Þjóðviljinn - 18.08.1961, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 18.08.1961, Blaðsíða 6
Meðalfelli í Kjós, biskupinn au.stur í Skálholti, dómkirkju- presturinn á Lambastöðum, en landlæknir og lyfsali í Nesi við Seltjörn“. Sumarið 1786 var lokið smíði hins nýja skólahúss á Hóla- velli og hafði kostnaður við það alls orðið 3238 rdl. 48 sk eða helmingi hærri en ætlað var. Skólinn var vígður um haustið með viðhöfn. Rektor hans var Gísli Þórðarson Thorlacius, er sat í Skildinganesi og konrekt- or Páll Jakobsson, er bjó í Hlíðarhúsum. Skólasveinar voru alls 29 og höfðu sameiginlegt mötuneyti í Melshúsum hjá dönskum skógara, Höyer að nafni. 1875 og innréttinganna, Christian Sunchenberg, „e.ssistentar11 hans og dansk-þýzkur verkstjóri (Fabriksmester). Xnnan kaup- staðarmarkanna voru ekki aðr- ir menntamenn en tukthúsráðs- maðurinn fyrrverandi: Guð- mundur stúdent Vigfússon, og Gunnar stúdent Sigurðsson, fræðari tukthúslima, því lærði skólinn á Hólavelli, sem tók til starfa þá um haustið var enn utan k.aupstaðarlóðarinnar. Og hann heldur áfram: „Reykjavík var enn ekki orð- in sú miðstöð umboðsvaldsins innlenda, sem hún átti fyrir hendi að verða. Stiftamtmaður- inn Lewetzow sat é Bessastöð- um, landfógeti og aðstoðarmað- ur hans í Viðey, lögmaðurinn S. og A. á íslandi uppi í Borg- arfirði, varalögmaðurinn á ÞIÓDVILJIMH Jtgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíallstaflokkurinn. — Ritstjórar: Líagnús KJartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — Fréttarltstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir HagnÚ8son. — Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. límí 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00, Prentsmiðja ÞJóðviljans h.f. Launþegar þurfa að kveða niður einræðisdrauginn j^jtjórnardýrtíðin <vex nú með degi hverjum. Ríkis- stjórnin lofaði hátíðlega að festa gengi krónunn- ar, skapa traust á gjaldmiðlinum, tryggja sparifé fólksins. Nú hefur hún að undirlagi erlends auðvalds og í þágu voldugra auðhringa, sem augastað hafa á íslandi til arðráns, svikið öll sín fyrirheit og lækkað gengi krónunnar, til þess að minnka kaupmátt al- þýðu, ræna fátækari fjölskyldur landsins því fé, sem þær þó þurfa til lífsnauðsynja sinna. Holskefla dýr- tíðarinnar, skipulögð af ríkisstjórninni, skellur nú yf- ir alþýðuheimilin. Dýrtíðarófreskju ríkisstjórnarinnar er hleypt á almenning með bráðabirgðalögum. Gengis- lækkunarlögin eru gefin út með einræðishætti, af því ríkisstiórnin vissi að Alþingi myndi ekki hafa sam- þykkt þau. Það er gamall einveldisdraugur, sem hér er upp vakinn, — minnir helzt á þegar dönsk kúgun- arstjórn ætlaði að höggva á hnútinn með setningu „stöðulaganna" fyrir um 90 árum. jy^jeðal alls almennings grípur um sig vaxandi reiði og hatur vegna níðngsskapar og einræðis stjórnar- valdanna. Þeir, er fylgt hafa ríkisstjórninni, eru slegn- ir undrun, er meir og meir breytist í heift, — svo kenna þeir sig svikna 'af fögrum fyrirheitum stjórn- arherranna. Og það bætir ekki úr skák, þótt tindátinn Gunnar Thor. reigi sig { Vísi og vitni vitlaust í biblí- una. Það hemja engar hótanir, það tefja engar blekk- ingar þann þunga réttlátrar reiði, sem nú grípur um sig um land allt hjá því fólki, sem er önnum kafið við að bjarga .