagnsemi „öryggissáttmála“
Japans og Bandaríkjanna íefa,
og Times ræðir um þverrandi
áhrif og virðingu Bandaríkj-
anna.
IJtan rílfis ráðlierra og forseta-
hosningamar
Mistökin og ósigrarnir
í bandarísku utanríkisstefnunni
eru stöðugt meira til umræðu
í sambandi við væntanlegar for-
,setakosningar í Bandaríkjun-
um. Þeir sem líklegastir eru
til að vera frambjóðendur
Demókrataflokksins keppast
yið að gagnrýna stjórnarstefnu
og ósigra Eisenhowers. Likleg-
asta frambjóðandaefni Repú-
blikanaflokksins, Nixon núver-
andi varaforseti, hefur hinsveg-
ar lýst yfir því, að hann beri
hluta ábyrgðarinnar á stefnu
Eisenhowers undanfarið, og
hann styðji eindrcgið allar að-
gerðir Eisénhowers.
Nýjar hótanh- gegn Iíúbu
Á sunnudaginn gaf Nixon
ennfremur til kynna stefnu
sína í utanríkismáhim. Er hann
-var-*spurður um ástandið á
Kúbu, sagði hann að Bandarík-
in hefðu þá efnahagslegu og
hernaðarlegu aðstöðu sem
þyrfti til að þvinga stjóm
Kúbu til að gerast auðsveipari
gagnvart Bandaríkjunum.
I fulltrúadeild Bandaríkja-
þings hafa nokkrir þingmenn
spurzt fyrir um það, livers-
vegiia japanski herinn, sem
búinn er bandarískum vopnum
og þjálíaður af Bandaríkja-
mönnum, hafi ekki verið notað-
ur gegn kröfugöngufólki í Jap-
an.
Eigaitda 30 millj.
skortir vasafé
Milljónaerfinginn Gamble Bene
dict, erfingi Remington-auðæf-
anna, hefur nú leitað til banda-
rískra dómstóla um aðstoð til
að krefjast fjár af móðurarfi
til þess að haida lífinu í sér
og unnusta sínum. Ungfrúin
vakti mikla athygli fyrir
nokkru með því að strjúka að
heiman með rúmenskum bíl-
stjóra, sem var kvæntur. Gam-
ble Benedict hefur neitað að
snúa heim til milljónaf jölskyldu
sinnar og eru þau hjúin ákveð-
in í að halda saman. Amma
Gamble gætir erfðafjár hennar,
þar sem foreldrar hennar eru
látnir. Sjálf á hún fyrst að
fá umráð yfir fénu eftir tvö
ár þegar hún verður 21 árs.
Er þar um að ræða fé, sem
nemur um 30 milljónum ísl. kr.
Æfingar undir kjarnorkustríð
29 manns gáíu sig íram tilí tilrauna
með varnir gegn kjarnorkygeislun
I Pittsburg hafa 29
Bandaríkjamenn gefið sig fram
til tilrauna til að vernda fólk
gegn geislum. Hér er um að
ræða karla, konur og börn,
sem eiga að dvelja í tvær vik-
ur í sama klefanum, sem þann-
ig er útbúinn, að hann á að
vernda gegn geislun.
Bandarísk rannsóknarstofn-
.un ætlar með þessari tilraun,
að prófa hvort hægt sé að
bjarga mannslífum með slíkum
varnarráðstöfunum. ef kjarn-
Orkuárás yrði gerð.
Læknar og aðrirvísindamenn
fylgjast stöðugt með sjálfboða-
liðunum 29 og athuga ástand
þeirra. Öll samtöl í geislunar-
varnarklefanum eru tekin upp
á segulband. Elzti sjálfboða-
liðinn er 73 ára gamall.
Tilraunafólkið hefur aðeins
375 lítra vatns tiL drykkjar í
þessar tvær vikur. Allar mat-
arbirgðir eru einnig af mjög
skornum skammti.
I klefanum er einnig tæki,
sem mælir geislunaráhrifin ut-
an klefans.
Japanir hafa risið upp milljónum saman gegn hinum bandrísku herstöðvum í landi þeirra, og
gegn Kishi forsætisráðherra og liinni afturhaldssömu stjórn hans. Myndin til vinstri sýnir farar-
brodd fylkingar sem gekk langa vegalengd til að leggja áher.zlu á mótmælin, gegn herstöðvunum
og Kishi-stjórninni. Gengið var samtals 2500 kílómetra vcgalengd vítt um landið, og tóku
milljónir manna þátt í göngunni, lengri og skemmri spöl. Á liinni myndinni sjást kröfu-
göngumenn bera táknmyndir af þeim Kishi og Eisenhower. Eru þeir hengdir upp til að
legöja áherzlu á fordæmingu Japana á samsæri ráðamanna Japans og Bandaríkjanna gegn sjálf-
stæði Japans.
