Þjóðviljinn - 22.07.1960, Page 4
4) — ÞJÓÐVTLJINN — Föstudagur 22. júlí 1960 ------——
Bóndinn ræður einn yfir félagsbui ef
hjuskapur var sfofnaður fýrir' 1924
Konum finnst það hart að enn skuli vera í gildi á
íslandi lagaákvæði sem veita bóndanum trétt til aö ráö-
stafa eigum og gegn vilja konu sinnar sameiginlegri
eign hjónanna.
Naftiirnvprnífíiríir Ar hvert veitir Náttónivernd-
1 'la.itlli UVbl íli arfélag Frakklands heiðurs-
peninga þeim mönnum sem það telur hafa unnið náttúruvernd-
armálum í heiminum mest gagn. I ár var bandaríska teikni-
myndahöfundinum Walt Disney og sovézka náttúrufræðingnum
{.rófessor Bementiéff veittur heiðurspeningur félagsins úr
gulli og franski kvikmyndaleikarinn Jean Gabin fékk heiðurs-
pening úr silfri. Myndin var tekin við verðlaunaafhendinguna
í náttúrugripasafninu J París. Disney er til vinstri, Gabin
í miðið og Dementiéff til hægri.
Á þessu lagaákvæði byggðist
fvrir nokkru dómur í máli sem
reis milii hjónanna sem áttu
Hótel Borg fyrir eigendaskiptin
í vetur. Þar var dæmt að eigin-
maðurinn gæti ráðstafað sam-
eigninni á sitt eindæmi, þar sem
hjónabandið var stofnað fyrir 1.
janúar 1924.
. Á tíunda landsfundi Kvenrétt-
indafélags íslands um daginn var
samþykkt að skora á stjórn fé-
lagsíns að hún hlutist til um að
næsta Alþingi nemi þetta sér-
ákvæði um fjármál hjóna sem
gift hafa verið í 36 ár eða lengur
úr lögum með breytingu á hjú-
skaparlöggjöfinni.
„í 11. grein laga nr. 3/1900
segir, að bóndi hafi einn um-
ráð yfir félagsbúinu. Nútíma-
fólki finnst ótrúlegt, að slíkt
skuli enn vera lög í þessu
Svefn án lyfja
Svefn án lyfja heitir nýútkom-
fn bók eftir Erik Ola-Hansen
og hefur Kristín Ólafsdóttir
læknir þýtt hana.
Höfundur heldur því fram að
svefnlyf eigi menn ekki að nota
.nema sérstaklega standi á, og
að menn geti „lært“ að sofa
eðlilega og flytur bókin ýmsar
.leiðbeiningar og r.áð í því efni.
Lýsir hann fyrir mönnum hætt-
um þeim sem oftrú og ofnotkun
svefnlyfja og allskonar taflna
hat'a í för með sér. Sá hópur
stækkar stöðugt sem svefnleysi
þjáir og verða ráðleggingar höf-
undar því efalaust vel þegnar.
Hann segir einnig frá nýjustu
atbugunum á eðli svefnsins og
ræðir um svefnvenjur nianna. —
Útgefandi bókarinnar er Iðunn.
landi. Menn fengu þó áþreif-
anlega færðan heim sanninn
um þetta í máli sem var hér
fyrir dómstólunum fyrir
skemmstu.
Málsatvik voru í sem stytztu
máli þau, að aðaleign féleigs-
bús roskinna hjóna var boðin
til kaups fyrir kr. 18.200.000,
00. Bóndi var sá, sem tilboð-
ið gerði, en kona hans mót-
mælti tilboðinu og taldi það
ógilt, m.a. vegna þess að bónda
brysti heimild til að selja eign-
ina án hennar samþykkis.
Höfðaði hún mál til ógildingar
tilboðinu. Fékk hún dóm-
kvadda þrjá menn, einn laga-
prófessor, einn verkfræðing og
einn kpupsýtslfimann, til að
meta eignina. Mátu þeir hana
á 23.700.000.00.
Konan taldi manninn skaða
félagsbú'ð um kr. 5.500.000,00,
ef tilboðið yrði dæmt gilt. ÍEn
niðurstrða málsins varð sú
fyrir báðum dómum, að bónd-
inn hefði til þess fulla heimild,
þar sem hann hefði einn um-
ráð yfir félagsbúinu samkv.
lögum nr. 3, 12. janúar 1900.
Þessi lög voru afnumin með
lögum nr. 20, 20. júní 1923.
