Þjóðviljinn - 30.12.1961, Page 4
Þessi aðfangavika jólanna
hefur að sjálfsögðu sett nokk-
urn svip á dagskrá útvarps-
ins. Má þar sérstaklega til
nefna auglýsingaflóðið sem
dunið hefur í eyrum hlust-
enda ótrúlega mikinn hluta
sólarhringsins, hafi hann ver-
ið svo ógsetinn að láta við-
tækið standa opið. Sýnir það
eitt út af fyrir sig, að marg-
ir eru þeir sem eiga nokkra
gróðavon fólgna í fæðingar-
hátíð frelsarans, og sannast
hér, eins og svo oft endra-
nær, það sem Steinn Stein-
arr kvað:
Það skiptir mestu máli
að maður græði á því.
f?j
Barnamessa
Sunnudagsmorguninn var
flutt barnaguðsþjónusta í
Dómkirkjunni, af séra Jóni
Auðuns, Ég heyrði hana að
vísu ekki, en geri ráð fyrir,
að hún hafi verið góð, því
venjulega eru barnaguðsþjón-
ustur mik'lu skemmtilegri at-
hafnir en hinar, sem ætlað-
ar eru fullorðnum. Kemur
þetta líklega af því að börn
eru yfirleitt ekki talin vera
eins syndum hlaðin og við
hinir fullorðnu, og því ekki
talin þörf á að hirta þau með
umvöhdunarprédikunum eins
og okkur.
Það var víst á sunnudags-
kvöldið sem Hannes félags-
fræðingur flutti enn erindi
um brezkan starfsbróður sinn
í félagsfræðinni, Thomas
Paine, að nafni. Var sá uppi
á átjándu öld og fjölhæfur
mjög, rithöfundur og meint-
ur landráðamaður í sínu
heimalandi, áróðursmaður og
einskonar utanríkisráðherra í
Bandaríkjunum á dögum
frelsisstríðinu og þátttakandi
í stjórnbyltingunni frönsku.
Rakti Hannes sögu þessa fjöl-
hæfa manns með hæfilegum
hraða og talsverðri frásagn-
argeði og var því langt frá
að vera leiðinlegur.
útvarpsannáll
Barna-
uppeldi
í þættinum Spurt og spjall-
að var um það rætt og deilt,
hvort börn þeirra mæðra, er
stunda vinnu utan heimila
sinna, að einhverju leyti,.
myndu bíða tjón á sálinni.
Virtust sumir mjög eindregið
þeirrar skoðunar, að svo hlyti
að vera, aðrir virtust vera
nokkuð tvístígandi og jafnvel
sjálfum sér ósamkvæmir, og
enn aðrir, álitu að þetta væri
all't í lagi, krakkarnir myndu
geta sér að skaðlausu vel
komizt af án mömmu, ein-
hvern hluta sólarhringsins.
Ekki mun ég hætta mér út
á þann ís að eggja til þess-
ara mála. Aðeins má minna á,
eins og raunar allir viðræð-
endur virtust vera sammála
um, að svona fer það, hvort
sem mönnum líkar betur eða
ver. Konán sækir æ meira út
af heimili sínu í atvinnuleit.
Og ég hefi raunar þá trú, að
mannskeppnan muni í þess-
um efnufn eins og svo mörg-
um öðrum læra af eðlishvöt
sinni að laga sig eftir þeim
breyttu aðstæðum, er af slíkri
lifsvenjubreytingu leiða. Vafa-
laust verður það öðruvísi
fólk, er elst' upp úndir hinu
nýja skipulagi, en hvort það
reynist verra en við, sem
alizt höfum upp á gamla móð-
inn, það mun tíminn leiða í
ljós.
En í hreinskilni sagt: Höf-
um við úr svo ýkjaháum söðli
að detta?
