Þjóðviljinn - 15.12.1960, Blaðsíða 4
"?) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 15. desember 1960
ÆSKU Lf0 S S Í Ð A N
Riitnefnd: Arnór Hannibalss.,
Grétar Oddsson,
Elnar, Syerrisson,
Iversveona erum vi
reiaomu
i?
I>(‘ssi i'rábæra myn,d, er ættuð úr Vestmannaeyjum og þó að hún þarfnist ekki skýringa,
þykir oklviir liún táknræn í betra lagi. Ólafur er íhaldsmaður og heldur í Snæiellsnesið, en
þeir hinir eru undanhaldsmenn og halda undir landið. Furðu Jiykir okkur samt Bjarni uþp-
litsdjarfur, en lianu er ef til vill að huga að sprengjuþotum.
Víma Verölauna - Bjarna
Ég get ekki orða bundizt.
t>að eru myrtir unglingar, nán-
ast börn, í Alsír og það er
eins og það sé gert í heiðurs-
skyni við de Gaulle. Lögregla
og herlið, sem sagt er að eigi
að ganga á milli hinna stríð-
andi íylkinga. miða byssum
sínum að Serkjum og slátra
þeim eins og búfénaði. Ekki er
þess getið. að friðflytjendur
þessir, hal'i sálgað einum fas-
ista og voru þeir þó búnir að
æða öskrandi um stræti í tvo
daga áður en Serkir hófu mót-
mælaaðgerðir.
Hvaða erindi á þetta inn á
æskulýðssíðu? spyrja menn ef
til vill. Ég sé ekki betur, en
að það skipti okkur æsku-
menn og konur talsvert miklu
máli, að Nato-lögregla slátrar
unglingum á götum úti um há-
bjartan dag.
Því fremur skiptir það okk-
ur íslendinga nokkru. sem við
ölum nú og höfum gert s.í. 11
ár, þann snák við brjóst okk-
ar. sem mundar eitraðar högg-
tennur að Serkjum og Kúbu-
mönnum. Ég á við Nato-glæpa-
íélagið.
Hvenær gengum við í það
Natovinafélag, sem fyrirgefur
barnamorð? Frakkar hafa s.l.
4—5 ár, rekið útrýmingarstríð
á hendur Serkjum í Alsír. Til
þessarar iðju nota þeir Nato-
herstyrk sinn, sem við Islend-
ingar berum ábyrgð á. Við rek-
um dýrt og fyrirferðarmikið
Nato-sendiráð og kratar, íhald
og framsókn sk.ríða saman í
*IL ALSÍR — ÁFRAM GAKK.
Natovinaíélag, undir nafninu
..Vinir vestrænnar samvinnu'b
Nazistar ráku líka útrýming-
arstrið — á hendur Gyðingum
og munaði víst mjóu að sú her-
ferð bæri árangur. Þeim tókst
að myrða fleiri miiljónir og
gerðu engan greinarmun á
börnurn, konum. íuilfrískum
karimönnum og gamalmennum,
frekar en franskir fasistar hafa
gert í Aisír. Þessar aðgerðir
nazistanna. fordæmum við í
dag og eigum varia nógu sterk
orð til að lýsa viðbjóði okkar.
Nú, en hver er svo munurinn
á þessum glæpaverkum naz-
istanna og hryðjuverkum fas-
ista í Alsír? Hann er sá, að nú
eru það dómarar nazistanna,
sem glæpina fremja.
Það sem var glæpur í gær.
er í dag orðin hin þarfasta
ið.ia, sem íslendingar eru þátt-
takendur í og sumir okkar hafa
meira að segja stofnað félag
til íramgangs málstaðnum.
De Gaulle, þessi Lúðvík 16.
Frakka á 20. öld. veit ekki i
hvora löppina hann á að stíga,
stendur stuggur af fasistunum.
en þorir ekki að ganga á milli
bols og höfuðs á þeim. Ætlar
sér að láta fara fram skrípa-
þjóðaratkvæðagreiðslu undir
eftiriiti pyntingavísra fallhlífa-
hermanna. atkvæðagreiðslu, sem
Snginn rétt hugsandi maður
tæki mark á.
Franski fasistaskríllinn er að
fylla mæli glæpa sinna í Al-
sir.
Barátta Serjjija fyrir sjálf-
stæði, getur ekki endað nema
á einn veg. G.O.
lýðsfylkingarinnar, Sambands
ungra sósíalista, sendir Fyik-
ingaríélögum og öðrum sósíal-
istum um land allt beztu jóla-
og nýárskveðjur. Megi starf
Æskulýðsfylkingarinnar hvar-
Ný sendiug af
Hollenzkum
BERNHARÐ
Tvær skeleggustu málpipur
Breta hér á iandi. hafa nú um
skeið þeytzt landshornanna á
milli, i þeim erindagjörðum
sem NATO hefur fengið þeim
í hendur, þ.e.a.s. þvinga upp
á íslendinga hinum brezku
kröfum um lausn landhelgis-
deilunnar. Hafa þeir að mestu
útlistað undanhaldsspeki sína
fyrir auðum bekkjum, en þeir
fáu sem a mál þeirra hlýddu,
hafa tekið næsta íáiega undir
málflutning þeirra. og á það
jafnt við um flokksmenn þeirra
sem aðra. Kennisetningar
þessarra Bretapostula, hafa
andi ári og verða sterkur þátt-
ur í baráttu hinnar róttæku
alþýðuhreyfingar fyrir hags-
munum sínum og gegn aítur-
haidi og lífskjaraskerðingu.
