Þjóðviljinn - 29.11.1961, Blaðsíða 7
í^réttin hér fyrir ofan birtist á forsíðu Morgun-
blaðsins s.l. sunnudag, og hún hlýtur að hafa orðið
ærið umhugsunarefni þeim lesendum sem festu trún-
að á skrif blaðsins um kjarnorkusprengingar Sovétríkj-
anna fyrir skemmstu.
TVforgunblaðið hélt því sem kunnugt er fram að stór-
1 sprengjur Sovétríkjanna væru algert einsdæmi,
aldrei fyrr hefðu mannkyninu verið boðnar þvílíkar
ógnanir. Nú játar blaðið iað Bandaríkin hafi haft slík-
ar stórsprengjur árum saman og þær hafi verið hinn
mikilvægasti þáttur í hernaðarundirbúningi þeirra.
Þessiar risasprengjur voru reyndar á Kyrrahafi 1958.
(Bandaríkjamenn gættu þess að hafa tilraunirnar sem
fjærst sínu eigin landi, en skeyttu ekkert um hættuna
sem leidd var yfir aðrar þjóðir). Þá varði Morgunblaðið
risasprengingarnar af alefli og fór hinum hraklegustu
orðum um alla andstæðinga kjarnorkuvopna.
ll/lorgunblaðið hélt því einnig fram að risasprengjur
Sovétríkjanna gætu naumást flokkazt til vopna;
tilgangur þeirra væri sá einn að hræða „frjálsar þjóð-
ir“ þil undirgefni. Nú viðurkennir blaðið að Bandarík-
in hafi „undanfarið ár“ stöðugt haft flugvélar á sveimi,
búniar kjarnorkusprengjum „sém áð sprengiorku jafn-
gíítu "físasþrérigju lþéifri, 'er Russár sþrengdu við Nov-
aya Zemlya hinn 30. nóvember sl.“ Þessar flugvélar
hafi hvern dag verið þess albúntar að kasta farmi sín-
um yfir Sovétríkin, og þar sé að finna „skýringuna á
því hvers vegna Rússar gáta ekki hætt við tilraunir
símar með 50 megalesta sprengjuna.“
Þessi nýja frétt iMorgunblaðsins kemur þvert á allar
. 1. ' i• ! f.‘. í ' ■
fyrri staohæfingar þess; og tilraunir til æsinga á
siðferðilegum forsendum. Engu áð síður er ljóst hvers
vegna ritstjórarnir velja henni stað á forsíðu af mikl-
um fögnuði. Þeir eru himinlifandi yfir því að Bandarík-
in eiga engu minni helsprengjur en Sovétríkin, það
hríslast tilhlökkun um taugar þeirra yfir því að vita
slíkan farm svífa yfir hnettinum dag hvern; þeir telja
bandarískar helsprengjur góðar og tilraunir með þær
fagnaðarefni. Þeir skilja ekki riú frékár en fyrr það
fólk sem telur vígbúnaðarkapphlauþ stórveldanna lífs-
hættulegt og ber af einlægni fram kröfur um að bund-
inn verði endir á vitfirringuna með skynsamlegum
samningum. — m.
Útgefandi: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar:
Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. —
Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir
Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Risasprengjur
í flugvélum
Ixmdon, 25. nóv. (NTB)
BREZKA dagblaðið Dail y
Express skýrir frá því £ dag
að bandarískar sprengjuflug-
vélar ó eftirlitsflugi hafi und-
anfarið ár ætíð verið búnar
kjarnorkusprengjum, sem að
sprengiorku jafngiltu risa-
sprengju þeirri, er Bússar
sprengdu við Novaya Zemlya
hinn 30. nóvember sl.
Hefur blaðið það eftir vls-
• indafréttaritara sinum. að B-52
sprengjuflugvélarnar beri að
jafnaði tvær 25 megalesta
Icjarnorkusprengju og só þvi
hver flugvél fær um að eyða
tveim skotmörkum i sömu
ferðinni.
Fréttaritari segir þetta vera
skýringuna á því hvers vegna
Rússar gátú ekki hætt við til-
xaunir sínar með 50 mega-
lesta sprengjuna. Segir hann
þetta einnig skýra það hvers
vegna Bandarikjastjórn hefur
verið svo sannfærð um að
Bandaríkin hefðu fprustuna í
smíði kjarnorkuvopna.