Óánœgt
prestsefni
VIKAN 17. TIL 23. DESEMBER
son guðfræðinemi þáttinn um
daginn og veginn. Ingólfur
þessi virtist vera í hópi þeirra
manna, sem eru óánægðir
með allt og alla.
En óánægðastur var hann
þó með fullveldisfagnaðinn 1.
des. og það svo, að hann
stakk beinlínis upp á því að
þessi hátíðahöld yrðu látin
niður falla. En það út af fyrir
sig er tiilaga, sem vert er að
gefa gaum og taka til alvar-
legrar íhugunar. Og eflaust
yrði það bezta lausnin úr
þeirri sjálfheldu, sem þessi
dagur er kominn í, fyrir alla
sem hlut eiga að máli, jafnt
þjóðina, sem hefur verið rænd
sínum fullveldisdegi sem hina,
er að ráninu hafa staðið.
Myndi þá með tímanum geta
fyrnzt yfir þau leiðindi er
misnotkun dagsins hefur
valdið, bæði hjá þeim er hafa
vei’ið þolendur og gerendur
misnotkunarinnar.
En þrátt fyrir það að Ing-
ólfur væri svo hneykslaður
yfir fyrrnefndum hátíðahöld-
um, taldi hann vel á því fara
að biskup landsins hefði verið
þar til kvaddur. Má slíkt raun-
ar furðulegt heita, af einum
guðfræðinema, eftir :þá Ijótu
lýsingu, er hann hafði þegar
gefið af athæfi þessa dags.
Einkennilegt fannst mér um
fyrirlesara þennan, hve hann
virtist hafa mikinn áhuga á
efingu lögreglunnar, og öllu
er að lögreglumálum lýtur,
og lét hann beinlínis orð falla
í þá átt, að hér þyrfti að vera
sterk lögregla, af því hér væri
enginn innlendur her. Hvað
ætlar þessi tilvonandi drott-
ins þjónn að gera með sterka
lögreglu?
Draugarnir
i
Á mánudagskvöldið flutti Helgi Hjörvar hélt áfram
Ingólfur nokkur Guðmunds- Eyrbyggju sinni á kvöldvöku
miðvikudagsins, Árni Björns-
son lauk við erindl sín um
jólagleði og komst að þeirri
niðurstöðu að gleðir hefði ver-
ið algengar um jól til forna.
Hinsvegar brast heimildir fyr-
ir því að þær hefðu almennt
verið haldnar í kirkjum, en
nokkur dæmi voru þó kunn
af því tagi. Þeir hafa verið
léttlyndir í gamla daga, ekki
síður en nú.
Jóhannes úr Kötlum hélt
áfram lestri sínum úr Þjóð-
sögum Jóns Árnasonar, og að
þessu sinni las hann um
drauga, og fannst mér það
góður lestur, því af yfirskil-
vitlegum þjóðsagnaverum
hafa mér alltaf verið draug-
arnir hugstæðastir, og er það
mála sannast, að enn í dag
munu þeir vera almenningi
meiri veruleiki en aðrar þjóð-
sagnaverur.
Djúnki blifur
Eftir síðari fréttir flutti
Sigurjón Jónsson frá Þor-
geirsstöðum erindi um skaft-
fellskan landnámsmann á át-
jándu öld, greindi frá örlög-
um hans og afkomenda hans
á einfaldan og yfirlætislausan
hátt og af sögulegri ná-
kvæmni, og mun mikil vinna
liggja að baki þessa erindis.
Á þriðjudagskvöld og föstu-
dagskvöld var lesið upp úr
nýjum bókum af ýmsu tagi.
Af öllu þessu sundurleita les-
efni stendur lítið eftir í minn-
ingu minni annað en Djúnki,
hinn kaþólski yfirbiskup
heimskautalandanna, í sel-
skinnsstígvélum, og með sína
bænabók og brennivínsfleyg
í bænabókarlíki, enda gaf
Gröndal okkur hinn ógleym-
anlega Djúnka í öndverðu og
var hér því um skemmtilega
endurfundi að ræða, er Bjöm
Th. leiddi hann fram á sjón-
arsviðið.
