Þjóðviljinn - 22.07.1960, Qupperneq 12
Sovétríkin, Ceylon og Túnis
heimta Belga burt úr Kongó
Fulltrúar hinna ungu ríkja Afríku og Asíu í Örygg-
isi’áðinu, Túnis og Ceylon, tóku í gær undir þá kröfu
Sovétríkjanna, að Belgar yrðu á brott með her sinn
úr Kongó.
Þegar ráðið kom saman á
fund sinn síðdegis í gær lá
fyrir því ályktunartillaga frá
Sovérikjunum að Belgar skyldu
flytja burt allan her sinn frá
Kongó eigi síðar en þrem dög-
um eftir samþykkt hennar.
Fulltrúar Ceylons og Túnis
báru fram aðra ályktunartil-
lögu þess efnis að Belgar
skyldu fara burt með her sinn
eins fljótt og auðið væri, en
í umræðunum sögðu þeir að
þeim bæri að fara frá Kongó
án tafar.
Kúsnetsoff, varautanríkisráð-
herra Sovérikjanna, sagði að ef
„Belgar héldu áfram árásarað-
gerðum sínum myndi nauðsyn-
legt að gera raunhæfari ráð-
stafánir en gerðar hefðu ver-
ið' hingað til, bæði af hálfu
Sameinuðu þjóðanna og þeirra
friðelskandi landa sem samúð
hefðu með hinu unga lýðveldi".
Lúmnmba væntanlegur til
New York
Lúmúmba, forsætisi’áðherra
Kongó, fór þess í gær á leit
við Öryggisráðið að það frest-
aði umræðum um Kongómálið
þar til hann gæti mætt á fundi
þess, en forseti ráðsins taldi
ekki ástæðu til að verða við
þeim tilmælum. Ekki var vitað
í gær hvenær Lúmúmba myndi
koma til New York, en sagt
var að hann ætti erfitt með að
fá farkost til ferðarinnar Þó
var jafnvel búizt við honum til
New York í dag, en ekki síð-
ar en á morgun.
Moskvuútvarpið s^ndi í gær
út viðtal sem fréttamaður
þess í París hafði átt við Lúm-
úmba í síma. Hann sagði að
Belgar héldu áfram ofbeldis-
verkum s'ínum og virtu að vett-
Dönsku konungs-
hjónin á Græn-
landi
Dönsku konungshjónin, Frið-
rik 9. og Ingiríður, hafa verið
á ferð í Grænlandi ásamt rík-
isarfanuin Margréti prinsessu.
Á myndunum sjást konungs-
hjónin á útisamkomu í Uperna-
vík, og Danadrottning í græn-
lenzkum búningi.
ugi sjálfstæði þjóðar hans.
Hún væri því til neydd að biðja
alla þá sem henni væru hlið-
hollir um aðstoð til að reka
óvinina úr landi. Lúmúmba
flutti Sovétrikjunum einlægar
þakkir þjóðar sinnar fyrir alla
þá aðstoð sem þau hafa veitt
í þrengingum hennar.
Liðsflutningum
haldið áfram
Þrjár stórar sovézkar flug-
vélar komu í gær til Leopold-
Bifreiðarstjórinn
gaf sig fram í gær
Bifreiðarstjórinn, sem strauk
úr gæzluvarðhaldinu á þriðju-
dagskvöldið, eins og sagt var
frá í blaðinu í gær, er nú
kominn í leitirnar. Gaf hann
sig sjálfviljugur fram við
lögregluna í gærdag.
ville, höfuðborgar Kongó.
Fluttu þær hermenn frá Ghana,
svo og matvæli. Þá komu einn-
ig til Leopoldville í gær fyrstu
sænsku hermennirnir sem verða
í gæzluliði SÞ. Munu þeir taka
við stjórn flugvallarins í Leo-
poldville af Belgum. Nú munu
um 4.500 SÞ-hermenn vera 'í
Kongó, en þeir mega sin enn
lítils og virðast Belgar fara
sínu fram að mestu. Sums-
staðar, eins og t.d. í Stanley-
ville, hefur gætt óvildar
Kongómanna í garð gæzluliðs-
ins og hefur foringi þess þar
beðið um liðsauka.
Með sovézku flugvélunum frá
Ghana munu einnig hafa komið
erindrekar sovétstjórnarinnar
og eru þeir sagðir hafa
gengið á fund Lúmúmba þeg-
ar eftir komuna til Leopold-
ville.
Tshombe lætur
undan síga
Tshombe, Ieppur Belga í
Katangafylki, virðist vera að
gefa upp allar vonir um að
honum takist að skilja fylkið
frá lýðveldinu. Hann sagði !í
gær að hann væri fús til að
fallast á að Katanga yrði á-
fram í því, ef fylkið fengi al-
gera sjálfstjórn um eigin mál.
I Salisbury, höfuðborg Suð-
ur-Tthódesíu, hafa verið mikl-
ar óeirðir síðustu daga. Leið-
togar Afríkumanna hafa verið
handteknir, en þeir hafa svarað
handtökunum með verkfalli. I
fyrradag mætti aðeins helming-
ur þeirra til vinnu, en fyrir
dögun í gær voru hermenn
sendir með alvæpni í hverfi
þeirra í borginni til að reka
þá til vinnu.
