Þjóðviljinn - 28.04.1961, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 28. apríl 1961
Þjóðfrelsisbaráttan er höfuðverkefnið
segir Finnur Hjörleifsson i viSiali.viÖ ÆskulýSssiÖuna
Aðalfundur ÆFR var hald-
inn þriðjudaginn 18. apríl í
Tjarnargötu 20. Helzta málið.
sem lá íyrir fundinum, auk
-venjulegra aðalfundarstarfa.
var lagabreytingar. ísak Orn
Hringsson gerði grein fyrir
íillögum laganefndar. og voru
'hin nýju lög ’ ÆFR samþykkt
«inróma eins og laganefnd
gekk frá beim.
Formaður, Finnur Hjörleifs-
son, l’lutti síðan skýrslu frá-
farandi stjórnar. og kom í
Ijós, að starfsemin í vetur
hafði verið bæði öflug og fjöl-
"breytt.
Fundurinn kaus sumarstjórn
ÆFR og var Örn Erlendsson
valinn formaður. Með honum
í stjórn eru: Ólafur Einarsson,
Guðmundur Jósefsson. Einar
Örn Guðjónsson, G'sli Svan-
■bergsson, Guðni Kárason og
Sigríður Jóhannsdóttir.
Fréttamaður Æskulýðssíð-
■unnar hefur rætt við þá for-
juennina. þann fvrrverandi og
núverandi, og innt bá eftir
ýmsu varðandi starfsemi ÆFR.
Hér fer á eítir það, sem þeir
sögðu:
Við snúum okkur fyrst að
E'inni og spyrjum: «s
Hvað hefur þú setið lengi í
formannssæti. Finnur?
■— Ég tók við þann 6. maí.
i fyrra.
Hvaða verkefni hefur ÆFR
heht glímt við í þinni stjórn-
artíð? ,
•— í fyrrasumar stóðum við
iyrir mjög margþættri ferða-
starfsemi. og hefur Æskulýðs-
fylkingin aflað sér mjög mik-
>llar vjrðingar (vegna starfs
síns í þágu ferðalaga og land-
skoounar. Margt fólk utan ÆF
R tekur þátt í ferðalögum okk-
ar, sem eru rómuð fyrir bind-
indissemi og’ íjör. í fyrrasumar
fórum við í fjórar stórar ferð-
ir og einna vinsælust þeirra
varð ferð í Breiðaf jarðareyjar.
En vetrarstarfið í vetur?
— Meginverkefni Æskulýðs-
fylkingarinnar er að ala unga
fólkið upp í anda sósíalism-
ans, hvetja það til að kynna
sér sósíalistísk fræði og taka.
þátt í sósíalistísku starfi. Þettal
höfum við reynt að gera íj
vetur á svipaðan hátt og und-
Loftur Guttormsson
anfarin ár með því að skipu-
leggja fræðslustarfsemi: lés-
hring'i og erindi og svo með
kvikmyndasýníngum. Við reyn-
um einnig að sjá ungu fólki
fyrir heilbrigðu og æskilegu
tómstundastarfi, t.d. með því
að starfrækja skíðaskálann og
lelagsheimilið, með því að
skipuleggja ýmsa hópa eins og
þjóðdansaflokkinn. Þá leggj-
um við einnig mikla áherzlu á
að félagar ÆFR séu virkir
meðlimir í stéttarfélögum sín-
um, og inna þeir þar af hendi
allmikið starf.
Þú varst starfsmaður ÆFR
í vetur, Finnur. Er það ekki
erilsamt starf?
— Jú, vissulega. Vinnutím-
inn er ekki einskorðaður við
8 tíma. Starfsmaðurinn er mið-
punktur félagsstarfsins, hann
verður að hafa samband við
lélagana, fá þá til að taka að
sér verkefni, vinna féiagslega
að ýmsum málum, og' einnig
verður starísmaðurinn að taka
að sér ýms störf fyrir félag-
ana.
Ilvernig líkaði þér starfið?
— Vel. Það býður upp á
mikla tilbreytingu. Mér þykir
og gaman að umgangast ung-
linga. Hver sá sem finnst að
hann sé farinn að eldast um
of. ætti að taka að sér svona
starf til að yngjast upp.
