Þjóðviljinn - 25.06.1960, Blaðsíða 9
31 — ÖSKASTUNDIN
Laugardagur 25. júní
21. tölufclað.
Bréf frá London
Lítil, borgfirzk stúlka
skrifar okkur eftirfarandi
bréf frá London:
Kæra Óskastund!
Ég á heima £ Borgar-
lirði, en ég er í London
núna. Ég hef verið í
London í allan vetur. Ég
geng í skóla, sem enska
kirkjan hefur.
Nú er ég farin að tala
önsku. Ég varð 8 ára 22.
maí.
Viltu birta þessa mynd
fyrir mig?
Vertu sæl og blessuð.
Guðlaug Guðmundsdótt-
ir, Bifröst, Borgarfirði
Við þökkum Guðlaugu
kærlega fyrir bréfið. Hún
er ' sannarlega dugleg
stúlka að geta talað
ensku. Það eru ekki mörg
börn, sem dvelja í höfuð-
borgum úti í heimi, þess
vegna langar okkur til
þess að biðja Guðlaugu
litlu, að skrifa okkur aft-
ur og segja frá skólanum
svolítið meira. Kannski
hefur hún fengið að fara
í dýragarðinn, en í Lond-
on er einhver bezti dýra-
garður í allri veröldinni,
gaman þætti okkur ef
hún segði okkur frá dýr-
unum. Eftir myndinni að
dæma hefur hún líklega
séð alvöru pardusdýr og
ef til vill ljón og apa.
SKRÍTLUR
Hún hafði ekki
lesið bókina
Við sendum út sextán
verðlaun fyrir skrift í vor
eins og undanfa.rin ár, en
ekki vitum við hvort all-
ír verða eins ánægðir með
verðlaunin sín og Sigríð-
■ur Þórdís. Við þökkum
'henni kærlega fyrir bréf-
ið og gaman er að fá svo
fallega skrifað toréf.
Kæra Óskastund!
Ég þakka þér kærlega
fyrir bókina, sem þú
sendir mér, ég hafði
aldrei lesið hana áður.
Mér finnst hún mjög
Skemmtileg. Mér finnst
líka gaman að þér kæra
Óskastund. Albert bróðir
Auður: Blómsturpottur-
inn datt út um gluggann.
Farðu út og gættu að hann
detti ekki ofan á neinn.
Maður: Flýttu þér út úr
minn klippir þig alltaf úr
og geymir þig í kassa,
hann á þig alla fr.á byrj-
un..
Vertu blessuð og sæl.
Sigríður Þórdís Einars-
dóttir, Hólaveg 15,
Siglufirði.
Við viljum geta þess að
þetta bréf er 211. bréfið,
sem við fáum frá áramót-
um.
húsinu kona, það brenn-
ur óðum og fellur bráðum
algerlega.
Konan: Ég er að lag-
færa í stofunum svo allt
sé í röð og reglu þegar
slökkviliðið kemur.
Hrafnhildur Helgadóttir,
Háagerði 29, Rvk. —
9 ára, sendi skrítlurnar.
Gullkorn úr
Orðskviðunum
Vizku og aga fyrirlíta
afglapar einir.
Varir hins réttláta
fæða marga, en afglap-
arnir deyja úr vitleysu.
KEFLAVIKURGANGAN
19. júní 1960.
Það eru 20 ár síðan J
ísland var hernumið. í
20 ár hafa erlendir her-
menn dvalið í landi okk-
ar og haft áhrif á þjóð-
lífið. Fjöldi ungra manna
hefur eytt dýrmætum
starfskröftum í einskis
nýt störf hjá útlendum
stríðsmönnum, á sama
tíma hefur þurft að
kaupa útlenda sjómenn
til að vinna á skipun-
um okkar og útlenda
verkamenn til að vinna
landbúnaðarstörf. Dvöl
erlendu stríðsmannanna
] lrefur grúft eins og
| dimmur skuggi yfir þjóð-
inni og dregið kjark úr
henni, nú eru jafnvel til
góðir menn sem eru
næstum hættir að trúa
því að við getum búið
ein í landinu okkar og
iifað menningarlífi, svo
eru til aðrir menn, sem
eru orðnir svo vanir her-
mönnunum að þeir muna
ekki eftir þeim. Til að
vekja alla þessa menn til
umhugsunar um hve það
er hættulegt að hafa her-
menn í landinu, tóku fá-
einir bjartsýnir Reykvík-
ingar sig til og stofnuðu
til göngu frá Keflavíkur-
flugvelli (þar halda her-
mennirnir aðallega til) til
Reykj avikur.
Um 200 manns gekk
alla leiðina þrátt fyrir
þreytu og rigningu. í
fylkingarbrjósti var fán-
inn borinn og stöðugt
fjölgaði þeim sem skip-
uðu sér undir hann. Þeg-
ar gangan kom til
Reykjavíkur skiptu þeir
þúsundum og mannfjöld-
Framhald á 2. síðu.
M
i§5
Ritstjóri: Frímann Helgason
sis - veoíir
ranour s
Á miðvikudagskvöld fórfram
fyrri hluti frjálsíþróttamóts
KR á Laugardalsleikvanginum
E Reykjavík. Veður til keppni
Var slæmt, hvasst af suðri og
rigningarsuddi í lofti.
Bi|oens sigraði Svavar
iirugglega.
