Þjóðviljinn - 30.12.1961, Side 6

Þjóðviljinn - 30.12.1961, Side 6
þlÓÐVILJINN ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — RltstJórari Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfl Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — PréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Bíml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. PrentsmiðJa Þjóðvlljans h.í. H Gengið á stofninn BJP” íxað er að verða eitt eftirlætisefni stjórnarblaðanna að ræða um batnandi gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar og söfnun í gjaldeyrissjóði. Jafnframt og þeir sjóðir eru gerðir upp er þó játað að svo mikið hafi verið tekið af stuttum vöru- kaupalánum að aukning á raunverulegri gjaldeyriseign hefur ekki aukizt nein ósköp. En önnur hlið er á því máli, eins og bent hefur verið á hér í blaðinu. Að því leyti sem gjald- eyrisstaða þjóðarinnar kann að batna á þessu ári og ef til vill einnig á næsta ári ef vel gengur, byggist sá „bati“ ekki hvað sízt á því, að stöðvað hefur verið eðlilegt viðhald á dýrmætum eignum þjóðarinnar, eins og fiskiskipaflotanum. • • • IT'rá því að viðreisnarpólitík núverandi stjórnarflokka hófst í ársbyrjun 1960, hefur varla nokkur aðili treyst sér til þess að leggja í kaup á nýjum fiskiskipum. Með þessu móti hefur verið stöðvað eðlilegt og nauðsynlegt viðhald fiskiskipð- flotans, svo að til vandræða horfir. Sá floti er orðinn um 600 vélbátar og um 50 togarar, svo auðsætt er að mörg skip þarf að kaupa á ári hveriu einungis til þess að halda flot- anum við, halda honum í sömu stærð. Segja má, að eðlilegt viðhald á 600 skipa bátaflota væri að láta smíða um 30 nýja báta á ári hverju. Bætist færri bátar við árlega er verið að ganga á stofninn, flotinn hlýtur að ganga saman. • • • CJvo vill til að nýleg reynsla er tiltæk um slíkt árabil. Það ^ var svo næstu árin eftir gengislækkunina 1950, árin 1951—1954, að heita mátti að stÖðvuð væru kaup á nýjum fiskiskipum til landsins. Farið var að ganga á flotanr,; en það var einnig farið að monta af því árin 1953 og 1954 að þá væri að skapast það sem kallað var ,,jafnvægisástand“, rýmra væri um gjaldeyri til annarra nota. En það ástand var fengið með því að vanrækja það sem þjóðin má sízt af öllu vanrækja, að unnið sé að því hvert einasta ár að við- halda og endurnýja hin stórvirku undirstöðuframleiðslutæki landsmanna, fiskiskipin. veinn eftir MATTHÍAS JOCHUMSSON Leikstjóri: Klemenz Jónsson Öld er liðin síðan „Skugga- Sveinn" sá fyrst ljós dagsins, og Þjóðleikhúsið grípur afmæli þetta fegins hendi og færir hinn ástsæla alþýðlega gamanleik í nýjan glæsilegan hátíðarbún- ing og sýnir á annan dag jóla — en eins og flestir muna gekk Skúggi gamli þar um bekki með öllu sínu liði fyrir níu árum réttum og var síðan fagnað í fjörutíu kvöld af þakklátum á- horfendum. Slíkan höfðingsskap og rausn hefur leikhúsið engu öðrú leikriti sýnt,, það virðist mark þess að hefja „Skugga- Svein“ til vegs og valda að nýju, gera hann að sönnum þjóðleik íslendinga líkt og „Álf- hól“ meðal Dana, en hann var raunar að vissu leyti fyrirmýnd Matthíasar Jochumssonar, skóla- piltsins og skáldsins. Hér verð- ur engu spáð um framtíð þessa fru.mstæða verks, en eitt er víst: „Skugga-Sveinn“ veröur um langan aldur eftirlæti áhuga- leikara í sveitum og við sjó, enda öðrum betur til þess fall- inn að stæla orku þeirra og koma til nokkurs listræns þroska. Engum var það ljósara en höfundinum sjálfum að hin merkilega frumsmíð var gallað vcrk í meginatriðum og nægir að minna á bréf það ti-1 Stein- gríms skáldbróður hans, sem oftlega er vitnað til. En leikur- inn „gjörði hvínandi lukku“ þegar í stað, söguhetjur, orð- svör og söngvar urðu almanna- eign með skjótum og einstæð- um hætti, og fluttur hefur hann verið oftar og víðar en önnur leikrit á landi hér, vinsældir hans og áhrif eiga enga sína líka. Hrifning og þakklæti fólksins hlaut að örva skáldið og gleðja, Matthías endursamdi leikinn fjórum sinnum og breytti að verulegu leyti. Upp- ru.nalegir kostir „Skugga- Sveins“ eru deginum ljósari, skáldlegt æskufjör, ósvikinn hressandi blær ævintýra og þióðsagna, auðug alþýðuleg kímni. En ágangur áranna hlíf- ir Skugga gamla ekki að held- ur, og æ meira hlýtur að bera á annmörkum hans og margvís- legu.m takmörkunum er stundir líða. Svo laus í reipum er leik- urinn og snau.