Þjóðviljinn - 12.10.1960, Blaðsíða 1
Allir Bretarnir íarnir heim til
sín og viðræður liggja niðri
Mótmæli almennings settu fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar úr skorðum
Skerðingarákvæð-
in fslld úr gildi
í athugasemdum við fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1961, sem
iagt var fram á Alþingi í gær,
segir að nokkur hækkun verði
á útgjöldum ríkisins til félags-
mála á árinu 1961 vegna þess, að
um áramót falli niður skerðing-
arákvæði á ellilífeyri.
Um ákvæði þessi hefur oft
verið deilt en þau eru þess eðlis,
að greiðsla ellilífeýris skerðist
verulega, ef lífeyrisþegi heiur
vissar tekjur aðrar en ellilíf-
eyririnn. þ e. getur unnið að ein-
hverju leyti fýrir sér. Þrátt fyrir
harða baráttu sósíalista og Al-
Framh. á 2. síðu
' 1 ! (t 'V'1 1
Bretamir sem hingað komu til aö semja um land-
helgismálið eru farnir heim til London alliir meö tölu
og allt er í óvissu um hvenær viðræöum þeirra og fulL
trúa íslenzku ríkisstjórnarinnar veröur haldið áfram.
Eins og áður hefur verið skýrt
Irá fóru sex af brezku samninga-
anönnunum til London á sunnu-
dagsmorgun, og í gær tilkynnti
utanríkismálaráðuneytið að þeir
tveir sem eftir voru væru einn-
ig farnir.
í höndum rikisstjórna
Segir utanríkisráðuneytið að
sir Patrick Reilly, formaður
farezku nefndarinnar, hafi farið
til London að gefa stjóm sinni
skýrslu. Honum varð samferða
ungfrú Gutteridge, lögfræðingur
nefndarinnar. Er þá enginn eftir
af brezku samningamönnunum.
í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins segir ennfremur, að
landhelgismálið sé nú í athugun
hjá báðum ríkisstjórnum. Búizt
sé við að framhaldsviðræður fari
fram hér í Reykjavík, en ekki
hafi verið ákveðið hvenær það
verði.
Fundir liættu þegar
varðstaða hófsi
Viðræðurnar við Breta hófust
■i
Vopnahlé [
■
framlengt j
■
Reuter-fréttastofan sendi ■
í gær út tilkynningu um ,■
að Samband brezkra tog- ■
araeigenda hafi ákveðið ■
í gær, að framlengja ■
vopnahlé það sem undan- J
farið hefur verið á Is- ■
landsmiðum. Verður ■
■
vopnahléð framlengt þar ■
til lokið er viðræðum ■
brezkra og íslenzkra ■
stjórnarvalda um land- ■
helgitdeiluna.
1 dag átti að renna út E
síðasti frestur brezkra ■
U
togarae'genda um að fara ■
ekki inn fyrir 12 sjómílna ®
landhe'gi ' Islands. Er ■
þetta í annað sinn sem ■
Bretar fresta því að hefja H
að nýju veiðirán^sln í ís- ■
lenzkri landhelgi í von um *
að takist að knésetja ís- §
lenzk stjórnarvöld í land- ■
helg'smálinu og knýja ■
fram samninga.
Oliver, formælandi ■
brezkra togaraskipstjóra, ■
sagði í gær að brezkir ■
skipstjórar gerðu sér von- ■
ir um að samningar tækj- J
ust innan fárra v'kna. j
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^1
í ráðherrabústaðnum við Tjarn-
argötu 1. október og stóðu þai
síðan hvern dag' nema einn frarr
á föstudag.
Á föstudag efndu Samtök her-
námsandstæðinga til hinnar fjöl-
mennu mótmælagöngu gegn
samningunum frá Arnarhóli til
ráðherrabústaðarins, og' eftir það
hafði mótmælavörður stöðu við
bústaðinn dag og nótt. Eftir að
þessar aðgerðir hófust féllu
samningafundir niður að inestu,
enginn fundur var haldinn í ráð-
herrabústaðmun en einn stuttur
fundur á laugardag í öðruni
húsakynnum. í fyrradag kvöddu
svo þau sir Patrick og ungl'rú
Gutteridge og héldu til London í
gærmorgun. Þar með er viðræð-
unum hætt í bili að minsta
kosti.
Átti að ljúka fyrir þing
Þessi gangur mála er allt ann-
ar en ríkisstjórnin hafði fyrir-
hugað. Ætlun hennar var að
ljúka viðræðunum áður en Al-
þingi kæmi saman, og er það
meðal annars staðfest í frétta-
skeyti frá Llewellyn Chanter,
brezkum fréttamanni sem hér
hefur dvalið síðan fyrir mán-
aðamót. Daily Telegraph birti 3.
október frétt frá Chanter þar
sem hann segir:
„Ríkisstjórnin vill fyrir hvern
mun ljúka viðræðununi um
næstu helgi, en þá kemur þing-
ið saman til funda ó ný“.
