Þjóðviljinn - 06.10.1961, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.10.1961, Blaðsíða 1
i Hátíöasamkoma vegna hálfr- ar aldar afmælis Iiáskóla Is- Iands hefst kl. 1.50 síðd. í dag í samkomusal skólans við Hagatorg. í upphafi samkomunar leik- ur Sinfóníulsljómsveit íslands Iláskólamars eftir dr. Pál ís- ólfsson undir stjórn höfundar, en usn lcið ganga í salinn, í lsessari röð, fulltrúar stúd- enta, háskólakcnnarar, heið- ursdoktorsefni, fulltrúar er- lendra háskóla, liáskólaráð og loks háskólarcktor, Ármann Snævarr. Rektor' flýíu'r síöan ræðu og minnist afmælis háskólans, en ávörp flytja forseti Islands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, rnennta- málaráðhcrra, dr. Gylíi Þ. Gíslason, Geir Ifallgrímsson borgarstjóri og dr. Richard Beck prófessor, forseti Þjóð- ræknisfél. Islendinga í Vest- urheimi. Þá vcrður fluttur kaflinn „Þú eldur, sem brennur við alvalda stól“ úr Háskólaljóð- um Þorsteins Gíslasonar, Iag eftir Pál Isólfsson. Kveðjur flytja því næst: Dr. med. Sigurður Sigurðsson land- læknir, forseti Vísindafélags Islendinga, Sveinn S. Einars- son verkfræðingur, varafor- maður Bandalags háskóla- manna, Matthías Jóhannessen ritstjóri, formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur og Hörð- ur Sigurgestsson stud. oceon. formaður Stúdcntaráðs Há- skóla íalands. Svcinn mun f.li. Bandalags háskólamanna af- henda háskólarektor fyrsta cintakið af riti því sem bandalagið hefur gengizt fyr- ir að gefið yrði út í tilefni afmælisins. Þá verða flutt Háskólaljóð Davíðs Stefánssonar við tón- list Páls Isólfssonar, fulltrú- ar erlendra háskóla flytja kveðjur, rektor þakkar og að lokum verður þjóðsöngurinn fluttur. Flytjendur tónlistar verða auk hljómsveitarinnar bland- aður kór og cinsöngvararnir Þuríður Pálsdóttir og Árni Jónsson. Háskólahátíðin 1961 verður á morgun, laugardag, um hálf- um hálfum mánuði fyrr en venja er. Ilálíðin hefst í sam- komuhúsinu við Hagatorg á sama tíma og afmælishátíðin í dag, klukkan 1.50. Þarna flytur dr. Sigurður Nordal prófessor erindi, Guð- mundur Jónsson óperusöngv- ari syngur einsöng, rektor lýs- ir kjöri heiðursdoktora ásamt deildaforsetum: próf. dr. Þóri Kr. Þórðarsyni í guðfræðideild, próf. Kristni Stefánssyni í Iæknadeild, próf. Ólafi Björns- syni í laga- og viðskiptadeild og próf. dr. Majttliíasi Jónas- syni í heimspekideild. Þá syngur Kristinn Hallsson ó- perusöngvari einsöng og loks ávarpar rektor nýstúdenta og afhendir þeim háskólaborgara- bréf. Þessi mynd var tekin í Háskóla Islands nú í vikunni og sýnir stúdenta í miðhluta læknisfræði hlýða á fyrirlestur prófcssors Krist- ins Stefánssonar í lyfjafræði. — Fleiri myndir frá Háskólanum eru í opnunni. Harðar og vaxandi illdeilur innan Alþýðuflokksins Mikil og vaxandi ó'ga er inn- an Alþýðufiokksins vegna stjórn- arstefnunnar og stöðu þeirrar sem flokkurinn er kominn í. Birtist þessi ólga á ýmsum svið- um: þannig greiddu Alþýðu- flokksmenn sem aðrir atkvæði með tafarlausri uppsögn samn- inga og baráttu fyrir bættum kjörum á ráðstefnu Alþýðusam- bandsins; menn muna hvernig j Óskar Hallgrímsson neitaði að maeta á fundum verð’agsnefndar til þess að greiða atkvæði með j ákvörðunum Gylfa Þ. Gíslasonar: ; og i gær skýrir Alþýðublaðið frá j því að harðar deiiur hafi verið á sðasta fundi Alþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur. Á fundi þessum hafði Jón Þorsteinsson alþingismaður framsögu fyrir væntanlegum til- lögum ríkisstjórnarinnar ’ um breytingu á skattlagningu fvrir- tækja. en eins og Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá er ætlunin að lækka tekjuskatt fvrirtækja um einn fimmta og veita auðfé- lögum margvísleg önnur frið- indi. Átti Jón Þorsteinsson sæti i nefndinni ásamt Sigurði Ingi- mundarsyni fyrir Alþýðuflokk- inn, og voru þeir algerlega sam- mála ihaldsfulllrúunum um þess,- stefnu. Alþýðublaðið skýrir hins vegar svo frá viðbrögðunum á fundi Alþýðuflokksíélags Reykja- víkur: ..Er Jón hafði lokið máli sínu tók Benedikt Griindal alþingis niaður til máls. Kvaðst hann al. gerlega andvígur því að farið yrði i það að Iækka skatta á fyrirtækjum eins og nú væri á- statt í efnahags- og- fjármálum. Sagði Benedikt að ekki væri út- lit fyrir að ríkið mætti missa neitt af tekjum sínum en jafnvel bó svo væri mætti verja þeim fjármunum betur en á þann hátt að lækka skatta fyrirtækja. Baldvin Jónsson talaði næstur. Gagnrýndi hann ýmis ákvæði væntanlegs frumvarps, einkum þó um fyrningarreglur og út- gáfu fríhlutabréfa. Þá talaði Guð- jón B. Baldvinsson. Hann benti m.a. á að tekjuskattar fyrirtækja væru hærri víða er’.endis en hér, þ.e. 10—40% af nettótekjum í stað 25% hér og kvað hann bví enga ástæðu fyrir ríkið að lækka tekjuskatt fyrirtækja.“ Þarna hafa auðsjáanlega orð- ið mjög snarpar deilur. Það er einnig athyglisvert að Alþýðu- blaðið skuli skýra opinberlega frá innanflokksumræðum um stefnu stjórnarinnar á þennan hátt; með því er auðsjáanlega ætlunin að klekkja á Jóni Þor- steinssyni og Sigurði Ingimund- arsyni og friða flokksmenn. sem eru orðnir agndofa yfir fram- ferði innstu klikunnar í flokkn- Henri Alleg fer fram á að fá griðastað í Belgiu Franski blaðamaðurinn og rit-. á fjölda tungumála (hér heima höfundurinn Henri Alleg sem í Timariti Máls og menningar). STOKKHÓLMI 5 10 — Tage Er- lander, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, sagöi á fundi með blaðamönn- um í dag að Svíar myndu aldrei hafna hlutleysisstefnunni í stað- inn fyrir tollaívilnanir. Illutleysi Svíþjóðar er ekki samningsatriði, sagði Erlander. Erlander og Gunnar Lange viðskiptamálaráðherra höfðu kvatt blaðamenn ó sinn fund til að skýra þeim frá því að sænska I stjórnin vonaðist til að geta sent bráðlega tilmæli til Ei'nahags- bandalags Evrópu um viðræður í því skyni að kanna möguleika á tengslum Svíþjóðar við bandalag- ið og myndu tilmælin send í fé- lagi við hin tvö hlutlausu aðild- arríki Fríverzlunarbandalagsins, Austurríki og Sviss. Erlander lagði áherzlu á að ef úr viðræðunum yrði myndi þar aðeins fjallað um efnahagsmál. einna fyrstur nianua Ijóstraði upp um villimannlegar aðfarir franska hersins og lögreglunnar í Alsír er nú kominn til Belgíu og hefur sótt þar um hæli sem pólitískur flóttamaður. Alleg strauk úr fangelsinu Pont Chaillou. skammt frá Renn- es i Frakklandi, aðfaranótt mánudagsins og hafði hann sag- að í sundur járnstengur sem voru fyrir klefaglugga lians. Alleg var ritstjóri blaðsins Alger Republicain í Algeirsborg fram til órsins 1955. Blaðið var bannað og í nóvember 1957 var Alleg handtekinn, Nokkrum dög- um áður haí'ði vinur hans, stærð- fræðingurinn Mauriee Audin, verið tekinn höndum. Báðir urðu þeir að þola hinar hrottalegustu misþyrmingar í fangelsirtu og lifði Audin þær ekki af. Alleg t'ókst að lauma úr fangelsinu lýsingu á pyndingunum og var hún gefin út í bókinni La Question sem þýdd hefur verið Enda þótt Alleg væri sekur ura fh'nn AUeíi það eiit að vilja sjálfs'æði serk- nesku þjóðarinnar, þótt sjálfur sé hann franskur, var hann dæmdur í fyrra i tíu ára fang- I elsi. - i 3S

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.