Þjóðviljinn - 08.07.1960, Page 4

Þjóðviljinn - 08.07.1960, Page 4
'4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 8. júlí 1960 Benedikt Guðmundsson F. 16. nóvember 1907 — D. 2. júli 1960 .Benedikt Guðmundsson fædd- ist í Reykjavík; hann var son- ur hjónanna Guðmundar Sig- urðssonar klæðskera, er and- aðist árið 1956, og Svanlaug- ar Benediktsdóttur, er andað- jst árið 1918. Benedikt var einn af tíu börnum þeirra hjóna, hann átti ennfremur eina fóstursystur, er annaðist hann sérstaklega í æsku, hann ólst upp í Reykjavík. Þegar Benedikt var sextán ára fór hann til Kaupmanna- hafnar og hóf þar nám 'í kjötiðnaði. Jafnframt stund- aði hann nám við Teknolog- isk Institut í Kaupmanna- höfn. Að námi loknu kom Benedikt heim um tíma, en lagði land undir fót á ný, fór til Berlínar að læra frekar iðn sína. I Berlín stundaði Benedikt jöfnum höndum vinnu og skólanám. Að námi loknu í Berlín ferðaðist Bene- dikt víðs vegar um Þýzka- land. að mestu fótgangandi. Þann hátt á ferðalagi síriu hafði Benedikt íyrst og fremst til þess að kynnast landi og þjóð, sem allra bezt, því að fólkið, maðurinn sjálf- ur, lífskiör hans, gleði og sorg, lífsbarátta, sigrar og ó- sigrar, var uppistaðan í lífi og áhugamálum Benedikts til dánardægurs. í Þýzkalandi dvaldi Benedikt nokku.ð á aunað ár, hélt síðan heim til íslands, og tók til vinnu í starfsgrein sinni. Árið 1934 kvæntist Bene- dikt Guðmundsson eftirlifandi konu sinni, Svandísi Vil- hjálmsdóttur, Gunnarssonar og konu hans Önnu Magneu Egilsdóttur. Þau Benedikt og Svandís eignuðust tvær dætur, þær Zítu Kolbrúnu og Helgu Dröfn, sem nú eru báðar upp- komnar. Skömmu eftir giftinguna fluttu þau Benedikt og Svan- dís til Akureyrar. Þar vann Benedikt sem verkstjóri í kjötiðnaðardeild KEA um tveggja og hálfs árs skeið, flutti síðan aftur til Reykja- víkur og starfaði þar um nokkurra ára skeið, unz hann enn á ný fór til útlanda, að kynna sér nýja starfsgrein. Eftir hálfs árs dvöl í Dan- mörku, en þar lærði Bene- dikt og kynnti sér leir- brennslu,, setti hann á stofn leirbrennslu í Reykjavík ár- ið 1947, vann hann við hana til ársins 1952. Flutti búferlum Benedikt Guðmundsson að Selfossi. Þar var Benedikt verkstjóri í kjötiðnaðardeild Kaupfélags Árnesinga um sex ára tímabil, til ársins 1958, er hann á ný flutti til Reykja- víkur, á æskuátöðvar, í hús föður síns að Bergstaðastræti 11, og þar bjó hann með fjöl- skyldu sinni, 'það sem eftir var ævi. Seinustu tvö ár ævi sinnar vann Benedikt við verzlunar- störf í Reykjavík. Heilsa hans var slík orðin, að hann þoldi ekki að vinna í sinni starfs- grein, en aðeins létta vinnu, mér er kunnugt um að hann æðraðist ekki, þótt oft liði hann þjáningar, jafnvel við vinnu sína, en lét á engu bera. Benedikt var einn þeirra manna, sem tvímælalaust vildi taka á sig erfiði og óþægindi frekar en baka slíkt öðrum. Fyrir um átta árum varð Benedikt fyrst var hins þung- bæra sjúkdóms er leiddi til dauða hans. Benedikt andað- ist að heimili sínu, Bergstaða- stræti 11, að morgni hins 2. júlí þ.m. Það sem þegar hefur ver- ið sagt úr ævi Benedikts Guð- mundssonar, gefur litla hug- mynd um, hver maður hann var. Það er vanda.verk að gera grein fyrir æviferli Bene- dikts i stuttu máli, sem mér tekst enganveginn, svo f.jöl- þættur var hann, slunginn há- um hugsjónum, ívafinn unaði skapandi listar, töfraður af framtíðarsýn hugsjónamanns- ins, í samhljóm við tónaflóð komandi tíma, bræðralag allra þióða, og frið um gjörvalla okkar jörð. Þannig var ævi hans fyrst og fremst helguð háum hugsjónum, og þeim sparaði hann ekki krafta sína. Allt frá æskuárum hélt mvndlistin Benedikt föstum tökum hann notaði fyrstu aurana sem hann eignaðist til að kaupa fyrir þá vatnsliti að mála með. Að mála mynd- ir varð eitt af meginverkefn- um hans, til hinztu stundar. Seinustu dagana sem hann lifði, auðnaðist honum að fullgera nokkur málverk, og þar með að undirbúa sýningu, sem