Þjóðviljinn - 05.07.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudngur 5. júlí 1961 — ÞJÓÐVILJINN
(5
Brezkt herllð streymir en
Kuwait 4/7 — Brezkir her-
menn héldu áfram að
streyma til Kuwait í dag
meö flugvélum frá Kenya.
Brezka herliðið í Kuwait er
nú orðið nær 10.000 manns.
Bandarískar orustuþotur og
fimm bandarísk herskip eru
á leið til Kuwait, og virð-
ast brezk og bandarísk
stjómarvöld ákveðin í að
verja hagsmuni olíuhring-
anna, sem nýta auðlindir
furstadæmisins.
Bandaríkjastjórn hefur opin-
berlega tilkynnt í Washington
að orustuþotum, sem áttu að
fara í heimsókn til Suður-
Fransklr
áfram mátmælum sinum
Afríku, hafi verið snúið til irmaður hers Kuwaits er sagð-
Kuwait, og er sagt að þær eigi ur yfirhershöfðingi yfir öllum
að vernda banciaríska borgara þessum aðgerðum, en brezki
í Kuwait. Moskvuýtvarpið flugliðsforinginn Charles
skýrir frá því að fimm banda- Elworthy er talinn vera sá er
r.'sk herskip hafi í gær eiglt öll hernaðarleg ráð hefur í
inn í landhelgi Kuwaits. hendi sinni. Brezki herinn hef-
Allur norðurhluti Kuwaits er ur tekið sér stöðu um átta km
nú yfirlýst hemaðarsvæði, og frá lar.damærum íraks.
er engum nema hermönnum
leyft að koma þangað. Allir ó- -iívað gerir Arababandaiagið ?
breyttir borgarar hafa verið Formaður Arababandalags-
sendir burt af stóru svæði. Um ins, Abdel Khalio Hassouna,
1000 manna herlið frá Saudi- fór í morgun frá Bagdad til
Arabíu er einnig komið á þess- Kuwait. í Bagdad ræadi hann
ar slóðir. Reistar hafa verið við ríkisstjórn íraks um deil-
nýjar aðalstöðvar fyrir allan una við Kuwait. Við brottför-
þennan herafla á hinu nýja ina sagði hann við blaðamenn,
olíulindasvæði Raudhatain. Yf- að hann væri bjartsýnn á frið-
------------------------------ samlega lausn deilunnar.
Stjórn Iraks hefði lagt áherzlu
á það að hún hefði ekkert ó-
friðsamlegt í huga þott hún
teldi' Kuwait hluta af Irak.
Kort af Alsír og Saliara. Skástrikuðu svæðin eru þau ssm
Frakkar ætla sjálfum sér samkvæmt áætlun frönsltu stjórn.ar-
innar um skiptingu landsins.
PAIUS 3/7 — Franskir bænd-
ur halda áfram mótmælaað-
gerðum sínum, enda þótt leið-
togar samtaka þeirra hafi fyr-
irskipað vopnahlé í viðureign-
inni við ríkisstjórnina út af
stefnu hennar í landbúnaðar-
málum.
Bændur lokuðu mörgum aðal-
Ráðsiefna NBD í
Kaupmannzhöfn
Síðasta ráðstefna Norræns
byggingadags (N.B.D.) var hald-
in í Osló 1958. Verkefni þeirrar
ráðstefnu var heildarskipulag
byggingarframkvæmda og bygg-
ing smáíbúðahúsa á Norður-
löndum.
Næsta ráðstefna samtakanna
hefst í Kaupmannahöfn 18. sept.
í ár. Verkefni þeirrar ráðstefnu
verður ,,Byggeriets industrialis-
ering“, og mun pró.fessor dr.
techn. B. J. Ramböll halda fyr-
irlestur um það efni, en prófess-
or Sune Lindström, arkitekt,
mun halda fyrirlestur um
„Arkitektur og industrialiser-
ing“. Þetta verkefni ráðstefn-
unnar verður tekið til umræðu
á fundum með þátttöku allra
Norðurlandanna. Er verkefninu
skipt niður í 7 þætti og er
mönnum frjáls þátttaka í þeim.
Seinni hluti daganna verður not-
aður til kynningar á ýmsum
byggingarframkvæmdum, og þá
aðallega byggingum, sem að
einhverju eða öllu leyti eru unn-
ar í verksmiðjum.
