Þjóðviljinn - 21.02.1962, Síða 6
pJÓÐVILIINN
6t*«f*n41: BftmelnlnBftrflokkur *U>ýöu — Sóalallstaflokkurtnn. — Rltstjómri
M&fcnúa KJartansaon (áb.), Magnús Torfi Olafsson, SigurCur GuBmundsson. -
FréttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón BJarnason. — Auglýslngastjórl: GuBgelr
llftgnússon. — RitstJórn, afgrelSsla, auglýslngar, prentsmiðja: SkólavörSust. 10.
8íml 17-500 (5 llnur). ÁskriftarverS kr. 55.00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
PrentsmlSJa ÞJóBvUJana hJ.
Vinstrisamvinna
ÞJÖÐLEIKHOSIÐ :
Gestagangur
fiis Guðmundsson hefur skýrt frá því í Frjálsri þjóð
að hann hafi ákveðið að leggja Þjóðvarnarflokkinn
niður og stofna í staðinn nýjan flokk undir forustu
Einars bónda í Mýnesi, sem dvalizt hefur langdvölum
í Reykjavík ýmsum borgarbúum til skemmtunar síðan
íhann hélt stjórnmálafundinn í Framsóknarhúsinu með
Pétri Hoffmann Salómonssyni fyrir nokkrum árum.
Tilgangur þessarar Mýneshreyfingar á að sögn þeirra
Gils og Einars að vera sú að sameina alla vinstrimenn
í einum flokki, nema þá sem Morgúnbláðinu þóknast
að kalla kommúnista. Þetta tiltæki Gils Guðmundsson-
ar væri einstaklega skoplegt, ef með því væri ekki
verið að gera tilraun til þess að spilla fyrir stórmáli.
þjóðvarnarflokkurinn var á sínum tíma stofnaður í
þeim auglýsta tilgangi að sameina alla hernámsand-
stæðinga — meirihluta þjóðarinnar — í einum stjórn-
málaflokki. Reynslan hefur nú fellt sinn dóm um þá
stefnu; flokkurinn hlaut í upphafi miklu minna fylgi
en forustumenn hans gerðu sér vonir um og glataði
síðan aðstöðu sinni gersamlega. Þessi málalok voru
raunar augljós í upphafi, því hernámsandstæðinga er
að finna í öllum stjórnmálaflokkum og þeir eru af
fjölmörgum ástæðum ekki reiðubúnir til að slíta tengsl-
in við flokka sína þótt um slíkt stórmál sé að ræða.
Stofnun Þjóðvarnarflokksins snerist því gegn tilgangi
sínum; hún varð til þess að sundra hernámsandstæð-
ingum og veikja baráttu þeirra og gaf hernámssinnum
tækifæri til að líta smáum augum á andstöðuna gegn
hemáminu. Rétta leiðin er sú sem farin var með stofn-
un Samtaka hernámsandstæðinga, þar sem menn úr
öllum flokkum og utan flolcka starfa saman af heilind-
um og hafa þegar náð mjög miklum árangri.
j^Jargir Þjóðvarnarmenn hafa starfað af kappi í Sam-
tökum hernámsandstæðinga, þeirra á meðal Gils
Guðmundsson. Þeim mun furðulegra er að hann skuli
ekki enn hafa lært af sinni eigin reynslu. Sú kenning
hans að samvinna vinstri manna verði bezt tryggð með
því að stofna enn einn flokk er jafn órökvís og upp-
haflega hugmyndin um stofnun Þjóðvarnarflokksins.
Vinstrimenn á Islandi er að finna í ýmsum stjórnmála-
flokkum, og þeir eru tengdir flokkum sínum sterkum
böndum; kemur þar til greina stéttarstaða manna og
mismunandi framtíðarsjónarmið. Samvinna þessara
manna verður eins og nú standa saikir ekki tryggð
með stofnun nýs stjómmálaflokks, allra sízt ef fyr-
irfram á að reyna að þóknast íhaldinu með því að af-
neita öllum sem það kallar „kommúnista11, þ.e. Alþýðu-
bandalaginu og verkalýðshreyfingunni og raunar öll-
um þeim aðilum sem eitthvað þora að beita sér. Með
tillögunni um þvílíka flokksstofnun er verið að smækka
hugmyndina um vinstri samvinnu ofan í ekki neitt,
misnota samstarfsóskir alþýðu manna til framdrátt-
ar annarlegum persónulegum framadraumum.