Laugardagur 25. júni 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
28 isixllioKiir Jcspcssics inófsnæle
bcmdcDrískum herstöðvum þar
Baráffunni verSur ekki létt fyrr en
Bandarikin hafa rýmt allar herstöSvar
Barátta Japana gegn herstoðvasamningnum við
Bandaríkin heldur áfram af sama afli og áður. Eftir sig-
urinn sem vannst með því að gera Eisenhower afturreka,
beina hernámsandstæðingar krafti sínum að því aö fá
herstöðvasamninginn afnumdan og bandaríska herinn á
brott.
Formaður Sósíaldemókratafl.
Inejiro Asa:iurna segir að höf-
uðtilgangur hinna daglegu
mótmælafunda og kröfugangna
nú sé að fá herstöðvasamning
Bandaríkja- og Japansstjórnar
ónýttan. Baráttunni verður
ekki létt fyrr en Bandaríkja-
menn eru burtu af sérhverjum
þumlungi lands, sem þeir nota
af landi okkar undir herstöðvar
sínar.
Fylking hernámsandstseðinga
Baráttan gegn hinum svo-
kallaða öryggissáttmála við
Bandaríkin er mjög víðtæk í
Japan. Talið er að þessi sam-
staða hernámsandstæðinga geti
haft mikla þýðingu við næstu
ko^nipgfjr,.,^em, yerðp. síðar,,á
þessu ári. Við síðustu kosningu
fékk hinn íhaldssami flokkur
Kishi, „Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn“, 28 millj. atkvæða.
Sósíalistaflokkurinn fékk 13
milljónir og Kommúnistaflokk-
urinn eina milljón.
Asanuma, formaður Sósial-
demókrataflokksins, hefur til-
kynnt, að flokkur hans hafi
safnað undirskriftum 20 millj.
manna urídir mótmæli gegn
herstöðvasamningnum við
Bandaríkin. Ibúar landsins eru
samtals 91 milljón.
Þessi undirskriítasöfnun gef-
ur nokkra hugmynd um þá al-
mennu hreyfingu sem er risin í
um. 140 félagasambönd og
samtök verkafólks og ýmissa
pólitískra aðila liafa opinber-
lega lýst yfir andstöðu við
,,öryggissamninginn“ við Banda
ríkin.
600 re'ðir lögregluþjónar í
Seoul settust í fyrrad. á tröpp-
ur stjórnarráðsbyggingarinnar
til að mótmæla frekjulátum
þingmanns nokkurs.
Lögregluþjónarnir halda því
fram, að einn af þingmönnum
Demókrataflokksins, Kim Sum-
tai hafi slegið lögregluþjón í
andlitið daginn sem E'senhow-
er Bandaríkjaforseti heimsótti
höfuðborg Suður-Kóreu.
Vitni í Kosemarie—málinu
Pohlmann endurgreiddi féð sem hann
hnuplaði skömmu eftir morðið
Á þriðjudag byrjuðu vitna-
leiðslur í málinu vegna morðs-
ins á Rosemarie Nitribitt, en
saga hennar er fræg orðin eft-
ir skáldsögu Erich Kuby og
kvikmyndinni um sama efni.
Kaupsýslujnapurinn Heinz
Pohlmann, sem er ákærður fyr-
ir morðið á þeessari vellauðugu
gleðikonu, sagði fyrir réttinum
í Frankfurt, að hann hefði
sparað saman sem svarar 180
þús. ísl. kr. þegar hann vann
í firma einu í Köln.
Pohlmann rak síðar fyrirtæki
í Köln. Edmurji Zorn, forstjóri
frá Hamborg bar það fyrir rétt-
inum, að Pohlmann hefði stöð-
ugt krafizt fyrirframgreiðslu
fyrir þær vörur er hann seldi
í umboðssölu, og óreiða hefði
verið í reikningshaldi hans.
Var ákveðið að taka umboðin
af honum, en þegar lager hans
var gerður upp, kom í ljós, að
Japan gegn erlendum herstöðv- hann hafði selt mikið af vör-
um án þess að hafa gert skil
fyrir þeim. Pohlmann lofaði þá
að greiða sem svarar 90 þús.
kr. til Hamborgarfirmans á
liálfu ári.
Pohlmann lofaði þessari end-
urgreiðslu 5. nóvember 1957.
Þegar daginn eftir greiddi
hann 45 þús. krónur af skuld-
inni, og skömmu síðar afgang-
inn.
Rosemarie Nitribitt var
myrt 29. október 1957, eða
nokkrum dögum áður en Pohl-
mann endurgreiddi óreiðuféð.
Úr íbúð hinnar myrtu var stol-
ið hundruðum þúsunda króna.
INNNEIMTA
LÖöFRÆQ/STÖGT