Ýmislegt verður og til skemmt-
unar fyrir þátttakendur mótsins,
svo sem í Konunglega leikhús-
inu, ráðhúsum borgarinnar og
kvöldsamkomum með hinum
ýmsu fagfélögum.
Gert er ráð fyrir að á mótinu
verði um 1800 manns, er skipt-
ast á Norðurlöndin öll, og tak-
markaður fjöldi frá hverju
þeirra. Vegna gistingar og hóp-
ferðalaga eftir mótið, er þeim
sem áhuga hafa, ráðlagt að
kynna sér möguleika til þátt-
töku hið fyrsta og eigi seinna
en 1Ö. júlí n.k.
Allar upplýsingar várðandi
þátttöku í ráðstefnunni má fá
hjá Byggingarþjónustu Arki-
tektaíélags íslands og Gunnlaugi
Pálssyni, arkitekt.
vegum í Suður-Frakklandi um
helgina með dráttarvélum sín-
um og tálmaði það mjög um-
ferð til Miðjarðarhafsstrandar-
innar sem er óvenju mikil á
þessum tíma árs. Víða kom til
átaka milli lögreglu og bænda.
í Caen í Norður-Frakklandi
tepptist umferð á mánudags-
morguninn um miðbik borgar-
innar af meira en 600- dráttar-
vélum sem bændur höfðu ekið
þangað.
Bændur hafa hafnað boði
stjórnarinnar um ráðstafanir
til eflingar landbúnaðinum og
segja þær með öllu ónógar.
Nýr fundur hefur verið boð-
aður á morgun, þriðjudag, með
ríkisstjórninni og fulltrúum
bænda.
New York. 3. 1. '— Allar líkur
eru taldar á að aldrei hafi orðið
fleiri manndauðar í sambandi
við hátíðahöldin 4. júlí en nú.
Á sunnudagskvöld var vitað um
265 sem farizt höfðu bara í um-
ferðarslysum og eru þá ótaldir
þeir sem fórust á þjóðhátíðar-
daginn sjálfan. bæði þannig og
með ýmsum öðrum hætti.
Frakkar og Serkir rœðast við
aftur en óvíst er um árangur
París 4/7 — Hér er þaö haft eftir góöum heimildum aö
fulltrúar Serkja og Frakka muni innan skamms koma
aftur saman til viöræöna í bænum Evian.
Síðan franska stjórnin sleit
viðræðunum fyrir júmum hálf-
um mánuði hafa veiið taldai-
heldur litlar líkur á því að
þær yrðu teknar upp aftur
fyrst um sinn. En nú he,fur
franska fréttastofan AFP það
eftir góðum heimildum að
Handsprengju
varpað á tosrg
Constantine 3/7 — Alsírskur
uppreisnarmaður varpaði í gær-
kvöld handsprengju á torg eitt
í þorpinu Qued Zenati fyrir
vestan Constantine í Alsír.
Fjöldi manns var á torginu og
32 Serkir og tveir franskir her-
menn særðust.
stjórnir Serkja og Fiakka hafi
haft samband sín á milli á laun
og megi ætla að formlegar við-
ræður hefjist aftur áður en
lamgt líðui’.
Menn hafa verið vantiúaðir
á iið viðræður gætu fljótlega
hafizt aftur einkum vegna
margítrekaðra yfirlýsinga De
Giiulle forseta og undirmanna
hans, að ef Sei-kir afsöluðu sér
ekki yfirráðum yfir Sahara,
væri eina lausn deilunniir sú,
að skipta Alsír milli þeii-ra og
Frakka. Franska stjói'nin hef-
ur gergið svo langt að hún
hefui' látið birta koi't af Alsír
frjósömustu cg auðugustu hér-
uð Alsír ásamt stórboi-gunum
Oran og Algeirsborg, auk
svæðis meðfram olíuleiðslunni
frá Sahara til Miðjai-ðarhafs.
Ólga í Alsír.
Serkneska stjómin hefui’
hvatt landa sína til mótmæla
í dag gegm fyriiætlunum
Frakka um skiptingu landsins
og er mikill viðbúnaður í Alsir
af hálfu franska hersins og
lögreglunnai'.