Stjórninni spáð falli
Brezki blaðamaðurinn Chant-
er, sem haft hefur náið sam-
band við íslenzka ráðamenn,
skýrir á þessa leið frá andrúms-
loftinu í stjórnarherbúðunum um
það leyti sem viðræðurnar hóí-
ust:
..Olafur Thors forsætisráð-
herra hefur teflt á tæpasta vað
með því að bjóða Bretum til
viðræðna hér, því að þriggja
atkvæða meirihluti á þingi held-
ur ríkisstjórn hans við völd.
.... Margir hér spá því að
samningsgerð við Breta muni
verða ríkisstjórninni að falli og
koma af' stað allsherjarverk-
falli".
„Geysisterk stjórnar.
andstaða"
El'tir útifundinn sem Alþýðu-
sambandið efndi til daginn sem
samningarnir við Breta hó(í'pst
f’ramhaJd aí 1. aiðú1' ‘
Hluti af mannfjöklaimni fyrir framan ráðherrabústaðínn eftir mótmæla.gönguna á föstudags-
kvöld. Framan af vikunni sátu samninganefndirnar á stöðugum fundum í bústaðnum, en eftir
að mótmælagangan var farin og' varðstaðan við húsið hófst var fundahöldum þar steinhætt, og
nú eru allir Bretarnir farnir .og viðræður liggja niðri um óákveðinn tíma. (Ljósm. Fjóðv. A. K.)
Skattar og tollar, sem ríkið leggur
á almenning áætlaðir 1237 millj. kr.
8% söluskatturinn ernemur 168 millj.
króna framlengdur á fjárlögum 1961
í gasr var frumvarp til fjárlaga fyrir áriö 1961 lagt
Iram á Alþingi. Tekjur og gjöld.á rekstraryfniiti eru sam-
kvæmt því áætluö 1.549.768.000 kr. og rekstrar afgang-
ur 104.983.096 kr. Nemur hækkun heildarupphæöarinn-
ar frá núgildandi fjárlögum 51 milljón króna og eru þá
langhæstu fjárlög, sem samþykkt hafa veriö, enda hækk-
uöu þau um hart nær 500 millj. króna frá upphaflegri
áætlun viö efnahagsráöstafanirnar í fyrra vetur.
I athugasemdum við frum-
varpið segir, að þegar það var
undirbúið hafi aðeins verið fyr-
ir hendi takmörkuð viineskja
um afkomu yfirstandandi árs, en
á reynslunni af henni hafi þó
orðið að byggja áætlanir írum-
varpsins, eil.ikum tekjuhliðina.
Má því gera -ráð íyrir-, að frum-
varp þetta reynist um margt
mjög haldlítið ekki siður en
Irumvarpið, sem ríkisstjórnin
fleygði fyrir þingmenn í þing-
byrjun í íyrra en umbreytti svo
öllu áður e:i lauk.
168 millj. kr. bráðabirgða-
‘ . skattur framlengdur
Athygli vekur, að af tæp-
lega 1550 millj. króna tekjum,
sem frumvarpið gerir ráð
fyrir er rösklcga 1V7 millj.
kr. af'að með sköttum og toll-
um á almenning. Hæsti liður-
inri ev söluskat :.ir, samtals
áætlaður 430 iniltj. króna. Er
þar há meðreiknaður 8%
,,brá-hbirgða,“söluskattur af
iunflutningi, sem settur var í
fyrra. eu í greinargerð frum-
varp'ins scgir, að „eigi verði
hjá þvi komizt til að tryggja
hallalausan rekstur á árimi
1161“, að hann „verði i gildi
árið 1961“. Nemur sú „bráða-
birgðaskatt 1 agning“ sem þann-
ig á nú að frain’.engja á
næsta ári 168 milljónuni
króna.
Minnkandi innflutningur
veldur skatttekjulækkun
1 annan stað kemur í Ijós, að
áætlaðar tekjur af verðtolli,
söluskatti af innfluttum vörum
og leyfisgjöldum af bifreiðum
lækka verulega vegna þess, hve
Framhald á 2. síðu.
Lítil síldveiði
í Eyjafirði j
- Akureyri frá
íréttaritara Þjóðviljans.
Síldveiði í innanverðum
Eyjafirði hefur verið mjög lít-
il síðustu dagana, en allmikið
verður vart við smáa síld, sem
er of smá til niðursuðu. Gort
er ráð fyrir að smásíldin verði
orðin hæfil^ga stór fyrir nið-
ursuðu eftir einn mánuð eða
svo.