Þjóðviljinn - 12.10.1960, Side 9

Þjóðviljinn - 12.10.1960, Side 9
Miðvikudagur 12. október 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (9 saglfll '£tr ͧE m HT É? Sjp S 5§5 m. S'ffTttl .»XXi a m Ritstjori: Frímann Helgoson r r Ur skýrslu stjórnar HSI um samskiptin við útlönd I kaflanum í skýrslu sam- bandsins er rætt* nokkuð um þátttöku og frammistöðu kvennanna í Norðurlandamót-j inu, og þótt sumt af því hafi áður 'komlð hér er hin félags- lega og íþróttalega frammi- staða stúlknanna svo til fyrir- myndar að það á aftur erindi til áhuga'íþróttafólks. Stúlkurnar munu hafa aflað um 90 þús. króna til fararinu- ar, og er það frábært afrek. Styrkir munu hafa verið 33. 662,40. í skýrslunni segir m.a. um samskiptin við útlönd: Eins og fram kemur i síð- ustu ársskýrslu var ekki ákveð- ið, hvort mótið yrði liáð sum- arið 1960 eða 1961. Var því Svíum skrifað strax i október, og þeir spurðir um þetta at- "iði. Svar barst í byrjun nóv- ember og boðaði stjórain skömmu síðar eða 17. nóv- ember til fundar með rúm- léga 20 stúlkum. Var máíið skýrt fyrir þéim, einkum þó fjárhagslúiðin og þær spurðar, hvort .þær treystu sér að leggja út í þetta, . ef til kæmi, að þær yrðu yaldar til fararinnar. Sam- þykktu stúlkumar það. Var þátttaka Islands síðan tilkynnt )g hafinn undirbúningur far- ftrinnar. Segja má að undirbúningur að ferð sem þessari sé tvískipt- ur iþ.e. annarsvegar íþrótta- legur. undirbúningur en hins- vegar fjánhagslegur. Annars- staðar í skýrslunni er skýrt frá æfingum stúlknanna, en Jrétt er þó að geta þess hve mikill áhugi var og hve liart stúlkurnar lögðu að sér. Vakti þetta mikla athygli og birt- ust lofsamleg ummæli um þenn. an mikla áhuga stúlknanna í blöðum og útvarpi. Eins og fyrr segir féllust stúlkurnar á að afla þeirra peninga, er þessi ferð myndi kosta að frádregnum væntan- legum styrkjmn, en sótt var strax i upphafí um styrki til Í.S.Í. og l.B.R. Áætlað var í upphaf-i að ferðakostnaður yrði um kr. 80.000,00 og var þá miðað við flugfar aðra leið en skipsferð hina. Þar sem slikt reyndist óMeift svo og vegna hækkaðra fargjalda, var ný áætlun gerð og var þar reiknað með ferðakostnaði um Ársþing FRÍ Ársþing FRÍ verður haldið að Grundars.tíg 2, Reykjavik, 19, til 20. nóvember n.k. kr. 125.000,00. Eins og fram kemur í reikningum sambands- ins, þá voru farnar margar leiðir til að afla þessara pen- inga m.a. happdrætti, auglýs- ingasöfnun, ágóðaleikir og fl. Unnu stúlkurnar mjög ötul- lega að fjáröflun þessati og er slíkt til hlns meSta sóma fyrir handknattleiksíþróttina. Iþróttabandalagi Reykjavíkur og íþróttasambandi Islands ber að þakka fyrir að styrkja ferð þessa. Báðir þessir aðilar hafa þráfaldlega sýnt velvilja sinn gagnvart handknattleiksíþrótt- inni, bæði með fjárstyrkjum og annarri aðstoð. Einnig ber að þakka H.K.R.R. fýrir stuðn- ing þess við ferð þessa. Heimsmeistarakeppni karla 1961 (innanhúss) Landsliðsnefnd karla vann að undirbúningi. undir væntan- lega heimsmeistárakeppni 1961. Valdi hún þegar 'i des 1959, 18 menn til æfinga. Var einkum lögð áherzla á þolæfingar fram- an af, en síðar einnig stofnað til knattæfinga yfir sumartím- ann. Féllu æfingar þó niður meðan Islandsmeistaramótið utanhúss stóð yfir. Síðan voru æfingar aftur upp teknar og er nú m.a. æft einu sinni í viku í íþróttahúsi varnarliðsins á Keflaví'kurflugvelli, en þar er hægt að fá fulla vallarbreidd og verður það að teljast mjög mikilsvert fyrir þjálfun undir heimsmeistarakeppnina. Æf- ingasókn hefur verið í lakara lagi og virðist ekki almennur áhugi hjá piltunum fyrir því að byrja æfingar svo snemma. Nefndarmenn hafa fylgzt með æfingum, en þær hafa verið undir stjórn Hallsteins Hinriks- sonar. Þolæfingar