Öfriðlegt er einnig i belg-
isku nýle'ndunni Rúanda-Úr-
úndi og hefur liðsauki ver-
ið sendur þangað.
ÞlÓÐVIUINN
Föstudagur 22. júlí 1960 — 25. árgangur — 160. tölublað.
Faradísarheimt, ný saga
eftir Laxness komin út
1 gær koni út ný skáldsaga eftir Halldór Kiljan Laxness og
fcer hún heitið* PARADÍSARHEIMT.
í viðtali við Þjóðviljann í vor
skýrði Halldór frá að saga þessi
gerðist á íslandi, í Kaupmanna-
höfn og í mormónabyggðum í
Bandaríkjunum á ofanverðri síð-
ustu öld.
Paradísarheimt er mikil saga,
301 blaðsíða í sama broti og aðr-
ar bækur Halldórs sem Helga-
fell gefur út. Hún er rituð í
Lugano í Sviss síðastliðinn vet-
ur.
Áður hafðí Halldór Laxness
eins og kunnugt er gert sér ierð
vestur til Utah, mormónafylkis-
ins í Bandaríkjunum, sem er eitt
af sögusviðunum. Hitti hann af-
komendur íslendinga þeirra sem
þar tóku sér bólfestu eftir að
mormónar hófu trúboð hér á
landi.
Af fyrstu síðu sögunnar má
sjá að hún gerist ,,á öndverðum
dögum Kristjáns Vilhjálmsson-
ar sem þriðji síðastur útlendra
konúnga hefur farið með völd
hér uppá landið“. Er þar nefndur
til sögunnar „bóndi sá er Stein-
ar hér“ og „bjó búi sínu að
Hliðum í þeirri sveit sem heitir
undir Steinahliðum“. Mun þar
Halldór Kiljan Laxness.
komin söguhetjan, en vilji menn
vita hversu Steinari þessum reið-
ir af verða þeir að afla sér bók-
arinnar.
Ekkja Bandanaraike settist í gær fyrst aílra
kvenna í embætti forsætisráðherra
Ekkja Bandaranaike, sjálfstæð-
isforingja Ceylonbúa, sem niyrtur
var í september s.I„ hefur fetað
í fótspor manns síns og setzt í
stól hans sem forsætisráðherra
'r John Hunt á Reykjavíkurflugvelli:
Trúir á tilveru snjómamisins
en er vantrúaður á Kínverja
Tveir garpar, sir John Hunt
og George Lowe, sem klifu
Everesttind 1953, höfðu í gær-
kvöld stutta viðdvöl á Reykja-
vikurflugvelli, en þeir voru á
leið til Grænlands, ásamt öðr-
um Englendingum, og ætla þeir
að dvelja þar í 6 vikur við
ýms rannsóknarstörf.
Fréttamenn áttu stutt við-
tal við þá félaga og sagði sir
John m.a. að hann tryði því
að til væru „snjómenn“, eða
apar liann liefði séð fótspor
þeirra og heyrt til þeirra.
Hljóðin væru lík og í öpum.
Lovve var sama sinnis, en sagð-
ist álíta þetta bjarnartegund.
Sir Jolin var efins í að Kín-
verjar hefðu klifið Everesttind-
inn, a.in.k. mælti margt á
móti þeirri staðliæiiiigu, og
hann þyrfti öruggari sannanir,
ef hann ætti að trúa.
Sir John hefur aldrei kom-
ið áður til Grænlands eða Is-
orge Lowe tvisvar haft örstutta
viðkomu hér á flugvelli.
Hópurinn kom með Gullfaxa
Sir John Hunt
frá London og hélt síðan eft-
ir stutta viðdvöl með Sólfaxa
lands. Aftur á móti hefur Ge- til Grænlands.
Ceylons, fyrsta konan í heimin-
um sem gegnir slíku embætti.
Hún tók við forystu flokks
hans, Frelsisflokksins, Sri Lanka,
eftir dauða hans og henni er það
þakkað, öðrum íremur, að flokk-
urinn vann í fyrradag’ glæsileg-
an sigur í þingkosningunum,
Hann hlaut 75 af 151 þingsæti,
hafði enda bandalag við flokka
kommúnista og trotskista sem
buðu ekki fram þar sem Sri
Lanka átti í tvísýnni baráttu við
hinn íhaldssama Þjóðernisflokþ
Frú Bandaranaike gegnír eínn-
ig embætti landvarnaráðherra'og
utanrikisráðherra. Búizt er við
að stjórn hennar muni beita sér
fyrir viðtækri þjóðnýtingu og
þá fyrst þjóðnýta peningastofn-
anir landsins, banka og trygging-
arfélög, sem nú eru að mestu
leyti í höndum Breta.
Mótmælt flugi
Bandaríkjamanna
yfir sovéttogara
Bandaríkin haia visað á bu|»;
þeirri kröfu sovétstjómarinnair
að þau hætti að stol'na í hættu
sovézkum fiskimönnum með þvi
að láta ílugvélar sínar fljúga'
lágt yfir sovézka togara úti á
reginhafi. Stjórn Kanada varð
hins vegar þegar í stað við þess-
ari kröfu og gaf flugher sínum
fyrirmæli - um að hætta slíku
flugi.