Þjóðviljinn - 16.08.1961, Blaðsíða 1
i
Út í bláinn
í kvöld
ÆFR cfnir í kvöld til ferð—
ar „út í bláinn". Lagt verður
af stað frá Tjarnargötu 20 kl.
20.00 stundvíslega. Þátttaka
tilkynnist á skrifstofu ÆFR í
síma 17513.
Lokun landamæranna
milli Austur-Berlínar og
Vestur-Berlínar hafa vak-
ið æsingail í Vestur-Þýzka-
landi og hjá forráðamönn-
um Vesturveldanna. Vestur-
veldin virðast eiga erfitt
með að ná fullri samstöðu
um mótaðgerðir. Sýnt þyk-
ir að Bretar vilji fara var-
lega í sakirnar, hvað snert-
ir viðskiptabann við Austur-
Þýzkaland og bann við
feröalögum Austur-Þjóð-
verja til vestrænna landa.
Bretar álíta að slíkar mót-
aðgerðir kunni að leiöa til
enn alvarlegri átaka.
Herstjórar vesturveldanna
priggja í Berlín lögðu í gær
fram mótmæli gegn stöðvun um-
ferðar á mótum borgarhlutanna
og töldu það freklegt brot á
samningi fjórveldanna. Búizt
var við mótmælaorðsendingu frá
stjórnum Vesturveldanna til
stjórnar Sovétríkjanna og einn-
ig svari við síðustu orðsend-
ingu stjórnar Sovétríkjanna um
Berlínarmálið.
Umferðarbanni svarað með
viðskiptabanni.
Margir aðilar i Vestur-Þýzka-
landi hvetja til að umferðar-
banninu í Berlín verði svarað
með viðskiptabanni. Austur-
Þjóðverjar segjast geta verið ón
viðskipta við Vestur-Þýzkaland,
en þeir benda einnig á að ef
Vestur-Þjóðverjar taki upp við-
skiptabann. muni þeir um leið
missa réttinn til flutninga frá
Vestur-Þýzkalandi til Vestur-
Berlínar.
Vesturveldin á báðum áttum.
Vesturveldin gera sér enn
ekki ljóst hvort lokun landa-
mæranna er gerð til að hindra
Austur-Þjóðverja í að flytja til
Vestur-Berlinar, eða hvort þetta
sé liður í úthugsaðri ráðagerð.
sem eigi að kollvarpa aðstöðu
Vesturveldanna í Berlín. Þar af
Jeiðandi séu Bretar ófúsir til
hatrammra mótaðgerða, þar
sem erfitt sé að gera sér ljóst
hvað af þeim myndi leiða.
Framh. á 11. síðu.
Sklptzt á sendinefnt
um við Sovétrikin
Sovézka verkalýðssendinefnd-
in í fundarsal Alþýðusam-
bands íslands i Alþýðuhús-
inu. Myndin var tekin í gær-
morgun. Frá vinstri: Vladimír
Púsikoff, Vassilí Bézfamiljní
og Zoja Kortsagína. (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).
Sovézka verkalýðssendinefnd-
in, sem dvalizt hefur hér á
landi undanfarinn hálfan mán-
uð í boði Alþýðusambands ís-
Kanzdísk herskip til Reykjavíkur
Þessi mynd er af kanad-
ísku freigátunni Fort Erie.
sem er ein af fjórum skip-
um í flotadeild, er kemur
liingað til Reykjavíkur í
hcimsókn á morgun. Frei-
gátan er 17 ára gömul og
var tekin í notkun í stríðs-
lok. Siðan hefur liún verið
endurgerð og er nú í sjö-
undu kanadísku flotadeild-
irini. Hin þrjú skipin, sem
liingað koma, eru einnig
úr þeirri flotadeild, allt
freigátur af svipaðri stærð
og á líkum aldri og Fort
Erie. — Sjá frétt um flota-
heimsóknina á baksiðu.
lands. lieldur heimleiðis í dag.