800 m hlaupið var sú grein-
in, sem eflaust hefur fengið
þá 1000 áhorfendur, sem við-
Btadiir voru til að mæta, en í
þeirri grein var meðal kepp-
enda enginn annar en Roger
Moens, heimsmethafi frá Belg-
Ju, svo og íslandsmethafinn
Svavar Markússon og Akureyr-
ingurinn Guðmundur Þorsteins-
eon, sem kom skemmtilega á
óvart á dögunum með því að
sigra í 800 m.
Það var Guðmundur, sem tók
forj’stuna í hlaupinu og hélt
henni fyrri hringinn, eða þar
til þeir Moehs og Svavar fóru
fram úr. Millitími þremenning-
anna á 400 metrum var ca. 55
sek. Svavar hélt lengi vel
í Moens en á síðustu metrunum
tókst Moens að rífa sig fram
úr og var 10 metrum á undan
x mark. — Tími Moens 1:51,3,
Svavar 1:53,0, Guðmundur
1:56,4. Miðað við aðstæður er
hlaup þetta mjög gott.
Tveir yfir 14 metrum
í þríofökki.
Þrístökkið var sú greinin sem
hvað mesta athygli vakti.
Tveir stökkvarar af þrem fóru
yfir 14 metrana, báðir korn-
ungir menn. Fyrstur var Ing-
var Þorvaldsson KR, 14,23 m,
Annar varð Sigurður Sigurðs-
son IJSAH, 14,01 m. Þriðji
varð Ólafur Unnsteinsson
UMFÖ, 13,53 metra.
Árangur þessi er mjög at-
hyglisverður, enda þótt nokkur
vindur hafi blásið með stökkv-
urunum.
I 400 m grind sigraði Guð-
jón Guðmundsson örugglega á
56.4 sek. sem er gott afrek á
svo þungri braut, sem hann
fékk nú. -
Keppnin um 2. og 3. sætið
var hörð, en Sigurður Björns-
son sigraði Inga Þorsteinsson
í þeirri keppni, tímarnir 57,2
og 57,8 sek.
JB-riðili 800 metranna
skemmtilegur.
Ein skemmtilegasta keppnin
þetta kvöld var keppnin í B-
riðli 800 metra hlaupsins, en
þrír fyrstu menn voru mjög
jafnir og tveir fyrstu mennirn-
ir voru svo jafnir að ekki var
greint frá áhorfendastæðunum
hvor var á undan. Fyrstur varð
Guðmundur Hallgrímsson IBK
Laugardagur 25. júní
á 2:04,5 mín, Agnar Leví KR
náði sama tíma, Helgi Hólm
fékk tímann 2:05,1 mín.
Fyrsta keppnin í sleggju
í Laugardal.
Að þessu sinni fór fram
fyrsta keppni í sleggjukasti,
sem fram hefur farið á Laug-
ardalsvellinum. Þórður Sigurðs-
son sigraði með 50.93 m kasti,
en Friðrik varð annar með
46.26 m. Hinir allir voru lé-
legir.
Hástökkið var ekki eins
gott og búast mátti við, Jón
Pétursson stökk 1,85 m en
Jón Ólafsson 1,80 metra.
Valbjöi’n vann 200 metrana
á 23,3 og Grétar Þorsteinsson
varð annar á 23,6 sek. Lélegur
tími, enda sóttu þeir á móti
vindi mestan hluta Leiðarinnar.
1 4x100 metra boðhlaupi átt-
ust við sveitir KR og Ármanns.
Ármannssveitin sigraði á 44,4
sek, KR á 44,8 sek. Frammi-
staða Harðar Haraldssonar,
sem tók annan sprett fyrir Ár-
mann var mjög góð, og má
þakka Herði mikið sigurinn
í hlaupinu.
Kringlukas*íið misheppnað.
Kringlukastskeppnin setti
ljótan blett á annars nokkuð
góða framkvæmd fyrri dags
KR-mótsins. Keppni í kringlu-
kasti hófst um klukkan 9.30,
er keppni var lokið í öllum
öðrum greinum. Keppnin stóð
til um klukkan 10.15. Sigui'veg-
ari varð Þorsteinn Löve, en
hann kastaði aðeins þrisvar,
(tognaði í þriðja kastinu). Sig-
urkastið mældist 47,71 m.
Friðrik Guðmundsson varð-ann-
ar með 46,26 metra, aðrir mun
lakari. — bip —
1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Joe Louis býSst
nú til að þjálfa
Ingemar
Það hefur vakið athygli að
Joe Louis sem vafalaust átti
mikinxi þábl í sigri Floyds Pátt-
erson yfir Ingemar Johansson
dögunum hefði nú boðizt
að þjálfa Ingemar fyrir næsta
einvígið, svo að hann gæti orð-
ið annar maðurinn í sögu
hnefaleikanna sem ynni aftur
heimsmeiJlai-atitilinn í þunga-
vigt.
Louis gerði Ingemar boð dag-
inn eftir einvígið á mánudag-
inn. Hann bauðst til að þjálfa
hann ókeypis ef hann tapaði
næsta einvígi, en vildi fá
,50.000 dollara (um 2 miUjónir
króna) fyrir ef hann ynni.
Ingemar er sagður hafa hafn-
að þessu góða boði. Annars er
þegar orðið ljóst að þeir Floyd
munu ekki aftur hittast í
hringnum á þessu ári, og ei
ástæðan sú að hvorugur þeirra
vill að tekjurnar af þeim leik
bætist við þær miklu fúlgur
sem þeir hafa þegar fengið er
skattheimtumenn taka til að
reikna út hvað þeim ber að
greiða í skatt fyrir þetta ár.
Láíið ljósmynda baimð
hjá okkur.
Laugavegi 2. Sími 11-980..
Heimasími 34-890.