Kristmann
búinn
Kristmann las Gyðjuna og
uxann fjóra daga vikunnar,
og sá nú loks fyrir endann á
þeirri löngu sögu. Hefði hún
að ósekju mátt styttast all-
mikið í flutningi. En um það
tjáir ekki að sakast. Það er
búið sem búið er.
En höfundur sækir á undir
lokin. Sagan rís öll og at-
burðarásin verður hraðari.
örlagaþræðirnir eru dregnir
saman af miklum hagleik og
sagan endar á þann hátt sem
að hefur verið stefnt, og raun-
ar á svo skynsamlegan hátt
að hver hlustandi hlýtur að
skilja, að hún gat ekki endað
á annan veg.
Og þegar. höfundur hefur
lokið hinum síðasta lestri
hugsar maður eitthvað á þessa
leið: Þrátt fyrir langar og oft
leiðinlegar svall- og kvenna-
farslýsingar, hefur þetta þó
verið vel þess virði, að á væri
hlustað.
Á" Þorláksmessu fór allt í
jólakveðjur. Um þær er ekk-
ert hægt að segja, annað en
að manni finnst sem þær
mættu vera ögn færri. Það er
að vísu sjálfsagt að sjómönn-
um á hafi úti séu sendar
kveðjur gegnum útvarp, en
ég fæ aldrei skilið, hvers
vegna fólk í landi er að senda
gagnkvæmar kveðjur gegnum
útvarp, bæði af því að þetta
er í rauninni algjört einka-
mál, sem hefur ekkert al-
mennt gildi, og svo geta menn
mi.nnzt vina sinna og komið
boðum til þeirra, ' eftir svo
mörgum leiðum öðrum.
Að svo mæltu óskar annáll
þessi lesendum sínum árs og
friðar á komandi ári.
effir SKÚLA GUÐJÓNSSON frá Lfófunnarsf
orgarayarnir í
kjarnastyrjöld
Nú ræðir háttvirt ríkisstjórn
mikið um almennar borgara-
varnir. Á dögunum var fenginn
hingað til landsins norskur
sérfræðingur í hernaðarmálum
til að rannsaka möguleika á
loftvörnum, og þá fyrst og
íremst í höfuðborginni.
Ekki skal út í það farið hér
hvað norski sérfræðingurinn
hefur sagt um þessi mál, enda
hafa sjálfsagt flestir lesið um
það í dagblöðunum.
En ýmsir' spyrja: Hvað ligg-
ur hér á bakvið, að ríkisstjórn-
in virðist hafa svona mikinn
áhuga á þessu máli? Og einn-
ig spyrja margir: Er hér ver-
ið að ala á stríðsótta hjá fólki
í pólitískum tilgangi? Og enn
aörir spyrja: Er hægt að koma
nokkru.m vörnum við, ef til
styrjaldar dregur?
Ekki leynir það sér að
stjórnarvöldin ; tala og rita
eins og þau hafi einhverja
sérstaka tröllatrú á loftvörnum
■ í kjarnorkustríði. En eftir er að
vitá hvað þar býr að baki hjá
þeim háú herrum. Aðeins má
geta þess að ýmsir telja að hér
sé á ferðinni einskonar skrípa-
leikur, það sé fánýtur hugs-
unarháttur sem alltaf er verið
að ala á að áríðandi sé að
koma upp öflúgum borgara-
vörnum' einmitt nú. Og þessari
skoðun á sjálfsagt að troða inní
fólk, að minnsta kosti hefur
ekki svo lítið verið um þetta
ritað í máigögnum stjórnar-
valdanna, Morgunblaðinu, Vísi
og Alþýðublaðinu.
