Þjóðviljinn - 22.07.1960, Blaðsíða 5
Föstudagur 22, júlí 1960 — ÞJÓÐVILJINN
(5
um
Framhald af 2. síðu
mundir, um haustið 1954 og sér-
staklega á árinu 1955, jukust bif-
reiðakaup SÍS stórlega. Greiðsla
í'yrir bílana kom af innstæðum
SÍS hjá First National City Bank.
Lúðv.'k Jónsson skýrði frá því
að SÍS haíði yfirdráttarheimild
hjá bankanum, sem nam árið
1954 $ 200.000,00 og var hækkuð
árið 1955 eða 1956 í $300.000,00.
Var yfirdráttarheimildin iðulega
fullnotuð.
SÍS endurgreiddi Olíufélag-
inu h.f. þessa $ 145.000,00 í
þrennu lagl árið 1956, og
gerði Oliufélagið h.f. endan-
leg skil á þessari upphæð til
gjialdeyriseftirlitsins með bréfi
ds. 25. febrúar 1957, undirrit-
að af Ilauki Hvannberg.
Þess skal getið, að Vilhjálm-
ur Þór varð bankastjóri Lands-
banka íslands 1. janúar 1955
cg þar með einn af yfirmönn
nm gjaldeyriseftirlitsins frá
sama tíma.
Árið 1956 fékk Olíufélagið
h.f. greitt fyriríram fyrir geyma-
leigu samtals $ 224.000,00. í
gjaldeyrisskilaskýrslu Olíufélags-
ins h.f., ds. 25. febrúar 1957,
undirritaðri af Hauki Hvann-
berg, er leigan talin nema
$ 186.538.46, eða vantalið um
$ 37.461,54. Undanskotið á þess-
um $ 37.461,54 upplýstist ekki
fyrr en við dómsrannsókn máls-
ins. Dollarar þessir voru lagðir
inn á reikninga HÍS og Olíufé-
lagsins h.f. hjá skrifstofu SÍS í
New York. Verður vikið nánar
hér á eftir að ráðstöfunum á
þeim.
Butler, Herrick &
Marshall
í marzmánuði 1954 lét Hauk-
ur Hvannberg greiða $ 12.855,65
til fyrirtækisins Butler, Herrick
& Marshall, 30 Broadstreet, New
York, af reikningi H.Í.S. hjá
skrifstofu SÍS í New York, en
f.vrirtæki þetta rekur verðbréfa-
sölu. Skrifstofa SÍS í New York
var á þessum tíma til húsa í
sömu byggingu og verðbréfasölu-
fyrirtækið. í marzmánuði 1955
runnu enn af reikningi HÍS hjá
skrifstofu SÍS í New York til
verðbréfasalans $ 24.385,00, og
í desember 1956 voru greiddir
af sama reikningi til sama fyr-
Irtækis $ 18.000,00. Samtals gera
þessar fjárhæðir $ 55.240,65.
GÖgn málsins benda til, að Hauk-
ur Hvannberg hafi fengið endur-
greitt hjá þessu fyrirtæki á ár-
unum 1955 og 1956 í tvennu
lagi samtals $ 12.385.00 Fyrir-
tæki þetta keypti og seldi fyr-
ir Hauk Hvannberg, verðbréf
(securities), þar til Haukur
Hvannberg lét loka reikningnum
29. janúar 1959 og yfirfæra
S 60.758,85 til Union Bank í
Sviss, þar sem peningarnir eru
enn, eftir því sem dómararnir
bezt vita. Dollarar þeir, sem
runnu til verðbréfasalans árin
1954 og 1955 virðast hafa verið
teknir af hinum almenna inn-
heimtureikn ingi HÍS, nr. 4137,
hjá Esso Export Corporation,
Dollararnir, sem runnu til verð-
bréfasalans árið 1956 voru tekn-
ir af geymaleigureikningi Oh'ufé-
lagsins h.f., nr. 6078, hjá Esso
Export Corporation. Forstöðu-
menn skriístofu SÍS í New York
á þeim árum, sem greiðslurnar
runnu til Butler, Herrick &
Marshall, hafa skýrt frá því, að
þeir hafi ekki haft hugmynd um,
hvers konar fyrirtæki þetta
var.