Hér segir Arnór Hanni-
balsson írá úrslitaárás
nokkur hundruð vopn-
aðra íhaldsmanna á
heimili Ólafs Friðriks-
sonar í Suðurgötu 14.
Áhlaupaliðið er búið
skotvopnum og bareíl-
um og hresst á siríðsöli.
Minna mátti ekki gagn
gera ef takast átti að
handsama rússneska
drenginn Nathan Fried-
man, sem íslenzk stjórn-
arvöld höfðu ákveðið
að þola ekki í landinu.
Byrjað var á því að ryðja
götur, sem ,,áhlaupasveitin“
(orð Mbl) ^xurfti að fara um,
' Vonarstrætí, Suðurgötu og leið-
ina upp í fangahús. Hafði
hvarvetna við þessar götur
safnazt ^núgur og margmenni,
til þess að fylgjast með að-
gerðum.
Klukkan 1 e.h. kom síðan
tilskipun um að hefja áhlaup.
Fremst ruddust tvær sveitir,
vopnaðar rifflum, kylfum og
axarsköftum, alls 80 manns.
Rifflarnir voru óhlaðnir (að
því er Jóhanni P. Jónssyni
sagðist frá seinna), en sérhver
hermaður hafði skotfæri í vas-
anum til þess að hleypá af,
hvenær sem með þyrfti. í kjöl-
fár áhlaupasveitanna óku svo
vörubílar hlaðnir sjúkrabörum
og hjálpartækjum.
Að vörmu spori hafði á-
hlaupasveitin umkringt hús
Ólafs Friðrikssonar, Suðurgötu
14. Gekk þá „lögreglustjórinn“
og „herforinginn", Jóhann P.
Jónsson, í skjóli manna sinna
upp að norðurdyrum hússins og
las upp fyrir dyrum úti til-
skipun um handtöku Ólafs
Friðrikssonar.
Ólafur tilkynnti, að hann
myndi ekki Ijúka u.pp dyrum.
Gaf þá „lögreglustjóri" skipun
um að brjóta upp dyrnar, og
var svo gert.
Komu hermenn þar að Ólafi,
og sat hann í'stofu ásamt með
13 mönnum öðrum. Voru þeir
tafarlaust handteknir, og átta
manná settir í járn. Með til-
styrk ofureflis vopnaðra her-
manna voru þeir færðir út úr
húsinu, hent upp á vörubíla,
sem biðu á götunni fyrir neðan,
og ekið með þá upp í fangahús
ásamt öflugum verði. Meðfram
leiðinni upp í fangahúsið að
Skólavörðustíg 9 höfðu stillt
sér bæði stuðningsmenn og and-
stæðingar Ólafs, og hvöttu
þeir hann ýmist eða atyrtu. Víð
anddyri fangahússins stóð
Ólafur Thors gleiðgosalegur
með kylfu í hendi og hrópaði
ókvæðisorð ' að Ólafi Friðriks-
ur okkar hjóna hafði tekið að
sér. En í hvert sinn sem varð-
skiptr urðu, þvi alltaf voru
verðir um okkur, var sami
örðugleikinn að fá að síma og
ókurteis framkoma. — Ég hafði
orðið að fallast á er ég fékk
leyfi „lögreglustjóra“ til að
síma, að einhver hlustaði alltaf
á mig. I þriðja sinn sem ég
símað.i kom inn Sæmundur lög-
regluþjónn og ætlaði að taka
af mér símaáhaldið, en eftir
nokkurt þóf viðu.rkenndi hann
að þetta kæmi sér ekkert við.
Annars vil ég taka það fram,
að þrír varðmenn afsökuðu
framkomu sína með því að þeir
væru skipaðir til aðstnðnr löa-
reglunni, og ef þeir óhlýðnuð-
ust, myndu þeir sæta sekt“.
Frú önnu var þannig haldið
sem fanga á franska sm'talan-
um þar til klu.kkan 18 þann 25.
nóvember. Frþ heimkomunni
segir hún eftirfarandi:
„Heimilið er allt í rústum.
Þar var ekkert brotið áður. en
er nú mikið brotið og braml-
að í stofum, þar sem engir
komu inn við handtökuna.