Er það nú nokkur furða
þótt ýmsir hugsandi menn á-
líti, að þar sem verið er að
ala á löngu úreltum stríðshug-
myndum, sem giltu á sínum
tíma en eru alveg vita gagn-
lausar í nútímastyrjöld, þá séu
það vitanlega herveldin og
þeirra fylgifiskar sem hér eru
að verki með pólitískan áróð-
ur?
Ég ætla ekki að fara út í það,
hversu friðsamlega eða ófrið-
samlega lítur út í heiminum
nú. Við vitum að vígbúnað-
arkapphlaupið hefur haldið á-
fram. Heimströllin í austri og
vestri steyta hnefana hvort
framaní annað, gortandi af af-
rekum sínum að finna upp sem
öflugastar vítisvélar og hel-
sprengjur.
Það má vera að til séu menn
sem álíta að unnt sé að grafa
neðanjarðarbyrgi sem þoli
kjarnorkusprengjur. Þó maður
jafnvel hugsi sér þann mögu-
leika að unnt væri með því að
bjarga mörgum mannslífum frá
að farast í sjálfri sprengju-
árásinni sem gerð væri, er ekki
ólíklegt að ýmis vandkvæði
sjáist á að nota slíka mögu-
leika þegar nánar er athugað.
Hvernig ætla til dæmis íslenzk
stjórnarvöld að búa svo um
hnútana að þau viti fyrirfram
um kjarnorkuárás á Reykjavík
með þeim fyi’irvara sem nægi
til að lcoma fólkinu í byrg-
in? Það væri ærinn vandi ef
gera má ráð fyrir að langdræg-
um eldflaugum yrði beitt. Þá
væri hugsanlegur fyrirvari með
fullkomnustu tækni aðeins
nokkrar mínútu.r, og enginn
virðist hafa hugmynd um
hvernig unnt sé að gera á þeim
tíma ráðstafanir sem bjargað
geti mannfiölda. Til þess
þyrfti margfalt lengri tíma en
nokkrar líkur eru á að gefist.
En setium nú svo að þetta
tækist allt, þá er samt eftir að
vita hvernig umhorfs yrði á
yfirborði jarðar eftir kjarn-
orkusprengju. já eftir það sem
telja má smásprengju miðað
við tröllauknu helsprengjurnar.
Er sennilegast að þá yrði hver
einasta bygging, stór jafnt og
smá, jöfnuð svo rækilega við
jörðu að þar stæði hvergi
steinn yfir steini. Þannig yrði
þá um að litast í okkar kæra
höfuðstað eftir tiltölulega litla
kjarnorkusprengju.
Og hvernig yrði andrúmsloft-
ið? Búast má við að það yrði
mettað banvænu helryki. Ætli
mörgum þætti gaman að lifa
eftir þetta og við þessi skilyrði,
jafnvel þótt komizt hefðu lífs
af úr sjáífri sprengingunni? Því
getu.r hver og einn svarað fyr-
ir sig eftir sinni sannfæringu.
Það er að minnsta kosti á-
-lit hinna fróðustu manna, að
takist svo hræöilega til að
styrjöld brjótist út verði hún
háð með þeim mikilvirkustu
gereyðingarvonnum sem til eru.
Og þá er ekki að vita nema
því yrði enn þrengri skorður
settar en áður var rakið að
loftvarnir korni að haldi, jafn-
vcl þótt tækist að koma ein-
hverjum hóp af íólki í neðan-
jarðarbyrgi.
Hver maður getur sagt sér
sjálfur að kiallarar und.ir íbúð-
arhúsum lcæmu að harla litlu
gangi sem loftvarnabyrgi í
hildarleik sem háður væri með
nýiustu gcreyðingarvopnum.
En nú má vera að einhver
spyrji: Hafa ekki stórveldin
nóg cnnur skotmörk en ísland
í kjarnorkustyrjöld? Þeirri
spurningu mætti svara játandi,
ef lancl'ö væri í sannleika hlut-
Framhald á 7. síðu.
r4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. desember 1961