Þjóðviljinn - 14.08.1960, Síða 9

Þjóðviljinn - 14.08.1960, Síða 9
Sunnudagur 14. ágúst 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Ritstjóri: Frímann Helgason Bob Gutowski Fyrir nokkru var frá því sagt í fréttum, að heims- metbafinn í stangarstökki, Bob Gutowski, hefði látizt í bílslysi. ÍHann var um þær mundir í herþjónustu og var hann á leið til stöðva sinna, eftir að hafa heimsótt foreldra sína, þegar slysið vildi til. Hann var 25 ára begar hann lézt. Gutowski hefur um langan tíma verið dáður og umtalaður, allstaðar þar sem frjálsar íþróttir eru stundaðar, fyrir snOli sína í stangarstökki, en hann á sem kunnugt er heims- metið í stangarstökki 4,78 m. 'Að visu hefur nýlega verið gert betur, en það met hefur ekki verið staðfest ennþá. Mesta afrek Gutowskis var heimsmetið, og svo að vinna önnur verðlaun í stangarstökki í Melbourne 1956. Að hann vann silfurverðlaun þá á sína sögu, sem líka lýsir mannin- um nokkuð. Hann hafði ekki náð þeim árangri, að verða einn þeirra þriggja 'beztu sem kepptu um það að fara. Náms- félagi hans, James Graham, hafði náð þeim árangri og hafði því réttinn til þess að fara. En Graham áleit að Gut- owski væri betri stangar- stökkvari en hann, og dró sig því til baka. Til þess að sýna þakklæti sitt til Grahams gekkst Gut- owski fyrir fjársöfnun til þanda Graham svo að hann gæti líka komizt til Melbourne og horft á keppnina, sem hann og gerði, og þar varð Gutowski í öðru sæti næst á eftir Bob Richards. Bob Gutowski var 1,80 m. á hæð og vóg aðeins 65 kg. Það voru því ekki kraftar armanna, sem gerðu liann að svo góðum stökkvara. Það var fyrst og fremst sameinað: hraði, kraft- ur, og leikni, sem öllu réði. Hann mun hafa verið fljótasti stangarstökkvari heimsins í Idag. Hann hljóp 100 jarda á 9,8 og hefur enginn stangar- stökkvari gert ‘betur. Það fór snemma að bera á því, að Gutowski var gott efni í stangarstökkvara, því aðeins 15 ára tókst honum að stökkva 3,60. Aðeins 3 árum síðar stökk hann, fjórði maður í Ólympíudagurinn 1960 verð- ur haldinn á Laugardalsvellin- um í Reykjavík n.k. þriðjudag, 16. ágúst. Ólympíunefnd íslands gengst fyrir þjessum íþróttavið- burði. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að kynna almenningi helztu keppnisgreinar Ólympíu- .leikanna, með sérstöku tilliti til þátttöku íslendinga i þeim. Á Laugardalsvellinum hefst dagurinn með handknattleik Bob Gutowski heiminum, yfir 4,50. Að hann náði þessum góða árangri er fyrst og fremst þakkað hinum mikla vilja, og tíma sem hann lagði í æfingarnar, þar sem hann lagði sérstaka áherzlu á hraða og kraftæfingar. stúlkna kl. 8,15. Þar keppa stúlkurnar, sem unnu Svíþjóð í nýafstöðnu Norðurlandamóti, við úrval annarra handknatt- leikskvenna úr Reykjavik og Hafnarfirði, en kl. 20,20, strax á eftir handknattleiknum, hefst knattspyrnukappleikur í meist- araflokki. Samtimis handknattleiknum hefst keppni í frjálsum íþrótt- Framhald á 10 síðv Framhald á 8. síðu. Keppt í mörgum greinum sam- tímis á Olympíudaginn 1960 Akureyri í bráðri fallhættu - tapaði fyrir Val 1 gegn 2 Það var ekki margt manna, sem lagði leið sína inn á Laug- ardalsvöllinn á föstudagskvöld- ið, en þá leiddu saman hesta sína lið Akureyringa og Vals í Islandsmóti 1. deildar. Valur vann 42ja mínútna hálf- leik með 2:0 Fyrstu mínúturnar sóttu Valsmenn mjög fast, svo að Akureyringum tókst ekki að hafa sig neitt í frammi, og á 10. mínútu iskoraði Björgvin fyrra mark Vals með skoti rétt fyrir utan markteig, sem Einar markvörður náði ekki, enda Var skotið vel úti í horninu. Um miðjan hálfleikinn tóku Akureyringar að ranka við sér og náðu upphlaupum, sem að vísu voru laus við að vera hættuleg. Þó skapaðist mikil hætta, er Steingrímur komst inn miðjuna með boltann, cn Gunnlaugur bjargaði i þrð skipti með tímánlegu úthlaupi. Valsmenn áttu fleiri færi og. oft skapaðist þvaga ihnan vítateigsins. Það var einmitt upp úr einni slíkri, sem Vals- menn náðu öðru mar'ki síirp. Jón Stefánsson miðvörður fék’: snúningsbolta í brjóstið