Inénesar kaupa i
sovézkcr þotur
Djakarta 3. 7. —- Nú um helg-
inga fengu Indónesar tvær or-
(eins og það sem fylgir þess-1 ustuþotur, smíðaðar í Sovétríkj-
ari
Dreifibré
biskups
1 Stokkliólmi 4/7 — Hæsti-
réttur Svíþjóöar hefur fall-
izt á beiöni frá Helander,
fyrrverandi biskupi, uin aö
mál hans veröi tekiö upp
aö nýju. Helander-málið var
frægt á sínum tíma. Dóm-
stóllinn dæmdi Helander þá
frá embætti biskups í
Strángnás. Máliö kemur nú
fyrir áfi’ýjunardómstól í
Stokkhólmi, en þaö er
næsta dómstig fyrir neöan
Hæstarétt SvíþjóÖar.
í réttarhöldunum yfir Heland-
er fyrir nokkrum árum var
hann sekur fundinn af öllum
dómstólum, sem um mál hans
fjölluðu, um að vera höfundur
að nafnlausum bréfum, sem
dreift var í því skyni að hnekkja
fi étt) þar sem sýnt er; unum, af gerðinni TU-16 Badg-
hvernig hún hugsar sér skipt- er- Þoturnar geta flogið í einu
ingu landsins. í hlut Fi akka j7000 km vegalengd, með 760
eiga samkvæmt því að falla öll ,km kra^a a klsk og burðarþol
þeirra er 3 200 kg. Indónesískir
flugmenn sem hafa lært í Sovét-
ríkjunum, flugu vélunum heim.
Áreiðanlegar fregnir herma
að þeir hafi líka fengið þrjár
flutningaflugvélar af líkri gerö
og Hercules flugvélarnar banda-
rísku. Einnig er sagt að nokkrir
sovézkir tæknifræðingar hafi
komið með flugvélunum og að
Indónesar ætli ennfremur að
kaupa nokkrar YAK-42 þotur
frá Sovétríkjunum.
Helanders
upp að nýju
á keppinaut
biskupsstólinn
Helanders um
í Strangnás.
Helander var einnig talinn bera
ábyrgð á dreifingu bréfanna.
Sjálfur hefur hann ætíð neitað
sekt sinni, og lagt mikið starf
í að afla nýrra sönnunargagna
til að sanna sakleysi sitt. Dóm-
urinn yfir honum var byggður
á sterkum líkum, en óyggjandi
sannanir fyrir sekt hans voru
ekki fyrir hendi.
Það var haustið 1953 að
Helander var ákærður fyrir
dreifibréfsmálið, og undirréttur
1 Uppsölum dæmdi hinn 22.
desember Helander fyrir að
hafa skrifað dreifibréfin og póst-
lagt þau. Áfrýjunardómstóll
staðfesti dóm undirréttarins í
apríl 1954, og í nóvember sama
ár neitaði Hæstiréttur Svíþjóðar
að táka til greina áfrýjunar-
beiðni.
Mánuði síðar neitaði ríkis-
stjórnin einnig beiðni um náðun,
sem var undirrituð af 24 prest-
um í Strángnás-biskupsdæmi.
í apríl 1957 lagði lögfræðingur
Helanders enn fram beiðni til
Hæstaréttar um að málið yrði
tekið fyrir að nýju. í júní 1959
ákvað Hæstiréttur að málsskjöl
skyldu send ríkissaksóknaranum
til umsagnar. í lok janúarmán-
aðar s.l. neitaði Hæstiréttur til-
mælum ríkissaksóknarans um að
viss prestur yrði kvaddur til að
bera vitni í málinu, en 11. marz
tilkynnti ríkissaksóknarinn að
hann sæi ekki ástæðu til að
málið yrði tekið upp.
Ákvörðun Hæstaréttar nú var
tekin með fjórum atkvæðum
gegn þrem. í greinargerð segir
að rétt þyki að fallast á upp-
töku málsins, þar sem miklu af
nýjum sönnunargögnum hafi
verið safnað, sem rétt sé að
lcanna.
Utanríkisráð<
Ankara 3. 7. — Utanríkisráð-
herra Tyrklands, Selim Sarper
baðst lausnar í dag.
Utanríkisráðherrann lagði
lausnarbeiðni sína fyrir forsæt-
isráðherrann, Gursel hershöfð-
ingja, í gærkvöld þegar risið
hafði upp þeirra á milli deila
um skipan í mörg embætti ut-
anríkisþjónustunnar.
Hinn 60 ára gamli Selim Sarp-
er hefur starfað lengi í utanrík-
isþjónustu Tyrkja og var skip-
aður utanríkisráðherra eftir her-
foringjauppreisn Gursels i mal
í fyrra.