Þjóðviljinn - 07.02.1962, Blaðsíða 1
lflLIIMN
wiuiim
Viðtal Adsjúbei
við Kennedy
OPNA
Miðvikudagut' 7. febrúar 1962 — 27. árgangur — 31. tölublað
Óskert tólf sjó-
mílna landhelgi
Færeyingar vilja aínema sérréttindi Breta
Samningur Dana og Breta er
uppsegjanlegur með eins árs fyr-
irvara hvenær sem er eftir 27.
apríi í ór.
Samkvæmt Reuters-frétt frá
London eru brezk yfirvöld nú að
kynna sér dönsku orðsendinguna
um kröfur Færeyinga. Brezk
stjórnarvöld neita að lóta í ljós
nokkurt álit í málinu við frétta-
menn.
Síldar-
verðið
Verðiagsráð sjávarútvegsins
hefur ákveðið verð á nýrri síld
til útflutnings. Verðið frá ára-
mótum til febrúarloka verður ó-
breytt, kr. 1,57 fyrir kíió, en
lækkar í kr. 1.25 frá 1. marz
þangað til sumarverðið hefst
Samkomulag varð um síidar-
verðið á fundi Verðlagsráðs sem
hófst klukkan fimm síðdegis í
fyrradag og stóð til ki. eitt um
nóttina. Verðið miðast við órag-
aða síld komna á ökutæki við
bátshlið.
í samningunum í haust um
síldarverð var verðið á síld í
skip til útflutnings það langsam-
lega hagstæðasta fyrir sjómenn.
Síldarkaupendur sögðu þeim
samningi upp frá áramótum.
Vildu þeir fá lækkun á verði
sem svarar hinum nýja tolli í
Efnahagsbandalagsríkjunum, sem
gekk í gildi um áramót, 6% af
85% sölu. Hefur tollurinn numið
28 aurum á kíló miðað við með-
alverð. Fimmtánda febrúar hefst
tímabil þegar þessi tollur er ekki
krafinn.
Eftir áramót hefur verð á ís-
aðri síld erlendis verið mun
hærrá en áður, en þó nægir sú
hækkun ekki alveg til að vega
upp hinn nýja toll. Niðurstaðan
varð í verðlagsráði að fulitrúar
kaupenda féllu frá kröfunni um
lækkun á verði í kr. 1,30 og
féllust á óbreytt verð, kr. 1,57.
Síldin sem veiðist á haust- og
vetrarvertíð er venjulega mjög
misjöfn. og einkum er hún mög-
ur yfir hrygningartímann í marz
og apríl og fyrst á eftir. Er því
ekki að búast við nema smá-
vægilegri þátttöku í síldveiðum
yfir þann tíma. Er verðið látið
lækka fyrir þennan tima, bæði
vegna þess að a.fiinn er lélegri
vara o.g samtímis markaður jafn-
an lægri. Nú er búizt við að
eigendur mestu aflabátanna hafi
tilhneigingu til að láta' stunda
síldveiðar út veturinn, en þar
verður tæpast nema um fáa báta
að ræða. Frá þvi veiðar byrjuðu
um miðjan október hafa 90 tilí
108 bátar stundað síldveiðarnac*v
H andvíg rannsókn!
Ríkisstjórnin og flokkar
hennar hafa verið einkenni-
lega þögulir við meöferð til-
lögunnar um að Alþingi
skipi rannsóknarnefnd til að
athuga tiltekin atriði í
rekstri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Aðeins einn
stjórnarþingmanna talaði í
málinu, Sigurður Ágústsson,
en hann er stjórnarmaður í
Sölumiðstöð hraöfrystihús-
anna og í Coldwater Sea-
food Corporation, félaginu
sem SH hefur sett á lagg-
irnar í Bandaríkjunum. Og
þessi eini fulltrúi stjórnar-
flokkanna varðist allra
frétta, og tók þá frumlegu
afstöðu aö lofa svörum við
spurningum þingmanna
þegar málið kæmi úr
nefnd! En aðþrengdur svar-
aði hann þó afdráttarlaust
einni spurningu: Hann
kvaðst andvígur því að Al-
þingi léti fram fara rann-
sókn, því hann teldi hana
með öllu óþarfa!
Lúðvík Jósepsson lauk á fundi
neðri deildar í gær ræðu sinni,
er hann hóf á fundinum í fyrra-
dag. Vakti hann sérstaka athygli
á að ríkisstjórnin léti ekkert til
sín heyra um þetta stórmál,
enda þótt blöð stjórnarinnar
væru tekin að ræða um mál
Sölumiðstöðvarinnar sem stór-
vandamál og hafa um þau hinar
stærstu fyrirsagnir.
„Þegar tillaga um rannsóknar-
nefnd var rædd á Alþingi árið
sem leið, hélt ég því fram að
hér væri siður en svo um árás
á samtökin að ræða“, sagði Lúð-
vík. ,,Flutningur tillögunnar er
heldur ekki nú nein árás á
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og eins og nú er komið tél ég
slíka rannsókn samtökunum
nauðsyn“.