Reikningar H.Í.S. og
Olíufélagsins h.f. hjá
skrifstofu SÍS í New York
Olíufélagið h.f. og HÍS hafa
undanfarin ár átt viðskiptareikn-
inga hjá skrifstofu SÍS í New
York. Þessir reikningar virðast
hafa, að nokkru leyti, verið látn-
ir gegna hlutverki, sem er fyrir
utan rekstur félaganna, og er
þá fyrst og fremst átt við fjár-
hæðirnar, sem runnu um reikn-
inga þessa til fyrirtækisins Butl-
er, Herrick & Marshall, sbr. það,
sem greinir um þau viðskipti
undir lið nr. II hér að framan.
Er þessi þáttur málsins ekki
fyllilega kannaður enn og því
eigi unnt að skýra nánar frá
honum á þessu stigi.
Flugvélakaup
Solberg Aviation Co. A hinn bóg-
inn sést ekki af þeim gögnum,
sem varða þennan reikning, að
fjárhæð þessi eða fjárhæð, sem
svarar til upphæðar tryggingar-
fjárins, sem að ofan greinir, eða
fjárhæð, sem svarar til endan-
legs kaupverðs flugvélarinnar,
hafj verið endurgreidd inn á
reikninginn.
1
Reikningur Hauks
Hvannbergs hjá General
Rmerican & Dominion
Export Co.
í nóvembermánuði 1958 opnaði
Haukur Hvannberg reikning hjá
fyrirtækinu General American &
Dominion Export Corporation,
Árið 1955 lét Haukur Hvann-
berg taka $ 15.000,00 af inn-
stæðu Olíufélagsins h.f. á reikn-
ingi félagsins hjá skrifstofu SÍS
í New York og greiða til fyrir-
tækisins General American &
Dominion Export Corporation,
New York, Dollarar þessir voru
notaðir til kaupa á flugvél, sem
kom til landsins sumarið 1955.
Haukur endurgreiddi þessa
$ 15.000,00 inn á reikning Olíu-
félagsins h.f. hjá skrifstofu SÍS
í New York árið 1956. Var þessi
endurgreiðsla hluti af þeim
$ 37.461.54, sem Haukur skaut
undan af geymaleigutekjum árs-
ins 1956, sbr. undir lið nr. I.
Flugvél þessi var seld hérlendis
árið 1956 og kaupandi greiddi
Hauki Hvannberg þessa $ 15 þús. á
árunum 1957 og 1958 með gjald-
eyri, sem hann fékk keyptan í
Landsbanka íslands að fengnu
gjaldeyrisleyfi hjá innflutnings-
skrifstofunni. Tékkarnir voru all-
ir stílaðir á fyrrnefnt fyrirtæki,
General American & Dominion
Export Co.rporation, sem sá um
að leggja þá inn á bankareikning
Hauks Hvannbergs hjá bankan
um Guaranty Trust Company í
New York.
‘Öndvert ár 1957 missti maður
nokkur hér í bæ flugvél, sem að
sjálfsögðu var tryggð. Hann vildi
festa kaup á nýrri flugvél. Til
að flýta fyrir kaupunum bauðst
Haukur Hvannberg til að útvega
lán í Ameríku, meðan beðið væri
eftir að tryggingarféð væri greitt
út. Eftir því sem manni þess-
um er bezt kunnugt, mun
Haukur Hvannberg hafa notað
sambönd sín hjá Esso Export
Corporation til að útvega lán-
ið. Flugvél þessi var keypt hjá
fyrirtækinu Thor Solberg Aviati-
on Company, New Jersey. Þeg-
ar flugvélakaupandinn fékk
tryggingarféð, að fjárhæð $ 15.
320,00, endurgreiddi hann Hauki
Hvannberg. Haukur Hvannberg
hefur skýrt frá því, að hann hafi
útvegað ofangreindum manni lán
til flugvélakaupa. Lán þetta seg-
ist Haukur hafa fengið hjá Esso
Standard Oil Co. Hann vildi ekki
nafngreina Ameríkana þá, sem
hann samdi við um lánið. Ætlun
hans var að lánið væri ekki tek-
ið alj innstæðuni HÍS eða Olíu-
félagsins h.f. hjá Esso Export,
en ef svo hefur verið gert, hefur
það verið fyrir mistök.
Af reikningsyfirliti yfir Speci-
al Account HÍS nr. 4138 hjá
Esso Export Corporation í apríl-
mánuði 1957 og fylgiskjölum
með honum, sést, að greiddir
voru, að undirlagi Hauks Hvann-
bergs, $ 17.042.00 af reikningi
þessum til fyrirtækisins Thor
Vilhjálmur Þ5r
New York. Er reikningurinn opn-
aður með ? 10.000,00. Upphæð
þessi er skuldfærð í nóvember-
mánuði 1958 á reikningsyfirliti
reiknings HÍS nr. 4138, Special
Account. Hauku.r Hvannberg
hefur skýrt frá því, að tilgang-
urinn með opnun reiknings þessa
hjá nefndu fyrirtæki hafi verið
sá, að HÍS ákvað að eiga við-
skipti við General American &
Dominion Export Corporation.