hefur Bene- dikt Jakobsson annazt. Stjórnin samþykkti 13. júní að senda þátttökutilkynningu í keppnina. Þann 25. septemher sl. var síðan til'kynnt á þingi I.H.F. í Liege í Belgíu, að 22 þjóðir hefðu tilkynnt þátttöku í mót- inu og var niðurröðun sem hér segir „Tólf þjóðir komast í loka- keppni i heimsmeistarakeppn- inni, og þurfa fímm þjóðir, Is- land, Japan, Brasilía, gestgjaf- arnir Þýzkaland og sigurvegar- amir i síðustu heimsmeistara- .keppnj, Svíþjóð, ekki að taka þáttj j undankeppninni, en sig- urvegarar í sjö riðlum komast svo einnig í lokakeppnina. Riðlasldpting' í undankeppninni ,er þannig : 1. riðill.'Norðurlönd: Danmörk, Noregur og Finnland. 2. riðill. V-Evrópa a): Spánn, Portúgal og Frakkland. 3. riðill. V-Evrópa b): Belgía, Hollánd og Luxemborg. 4,. riðjll. A-Evrópa: Pólland og Ték'kóslóvakía. 5. riðill. A-Evrópa: Sovétríkin og Rúmenía. 6. riðill. Mið-Evrópa a): Aust- urríki og Sviss. 7. riðill. Mið-Evrópa b) Júgó- slayía og Ungverjaland. I riðlunum verður tvöföld umferð, hvert land leikur, heima og að heiman, nema ef Framhald ft 10 siOu Gamanleikurinn „Ást og stjórnmál“ hefur nú verið sýndur 10 sinnum í Þjóðleikhúsinu. Næsta sýning verður í kvöld. Mynd- in er af Jóhanni Pálssyni í einu aðalhlutverkinu. Ásgeir Hjart- arson segir í leikgagnrýni sinni um leik hans: „Micliael er mesta lilutverk Jóhanns Pálssonar frani að þessu og það sem liann liefiir bezt túlkað“. : I íslenzkir handknattleiksmenn hafa leikið 21 landsleik Ársþing Handknattleikssam- bands Islands var haldið á laug- ardaginn var í fundarsai ÍSÍ. Lagði stjprnin fram mjög ítar- lega skýrslu frá starfinu á liðnu ári, og sagt frá henni hér á síð- unni í dag. Með skýrslunni íylgdi skrá yf- ir landsleiki þá sem handknatt- j leiksíólk íslands hefur leikið og eru þeir 21: talsins. og í þessdm leikjum hafa alls' tekið þátt 58 manns. í karlaflokknum haía fai’ið fram 10 leikir og hafa 9 þeirra farið fram erlendis en einn hér heima. Karlarnir hafa unnið aðeins einn, og gert eitt jáfntefli. Þeir haia skorað 1,36 mörk gegn 199. í leikjunum hafa tekið þátt. 3.5 leikmenn. í kvennaílokkum hafa verið. leiknir 11 leikir og allir er- lendis. Stúlku'rnar hafa unnið 3 leiki, gert eitt jafntefli og' tap- að sjö. Þær haía skorað 54 mörk og fengið 97, tvær stúlkur hafa leikið alla leikina, en það eru Rut Guðmundsdóttip og Sig- ríður Lúthersdóttir. Á þinginu urðu nokkrar um- ræður um þingmál, og þó sér- stakiega um breytingar á reglu- gerð um handknattleiksmót, og reglugerð um handknattleiks- dómara. Qli stjórnin var endurkjörin, ,en hana skipa; Ásbjörn Sigur- jónsson fojimaður, Axel Einars- son, Axef Sigurðsson, Valgeir Ársælsson og Guðmundur H. Garðarsson- Félag stóreignaskatts- gjaldenda boðar til fundar með öllum gjaldendiun hins svonefnda, stóreignaskatts í samkonmhúsinu LIDO í kvöld mið- vikudaginn 12. þ.m. JkJ. 9 síðdegis. Til umræðu verður afnám laga nr. 44/1957 um skatt á stóreignir. Fulltrúum þeirra félagasamtaka, sem beittu sér gegn lögunum, og lögfræðingum þeirra,. er boðið að mæta á. fundinum. Stuttar framsöguræður flytja: formaður félagsins Pá IT Magnússon., Gústaf A. Sveinsson, hasstarréttarlögmað- ur, og Jóhann Þ. Jósefsson, fyrrv. ráðherra. Féla gsst jó r nitÍL Sendisveimi Sendisveinn óskast eítir hádegið. Olíufélagið h.f. —• Norðurlandssíld 3 o ►"S o Norðurlandssíld Norðurlandssíld p 3 CL w p- 2 o ►-s Ok 3 3 ÉL Ui Ui 2 o *-s 0>r 3 P 3 O- Saltsíld og kryddsíld er til sölu á hagstæðu verði í áttungum og fjórðungum. Bæði heilar síldar og síldarflök. Kréstján Ó. Skagfjörð h.f. Sími 2 41 20. o. 3 TS- T3 3 cV O o T3 3 3- *o- í-l o- Norðurlandssíld Norðúrlandssíld Norðurlandssíld

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.