★ Sölustofnun — ekki
áhættufyrirtæki
Lúðvík minnti á þá staðreynd
að Sölumiðstöðin er byggð upp
af 50—60 frystihúsum a.f um 90
frystihúsum á öllu landinu. Sam-
tökin væru í meginatriðum lýð-
ræðislega uppbyggð og nauðsyn
slíkra samtaka ótvíræð. Þeim
væri ætlað að vera fyrst og
fremst sölusamtök sem eigi að
eínbeita sér að því, að færa
heim í þjóðarbúið eins mikið
fyrir framleiðsluna og unnt er.
Hins vegar er Sölumiðstiiðin
ekki stofnun sem á að hafa með
hiindum neinn sérstakan áhættu-
rekstur. En stjórncndur og fram-
kvæmdastjórar hennar hafa
byggt upp stórkostlega fjárfrek-
an atvinnurekstur í iiðrum lönd-
um, og hafa tekið upp í stofn-
kostnað þeirra fyrirtækja and-
virði fisks scm Sölumiðstöðinni
var falið að selja. Um þessar
framkvæmdir eru hiirkudeilur í
samtökunum sjálfum og skiptar
skoðanir um livort þar hafi ver-
ið réttilega að unnið.
★ „Alheimssölustjórinn'* og
vald hans
Framkvæmdastjóranum Jóni
Gunnarssyni, hefur í sambandi
við fjárfestinguna erlendis o.g
rekstur fyrirtækjanna þar, verið
falið óeðlilega mikið vald. Nú
hefur verið upplýst að í stjórn
félags þess er sölumiðstöðin
myndaði um framkvæmdirnar í
Bandaríkjunum hafa verið fram
að þessum tíma Jón Gunnarsson
sjálfur, kona hans Og bandarísk-
ur lögfræðingur! Margir aðilar
innan Sölumiðstöðvarinnar hafa
deílt á þá ráðstöfun og talið
furðulegt að enginn maður úr
stjóm S. H. eigi sæti í stjórn
félagsins vestra, til þess kosinn
af stjórninni hér heima. Það
var ekki fyrr en upp úr sauð
óánægjan með þetta fyrirkomu-
lag að Jón Gunnarsson og kona
hans voru iátin víkja úr stjórn-
inni, en tveir menn úr stjórn
S.H. látnir taka sæti þeirra.
Það er augljóst að þetta fyrir-
tæki i Bandaríkjunuin veltir
Framhald á 10. síðu.
Tveir ungir Iinudansarar biðu bana og
tveir aðrir slösuðust, þegar „lifandi pýra-
mídi“ hrundi af vírstreng í 15 metra liæð
í hringieikahúsi í bandarísku borginni Detr-
oit. Slysið kom fyrir heimskunnan loftfim-
leikaflokk, „fljúgandi Wailend-
as“, sem þýzk hjón stofnuðu
fyrir 39 árum. Stofnandinn,
Herman Wallenda, sem nú er
sextugur, var með á vírnum
þegar slysið vildi til.
Átta þúsuiid hringleikalniss-
gestir liorfðu á Itichard Faug-
han og. Dictcr Schoep hrapa
til dauðs, en tveir menn lágu
á vírunum og héldu í öklana
á 19 ára stúlku, Jane Schoep,
systur Dieters, sem setið liafði
á stól á stöng sem hvíldi á
öxlum tveggja manna efst á
pýramídanum. Karlmennirnir
misstu takið á stúlkunni, en
starfsfólki niðri á sviðinu tókst
að grípa hana í ábreiðu sem
það liélt á milli sín, svo hún
slapp með lítil meiðsl.
Við æði lá meðal áhorfenda,
en trúð tókst að róa þá.
Á minni myndinni sést lif-
andi pýramýdinn á línunni,
en á hinni sést Jane Schoep
hrapa.
KAUPMANNAHÖFN 6/2 —
Danska stjórnin hefur sent
brezku stjórninni orðsendingu
vegna fiskveiðilandhelginnar við
Færeyjar í framtíðinni. Er þctta
gert samkvæmt tilmælum frá
Færeyingum.
Danska stjórnin gerði samn-
inga við Breta árið 1959 um sér.
réttindi til handa Bretum innan
12 sjómílna landhelgi Færeyja.
Þegar Banir hleyptu Bretum inn
í færeysku landhelgina létu
danskir ráðamenn það í veðri
vaka, að Jjetta væri gert vegna
þess að búizt væri við að al-
þjóðlegt samkomulag, sem gilti
um alla jafnt. yrði bráðlega gert
varðandi fiskveiðilögsögu.
Nú hafa færeysk yfirvöld
hinsvegar krafizt þess, að stað-
ið verði fast við 12 sjómílna
fiskveiðilögsöguna, og að sömu
lög verði látin ganga yfir Breta
og aðra.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Miðneshrepps, Sandgerði, hélt að-
alfund sl. sunnudag. I stjórn voru
kjörnir: Margeir Sigurðsson for-
maður, Maren Björnsson varafor-
maður, Sveinn Pálsson ritari,
Friðþjófur Sigfússon gjaldkeri og
Elías Guðmundsson meðstjóm-
andi.
Stiórnarkjör
í Sandgerði