Framkvæmdanefnd ÆF.
kápum
LAXDAt
venjulega verið kryddaðar mý-
mörgum dæmisögum úr dagiega
lífinu, og engu skeytt, þótt
samlikingarnár séu vægast
sagt, hæpnar. Þannig hefur
annar þeirra, Bjarni Ben., tal-
ið landhelgisbrask sitt svipað-
ast gjörðum húseiganda. sem
leigir hiuta húss síns öðrum.
En B.B. er ekki sá húseigandi
sem hann heldur sig vera,
heldur er það þjótJin, og hún
hcfur aldrei veitt manni þess-
um umboð sitt til þeirrar
,,leigu“ sem hann og já-bræður
hans fýsir mest til að kornist
í íramkvæmd. Þvert á móti
var stóra- og litla íhaldið kosið
meðan þau töluðu sem digur-
barkaiegast um hæfni sína til
verndar fiskimiðunum gegn á-
gangi brezkra. Ætti hann þvi
næst er hann hefur uppi dæmi-
sögur. að skjóta inn þeim við-
auka, að húseigandatitill sögu-
hetjunnar í ævintýrinu, sé í-
myndun, sem minni á stór-
mcnnskubrjálæði. Þó fyrst, tek-
ur að hrikta í dæminu að
marki, þegar tekið er með í
reikninginn, að fyrirfram er
vitað, að natni brezkra togara
við skröpun landgrunnsins,
muni eyðileggja gotstöðvar
fisksins hér við land. Er þá
hinn ruglaði „húseigandi", B.B.
farinn að leigja inn í annarra
liýbýli, menn, sem fyrirfram er
vitað að muni brjóta þar allt
og 'bramla af hjartans list, svo
vart megi standa steinn yíir
steini. Svo ekki sé hallað um
of á írásagnarkúnst B.B. verður
að geta þess, að sennilega mun
„húseigandinn" græða talsvert
á hugmynd sinni, — ef hinn
rétti eigandi lætur sér lynda
meðferðina.
Sá ráðherra annar, sem nú
er hvað ákafast att í pontu,
er Guðm. í. Guðmundsson. Um
hann þarf víst fátt að ræða.
Þetta er tækifærasinnaður
hægri-krati. nokkurskonar Ros-
marie Nitribit íslenzkra stjórn-
mála, sem hefur samrekkt
flestum íjárai'laplönum sem
hann hefur komizt í tæri við,
og munu landhelgissvikin vera
þeirra álitlegust. Almenningur
sýndi ljóslega hug sipn til
þeirra bisnessgerða þanri 1. des.
svo sem kunnugt er aiþjóð.
Sýnir bezt. hve raðherraklúbb-
urinn er forhertur, að þeir
óskapast þegar mótmælt er
lándráðúm þeirra, og finnst
sjájísagt, að hroði ílóttaiílósói'-
íu þeirra sé dreginn í sali Hó-
skólans. Hefur þó- 1. des. þótt
hafa fátt sammerkt við undan-
haldskónga þingsins í dag.
Við vitum mætavel, að þótt
þingmenn stjórnarflokkanna
séu ekki allir oi hrifnir af
háttalagi sérhagsmunakiíkn-
anna sem teyma þá í Hruna-
dansinn með sér, er hætt við að
fæstir þeirra, ef nokkrir, megni
að rísa upp aí sviði þess attaní-
ossisma sem geisar í stjórnar-
liðinu eins og eyðandi eldur.
Ef stjórnin þorir að láta skýja-
borgir sínar holdgast og af-
ræður samninga við Breta,
þora þingmenn þeirra hvorki
að æmta né skræmta. Það eina
sem getur komið B,B. & Co. í
réttan skilning um eignarrétt-
inn á landhelginni, er fólkið
sem ó hana.
Ers.
Vegna þrengsla í blaðinu,
síðustu dagana fyrir jól, birt-
ist næsta æskulýðssíða fimmtu-
daginn 29. cles. n.k.
Ritnefnd.
• • í • • • • • •
• Ritnefnd Æskulýðssíðunnar •
• sendir öllum lesendum •
• Þjóðviljans hugheilar jóla- •
5 og nýjárskveðjur. •
Kjörgarði — Sími 1-44-22,
Frá stjérn Æskulýðsfylkingarinnar
Framkvæmdanefnd Æsku- ‘ vetna á íslandi eflast á kom-
Frá
stúdentagörðunum
Ákveðið hefur verið að leigja stúdentagarðana út
til hótelreksturs á sumri komanda á svipaðan hátt og
undanfarin ár. — Tilboð sendist unidirrituðum fyrir
15. jan.. 1961.
Stjóm stúdentagarðanna.