Haukur Hvannberg vildi ekki
skýra nánar í hve.rju þessi við-
skipti áttu að vera fólgin. Fyrir
mistök hafi reikningurinn verið
opnaður á hans nafni, en ekki
á nafni HÍS. Hins vegar hefur
forráðamaður General American
& Dominion Export Corporation
haldið því fram í bréfi, ds. 11.
febrúar 1960, að fyrirtækið hafi
aldrei átt nokkur viðskipti við
HÍS og aldrei verið beðið um
að opna reikning hjá því á nafni
HIS. Inn á þennan reikning
komu og fleiri greiðslur vegna
viðskipta I-IÍS á Keflavíkurflug-
velli, en megniö af þeim dollur-
um, sem eignfærðir voru á reikn-
ingi þessum, skilaði sér aftur,
cftir að rannsókn máls þessa
hófst, inn á reikninga HÍS hjá
Esso Export Corporation, 30.
október 1950 var inneign á reikn-
ingi þessum $ 2.724,44.
ðterlingspundaviðskipti
H.Í.S-
HÍS hefur haft sterlingspunda-
tekjur undanfarin ár, m.a. þókn-
un vegna afgreiðslu á Shell-olíu-
vörum og eldsneyti til farþega-
flugvéla á Keflavíkurflugvelli.
Hefur H.Í.S. alltaf gert full skil
á þessum tekjum sínum í sterlings-
pundum. Auk þess benda gögn
málsins til, að HÍS hafi haft
tekjur í sterlingspundum vegna
sölu olíuafurða til erlendra skipa
á íslandi. Gjaldeyrisskil yfir
þessar sterlingspundatekjur voru
ekki gerð fyrr en árið 1959, að
því er hermir í framburði for-
stöðumanns söludeildar Olíufé-
lagsins h.f., og . þá samkvæmt
beiðni gjaldeyriseftirlitsins. Voru
þá gerð skil á tekjum HÍS vegna
úttekta erlendra skipa hérlend-
is fyrir árin 1957 og 1958.
Gagna yíir þessar sterlings-
pundatekjur HÍS undanfarin ár
hefur ekki tekizt að afla hing-
að til sakir þess, að þau fyrir-
finnast ekki í vörzlum HÍS.
Hafa forráðamenn HÍS ekki enn
fengið þessi gögn, þrátt fyrir
ítrekuð tilmæli þeirra til hinna
ensku viðskiptafyrirtækja sinna.
Gögn málsins geyma upplýs-
ingar um, að í marzmánuði 1954
hafi £ 11.500-0-0 verið ráðstaf-
að af innstæðum HÍS i Englandi
til kaupa á M.t. Litlafelli, sem
er sámeiginleg eign Olíufélagsins
h.f. og SÍS og keypt var frá Sví-
þjóð um þessar mundir. Fram
hefur komið í málinu, að útvega
þurfti peninga í skyndi til - að
ganga frá kaupum á M.t. Litla-
felli og var því undinn bráður
bugur að þvi að safna saman
peningum af viðskiptareikning-
um HÍS í Englandi, því að eitt-
hvað stóð á nauðsynlegum leyf-
um héðan að heiman. Hér var
því um skyndilán að ræða. Þessi
£-11.500-0-0 vo.ru endurgreidd
inn á reikning HÍS í Englandi í
maímánuði 1955. Meir er ekki
vitað 'á þessu stigi málsins um
sögu þessara £-11.500-0-0. Fram-
angreind ráðstöfun á þessum
sterlingspundum til kaupa á M.t.
Litlafelli gekk um hendur skrif-
stofu SÍS í Leith.
Vilhjálmur Þór mundi ekki
hvernig gjaldeyrisins var aflað
til kaupa á M.t. Litlafelli. Hann
kvað sig ekki muna eftir þeim
£-11.500-0-0, sem að ofan grein-
ir.
Þess skal getið, að Olíufélagið
h.f. og SÍS fengu að sjálfsögðu
innflutnings- og gjaldej'risleyfi
fyrir skipinu.