Samferða Rússunum utan verð-
ur þriggja manna sen.dinefnd frá
Alþýðusambandi Norðurlands.
sem heimsækir Sovétríkin í
boði verkalýðsssamtakanna þar.
Formaður sovézku sendinefnd-
arinnar er Vassilí Bézfamiljní,
sem á sæti í miðstjórn Verka-
lýðssambands Sovétríkjanna og
er einn af forystumönnum
verkalýðssamtakanna í borginni
Kaliningrad við Eys'trasalt.
Zoja Kortsagína starfsmaður
miðstjórnar sovézka verkalýðs-
sambandsins og Vladimír Púsí-
koff, fulltrúi byggingarverka-
manna í Moskvu.
Heimboð endurgoldin
Einn sovézku nefndarmann-
anna, Zoja Korsagína, hefur
komið hingað til lands áður.
Átti írúin sæti í nefndinni. sem
A.S.Í. bauð sovézka verkalýðs-
sambandinu að senda hingað til
lands árið 1956, en báðar þessar
sendinefndir, sú er kom 1956
og þessi sem nú er að hverfa
heim, hafa komið á vegum Al-
þýðusambandsins, sem hefur
viljað endurgjalda mörg heim-
boð íslenzkra verkalýðssendi-
nefnda til Sovétrikjanna á und-
anförnum árum.
Sovézka sendinefndin kom til
landsins 4. þ.m. og hefur ferð-
azt nokkuð um landið síðan,
skoðað mannvirki, rætt við for-
ystumenn verkalýðssamtaka o.
s. frv. M.a. fór sendinefndin til
Akraness, um Borgarfjörð, til
Akureyrar. Láta nefndarmenn
hið bezta af íslandsförinni, sbr.
viðtal á 3. síðu.
Hálfsmánaðar ferð
Sendinefnd Alþýðusambands
Norðurlands, sem heimsækir
Sovétríkin, er skipuð þeim
Benedikt Sigurðssynj frá Siglu-
firði, Þorgerði Þórðardóttur for-
manni Verkakvennafél. Vonar á
Húsavík og Jóni Helgasyni vara-
formanni SjómannaféJags Akur-
eyrar.
Gert er ráð fyrir að íslend-
ingarnir dveljist Um hálfsmán-
aðar skeið í Sovétríkjunum og
ferðist þar nokkuð um.
Hefndar-verShœkkanir rikisstjórnarinnar:
OLIA, SYKUR
Áhrií gengislækkunarinnar birtast nú í nýj-
um verðhækkunum, og eiga þær smátt og smátt
að stela öllum þeim kjarabótum sem verkafólk
hefur samið um.
• í dag hækkar benzínlítrinn í verði úr kr.
4.00 í kr. 4.20.
• í dag hækkar gasolía einnig í verði. Kost-
ar lítrinn nú kr. 1.55 heimkeyrður en kostaði
áður kr. 1.42. Nemur sú hækkun 13 aurum á
lítra og er mjög tilfinnanleg fyrir alla þá sem
nota olíu til upphitunar.
• Ýmsar aðrar verðhækkanir eru nú komnar
til framkvæmda; t. d. hefur sykur sumstaðar
hækkað úr kr. 6.00 í kr. 6.75 kílóið.
Keilir frá Akra-
nesi missti nóta-
bátinn, nótinni
var bjargað
Neskaupstað í gær — Sú frétt
flaug hér fyrir að Keilir frá
Akranesi heíði misst nótabát er
hann var á ferð hér skammt
undan. Keilir var á siglingu í
svarta þoku og á radar sáust
fjögur eða fimm skip í grennd.
Eitt skipanna hefur siglt á nóta-
bátinn, sumir álita brezkur tog'-
ari, en Keilismönnum tókst að
bjarga nótinni. f kvöld var svo
auglýst að nótabátur hafi sést
á hvolfi út af Glettinganesi.
I