Þjóðviljinn - 17.12.1961, Síða 3
■-»
Þó Almælishappdrætti Þjóð-
viljans; sá aö vísu ekki mið-
deDiil í jólaþvarginu, þótti
okkur rétt að kíkja á piltana,
sérstaklega þar sem nú er að
koma í þá glírnúskjálfti fyrir
Þo'rláksmessúdag, en þá verð-
ur dregið næst.
Úti á Þórseötu 1 sitja beir
Trv.ggvi Emilsson og L-'.rus
Valdimái’sson. Lárus Skag-
stréndingur er einskonar dír-
ektör og -séffi þar úti, sá sem '
hejdur öllum þráðum, sá sem
veit allt og hann er rúsínari
sem við geymum í viðtalsend-
ann.
Tryggvi Emilsson, verka-
maður er um stundarsakir
starfsmaður happdrættisins.
Hann er bjartsýnn, glaður og
reifur og leikur als oddi.
Hann segir að salan sé nú
þegar farin að örvast og að
deildastarfið sé £ talsverðum
uppgangi.
Fylkingarumþoðinu stjórnar
Ingvaldur Rögnvaldsson af
sinni alkunnu lipurð og rögg-
semi. Þar er margs að gæta
og Ingvaldur talar allan dag-
inn við allt og alla, nema
blaðamenn. Hans aðstoðar-
maður og fullmektugur er
Hrafn Magnússon. Hann sit-
ur þarna og vélritar með
Biblíuaðferðinni, segir fátt en
vinnur því meira.
Frammi á ganginum, gegnt
skrifstofunni, hangir tafla yf-
ir metsölumenn Fylkingarinn-
ar og þar er efstur á blaði,
Lúðvík nokkur Helgason, sem
mér er sagt að sé verzlunar-
stjóri í KRON á Hrísateigi.
Hann er skráður þarna með
100 miða selda. Ég hringdi í
manninn og spurði hann
hvernig hann færi að því að
ná -slíkum árangri.
„Maður verður að hafa
brennandi áhuga og skilja
miðana aldrei við sig. I stuttu
máli hafa augun opin fyrir
öllum möguleikum. Mér finnst
mun auðveldara að selja happ-
drætti Þjóðviljans nú en oft
áður. Ég er sannfærður um
að aukavinningafyrirkomulag-
ið gerir það mun útgengilegra
en önnur svipuð happdrætti."
Eins og ég reit hér áðan,
skyldi Lárus verða rúsínan í
viðtalinu.
„Ég skal segja þér það, að
hingað kemur fjöldinn allur
af fólki sem undanfarin ár
hefur fengið happdrættismiða.
Nú kemur það hingað og seg-
ist hafa selt miða, — í fyrsta
sinn. Yfirleitt er fólk afar
hissa á því hve auðvelt er að
koma miðunum út.
Úti á landi hefur víða náðst
frábær árangur og má þar
til nefna Húsavík, Hólmavík,
Vestmannaeyjar, Selfoss, Nes-
kaupstað og marga fleiri
staði. Á Húsavík hefur náðzt
albezti einstaklingsárangurinn,
einn sölumaður þar, sem er
nói raunar kona. hefur selt
uppundir 100 blokkir.
Svo má segja þá sögu frá
Seyðisfirði, að umboðsmaður
okkar þar, komst í þrot fyrir
síðasta drátt og hringdi hing-
að til okkar £ öngum si'num
og bað okkur að bjarga sér
úr yfirvofandi lifshættu, þvi
menn væru orðnir aðgangsharð-
ir og allir vildu fá miða. Við
sendum honum 15 blokkir
með hraði, sem seldust upp
seinni part dagsins, sem þær
komu austur. Svo er líka rétt
að geta þess, að þangað fór
um daginn einn stærsti auka-
vinningurinn, borðstofuhús-
gögn.
Nú, og múrari nokkur í
Kópavogi er búinn að selja 85
blokkir, hann er Skagstrend-
ingur eins og ég og við erum
drjúgir Norðlendingar.
Ég held að almenningur
geri sér það yfirleitt ljóst,
hvaða þýðingu Þjóðviljinn
hefur fyrir hann, og vilji
styrkja þetta málefni. En auð-
vitað væntir hann betra blaðs
og fjölbreyttara. Erfiðleikarn-
ir, sem við höfum átt í vegna
pressunnar undanfarið, ættu
að undirstrika nauðsynina".
G.O.
AFMÆLIS-
HAPP-
DRÆTTIÐ
Sunnudagur 17. desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (3’
Rétt
og rangt
Morgunblaðið lætur í ljós
mikinn fögnuð yfir því að
Danir hafa nú látið undan
þrýstingi Vestur-Þjóðverja..
Finnast í blaðinu. það mikil tíð-
indi og góð að gengið hefur
verið frá sameiginlegri her-
stjórn Vestur-Þjóðverja og
Dana á Eystrasalti og að
þýzkir hershöfðingjar geta nú
á nýjan leik hreiðrað um sig
í landi þaðan sem þeir voru
hraktir fyrir rúmum hálfum
öðrum ái’atug. Þannig eiga
smáríkin að hegða sér, segir
blaðið, feila niður allar
fornal.darhugmyndir um sjálf-
stæði og rétt, en beygja sig
undir næsta stórveldi.
Ekki eru ýkjamargir dagar
síðan Morgunblaðið þóttist
flytja þveröfugar kenningar.
Þá bar það sér mjög í munni
óskir Sovétríkjanna um hern-
aðarviðræður við Finna og
taldi m.a. að stórveldið myndi
æskja sameigjnlegrar her-<j>
stjórnar á Eystrasalti. Þá var
rætt innfjálgum orðum um
sjálfstæði og rétt smáþjóða og
sýnt fram á það með marg-
víslegum rökurn að þá væru
Finnar illa komnir ef þeir
gerðu samninga. hliðstæða
þeim sem 'Danir hafa nú und-
irgengizt.
Kannski eiga sumir lesend-
ur Morgunblaðsins erfitt með
að finna samkvæmnina í
þessu. En þeir hafa þá ekki
áttað sig á því að málgagn
þeirra hefur aldrei haft neinn
áhuga - á sjálfstæði og rétti
nokkurrar smáþjóðar heldur
aðeins einblínt á stórveldin.
Heimilt er að svipta litla þjóð
öllum sjálfstæðum viðbrögð-
um, ef „rétt“ stórveldi á í
hlut; og ‘því aðeins hefur
smáþjóð heimild til að standa
á rétti sínum, aö hún eigi
samskipti við „rangt“ stór-
veldi.
Þetta er sama afstaða sem
veldur því að Morgunblaðið
„fagnar“ kjarnorkusprenging-
um Bandaríkjamarina en tel-
ur . tilrau.nir Rússa hættuleg-
ar lífi mannkynsins. Einmitt
nú þegar búizt er við að
Bandaríkin hefji senn kjarn-
orkusprengingar í andrúms-
loftinu, brcgður svo við að
málgögn Sjálfstæðisflokksins
skýra frá því dag eftir dag
að því fari fjarri, að helryk
sé hættulegt; þvert á móti
hafi vestrænir vísindamenn
að undanförnu étið strontíum
90 í tilraunaskyni og aldi’ei
verið hraustari en nú. Austri.
LAM PAR
NÝfT
ÚRVAL