Heimi.li mitt hafði veri.ð í
vörzlu varðliðsins. Skrifborð
mi.tt var brotið unp og einía-
bréf mín tekin til yfirlits nið-
ur í Iðnó. öll skiöl manns míns
voru tekin út í bal.a og sumt
af því mun hafa glatazt þar
sem það lá á víð og dreif , á
eftir, enda var- að minnsta kosti
einn vörðu.rinn dru.kkinn“.
Rússneska drengnum vaiv
haldið sem fanga í franska
spítalanum þar til hann var
sendnr alfari frá ísland.i með
Gullfossi þann 28. nóvember.
I átökum þessum var enginn
drepinn, en tveir drengir voru
slas’aðir. Ein bifreið rann unp
á gangstétt, sem þéttur mann-
mannfjöldi stóð á. Gunnar
Guðjónsson, unsur piltur,
skarst þá illa á fæti og hlaut
Hvítliðasveitin gengur frá Suðurgötu 14 með fanga sína að unnu afreki. Fremstur með kylfu í hendi skálmar Haraldur Johannes- ^
sen bankafuiltrúi, faðir Matthíasar Morgunblaðsritstjóra. Bakvið hann gcngur Björn Rósenkranz kaupmaður (með loðhúfu), hægra
megin við hann er fangi að nafni Guðmundur. Ekki hefur tekizt að þekkja hvítliöann mcð dökka hattinn, en að baki honum er
fangi (með Ijósa derhúfu) Ölafur Brynjólfsson sem drukknaði í Halaveðrinu með Magnúsi bróður sínum. Fyrir aftan hann er svo
maður með dökka húfu, einn fanganna, Valdimar Stefánsson faðir Þráins, erindreka Framsóknarflokksins. Fanginn með derhúfuna
i dökkum fötunum er Pálmi heitinn Jónsson, síðar bókaútgefandi á Akureyri. Að baki honum er hvítliði með harðan hatt, Þorkell
Ólafsson söðlasmiður. Fremst tll vlnstri er hvítliði með derhúfu í ljósum buxum og reiðstígvélum, Karl Þorsteinsson bakari. Maður
baðvið hann með hvíta húfu elr fangi, Hjálmtýr heitinn Waage sjömaður. Enn aftar er Hjörtur heitinn Hansson stórkaupmaður (með
harðan hatt). Dökkklæddi maðurinn með glansderhúfuna niðurundan glugganum er fangi, Ásgeir Möller Guðjónsson. Við hlið hans
með ljósa húfu er hvítliði, Helgi Jónsson skrifstofumaður, bróðir jóhanns P. skipherra og Iögreglustjóra. i’
syni, er hann var leiddur í
járnum inn í húsið.
Samtímis þessu höfðu hafizt
mannaveiðar úti um allan bæ,
og voru menn handteknir á
götum úti og í húsum inni ög
fluttir upp í fangahús. Hendrik
Ottósson, eindregnasti stuðn-
ingsmaður Ólafs Friðrikssonar,
var hanjdtekinn heima hjá sér
að Vesturgötu 29, og segir hann
frá því í bók sinni „Frá Hlíð-
arhúsum til Bjarmalands11.
Hendrik hafði farið í liðssöfn-
unarferð um morguninn niður
að höfn og upp í Gutenbergs-
prentsmiðju, en varð nú minna
ágengt en í hið fyrra skiptið.
Olli því andróður Jóns Bald-
vinssonar og hans félaga gegn
Ólafi Friðrikssyni. Við inn-
ganginn í Gutenberg mætti
Hendrik Jóni Baldvinssyni, all
þungbúnum á svip. Jón spyr
Hendrik, hvernig honum lít-
ist ó. Hendrik svaraði með því
að segja, að framkoma þeirra
Jóns :og félaga verði ekki. köil-
uð annað en svik. Skildu ‘þeir
þar að skiptum. — Er Hendrik
lauk liðssöfnunarleiðangri sín-
um. höfðu hvítliðar þegar kom-
ið á vettvang í Suðurgötu 14,
og sá hann sér því þann. kost
vænstan áð fara helm til sín á
Vesturgötu. Varð Hendrik þess
heiðurs aðnjótandi, að hand-
töku hans annaðist sjálfur sjó-
liðsforinginn ásamt með ýms-
um ypparlegustu hjálparmönn-
um sínum úr hvítliðinu. Voru
þeir kampakátir yfir að hafa
komið „lögum“ yfir svo hættu-
legan andstæðing. Alls. voru
handteknir þennan dag 26—28
manns (heimildum. ber ekki:
saman).