þetta er þeim mun ömurlegra sem náin samvinna allra
vinstri manna hefur aldrei verið brýnni en nú eft-
ir reynsluna af stefnu íhaldsstjómarinnar og þegar yf-
ir vofir sú hætta að ísland verði innlimað í erlent stór-
veldi. En þeirri stefnu vei'ður aðeins hnekkt með ein-
lægri samvinnu Alþýðubandalagsins, Framsóknarflokks-
ins, Þjóðvarnarflokksins og manna sem fylgt hafa
stjórnarflokkunum að málum en skilja nú hættuna
af stjórnarfari þeirra. Allir þessir aðilar þurfa að finna
leiðir til að styrkja samstöðu sína, til að vinna saman
í kosningum og endranær, koma fram sem einn aðili
þegar tekizt er á um þau stórmál sem mú blasa við
þjóðinni og enginn ágreiningur er um milli vinstri-
manna. Allir einlægir vinstrimenn, hvar í flokki sem
þeir standa, þurfa að beita sér af alefli til að tryggja
slíka samvinnu og mega hvorki láta marklausa for-
dóma né annarleg sjónarmið skammsýnna forustu-
manna aftra sér. — m.
eftir SIGURÐ A MAGNUSSON
Leikstjóri: Benedikt Arnason
Eins og ýmsir muna efndi
Menntamálaráð til verðlauna-
keppni um ný leikrit eigi alls
fyrir löngu og urðu úrslit þau
að verðlaunin voru ekki ve'tt;
hinsvegar hlutu fjögur leikrit
meðmæli og nokkra viðurkenn-
jngu samkvæmt tillögum dóm-
nefndar. Eitt þeirra var „Gesta-
gangur“ eftir Sigurð A. Magn-
ússon, hinn unga, mikilvirka
og kunna rithöfund, og er um
leið hið fyrsta sem kemur fyrir
sjónjr almennings, öðlast líf og
lit á sviðinu.
,,Gestagangur“ er ástarsaga
að meginefni og gerist á okkar
dögum. I>ar er fetað um „refil-
st’gu mannlegra hvata“ og heit-
ar kenndir oE ástríður konunn-
ar skáldinu ofarlega í huga,
hún gefur sig ástinni á vald
skilyrðislaust og hlýtur þess
sárlega að gjalda. Gunnar he't-
ir gervilegur en hviklyndur og
námsleiður læknastúdent sem
getur ekki kvennmannslaus ver-
ið stundinni lengur; Hann daðr-
ar löngum við Rúnu, kornunga
laglega stúlku. Gift kona Auð-
ur að nafni festir Hka heita
ást á honum og verður þung-
uð af völdum hans; góðborgar-
ann og góðmennið Ólaf eigin-
mann hennar grunar ekki neitt.
Ungt skáld og leikstjóri kemur
allmikið við sögu h!ns snotur-
lega ferhyrnings, það er Jó-
hann, góðvinur þessa fólks.
Stund reikningsskilanna rennur
upp áður en varir, stúdentinn
þorir ekkr að bera ábyrgð gerða
sinna Qg flýr frá Auði v;ð lít-
inn orðstír, og þótt eig'nmað-
urinn sé gæzkan og sáttfýsin
sjálf unjr hann ekki þessari
smán og rekur konu sína frá
sér sem ótínda skækiu. „Svona
enda þær nú, ástarsögur nú-
tímans! I einu heljarmiklu
núlli“, segir í leiknum. En þá
verða snögg og óvænt þátta-
skil og eru í raun og veru
mergurinn málsins, það kemur á
daginn að ástarsaga þessi er ekki
ennað en leikur innan leiksins
að góðkunnum sið, hún er fvrri
hluti sjónleiks sem verið er að
sýna fyrir fullum sal prúðbú-
inna áhorfenda og siglt í al-
gert strand. Leikendumir hafa
biátt áfram tekið öll ráð af
veslings leikstjóranum og engu
skeytt um gerða samninga, um-
turnað skáldverkinu og öllum
þess lögmálum, elskað og þjáðst
og þfað sínu eigin lífi, látð til-
finningamar einar ráða. Upp-
lausnin blasir við, leikstjórinn
stendur e!nn uppi, ráðalaus og
rökþrota; sá leikendanna sem
fer með hlutverk Gunnars
læknanema segist ætla að ráða
s'g á síldarbát tafarlaust, eíg-
inmaðurinn leitar réttar síns
hjá dómstólunum, Auður ætlar
sér að lifa fyrir ófætt og ó-
skiigetið barn sitt og bera harm
í hijóði, unga stúlkan hímir á
bak við tjöldin og grætur.
Þann'g verða leikur og líf vart
greind sundur að dómi skálds-
ins, blekkingin getur orðið
máttugri en verule.'kinn, lífið
getur sigrað listina; hvenær
erum við að leika og hvenær
ekki?