En í XI. kafla var hnýtt aftan
í lögin svokölluðum „ákvæð-
um til bráðabirgða". Sam-
jívæmt þeim skyldu nýju lög-
in gilda um þau hjónabönd
ein, sem stofnuð yrðu eftir 1.
janúar 1924. Þessi „bráða-
birgða" ákvæði hafa nú staðið
í rúman aldarfjórðung.
Ekki mun auðvelt að sann-
færa nútímamenn um, að gilda
pkuli tvenns konar réttlæti í
landinu. Það má þykja undar-
leg umbótalöggjöf að láta
þjóðina bíða eftir því allt að
meðalmannsaldur, að hún taki
gífdi. Gegnir furðu, að nú-
tímakonur skuli hafa tekið því
með þögn og þolinmæði, að
ranglætið sé allt að því meðal-
mannsaldur að deyja út.
Jafnrétti allra manna og
jafnrétti karls og konu virðist
svo sjálfsagt í nútmaþjóðfé-
lagi, að brot gegn því virðist
óhugsandi. En samkvæmt lög-
um nr. 3/1900 fer því svo
fjarri, að kona hafi jafnrétti
við bónda sinn, að til þess þarf
sérstakt stjórnarskrár ákvæði
að tryggja það, að konan „telj-
ist“ þó fjárráða. En auðvitað
fer því fjarri, að hún sé fjár-
ráða nema í orði kveðnu, með-
an bóndinn hefur einn umráð
yfir félagsbúinu, eins og lög-
mælt er í 11. gr. laga nr. 3, 12.
janúar 1900.
Óþarft virðist að láta jafn-
sjálfsagða réttarbót sem þessa
bíða eftir heildarendurskipun
hjúskaparlaga. Hliðstæð ákv. í
hjúskaparlögum Dana voru
felld úr gildi jafhskjótt sem
sett) voru þai) ij'g frá 18.
marz 1925, sem gilda enn. En
hjúskaparlög á Norðurlöndum
eru samhljóða í aðalatriðum,
enda hyggð á samvinnu þess-
,ara þjóða“.
Gagnkvæmt jafnrétti
Landsfundurinn gerði einnig
þessa ályktun um endurskoð-
un á hjúskapar- og sifjalögum
á vegum samnorrænu laga-
nefndarinnar:
. 10. landsfundur Kvenrétt-
indafélags Islands, haldinn
19.—22. júní 1960, treystir
þvi, að fulltrúi íslands í sam-
norrænu laganefndinni, heri
fram tillögur um breytingar á
hjúskapar- og sifjalagabálk-
unum, sem tryggi hjónum
gagnkvæmt jafnrétti.
Væntir fundurinn þess, að
fulltrúinn gefi Kvenréttindafé-
lagi íslands kost á að fylgjast
með því, sem gerist í hjúskap-
ar- og sifjalöggjafarmálum
hjá nefndinni, t.d. með því að
láta félaginu í té tillögur sem
koma frá hinum Norðurlönd-
unum.
„Hlúð að nýgræð-
ingnum“
„Það er bæði synd ig skömm
að ýmsir áhugamenn og konur
um leiklist gera sér að leik að
ferðast út á lahdsbyggðina á
sumrin með sýningar og narra
menn að eyða stórfé og ejá
þær. Þetta fólk telur sig al-
vöruleikara, þótt margt af því
séu aðeins statistar úr Reykja-
vík, og skemmir fyrir þeim
almennilegu flokkum, sem fara
með góðar sýningar úr bæn-
um út á land. Sumir þessara
flokka þora ekki að sýna í höf-
uðstaðnum, en einn þeirra hef-
ur undanfarin ár ferðast undir
þremur nöfnum út á land með
hverja sýninguna annarri
ómerkilegri, jafnvel gengið
svo langt að kalla sig nær því
sama nafni og leikflokkur skip-
aður atvinnufólki. Svona pilta
á að gera afturreka úr sveit-
um og þorpurn".
Mánudagsblaðið 18. júlí 1960
Flokkurinn „NÆR ÞVÍ
KALLAÐUR SAMA NAFNI
OG „ATVINNUFÓLK““ hefur
engu við þetta að bæta og
þakkar óverðskuldaða athygli
MÁNUDAGSBLAÐSINS, en
vitnar í hin frægu ummæli
Bernard Shaw:
„Ég er þér sammála, en
hvað höfum við að segja gegn
öllum hinum“.