, Þegar er Ólafur Friðiáksson
hafði verið. handtekinn j' Suð-
u.rgötu 14, hóf lögregla og
hvítlið leit um allt húsið. Með
brugðnum byssum gengu þeir
úr einu herberginu í annað og
eirðu engu, enda margii' hvít-
liðarnir meir eða minna
drukknir af hrennivíni því,
sem þeim hafði verið úthlutað.
Þá er þeir höfðu grandskoðað
neðri hæðina fóru þeir upp á
efri hæð og gerðu henni sömu
skil. Loks komu þeir að rúss-
nesk'a drengnum og fósturmóð-
ur hans uppi á háalofti. Hafði
drengu.rinn grátið allan morg-
uninn. Þannig framkvaemdi
íhaldið sóttvarnarlög —■ sam-
kvæmt umrhælum lækna var
augnveiki hans ekki smitandi.
nema tár eða útferð kæmust í
augu annarra manna. Vo^u þan
nú bæði þegar tekin höndum.
og stóð fyrir verki Sjgurjón
Pétursson/ 1 viðtali við Alþýðu-
blaðið þann 28.. 'nóv. sagði frú
Anna Friðri.ksson frá þessu og
m.a. eftii'farandi:
„Undir eins og við komum.
niður stigann greip Sigui'jón
Pétui'sson óþyrmilega í hand-
legg di’engsins, sem var kjökr-
and.i, og þegar ég bað Sigurjón
u.m að fara vel með drenginn
skcytti. hanl) þyí engu, og þeg-
ar di’engurinn. þá fór að gráta
og ég vildi hugga hann, þreif
hann í mig og sagði mér að
vera ekki að þessu. Á leiðinni
niður að bílnum, hljóp Sigur-
jón svo hart, að ég sem hélt í
aðra hönd d.rengsins, var hvað
eftir annað næstum dottin.
Hann kastaði mér næstum því
upp í bílinn. Ég veitti ekki
minnstu mótspyrnu.
Ekið var með okkur niður,.
í Iðnó. Þar voru settir verðir
um mig og di’enginn, Hallgrím-
ur. Benediktsson stórkaupmaöur
og Bei’thelsen kauDmaður. Verð-
irnir voru au.gsýnilega mjög
hræddir um sig. Síðan kom inn
Matth. Einarsson læknir og
spu.rði mig kurteisiega hvort
ég vildi -fylgja drengnum til
herbergis úti í bæ, þyí að í
Iðnó gætum við ekki v.eriö .
lengurl Ég-svaraði að ég vildi
að minnsta kosti fara með hon-
u.m til þess að sjá hvað geri
yrði. við drenginn. Þá var ekið
með okkur upp í franska spít-
alann og inn á skrifstofu
læknisins. Flallgrímur Bene-
diktsson fylgdist með sem vörð-
ur og hegðaði sér ókurteislega.
sem líklega hefir þó mest verið
vegna þess, hve-hræddur hanr
var um sig. Afsakaði hann' sif
síðai’ með því að hann vær;
þarna eftir skipun.
Þá var drengnum og mér
vísáð á herbergi og fengum við
þar sæmilega þjónustu. Sam?
kvöld, eftir að ég og drengur--
inn vorum háttuð, kom sami
maður þjótandi inn í herbergic
án þess að berja né taka ofar
höfuðfatið og hei.mtaði vasaljór
sem d.rengurinn hafði verið ac'
leika sér með. Ég fekk ehgar
lykil að herbei'ginu um nóttina
, Dágkwi eftir byi’jaði fyrsí'
fyrir alvöru hi’analeg fram-
koma hvíta liðsins. Þegar ég
kom inn á skrifstofuna til að
síma, var mér fyrst neitaður
aðgangur af einhverjum
drengiu.m sem stóðu með bai’-
efli í höndunum. Loks fékk ég
-að . tgla við lcgreglustjórann í
síma og spurði ég hann hvort
ég væri fangi eða ekki. Hann
. svaraði mér að ég væri ekki
fangi. Ég héimtaði þá 'að fá að
fara hvert sem ég vildi, en
mér var neitað því með vífi-
lengjum. Ég fékk þó leyfi.,til að
síma til bai’na min.na, sem .vin-
skrámur á höfði og baki. Ann-
ar drengur, Björn Hjaltested,
marðist illa og tognáði í nára.
