Þjóðviljinn - 01.10.1960, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.10.1960, Blaðsíða 12
þlÓÐVIUINN Laugardagur 1. október 1960 — 25, árgangur — 220. tbl. Fjórir bílar í árekstri Um eitt-Ieytið í gærdag myndaðist umferðarteppa á Laugaveginum neðan- verðum. I>ar hafði orðið bifreiðaárekstur, fjórum bifreiðum hafði lent sam- an nálægt gatnamótum Skólavörðustí.gs. Árekstur- inn var með þessum hætti: Vörubifreið var á leið nið- ur Laugaveginn og fór skammt á undan henni sendiferðabíll og tveir Fólksvagnar. Við gatna- móf Skólavörðustígs þurftu bílarnir að nema staðar við rautt ljós um- ferðavitanna, en þá reynd- ust hemlar vörubílsins óvirkir — afturhjól bíls- ins öðrum megin höfðu losnað á öxlinum og voru nær dottin af, þegar heita átti liemlunum Þar sem ekki tókst að stöðva vöru- bílinn rann hann á næsta bíl fyrir framan sem var sendiferðabíll. Sendiferða- bíllinn rann síðan á volks- wagen-bíl, sem rann á annan bíl sömu gerðar. Skemmdir urðu á öllum fjórum bilunum, en mesfar að sjálfsögðu á þeim sem harkalegustu skellina hlutu. — Myndirnar voru teknar þegar lögreglu- menn voru að mælingum á árekstursstað í gær. Sú minni sýnir glögglega hversu litlu munaði að afílurhjólin rynnu út af öxli vörubifreiðarinnar. (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Frá og meö n.k. mánudegi munu matvöruverzlanir hér í bænum hætta aö selja kartöflur í smásölu og verða neytendur þá eftirleiöis aö kaupa kartöflur beint frá Grænmetisverzluninni í heilum eöa hálfum pokum. r #r Arásir Morgunblaðsins á ASB eru tilefnislausar með öllu Viðtal við Birgittu Guðmundsdóttur, formann félagsins — Árásir Morgunblaðsins á ASB eiga sér enga stoö í veruleikanum og eru til þess eins fallnar að koma upp pólitískri ,úlfúð 1 félaginu, sagði Bi'rgitta Guðmunds- dóttir, formaður ASB, þegar Þjóðviljinn hafði tal af henni í gær. í félaginu hefur frá upphaíi verið bezta samstarf án tillits til stjórnmálaskoðana, en nú hef- ur ein forustukona íhaldsins í Hafnaríirði, sem gekk í félagið á síðasta fundi, hafið þar póli- tiskt sundrungarstarf. Mér þykir rétt, sagði Birgitta, vegna íramkomins óhróðurs og ■ósanninda í Morgunblaðinu, að Skýra opinberlega frá þeim inn- anfélagsmálum sem þar hafa verið rangfærð á bly^gðunarlaus- asta hátt. Kom sama daginn Mánudaginn 19. september höíðum við með löglegum fyrir- vara auglýst fund til að kjósa íulltrúa á Alþýðusambandsþing. Um hádegi sama dag var komið 4il mín með skjal undirskrifað >78 nöfnum þar sem borin var íram áskorun um að haí'a alls- herjaratkvæðagreiðslu um full- Irúaval. Þann stutta tíma sem aflögu ■Var fram til fundar voru undir- askriftirnar kannaðar eftir því ;Eem kostur" var. Þama kenndi ftnargra grasa. Reyndust 35 strax •vera fullgildar félagskonur, Jirjár voru of ungar til að þær gætu verið félagar, sex voru aukafélagar, stúlkur sem yinna yfir sumarið og greiða innan við hálft gjald, 23 voru ekki i félag- inu, en vafi lék á um 11 nöfn, þar sem þau .fundust ekki á manntali við fyrstu athugun. Kosið með fyrirvara Þegar leið að fundartíma var rannsókn undirskriftanna alls ekki lokið. Félagsstjórnin leit því þannig á að úr því að ekki væri að svo stöddu hægt að ganga úr skugga um hvort áskorunin um allsherjaratkvæðagreiðslu væri iöglega fram borin. væri rétt að halda fundinn eíns og auglýst hafði verið lögum samkvæmt. Á fundinum fór kosning- fram með þeim fyrirvara að reyndist áskorunin lögleg yrði fundar- kosningin ógild en látin fara fram allsher.iaratkvæðagreiðsla. Á fundinum var skýrt frá hvernig málin stóðu og skorað á félagskonur sem að undirskrifta- söfnuninni stæðu að gefa sig fram og aðstoða við að upplýsa eitthvað um nöfnin sem enn ríkti vafi um, en engin gaf sig fram þótt síðar kæmi í ijós að þessar konur voru staddar á fundinum. Framhald á 2. síðu. Birgitta Guðmundsdóttir formaður ASI5 í fréttatilkynningu, sem Þjóð- viljanum hefur borizt um þetta mál frá kaupmannasamtökunum segir, að ástæðan fyrir þessari ákvörðun sé sú, „að af fjárhags- ástæðum er dreifingaraðilum, hvort