hann hugðist koma upp á hausti komandi, ef honum hefði enzt aldur tjl. Það er furða mikil, hversu miklu Benedikt tókst að af- kasta í frístundum sinum, enda sögðu þeir Gunnlaugur Scheving og Jón Engilberts listmálarar i dómi um fyrstu mála.verkasýningu Benedikts, er hann hélt í Safnhúsinu í Reykjavík árið 1944: „Þegar skikkanlegir borgarar taka á sig náðir, fer Bensi að mála“. Hann gaf sig á vald mynd- listinni, i stað þess að hvílast eftir erfiðan vinnudag. Aðra myndlistarsýningu hélt Bene- dikt á Selfossi árið 1937. ;Sýndi hann í bæði skiptin fjölda málverka og teikninga, er bar vott um óþreyt.andi starf og viljaþrek, se.mfara þekkingu og kunnáttu, er hann aflaði sér á þessu sviði við hin erfiðustu skilyrði. Benedikt saaðist mála af þörf, en ekki til að sel ja myndir sínar. Það voru þrjár listgreinar, sem héldu Benedikt heilluð- um, myndlist, hljómlist og lestur fagurra bókmennta. Hann sótti listasöfn hvar sem hann fór, má.lverkasýningu mátti ekki sleppa, hljómleikar voru unaður sem ekki var hægt að vera án, og góðar bækur varð að Iesa, Félagsmál voru Benedikt m.jög hugstæð. Til þátttöku í félagsmálum sparaði hann hvorki tíma né krafta. Hann var félagi í Sósíalistaflokkn- um frá stofnun hans, og virk- ur áhugamaður um allt það, er mátti verða málstað sós- íalismans til frama. og heilla. Hann var einn af stofnendum Menningartengsla Islands og Ráðstjórnarríkjanna, stofnaði deild þeirra samtaka á Sel- fossi, og var líf og sál í starf- semi deildarinnar. Hann tak- markaði ekki starfsemi sína í þágu vináttutengsla milli Is- lands og Ráðstjórnarríkjanna við Selfoss eingöngu, hann fór víða um Suðurlandsundir- lendið með kvikmyndasýn- ingavélar MÍR, um þorp og sveitir, og sýndi sovézkar kvikmyndir, er kynntu líf, starf og menningu sovétþjóð- anna. í þessu starfi, er kost- aði mikinn t'íma og erfiði, voru kona Benedikts, Svandís, og hinar ungu dætur þeirra ómetanleg hjálp, þær fylgdu honum í sýningarleiðgíigrana. og aðstoðuðu á allan Jiát.t. Þannig var það á fieimili þeirra, sérstaklega aö Sel- fossi, að ofl var fullt hús gesta, jafnvel heilar lista- mannasendinefndir frá Sovét- ríkjunum gistu hús þeirra hjóna, nutu þar góðgerða og hvíldar. Laun fjölskyláitínnar fvrir þrotlaust og óeigin- gjarnt starf var einungis gleðin af því, að vinna góðu málefni gagn. Seinustu tvö árin, sem. Benedikt lifði, leysti hann mikið starf af hendi, oft mik- ið þjáður. Ekkert gat aftrað honum að vinna áhugasnálum Framhald á 8. síðu. MINNING Faðir, maki, féiagsstjai'na föinuð er á miðju skeiðí, Ei má sköpuni vísuni varaa, visni grein á jijóðarmeiði. OOO Hér er slcarð í liópinn vinta. höggvið nokkru fyrr en varði. Særð við þökkum samfyigdina, söknum þín í félagsgarði. o o o Fallinn vörður fóstuvjarðar- fylkingar í brjóstvörn stóSstu. Ini varst einn, sem veginn varðar, víða undirstöðu Idóðstu. OOO Aldrei léztu undan slakna, en að góðn máli vannstu. Ef að þurfti á að taka oftas.t réttu tökin fannstu. O O O Klæddur andans kufli vona, krýnduv háttum spakra manna, Eðlið be/.tu Islands sona eftixleit hins góða og sannu. OOO Ei skal mevkið oidtar falla ein þó loldst hurð að stöíunn. Upp í móti og nndan halla uxmið stærstu sigi'a liöf'um. OOO Áfram munt þú lesa og' laira lexíur, sem lijartað unni. Góðu máli fórn að færa, í'inna rök að tilvemmii. O O O Allt liið frjálsa, bjai'ta, be/.ta hundið var í huga þínum, Vildir líka á fortjald festa fagra mynd af andans sýnum. OOO Hvíldar njóttil, hjartað þreytta, hlutskiptinu nýja undu. I’ökkum alla aðstoð veitfca okkur fram á síðustu stundu. Fi'ímann Einarsson: iiiiiiiHiuiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiliiHiiiiiiiiiUiiHiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiir „Skipbrotið" Bæjarpóstinum hefur bor- izt eftirfarandi bréf frá sjómanni í Keflavík: „Keflavik 3. júlí 1960. 