og r honum snerist boltinn eld- snöggt upp í markið. Mikið óhappaverk fyrir Akureyri. Mark þetta var annars svip- að því, sem Jóni varð á að skora í Pressuleiknum nú ný- lega. Mörkin tvö virkuðu eins og vítamínsprauta á Valsliðið, svo vel lék það á eftir, án þess þó að skora. Hættulegust af tilraunum Valsmanna voru tvö skot Björgvins Dan, með stuttu millibili. Annað af 25 Framhald á 10. síðu. Það þcsrf skriðdrekcs eða þyrilvængju! Um miðjan ágúst verður stórri og mikilli járngrind lok- að í Róm, og má segja að þar verði komið fyrir nokkurskonar járntjaldi. Ekki mun þó gert ráð fyrir að það orsáki kalt stríð, fremur gæti það þýtt „heitt stríð“. Járngrind þess- ari verður lokað þegar fyrsta konan kemur til keppni á ólympíuleikana. Og þannig verða þær 820 sem þangað koma lokaðar bak við þessa 3 metra háu netgirðingu. Það hafa verið settar strang- ar reglur til þess að tryggja konum þar ró og næði meðan á leikunum stendur, og auk girðingarinnar verða þar lög- reglumenn á verði dag og nótt. Konurnar búa í 11 bygging- um og allt starfslið sem þar vinnur eru konur. I frásögn af þessum tilfæringum til vernd- ar (?) konunum segir, að þeir, sem ætli sér að ráðast innfyr- ir þessar öryggisgrindur verði ,að leygja sér skriðdreka eða þyrilvængju! Sú, sem hefur tek:ð að sér að stjórna sveitum þeim, sem eiga að halda körlum í hóflegri fjarlægð, er ekkjufrú nokkur og fimleikakennari við skóla í Róm, og heitri Eneestina Cabella-Nardi. „Við höfum ekkert sérstakt á móti karlmönnum“, segir hún með glampa í auvunum, en maður verður að skilja, að þar sem koranar eru saman þús. konur, frá rær cllum löndum heims verður að gera ráðstaf- -^- Hnn nýji kappaksturbíll ,,BIáfugl“, sem Donald Campell -^- ætlar að nota til að linekkja lieimsmeti í september í Bantla- -^- rikjunum. Bíllinn var sýndur opinberlega fyrir skömmu í Englandi. Hann er búinn turbo-þotuhreyfli. Myndin sýnir ■jH>- hv»r Campell situr í bílnum og allt umhverfis hann eru vél- í* fræðingar, ljósmyndarar og fréttameim. Unglingameistaramót Rvíkur verður háð um næstu lielsi Unglingameistaramót Reykja- víkur verður háð í fyrsta sinn á Melavellinum í Reykjavík, föstuöag og laugardag næst- komandi, 19. og 20. ágúst. Hefst keppnin kl. 8 á föstu- dag og kl. 3 á laugardag. : Mánudaginn 22. ágúst fer svo ! fram síðasta grein mótsins, 1500 m hindrunarhlaup. Hefst |,sú grein kl, 6 e.h. Aðrar keppnisgreinar móts- ; ins eru: j Fyrri dagur: 100 m hlaup, 400 m hlaup, 1500 m h’.aup, 110 m grinda- hlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk, hástökk og 4x100 m boðhlaup. Síðari dagur: 200 m hlaup, 800 m hlaup, 3000 m hlaup, 400 m grinda- hlaup, kringlukast, sleggju- kast, stangarstökk, þrístökk og 1000 m boðhlaup. Áhöld fullorðinna eru notuð í öllum íþróttagreinum að und- anskyldu sieggjukastinu, þar skal notuð 6 kg sleggja. Öllum piltum, sem fæddir eru 1940 og síðar, og búsettir eru í Reykjavík, er heimil þátttaka í móti þessu. Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt til formanns frjáls- íþróttacleildar K.R. Sigurðar Björnssonar Tómasarhaga 41 sími 10798, eigi síðar en mið- vikudaginn 17. ágúst. Frjálsíþróttadeild K.R. sér um mótið. r>.mr. Við óskum ekki að kve.lja rtúlkurnar, þær mega koma og fara begar þær vilja. Hér inni geta þær haft það þægilegt á alla lund, þær geta tekið sér sölfoað, horft á sjónvarp, þveg- ið föt sín, eða haft samkvæmi, með því skilvrði þó, að karl- menn séu ekki meðal þátttak- enda." Vissar undantekningar verður þó að gera. Verði ein- hver veik verður scttur læknir, og, hvort það verður karl eða kona, sem kemur, veit ég ekki, segir Nardi. 'Stúlkurrav búa í 1. 2ja cg 3ja roa.nna herbergjum. Þjóðverjör verða með stær-.fa kvennahópinn. eða 78, næst koma Bandaríkin, og þrið.ii er , hópur Sovétrík.janna. Sovérku og bandarísku stúlkurnar búa hlið við ihlið. „Ég vil vekja athygli á“ „segir frú Nardi“ að hér má efcki tala um pólitík. Það er bannað eins og karlmenn.“ ,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.