Þjóðviljinn - 19.03.1961, Page 3
Sunnudagur 19. marz 1961
Þ J ÓÐ VILJINN
(3
deildir háskólans
í nýjum og
hœttum
húsakosti
Háskólinn er fyrir all löngu
orðinn of lítill og hefur t.d.
ekki verið hægt að skapa
raunvísindadeildunum þau
skilyrði sem æskilegt hefði
verið og sjálfsagt. mun þykja.
Til að bæta nokkuð úr var
byrjað á að byggia hæð ofan
á austurálmu íþróttahúss há-
skólans árið 1958 og er þetta
húsnæði ætlað fyrir kennslu
í eðlis- og efnafræði. Hús-
næð ð sem er 130 fermetrar
Læknancmi á 1. ári að gera
tilraunir — aðstaða lækna-
nema er nú stérbætt frá
því sem áður var.
var tekið í notkun á árinu
1960 og útbúið með það fyrir
augum að verkleg kennsla
fari fram í þessum grein-
um.
Efnafræðikenns1an er aðal-
iega fyrir læknanerna, en auk
þess njóta kennslunnar tann-
læknanemar, verkíræðingar
og þeir er hafa val'ð efna-
fræði sem námsgrein til BA
prófs. Eðlisí'ræðikennslan er
fyrst og fremst fyrir verk-
fræðinema, en auk þess einn-
ig fyrir þá sem leggia stund
á eðlisfræði til BA prófs.
Kennslan í efnafræði fór
áður fram : Atvinnudeild há-
skólans en kenns’a í eðlis-
fræði í háskólanum.
Með háskólalögum var svo
fyrir mælt, að stofna skyldi
til kennslu við háskólann í
lyfjafræði og lyfsala og jafn-
framt skvldi lyfjafræð'nga-
skóli íslands hætta starfsemi
sinni, en hann tók til starfa
haustið 1940- Samfara þessari
skipulagsbreytingu var nám-
inu talsvert bre.ytt, og var þá
nauðsynlegt að skapa sér-
staka aðstöðu til ýnvssa
verklegra námskeiða fyrir
lyfjafræðistúdenta. Er það
gert með þessari nýju
kennslustofnun, sem tekin
var í notkun þegar haustið
1958, þótt ýmislegt hafi verið
unnið að henni síðan. í þess-
ari stofnun fer einnig fram
nokkur kennsla fyrir lækna-
nema í lyfjagerðarfræði.
ívar Damelsson er dcsent \ið Rannsóknar- og hennslu-
stofnun í lyfj.airæði lyfsala og tók við því starfi 1957.
llann kcnndi áðnr við Lyfjafræðin.gaskóla Islands, frá
því árið 1948. .
ívar er fertngnr að a'.dri sonur Danícls Halldórssonar, kaup-
manns. Ilann er stúdent frá Menntaskólannm ; Reykjavik.
Myndin er tekin í hinum nýju húsakynnum deildarinnar
í háskólanum.
Steingrímur Baldursson, doktor í efnafræði, er 31 árs að
aldri. Hann er stúdent frá álen.ntaskólanum í Reykjavík
og stundaði nám í Síkagó í Bandaríkjunum í 9 ár. Stein-
grímur er scnur Baldurs Steingrímssonar er starfar hjá
sakadómáraembættinií. Steingrímur hefði getað valið úr
stöðum í Bandaríkjunum, en liann kaus að koma hejm og
starfa hér. Steingrímur er hér að leiðbein.a læknanema á 1.
ári, en beir eru um 4.0 í ár sem taka próf í efnafræði, það
er fyrsta prófið á Iöngum og erfiðum námsferli.
Frank Franken
framseldur
Frank Franken, Vesturþjóð-
vcrjinn sem dómsmálastjómin
hei'ur ákveðið að framselja
vegna þjtVlnaðarákæru. verður’
sendur utan fiugleiðis á morgun.
Munu tveir íslenzkir rannsóknar-
_]ögreg]u'.xiónar fylgja honuin
utan.
Mtrgir Bretar
ieita hafnar í
Seyðisfirði
Siðan svikasamningurinn
við Breta gekk í gildi haia
margir brezkir togarar leit-
að hafnar á Seyðisíirði
með veika menn, og ti
viðgerða. Einnig haía þeir
legið ínni á firðinum í
skjóli iyrir veðri.
Brezku togararnir toga
nú við 6 mílna mörkin. en
bátar Seyðt'irðinga stunda
allir sjó fyrir sunnan.
Þetta er ljóti „ósigurinn"
fjmir Breta: aukin fiski-
mið og fyrirgreiðsla í land;
eftir þörfum.
Brezkur togeri
til Norðfjíirðar
Neskaupsiaður 18/3 — Hing-
að kom í gær þr:ðji enski tog-
crinn frá því að þeir fengu
sakaruppgjöf vegna landhelgis-
brota.