1 Ég get ekki staðizt að I senda þér nokkrar línur, ; bæjarpóstur góður, í sam- bandi við rosafréttir í dag- blöðunum í gær um þessa ! svokölluðu skipsbrotspilta, sem sagt er að hafi gist í 1 Lundey. í- Þjó.ðviljanum er 1 fyrirsögnin: „Lágu í fjöru- 1 grjótinu um nóttina — 1 náðu í lunda og steiktu á teini“. • í Morgunblaðinu „Urðu að gista Lundey — vélin í trillunni bilaði". f greininni kemur bilunin var ekki benzínstífla og kveikjulok. Síðar inni stendur, að inn, Erling fram, að annað en sprungið í grein- l íviní ctonrinr oð formaður- Anderseu, ! hraustlegur náungi, eins og það er orðað, sé alvanur l trillumaður, þannig að ekki sé um að kenna vankunn- áttu þeirra. Nei, ekki það nei. En ég 'hefði haldið að alvanir menn færu ekki að hleypa í land í eyðiey, þó svo alvanaleg bilun sem benzínstífla henti þá, heldur tækju skrúflykil og skrúfuðu benzínrörið frá. En það skyldi þó aldrei vera, að út- búnaðurinn hjá þessum al- vana formanni hafi verið sá, að enginn skrúflykill hafi verið með í förinni? Hvað viðkemur kveikjulokinu er það mjög ótrúlegt, að það springi á vél í fullum gangi. Annars vita vanir trillu- menn um mjög einfalt ráð til að koma svoleiðis smá- munum í lag. Ég var á sjó þessa nótt, ekki inni í sundum við Reykjavík held- ur norður á cvokölluðu hrauni um tveggja tíma keyrslu frá Keflavík, svo að þar var ekki til staðar að hleypa í neina Lundey, þó ég hefði fengið-benzínstiflu, enda hefði mér fundizt fátt réttlæta það í annarri eins himins blíðu og var, sjórinn eins og heiðatjörn þarna úti, 'hvað þá inni í sundum. Að vísu var svarta þoka, en 'það gerir manni lítið til, þegar maður er með átta- vita, og hann hafa allir van- ir trillumenn með sér á sjó. Mér hefði fundizt, að vanur trilluformaður hefði átt að leggjast við legufæri meðan hann var að koma vélinni í lag, og ólíkt hefði það ver- ið mýkra að liggja á báts- fjölunum en á fjörugrjótinu í Lundey. Það skyldi þó aldrei vera, að legufærin hafi gleymzt? Nei, ekki get ég að því gert, að mér finnst þetta alltsaman lík- ara alóvönum sporttrillu- mönnum en vönum sjómönn- um og tæplega réttlætanlegt að skrifa langar blaðagrein- ar og birta myndir af ekki meira tilefni. Eg vil nú í fáum orðum segja hvernig ég bý mig á sjó þeim óvönu til eftir- breytni en að sjálfsögðu ekki hinum, því að þess þarf ekki. Ég hef alltaf í hátn- um þau varastykkl, sem al- 13111 gengt er, að bili í vélinni svo sem platínur, straum- þétti, háspennukefli, kveikju hamar og kveikjulok. Síðan hef ég rafgeymi til vara og rafþræði. Svo passa ég allt- af upp á, að brennslugeym- irinn sé fullur. Síðan hef ég 20 1. forúsa til vara og 5 1. emuroliu, því að alltaf get- ur maður misst þetta niður komi gat á rör eða þvílíkt, en þá kemst maður í land á varabirgðunum. Síðan hef ég alltaf það mikið nesti, að ég sé foirgur í 2—3 sólar- hringa, og til vara 5 flösk- ur maltöl og harðfisk, því að ég minnist alltaf varnar- orða móður minnar sálugu: Þú sækir það ekki í land, og — enginn ræður sínum næt- urstað, enda hefur það aldrei komið fyrir mig, að ég kæmist ekki í land hjálp- arlaust. Það hefur náttúr- lega oft ýmislegt toilað, en ég hef alltaf getað lagað það af þeirri einföldu ástæðu, sem ég hef verið að lýsa. Auðvitað getur komið fyrir foilun, sem ekki er hægt að gera við á sjó, svo sem ef eitthvað brotnar í vélinni, maður missir skrúfu eða þess háttar, en þá er bara ekki hægt að kenna sjálfum s.ér um það. Hitt er sjálfskaparvíti að hafa. ekki algeng varastykki og verk- færi. Nei, því miður á gamla máltækið við alltof marga: Fár kann sig í fögru veðri heiman að búa. Þótt sjóferð- in sé ætluð stutt, þá getur hún orðið löng. (Það skal tekið fram, að ég er alltaf einn á). Ég læt þá staðar numið hér, þetta er orðið nokkuð langt mál. Trilluliarl í Keflavík.“ lllÍIiillHIÍIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIllllllÍllllllIlllilllllHIIUIilllllllllllllIIIilllllIllllllllltltllllll

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.