Hvernig finnst þér æsku-
lýðurinn núna, betri eða verri
en þegar þú varst að aiast
upp?
— Það er alrangt að tala
um góða og slæma unglinga.
Þeir eru ekki til. Það eru að-
eins til góð eða slæm uppeld-
isskilyrði. Að þeim má vissu
lega ýmislegt finna. Peninga-
hyggjan færist stöðugt í auk-
ana, og skemmtanirnar. sem
unga fólkinu er boðið upp á,
miðast við það helzt að á
þeim sé hægt að græða sem
mest. Það er gróðavænlegt
að skírskota tii lægstu hvata
mannsins og efla þannig alls
kyns ómenningu í stað þess
að efla hið góða. Fylkingin hef-
ur ætíð tekið eindregna afstöðu
gegn gróðahyggjunni i öilu fé-
lags og skemmtanalífi. Þetta
hefur komið íram í ályktun-
um ÆF-þinga. Síðasta þing
samþykkti einmitt ályktun um
tómstundastarf.
Hvaða verkefni telur þú, að
séu nú helzt framundan?
— Að kenna æskulýðnum að
hafna ameríkanismanum, að-
laga sig að Jojóðlegri menningu
og skapa hana. Það er almennt
viðurkennt, og jafnvel ýmsir
borg'aralega hugsandi menn
fallast á það, að við lifum nú
á síðasta hrörnunarskeiði hins
kapitalistíska þjóðfélags. í
síðustu ðauðateygjum íhaldsins
verðurn við inniimuð í blökk
auðvaldsríkjanna æ frekar en
orðið er. Ég tel það mikil-
vægt. að koma æskunni í skiln-
ing um þessa staðreynd. hvetja
hana til að berjast gegn þessu.
svo að við getum staðið sem
frjáls og óspillt þjóð upp úr
rústum kapitalismans.
Annað höfuðvei-kefni er að
sporna gegn því, að íhaldið
rugii með áróðri sinum dóm-
greind og stéttarvitund æskunn-
ar. samanber kjörorð ihaldsins
,,stétt með stétt". Við verðum
að sýna æskunni. og ekki sízt
verkalýðsæskunni fram á stöðu
hennar innan stéttaþjóðfélags-
ins, sem við lifurn í.
Önnur verkefni miða að ár-
angri i þessum efnum. Höfuð-
verkefnið undanfarið hefur
Ritnefud:
Arnór Hannibalsson
Einar Sverrisson
einmitt verið i sambandi við
hina nýju þjóðfrelsisbaráttu. og
höfum við styrkt Samtök þer-
námsandstæðlnga eftir mætti
við undirskriftasöfnun gegn
hernáminu og við undirbúning
Keflavíkurgöngunnar.
Ég vil ijúka máli mínu, seg-
ir Finnur. með því að gefa
Fylkingarfélögum eitt heilræði:
Gerið ykkur það ljóst. að með
því að vinna fyrir ÆF eruð
þið ekki að vinna fyrir sjálfa
ykkur beint. heldur til þéss að
styrkia ÆF. sem forvstusveit
í öllum framfara- og hags-
munamálum íslenzks æskulýðs
í heiid.
Við kunnum Finni þakkir
fyrir þessi greinargóðu svör
hans og látum í ljós einróma
álit allra ÆFR-félaga er við
þökkum honum og fyrir allt
það mikla og óeigingjarna starf
sem hann hefur unnið í þágu
félagsins undanfarið ár og ósk-
um honum allra heilla í fram-
tiðinni.
„Snmarstarfið þrétfmikið"8
Við snúum okkur þá að hin-
um nýkjörna formanni. Erní
Erlendssyni og spyrjum hann
um hvaða verkefni stjórn hans
hyggst setja efst á blað í fé-
iagsstarfinu í sumar. Örn þarf
ekki að kynna fyrir ÆFR-fé-
lögum, hann var formaður frá
því vorið 1959 til vors 1960 og
auk þess starísmaður ÆFR í
eitt og hálft ár.
— Mér finnst það mjög
ánægjulegt að fá að eyða
kröftum minum í þágu' ÆFR.
segir Örn, og ég vona að starf-
ið í sumar verði ekki þrótt-
minna en það var í vetur. Eins
óg hann Finnur var að segja,
þá eru verkefnin, sem hæst ber
núna, undirbúningur að Kefla-
víkurgöngu og framkvæmd
undirskriftasöfnunarinnar gegn
Framhald á 10. síðu.