Tökum lagiS
Tökum lagið nefnist ný vasa-
söngbók sem hefur inni að halda
nær 200 söngtexta og er megin-
þorri þeirra góðkunn Ijóð er
lifað hafa á vörum þjóðarinn-
ar „undir ljúfum Iögum“, en
bókin geymir þó ekki einungis
gömul Ijóð heidur og ljóð skálda
í dag.
Vasasöngbók hefur engin kom-
ið út í 14 ár — og margsinnis
komið í Ijós að ýms beztu söng-
ljóðin íslenzku hafa gleymzt
fólki í dag. Er því vel að slík
bók kemur út nú, enda hafa
margir látið óskir um það í Ijós.
— Egill Bjarnason valdi ljóðin.
Útgefandi er Iðunn.
i
I
!
{
i
Riddarakrossinn ætti
hann að minnsta kosti að
fá nú þegar.
Skógrækt
Ferðalangur nokkur, góð-
ur og vel metinn maður kom
að máli við póstinn fyrir
nokkru. Hann sagði m.a.:
,,Eg er á móti hugmynd-
inni um að klæða landið
skógi. En litlir skógarreitir
geta verið til prýði, enda
er sjálfsagt að leyfa þeim
sem áhuga hafa á skógrækt
að rækta sinn skóg. En að
fara að liylja landið með
Nei, varla heimsmet,
Sennilega er það Evrópu-
met. Þeir í Ameríku eiga
víst einn sem er kominn
á annan tuginn.
Hinrik VIII. átti sex kon-
ur.
Já, og drap þær allar.
Og Bláskeggur átti sjö
stykki og hálshjó þær all-
ar.
Nei, ekki þá sjöuhdu,
Evrópumet?
Hann Kristmann Guð-
mundsson var að gifta sig.
Nú, og hvað er svona
merkilegt við það?
O svosem ekki neitt nema
ef vera skyldi æfingin sem
hann hefur fengið í gifting-_
um.
Já, þú meinar það, þetta
er v’íst í áttunda sinn, ætli
það sé ekki heimsmet hjá
-i rj
bræður hennar drápu hann
áður en hann gat drepið
hana.
Nú já, það var nú í þá
daga.
Eiginlega ætti að heiðra
hann Kristrnann fyrir þetta
afrek.
iSatt segirðu, við erum
vanir að heiðra íþrótta-
mennina fyrir minni afrek
en þetta.
honum, nær ekki nokkurri
átt. Eg hef farið um Finn-
land. Þar getur maður ek-
ið í margar klukkustundir
án þess að sjá nokkuð ann-
að en trén meðfram vegin-
um. Þetta er leiðig.jarnt og
eyðileggur algjörlega út-
sýni. En nú er meiningin að
klæða landið þessu stærsta
„illgresi", og um leið hyrgja
útsýni fyrir þeim sem um
landið ferðast. Skóglevsið er
eitt af sérkennum Islands
sem ekki má eyðileggja.
Öðru máli gegnir um rækt-
un eyðisanda. þeir eru aldrei
til prýði en oft.ast til tjóns.
En þessi klæðningarhug-
mynd virðist vera ákaflega
vinsæl, og mesta metnaðar-
mál forsprak'ka hennar er
að láta mynda sig við hlið-
ina á 10, 20 eða 30 ára
gömlum hríslum."
Þetta sagði nú sá góði
maður. Sennilega eru ekki
allir lesendur sammála
honum í þessum efnum. Er
það?
Tvær vísur
Bólu Hjálmar var ekki
að sníða utan af hlutunum,
eða tala neitt tænitungu-
mál. Hann lét álit sitt
á samtímamönnum sínum
hiklaust í ljós, gagnrýndi
þá ríku fyrir nirfilshátt og
aðra fyrir lágkúrulegan
hugsunarhátt. Vísur haus
sýna þetta bezt, í þeim
kemiir fram beizkja við
sa.mtíðina, sem mat hann
ekki sem skyldi, en Hjálmar
dregur hana sundur í háði.
Matthias Joehumsson lýs-
ir bessu vel í vísu um liann:
Bólu Hjálmar baldinn risti
blóðgar rúnir heimskum Ivð.
Ó1 úr málmi bnvtta, hristi
hiartalausri nirfilst.íð.
Svo er hér visa eftir
Hiálmar, mergjnð og góð
lýsing á óréttlæti stiórnar-
farsins (Hún gæti eins vel
át.t við i dag.)
Er bað gleði andskotans,
umboðslaun og gróði,
fémunir þá fátæks manns
fúna í ríkra sjóði.