Frá þessu ságðu Moggi . í ör-
stuttri dagbókarkláusu þann
25. nóv. og minntist auðvitað
ekki á, að hér hefði hvítliðið
verið að verki.
Margir hvítliöar voru orðnir
drukknir meðan á hernaðar-
aðgerðum stóð, og þegar er
þeim lauk þutu þeir út um bæ
í leit að brennivíni. Markús
Jónsson bryti, einn af fremstu
stuðningsmönnu.m Ólafs þann
18. nóvember. (nú bóndi að
Svartagili í Þingval.lasV'eit) hef-
ur skýrt svo frá:
„Einn af hvíti.iðunum hélt að
af því ég væri í siglingum ætti
ég bii’gðir af brennivíni heima,
óð heim til mín meðan ég var
í steininum, heimtaði vínið,
kvaðst ætla að bjarga því! Það
yrði gerð húsrannsókn hjá
mér á hverri stundu! Ein-
hverjir kunningiar mínir voi’u
komnir og ráku hvítliðann út.
yi.tanlega var aldrei nei.n hús-
rannsókn gerð. Hvítliðinn ætl-
aði einungis að ná sér í vín,
en að kvöldi seinni slagsins
voru margir hvítliðanna svín-
fullir af smygluðu víni er yf-
irvöldin, sem áttu að gæta
bannlaganna, höfðu gert u.pp-
tækt og veittu nú hvítliðunum
ósnart!“ (Þjóðviljinn 7. á-
gúst 1960).
Aiþýðúbiaðið skýrði frá
drvkkiuskap hvftliðanna og
skoraði á Mbl. að afsanna
bessa staðrevnd, ef það gæti.
Moraunblaðið svaraði ekki fyrr
en 30. desember (þegar það
hefur þótzt visst um að allir
hefðu alevmt): „Sjálfsagt hef-
ur veri.ð dru.kkið þennan dag
eins og aðra d.aaa. Morgun-
blaöí.ð mótmælir því hvoi’ki né
staðfestir".
Me.rkús var einn af. þeim,
sem handtekinn var á götu úti
þann 23. nóvember, og var
hann fluttur inn í fangahúsið
skcmmu seinna en Óiafur
rriðrikssoh. Stóð. þá Óláfur
Thors enn í anddyri hússins
og sveiflaði kylfu. „Síðan köll-
uðu sjómenn hann lengi Óla
tukthússvörð", segir Markús
í viðtalinu við Jón Bjarnason
(Þjóðv. 7.VIII. 1960).
Ftvítliðið hafði í frammi
hinar dólgslegustu aðfarir, æddi
um götur, otaði byssum að frið-
sömu fólki, hótaði að skjóta
það, stinga því inn og bei’ja.
Hvítliðar réðust inn í hús í-
hatdsandstæðinga í leit að
mönnum o.g brennivíni og
frömdu víða ýms spjöll. Svo
segir frá þessu í Morgunb’aðinu
þann 25. nóvember: Sjálfboða-
liðið kom fi’am „svo stillilega,
kurteislega, i’eglulega, að slíks
eru fá dæmi“.
Þetta er enn eitt sýnishorn
af sannleiksást Morgunblaðs-
ins.
Þegar daginn eftir skýrði Al-
þýðublaðið frá því, hvaða
íhaldsmenn hefðu staðið fyrir
þessum hvítliðaflokki. Þeir
voru, auk „hershöfðingjans",
Jóhenns P. Jónssonar: Axel
Tuiinius formaður Skotféiags
Reykjavíkur, Valgeir Björnsson
verkfræðingui’, Ólafu.r Thoi’s,
Kjartan Thoi’s, Hallginmur
Benediktsson heildsali, Björn
Ólafsson kaupmaður, Þorsteinn
Scheving lyfsali, Sigurjón Pét-
ursson, Magnús Kjaran,
Kofced-Hansen skógræktar-
stjóri, Skúli Skúlason blaða-
maður og fleiri.
Að lokinni handtökuhi’inunni
var Reykjavík á valdi þessara
ribbalda, úrhraka og óaldar-
manna, sem hvítliðið samanstóð
af. „Enginn maður mátti um
fi’jálst höfuð strjúka", ságði
Alþýðublaðið 24. nóvember.