þjóðarforðanum í hús: skapa hina miklu framleiðslu íslendinga, sem einræðis- og illræðisstjórn- inni ekki tókst að eyðileggja. JJræddir stjórnarherrar sem síðustu leifar samvizk- unnar enn bíta, hafa máski óttazt tafarlaust alls- herjarverkfall og uppþot út af einræðislögum sínum, — og halda að þeir séu sloppnir í bráð. Þannig myndu blóðheitar, suðrænar þjóðir hafa svarað þeirri einveld- isárás á lífskjör og lýðræði, sem framin var 4. ágúst. Ráðbanar lýðræðisins á íslandi, amerískt hugsandi „sérfræðingar" afturhaldsins, hafa líka máski verið hugsandi út af því að farið yrði með þá eins og suma aðra útsendara Bandaríkjaauðvaldsins í Suður-Amer- íku. En slíkt er ekki háttur þjóðar vorrar. 'l/'ér æðrumst ekki, en erum dulir, — segjum máski ekki margt, en hugsum því meira, — og látum verkin tala, þegar tíminn er kominn. Örn Arnarson skáld skildi vora þjóð, er hann orti: „í svip þeirra, seintekna bóndans, hins sagnfáa verkamanns og sjómannsins svarakalda, býr saga og framtíð vors lands. Sá þöguli fjöldi er þjóðin, þungstreym og vatnsmegn á. Þótt hátt væri jakahrönglið, 'hún hryður því út á sjá.“ j huga hvers vinnandi rnanns^ hvers einasta launþega, — allt frá síldarsjómanninum í austurálnum til skrifstofumannsins í Reykjavík, — er nú dæmið gert upp, sem ríkisstjórnin reiknaði fyrir all-a launþega 4. ágúst: ZJm leið og við undirbúum næstu uppsagnir og verkföll, er það mál málanna fyrir alla, sem œtla að lifa af vinnu handa sinna og heila, að sameinast um að hryðja jakahröngli ríkisstjórnarinnar út á sjá, — losa þjóðina við þá gerrœðisstjórn, sem œtlar sér að gerast einræðisstjórn erlends auðvalds, ef hún verður ekki hindruð í því. fi) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 18. ágúst 1961 Þessi mynd sýnir Austurvöll og byggðina, þar sem nú er miðbærinn, eins og hún var um 1800. Eina húsið, sem enn stendur uppi er dómlcirkjan, er þá var nýlega byggð, cn hcnni var breytt síðar, byggt ofan á liana, um miðja. síðustu öld. Myndin cr af teikningu eftir Jón bisk- up Helgason úr Árbókum Rcykjavíkur. Þetta er teikning eftir Jón biskup Helgason gerð eftir gamalii myrid. Þarna sést yfir Lækjar- torg eins og það ieit út séð frá Laíínuskólanum árið 1864. Eitt hús stendur enn af þeim, er þarna sjást, húsið lengst til hægri með sneiddu stöfunum. Þar er nú Samvinnusparisj. til húsa. Þetta cr Kírkjustræti eins og það leit út 1875. samkvæmt teikningu Jóns biskups Heigasonar. Lcngst til vinstri sést á hlið Dómkirkjunnar og á miðri myndinni sést annað hús, sem enn stendur, husið þár sem Rauði krossinn hefur núaðsetur sitt. •" 1 tukthúsmálum hafði það gerzt í ársbyrjun, að Guðmund- ur ráðsmaður var látinn hverfa frá starfi. Höfðu 6 tukthúslim- ir andazt úr ófeiti árið áður vegna slæmrar aðbúðar. Fanga- vörðurinn, „tuktmeistarinn“, sem kallaðui' var, danskur mað- ur, tók« þá við því embætti en hann andaðist um vorið 1786 og tók þá Gunnar Sigurðsson stúdent, er annaðist kristin- dómsfræðslu íanganna, við starfi bæði ráðsmanns og tukt- meistara. Enn segir Jón Helgason í Ár- bókunum um árið 1786: „Um haustið kom hing'að skip með timburfarm, sem ætlaður var til væntanlegrar nýrrar dómkirkju. í Rvík, alls 105 tylft- ir borðviðar. Var meginhluti 1961 viðarins „vragborð" og allt að helmingur þess skemmdur af fúa er hingað kom. Var viðn- um staflað upp rétt fyrir ofan flæðarmál, og stóð hann þar síðan, án þess að gert væri yf- ir staflann honura til skjóls, full 4 ór áður en farið var að nota úi' honum það, sem not- að varð“. 