heldur er kaupmönnum eða kaupfélögum, gert ókleift að dreifa þessari vöru, þar sem þeim er beinlínis gert að greiða með þeirri þjónustu. sem kart- öflusalan annars er“. Er síðan í tilkynningunni gerð nánari grein fyrir bví, að kostnaður við sundurvigtun og sölu kartafl- anna í verzlununum, er svo mikill, að álagningin nægir ekki til þess að vega u'pp á móti kostnaðinum. Stafar þetta m.a. af því, að kartöílur eru greidd- ar svo mikið niður af -ríkinu, að dreil'ingaraðilar missa a.m.k. helming þess, sem þeir myndu fá. ef kartöflurnar væru óniður- greiddar. Af heilbrigðisástæðum er þess krafizt, að sundurvigtun kart- aflanna fari ekki fram í sölu- búðunum sjálfum heldur í sér- stökum herbergj>um. Haf'a verzl- anirnar af þessum sökum gert þá kröfu til Grænmetisverzlun- arinnar, að hún tæki sjálf upp pökkun á kartöflunum til neyt- enda. Grænmetissalan mun hafa haft hug á því, að koma sér upp vélum og húsnæði fyrir slíka dreiíingarmiðstöð, en aí því hef- ur enn ekki orðið. Sagði for- stjóri Grænmetisverzlunarinnar í viðtali við blaðið í gær, að hún hefði ekki aðstöðu til þess að taka upp slíkar dreifingarað- ferðir fyrst um sinn en myndi, er sölubann smásöluverzlananna skellur á afgreiða til neytenda í hálfum og heilum pokum frá verf Juninni sjálfri. Stæði sölu- bannið lengi yf'ir yrði reynt að koma upp útgölustöðum út um bæinn. Þjóðviljinn sneri sér í gær til KRON og spurðist ívrir um. I hvort það myndi halda áíram i kartöí'Jusölu msð sama hætti og I áður en fékk bað svar hjá kaup- félagsstjóranum, að félagið myndi standa með kaupmanna- samtökunum í þessu máli og hætta að selja kartöfiur í mat- vöruverzlunum sínum. Leitin að Rodney ber eogan árangnr í gær var haldið áfram Iteit- inni að norska hvalveiðibátnum Kodney, en án árangurs. Leit- uðu fjórar flugvélar frá banda- r.'ska hernámsliðinu á Keflavík- urflugvelli auk norskrir flu.g- vélar og norska ef irii'sskips- ins Garm Bobby Fi 1 gær kom hingað til lands á vegum Skáksambandsins og Upplýsingaþjónustu Bandaríkj- anna handaríski skákmeistarinn Bohby Fischcr. Upphaflega va-r svo ráð fyrir gert, að Fischer 5æmi hingað og tæki þátt í Gilfermótiiiu, sem nú er að ljúka, en af því gat ekki orð- ið. Er í ráði að efna til nýs móts með 6 keppendum eða svo, þar sem ihann tefli ásamt sterkustu skákmönnum ok'kar. Fischer mun dveljast hér á landi 10—12 daga. Er íslenzk- um mikill fengur að komu hans hingað. Barn fellur út um glisgga á 2. hæð 1 gær varð það slys að Berg- staðastræti 45, að tæplega 2já ára drengur, Þórihallur Stein- arsson, féll út um glugga af annarri hæð og slasaðist á hcfði. Var drengurinn fluttur á slysavarðstofuna og síðan í Landakotsspítala. Undirskriftalistarnir með nöfnum 1030 kjósenda á Akra- nesi,, sem hafa krafizt þess að núverandi bæjarstjórn segi af sér svo að nýjar bæjarstjórn- arkosningar geti farið fram, voru kynntir bæjarfulltrúum á fundi bæjarstjórnar Akra- ness í gær. Bauðst þá Sigurð^ ur Guðmundsson, bæjarfulltrúi Sósíalistaflokksins, til þess að lesa upp fyrir bæjarfulltrúa undirskriftirnar, en Jón Árna- son, bæjarfulltrúi og alþirgis- maður íhaldsins, baðst vægðar fyrir hönd stjórnarsinna og óskaði ékki eftir þeim lestri. Voru það heldur framlágir menn, bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins, sem sátu fundinn undir rökföstum ræðum og gagnrýni fulltrúa Sósíalista- flokksins og Framsóknar- flokksins xit af iþessari máls- meðferð allri. Bæjarfulltrúar Sósíalista- flokksins og Framsóknar- flokksins báru í lok umræðna fram tillögu hess efnis. að bæjarstjórnin óskaði að dóms- málaráðuneytið tæki ákvörð- un um nýjar bæjarstjórnar- kosningar á Akranesi hið fyrsta, þar eð riflegur meiri- hluti kjósenda í kaupstaðn- um hefði staðfest þann vilja sinn með undirskrift, enn lægi éljki fyrir samstaða um kjör bæjarstjóra og haan hefði enn ekki verið kjörinn. Bæj- arfulltrúar stjórnarflokkanna báru fram frávísunartillögu, sem samþykkt var með 7 at- kvæðum gegn 2.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.