Enginn íhaldsand.stæðingur var
óhultur um líf sitt og lirni.
Haukur Helgason limmtugur
Afmæliskveðja
Kæri félagi!
Þá er nú aldurinn farinn að
færast yfir þig líka, ungan og
síkvikan! Vertu veikominn í
hópinn til „öldunganuia“!
Mér finnst ennþá eins og
það væri í gær, þegar þú
komst til mín á Njálsgötuna
fyrir stríð, fullur af áhuga fyr-
ir sósíalismanum og útbreiðslu
hans beint frá Svíaríki. Og þeg-
ar þú fórst og lagðir af stað
til ísafjarðar, hugsaði ég með
mér: Ekki þurfum við ,að ör-
vænta um framtíðina, þegar
svona ungir áhugamenn eru að
bætast í hópinn.
Og síðan er nú brátt liðinn
aidarfjórðungur, eitt viðburða-
ríkasta baráttuskeið íslands-
sögunnar.
Þú hefur háð alla Þá hildi
með okkur, Haukur, og aldrei
legið á liði þínu, þegar flokk-
urinn liefur þig til kvatt. Við
þökkum þér alla, þá baráttu
þína, Haukur, allt starfið á fsa-
firði og í Reykjavík, alla þína
þrautseigju . og árangursríku
baráttu í Strandasýslu, þar sem
þú jókst í sífellu atkvæðatölu
flokksins, kosningu eftir kosn-
ingu.
Sósíalistaflokkurinn sendir
þér sínar innilegustu heilla-
óskir i dag og vonast til þess
að mega enn. iengi njóta þinna
ágætu krafta.
Og ekki er þess hvað sízt
þörf á þessum „síðustu og
verstu dögum“ borgaralegra
blekkinga, að þú haldir uppi
heiðri hagfræðinnar, okkar
maxistisku efnahagsvísinda,
þegar við liggur að borgara-
legir blekkingasmiðir komi ó-
orði á þína ágætu vísindagrein.
Ég þakka þér persónulega
áratuga vináttu og sameiginlega
baráttu, — fundanna, sem við
háðum saman á Vestfjörð-
um minnist ég alltaf með mik-
illi ámægju. Ég árna þér og
þinni ágætu konu og allri fjöl-
skyldunni allra heilla á þess-
um heiðursdegi og vona að
enn eigum við eftir að berjast
lengi hlið við hlið, þegar fs-
landi og alþýðu þess liggur á.
EINAR OLGEIRSSON.
★
★ ★
Mér er mjög kærkomið að
senda vini minum, Hauk Helga-
syni, þessa afmæliskveðju í til-
efni af því , að hann er fimm-
tugur í dag. Kemur þar til
margra ára vinátta okkar og
samstarf.
En því miður valda ýmsar á-
stæður því, að þessi kveðja
verður af meiri vanefnum gerð
en ég hefði kosið og ýmsu verð-
ur að sleppa. sem gaman hefði
verið að minnast á, t.d. störf
hans í bæjarmálum ísafjarðar
á þeim árum, sem hann dvaldi
hér. En fyrir þau og margt
annað, sem hanh vann hér,
stöndum :við ísfirzkir sósíalist-
ar í þakkarskuld við hann.
Haukur er fæddur og uppal-
inn á ísafirði. Foreldrar hans
eru hjónin Lára Tómasdóttir ög
Helgi Ketilsson, Odda. Hann
varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1933 og las
síðan hagfræði í Stokkhólitii.
Að námi loknu kom hann aft-
ur heim á æskustöðvarrcar
og gerðist starfsmaður Útve|s-
bankans hér. 1946 flutti hafin
búferlum til Reykjavíkur. Þar
starfaði hann fyrst sem fiíll-
trúj Sósíalistaflokksins í Víð-
skiptaráði en síðan í Útvegs-
bankanum, og þar vinnur haiin
xiú.
Skömmu eftir heimkomuna
gerðist Haukur virkur þátt-
takandi í íslenzkum stjórnmál-
um. Hann var fyrst kosinri; í
bæjarstjórn ísafjarðar 1942
sem fulltrúi Sósíalistaflokksjns
á svo nefndum ,,Hristingslista'!,
Framhald á 10. siíju.
2.y(rry,£j' ■
g) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 29. nóvember 1961
Miðvikudagur 29. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — {Jfo