Orn Erlendsson
llllllllllEíMllllllllllllIlllllllllllMllllllliilllllIlliliilllllllllllimi9IiilIIIIIIi:illimilIliIIIIIIIIIIIIIII!9lli!IIIMIIIIIIIIIIIilllEIIIIIII
ÍTeykvísk húsmóðir heíur orðið í dag — mánaðar-
reiknlngar Raíveitunnar dularfullir — er heim-
ilj. hennar hlunnfarið — spyr sá sem ekki veit —
Rafveitan gefur skýringar um nýtt fyrirkomulag
— fyrirspurn frá húsmóður í Teigunum — er
heita vatnið" óhætt til matseldar — skrifstofa
Borgarlæknis svarar þessari fyrirspurn
Við birtum hér bréf frá
reykviskri húemóður í dag:
„Mikið þykir mér einkenni-
legt þetta nýja fyrirkomu-
sástr
lag Rafveitunnar á inn-
heimtu og mælaaflestri, sem
ríkt hefur nú um skeið hjá
þessari stofnun.
Tortryggni mín er orðin
mikil og ég hef það á til-
finningunni, að heimili mitt
sé hlunnfarið í viðskiptum
mínum við þessa herra.
Ég hef gert lítilsháttar
samanburð á mánaðarreikn-
' ingum þessa nýja fyrir-
komulags og hinna með
gamla fyrirkomulaginu og
komist að þeirri niðurstöðu,
að þeir eru stundum eitt
hundrað og tvö hundruð
krónum hærri en heimili
mínu ber að greiða.
Útgjöldin eru nóg nú til
dags, þó að svona lúmsku-
iegar hækkanir komi ekki
tii viðbótar öðrum heimilis-
útgjöldum hins daglega lífs.
Varðar ekki svona fram-
koma við lög og rétt?
Fátæk kona spyr jarðnesk
máttarvöld“.
Við hringdum í einn af for-
stöðumönnum Rafveitunnar
og leituðum okkur upplýs-
inga um þetta nýja fyrir-
komulag og eru þær í stuttu
máli þessar:
Áður fyrr var lesið af og
innheimt mánaðarlega og
hefur þetta form ríkt um
fjörutíu ára skeið. Það var
ltinsvegar orðið viðamikið
og þunglamalegt og krafðist
óeðlilega margra innheimtu
manna eftir þvi sem bærinn
stækkaði og er nýja fyrir-
komulagið tilraun til þess
að bæta úr þeim ágöllum.
Nú fer aflesturinn fram
ársfjórðungslega og eru 2
mánuðir áætlaðir af þremur
og er þriðji mánaðarreikn-
ingurinn ógreiddar eftir-
eftirstöðvar ársf jórðungs-
ins.
Því miður hefur stundum
sprottið upp misskilningur
hjá fóllri, þegar það fær í
hendur hina áætluðu mán-
aðarreikninga, sem þó er
reynt að miða við rafmagns-
neyzlu samsvarandi tímabils
á síðasta ári.
1 fyrra reyndist aðeins
1,66% notenda, sem áætlað
hafði verið of hátt hjá og
er það ekki há prcsentutala.
Við spörum hinsvegar kr.
800.0C0.00 í mannahaldi og
vélavinnu á þsssu nýja fyr-
irkomulagi og ætti það að
hafa áhrif á rafmagns-
verðið.
Það væri hinsvegar ákjós-
anleg þróun, að sem flestir
tækju upp ársfjórðungs-
greiðslu og kæmu sjálfir
niður á skrifstofu cg borg-
uðu þar.
Þá er hér fyrirspurn frá
húsmóður í Teigunum:
„Hún spyr hvort gagnrýni
hafi komið fram um notkun
heita vatnsins til matseld-
ar ?“
Okkur er ekki kunnugt um
slíka gagnrýni, en sam-
kvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Borgarlæknis eru
tekin bakteríusýnishorn öðru
hvoru og leiða þau ekkert
misjafnt í Ijós enda mun
notkun heita vatnsins vera
algeng hér í bænum.
Hinsvegar eru slíkar ábend-
ingar teknar hér með þökk-
um.