ður að dramatísku samliengi að lítt gerlegt er að muna röð atriðanna, þar er mikið um barnaskap, óþarfa út- úrdúra og mælgi og svo mætti lengi telja. Reyndar verð ég að játa að ég sá „Skugga-Svein“ aldrei á sviði í bernsku eða æsku og mun nærri einsdæmi. og er þannig öðrum ófærari að dæma um leikrænt gildi hans og rétta túlkun. Sýning Þ.jóðleikhússins er ti.1- raun til þess að túlka Jeikinn með nýjum hætti og þeirri við- leitni ber hiklaust að fagna, þótt skoðanir hljóti að skiptast u.m árangur og stefnu. Leik- ■stjóri er Klemenz Jónsson og tekur þann kost að skipa söngv- unu.m í öndvegi og bæta við nýjum — hann velur leikendur sína öðru framar með sönginn í huga, lætur heilan kór vinnu- fólks taka þátt í leiknum en hljómsveit flytja tónlistina milli atriða; einstakaa sinnum eru söngvar lagðir öðrum í munn en skáldið ætlast til eða fluttir á þann hátt sem tíðkast í óper- ettum einum. En tónlistin er ærið sundu.rleit, svo ekki sé mei.ra sagt. sum lögin ramís- lenzk og ný, önnur gömul, róm- antísk og dönsk; og þrátt fyrir alla tónadýrðina þótti mér sýn- ingl.n nok.kuð hæg og hátíðleg og hléin áhóflega löng. „Skugga-Svein“ má að sjálf- sögðu túlka á ýmsa vegu og sýnist sitt hverjum. Það má leggja megináherzlu á frum- stæðan kraft og kímni, leita u.pprunans sjálfs, og fróðlegt myndi að kynnast fyrstu gerð hans „Útilegumönnunum11 á sviðinu. En það mætti líka ganga í öfuga átt og breyta ,.Skugga-Sveini“ í ósvikinn söngvaleik með því að fella nið- ur margt af hinu lausa máli og yrkja snjalla söngtexta í stað- inn, og semja síðan samstæða tónlist við verkið allt; þessi sýning er aðeins lítið ófullkom- ið spor á þeirri braut. • • • TVTú er þessi leikur hafinn á ný. Endurnýjun fiskiskipaflot- 1" ans er stöðvuð, það er svo til hætt að kaupa ný fiski- skip, og að sjálfsögðu „sparast“ við bað talsverðar fjárupp- hæðir, stjórnarherrarnir geta montað af því að svolítið hafi hækkað í gjaldeyriskassanum, og þeir fara að dunda við ráð- stafanir til að örfa innflutning á nokkrum hundruðum óþarfa bíla í viðbót við alla þá sem fyrir eru. Hitt virðist þeim sama um, þó engin ný fiskiskip séu keypt til landsins. Á þessu ári er talið að varið hafi verið um 80 milljónum króna til skipakaupa. í fyrra, 1960, mun hafa verið varið á sjötta hundrað milljóna í því skyni, en ekki er hægt að þakka þann inn.flutning ,,viðreisninni“; til hans var stofn- að áður. Næsta ár, 1962, getur upphæð þessi hrapað niður í 20'—30 milljónir, vegna þess að nær engir telji sér kleift að panta ný skip. o e • IVetta ár hefur verið ausið upp feykilegum afla, aflamet sett á síldveiðunum bæði í sumar og nú í vetur. Þessi mikli af!i hefur aukið stórlega þjóðaríekjurnar. En því hefur þessi afli fengizt, að fiskiskipaílotinn var endurnýjaður rækilega í tíð vinstri stjórnarinnar. Þá voru keypt og kaup ákveðin á stærri fiskiskipum og betur útbúnum en áður. Það eru ekki sízt þau skip sem færa nú þessa miklu björg í bú. Ilitt geta menn gert sér í hugarlund, hver verður uppskeran af þeirri ^viðreisnarí'-ráðstöfun að stöðva kaup nýrra fiskiskipa. I I 1 I I I I Kvendur smali (Bessi Bjarnason), Jón sterki (Valdimar Helgason), Sigurður í Dal (Haraldur Björnsson) 0) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. desember 1961

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.