1 febrúarmánuði órið 1787 var kaupstaðarlóð Reykjavíkur fastákveðin með útmælingu, sem Rasmus Lievog stjörnu- meistari gerði. Segir Jón Helga- son svo um kaupstaðarmörkin í Árbókunum: „Að vestan: Grjótabrekka frá Ullarstofutúni allt til sjávar; að sunnan: Norðurendi Tjarnar- innar, og að austan: Víkur- lækur frá Tjörn til sjávar. með þessum hætti ákveðin 1961 Stærð kaupstaðarlóðarinnar var 30462 ferfaðmar. Auk þgss var 12600 ferfaðmaspilda af Arnar- hólslandi, fyrir norðan og norð- austan Arnarhólstraðir, lögð til kaupstaðarins. Ennfremur var Effersey afhent kaupstaðnum með sérstöku tilliti til þess, hve velfallin eyjan væri til fisk- verkunnar og uppskipunar, svo og vegna þess, hve auðgert væri að koma þar upp virki til varnar Reykjavíkurhöfn, ef á því þyrfti að halda (stærð Eff- erseyjar var talin 13000 fer- faðmar). — Loks voru vilyrði fýrir meira landrými handa kaupstaðnum, ef þess skyldi Framh. á 10. síðu 1961 Þessi mynd er tekin á sömu slóðum og myndin hér við hliðina, en um það bii 160 árum síð- ar. Lækurinn er iöngu horfinn og húsin í miðbænum byrgja alla sýn til hafnarinnar. Aust- urvöllur er aðeins orðinn lítill biettur, scm hverfur á bak við liúsin við Lækjargötu. í horni myndarinnar sést ofan á Dómkirkjuna. (Ljósm.: Þjóðviljans, Ari Kárason). Hér kemur svo Ijósmynd tekin yfir Lækjartorg frá Menntaskóianum 1961. Já, munurinn er mik- ill. Meira að segja Haraldarhúsið á horni Lækj argötu og Austurstrætis er nýtt! Og nú er enn byrjað á að rífa til við Lækjartorg, svo að bráðam fær það enn annan svip en þessi mynd sýnir. Svona lítur Kirkjustræti út 1961. Það fyrsta sem maður rekur augun í er Aiþingishúsið, sem ris- ið hefur upp frá því fyrri myndin var tckin. Það var mikil bygging á sinni tíð en er nú löngu orðið of iítið. Svona breytast tímarnir. (Ljósm.: Þjóðviljans Ari Kárason). Föstudagur 18. ágúst 1961 ÞJÓÐVILJINN — •(’? 18. ágúst sumarið 1786 var Islendingum gefið langþráð fyrirheit um verzlunarfrelsi með konunglegri auglýsingu. Verzlunarfrelsið var að vísu mjög takmarkað, einskorðað við þegna Danakonungs, en engu að síður mikilvægt spor í rétta átt. Upp frá því fara íslendingar aftur að sækja á brattann í átt til algers frelsis og sjálfstæðis. Sama dag, 18. ágúst, hlutu Reykjavík og 5 staðir aðrir á landinu kaupstaðarréttindi. Þeim réttindum glötuðu hinir staðirnir allir aftur um lengri eða skemmri tíma. Reykjavík ein hefur haldið þeim óslitið síðan cg vöxtum hennar frá litlu þorpi til stórrar höfuðborgar í fámennu landi verið stöðugur. Fyrstu árin var hann raun- ar hægur og bítandi en þó alltaf í áttina. Við skulum nú aðeins skyggnast í annála Reykja- víkur fyrstu árin. 1 Ái'bókum Reykjavíkur segir Jón biskup Helgason svo um Reykjavík árið 1786. „Svo telst til, að innan tak- marka hinnar fyrirhuguðu kaupstaðarlóðar, sem ekki var íastákveðin fyrr en á næsta ári, væru, er þessi merkilega auglýsing var út gefin, alls 167 sálir heimilisfastar, en að meðtöldu næsta umhverfi kaup- staðarins, er taldist til Reykja- víkursóknar, vóru íbúarnir 302 (en á landinu öllu voru þá íbú- arnir 38.363). Allur þorri íbúa hins væntanlega kaupstaðar var verkafólk að einhverju leyti í þjónustu innréttinganrja, og al- þýðufólk, sem lifði á handafla sínum“. Síðan segir Jón að aðalvii'ð- ingarmaður þorpsins hafi verið forstjóri konungsverzlunarinnar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.