Hann hafði stutta viðdvöl
en skildi eftir slasaðan mann
sem lagður var á sjúkrahúsið.
Hafði maðurinn hlotið slæmt
höfuðhögg og var rænulaus
þegar hann kom.
Togarirn heitir Benella frá
I-Iull og er 800 lesta dís’ltogari,
2 ára gamall.
I morgun kom m.b. Ha.falda
af veiðum með 20 lestir af
þorski, sem veiddist í net á
Hornafjarðarveiðisvæðinu og
m.b. Reynir hefur lagt hér
upp 15 lestir af fiski úr tveim-
ur veiöiferðnm, en hann hef-
ur net’.n norður við Langanes.
Fréttaritari.
Björn Jóhannsson lögregluþj.
i Keílavík, hefur beð.ð Þjóð-
viljann að birta oftirfarandi at-
hugasemd við yfirlýsingu fra
Jens B. Þórðarsyni lögreglu-
varðstjóra.
Herra ritstjóri.
Vegna yfirlýsingar er hr-
Jens Benjamín Þórðarson lög-
regluvarðstjóri í Keflavík, birti
í blaði yðar nú fvrir skömmu,
bið ég yður að birta eftirfar-
andi athugasemd.
í yfirlýsingu hr. varðstjórans,
er að minnsta kosti hvað mig
varðar, hallað réttu máli það
mikið, sýnilega í því augna-
miði að draga sannleikann í
skugga ósannra fullyrðinga, að
ekki er hægt að láta kyrrt
liggja.
Umrætt kvöld kom ég ð
vörð' kl. 20 00 og frá þeirn
tíma til kl. 3.00 um nóttina,
bað hr. varðstjórinn niig aðéins
einu sinni að koma með sér í
40 mínútna eftirlit. Var þvi
lokið kl. 21 20. í því eftirliti
var aðeins ein bifreið, sem er í
eigu varnárliðsmanns, skoðuð,
og þá bifreið skoðuðum við að
sjálfsögðu báðir sameiginlega.
í þcssu eftirliti bað hr. varð-
stjórinn mig að ná fvrir sig
í hr. Sva,var G. Tjörfason, eig-
anda Voivobifreiðarinnar Ö-385,
en seinna varð ljóst að sú
bifreið hafði valdið umrreddu
dauðaslysi. Fór ég og gerði boð
fyrir hann og kom hann eins
og frá er greint með mér út
í bifreiö hr. varðstjórans, þar
sem hann lagði nokkrar spurn-
ingar fyrir hann varðandi ferð-
ir hans þá um kvöldið, og lét
þar v'ð sitja. Eftir að hr. Svav-
ar G Tjörvason fór úr bifreið
hr- varðstjórans, ók hann af
stað án frekari aðgerða.
Sannleikurinn er í yfirlýs-
ingu hr. varðstjórans, msð-
höndlaður af meiriháttar gá-
leysi, þar sem að segir orðrétt:
„Eg hafði enga ástæðu til
að ætla annað en lögreglumað-
urinn hefði skoðað þennan bíl
eins og aðra, sem hann skoðaði
'einn þetta kvöld“.
Hr. varðstjórinn hefði átt að
vita það mæta vel, að ég fór
beint inn í húsið að gera boð
fyrT bíleigandann, cins og
hann bauð mér að gera, og
hafi hann ekki séð þar sem
hann sat undir stýri bifreiðar
sinnar að ég fór a’drei að bif-
reið'nni Ö-385,- þá er athyglis-
gáfu hans meira en lítið á-
bótavant.
Þá skal ennfremur frarn tek-
ið að ég var viðstaddur þegar
hr. yfirlögregiuþiónn spurði hr.
varðstjórann Jens Benjamín
Þórðarson hvort liann hefði
skoðað bifreiðma Ö-385. Hr.
varðstjórinn svaraði því til að
hann heí'ði athugað bæði
mann og bíl, og þyrfti ekki að
athuga það frekar- Enguni
spurningum var beint til mín
um þetta atriði og taldi ég af
svörum hr. varðstjórans full-
víst að hann hefði farið seinna
og skoðað bílinn. Gerði ég að
sjálfsögu enga athugasemd við
svör hr,- varðstiórans, af fram-
angreindum orsökum, enda ó-
v'ðeigandi að ég stjórni verk-
um minna yfirmanna eða
skipti mér af þeim.
Varðandi yfirlýsingu hr.
Svavars G. Tjörfasonar skal
það fram tekið, að það er með
öllu rangt að ég hafi rætt við
hann einslega um bifreið hans,
né annað og minntist hann
aldrei á framrúðu bifreiðar
sinnar í nvnni áheyrn. Maður
þessi, sem er uppvís að yfir-
hylmingu á glæpsamlegu at-
Framhald á 10. síðu.