Opnun viðskiptareikn-
ings H.Í.S. hjá Esso
íxport Co.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, var svokallaður Special
Account HÍS, nr. 4138, hjá Esso
Export Corporation stofnaður 15.
júní 1953. í fórum dómaranna
er bréf frá Esso Export Corpor-
ation, ds. 8. júní 1953, til Hauks |
Hvannbergs. f bréfi þessu til-
kynnir Esso Export Corporation
Hauki Hvannberg, að fram-
kvæmdastjórn (Management) fé-
lagsins hafi o.rðið við beiðni
Hauks um opnun nýs reiknings
hjá félaginu, sem hefði því hlut-
verki að gegna, að um hann ættu
að ganga kaup þeirra tækja,
sem nuðsynleg' væru rekstri H
ÍS á Keflavíkurflugvelli. í bréíi
þessu er sérstaklega tekið fram.
að peningarnir, sem inn á reikn-
inginn koma, eigi aðeins að not-
ast til kaupa á tækjum vegna
rekstrar HÍS á keflavíkurílug-
velli („It is understood, of course,
that you will use only these
funds to purchase equipment
necessary for your Keílavik op-
erations“). Gert var ráð fyrir í
bréfinu, að teknir yrðu til at-
huguna.r í maí næsta ár (þ.e.
1954) möguleikar á því að fram-
lengja þessa ráðstöíun, eí nauð-
syn þætti.
Þess skal getið, að reikningur-
inn nr. 4138 var enn við líði. er
rannsókn málsins hófst. Þá skal
tekið fram, að megnið al' þeim
dollurum, sem runnu inn á reikn-
ing þenna, nr. 4138, var notað
til kaupa á alls konar tækjum
og varahlutum vegna reksturs
HÍS á Keflavíkurflugvelli.
Neðst á bréfinu, sem að fram-
an greinir, stóð: „cc: Mr. V. Tlior.
Oliufelagid, H.F.“
Þetta gæti þýtt, að Vilhjálmi
Þór hafi verið sent afrit bréfs-
ins. Vilhjálmur Þór skýrði frá
því fyrir dómi, er honum var
sýnt bréfið, að hann hefði aldrei
séð bréfið fyrr og hann hefði
aldrei fengið afrit aí því. Vil-
hjálmur Þór hefir, margítrekað
aðspurður, alltaf staðhæft. að
hann hefði ekki haft hugmynd
um tilvist reikningsins nr. 4138.
Special Account HÍS hjá Esso
Export Corporation.
Lokaorð
Skylt er að geta þess. að við
rannsókn málsins hafa rannsókn-
ardómararnir mætt skilningi nú-
verandi forráðamenn HÍS og Olíu-
félagsins h.f. á nauðsyn þess, að
mál þetta mætti upplýsast og
rannsókn þess verða sem fyrst
til lykta leidd. Liðsemd sú, sem
forráðamenn félaganna hafa véitt
dómurunum við öflun gagna,
hefir verið slík, að án þessarar
aðstoðar hefði rannsóknin. að öll-
um líkindum lítt þokazt áleiðis.
Reykjavík. 21. júlí 1960.
Gunnar Iíelgason.
Guðm. Ingvi Sigurðsson."
Kcirtakór ReykÍGivÉkyr fer í
sösigför fii USA @9 K®ncid©
Karlakór Reykjavíkur aCIar ■ við stjórn kórsins og verður
enn að leggja land undir fót| síðar skýrt nánar frá ýmsu i
og hyggur nú á söngför til sambandi við för kórsins.
Bandaríkjanna og Kanada.
Verður lagt af stað héðan
1. október og stendur ferðin
til 20. nóvember. Kórinn mun
halda 40 hljómleika, þar af
11 i Kanada, og taka 40
manns þátt í förinni, 36
söngvarar, söngstjórinn Sig-
urður Þórðarson, undirleikar-
inn Fritz Weisshappel. Ein-
söngvarar verða Guðmui fcur
Jónsson, Kristinn Hallsson og
Guðmundur Guðjónsson.
Fararstjóri verður Gísli
Guðmundsson starfsmaður
upplýsingaþijónustu Bandaríkj-
anna hér á landi.
Fréttamenn ræddu í gær
Hljómplatao „Pét-
ur og lilíuriun66
Sinfóníuhljómsveitin lét í ár
taka upp á segulband „Pétur og
úlfinn“, æfintýri með tónleikum
eftir Serge Prokofiefí. Hulda
Valtýsdóttir, leikkona, sagði sög-
una, en stjórnandi er dr. Vaclav
Smetácek. Ætlunin er að vfir-
færa þessa upptöku á hljóm-
plötu, sem væntanlega kemur á
markaðinn í haust og ætti þetta
nýmæli að vera mörgum gleði-
efni.