■Höfundur „Gestagangs“ hef-
ur mjög hr'fizt af snilldarverki
Pirandello ',,ðax verur Jeita
höfundar“. Skyldleikinn er deg-
inum ljósari, en munur þessara
verka svo reginvíður að þýð-
ingarlaust og óþarft er að
ræða; en hitt alkunna að áhrif
hins ítalska stórskálds eru mik-
il og margháttuð orðin víða um
lönd. Þau leikbrögð sem mér
þóttu ófrumlegust og slitnust
eru ekki heldur frá Pirandello
komin; einn leikendanna kemur
æðandi utan úr sal og hrópar
að nú sé nóg komið, annar snýr
spurningum sínum beint tjl
leikgesta — en einm!tt þær
ræður vöktu sérstaka hrifningu
á frumsýningu í snjallri túlkun
Gunnars Eyjólfssonar og mega
þannig allir vel við una. í ann-
an stað verður þeirr; hugsun
ekki varizt að höfundurinn hafi
færzt of mikið í fang eins og
ungum skáldum er títt og jafn-
vel láðst að skoða endjrinn
nógu glöggt í upphafj. Það er
blátt áfram ógerningur að trúa
því að fyrstu atriðin brjú séu
sýning í leikhúsi skipuðu á-
horfendum, eitt virðist reka s:g
á annars horn. Hlutar leiksins
voru ósamstæðir og falla ekki
í skorður, dæmið gengur ekki
upp; það er helzta brotalöm
verksins að mínu v.ti. Er nokk-
ur lifandi leið að skýra hátta-
lag leikstjórans með skynsam-
legum ráðum, svo tekið sé að-
eins e’tt dæmi, geturmokkur leik-
hússtjóri treyst slíkum manni?
Jóhann virðist aldrei hafa les-
ið leikritið sem hann er að
sýna og stendur uppi gersam-
lega ráðþrota þegar hvíslarinn
rýkur he!m í hléi vegna Þess
að konan hans er ;að ala barn!
Það er auðvitað ekki tiltökumál
er hann ávítar tvo leikendur fyr-
ir ósviknar tilf'nnjngar og rika
innlifun. o.g hrósar síðan þeim
þriðja hástöíum fyrir nákvæm-
lega það sama — hverjum fylg-
ir hann að málum, Stanislavski
eða Brecht? Og hverju á mað-
ur eiginlega að trúa?
Hér er sjálfsagt fávíslega
spurt. höfundurinn veit sínu
viti og þarf ekki annað en
svara því að leikurinn sé ekki
og eigi ekki að vera raunsær
eða natúralískur í neinu; hans
sé að vrkja, okkar að skilja. Og
vera má að hann hafi gaman
af að revna á þolrif áhorfenda,
fara með hálfkveðna vísu.
Málið á le knum er víðast lið-
legt og blátt áfram, en óþarf-
lega slakt og rislitið á stöku
stað. Þar er margt vel sagt og
skynsamlega og ýmsar athyglis-
verðar skoðanir birtar um
margvísleg vandamál, en
„stundum er eins og' þú sért að
lesa uppúr bók þegar þú talar“,
segir Rúna á einum stað; og
þá ekkí fátítt að svör n verði
nokkuð einhæf og lítt leikræn:
„Hvað meinarðu?“ „Hvað ertu
að seg.ja?" „Nú er ég stein-
hætt að botna í þér“. „Hættu
þessu bölvuðu rugli, maður1,
Og þar fram eftir götunum. Hér
er um að ræða venjuleg ein-
kenni byrjandans, snillingar
samræðunnar eru fájr í fyrsta
sinn. Mannlýsingar geta hvorki
kallazt hugstæðar né djúptæk-
ar, en söguhetjumar eru yfir-
leitt sjálfum sér samkvæmar
og dregnar skýrum dráttum;
Jóhann er til að mynda nógu
trú og skemmtileg manngerð,
þrátt f.vrir það sem áður er
sagt um stöðu hans í leiknum.
Frumsmíðar eru sjaldan galla-
laus verk og sannast á „Gesta-
gangi“, en leikritið ýmsum
kostum búið oð sjálfsagt og
lofsvert að flytja það á sviði.
S gurður A. Magnússon er mað-
ur gáfum búinn, íhugull og víð-
lesinn, það leynir sér ekki, en
virðist ekki skrifa af ríkri innri
þörf eða bera sérstök mál fyrir
brjósti; ef til vill hefuj- hann
sam.ð „Gestagang*1 tii þess öðru
framar að sannreyna hvort
hann gæti skapað leikhæf verk,
og það sjónarmið er lika skylt
að meta. Vona má að hann eigi
eftir að reynast íslenzkum leik-
menntum nýtur liðsmaður.
Sýningin reyndjst í sumu
fremri mínum vonum og leik-
ritið sviðshæfara en ég hafði
ætlað í fyrstu. Það hefur tek-
ið nQkkrum mjkilvægum breyt-
ingum til bóta og samvinna
leikhúss og höfundar borið góð-
an ávöxt; um það geta þeir
dæmt sem lesið hafa leikinn.
Benedikt Árnason er lekstjóri
og tekur rétta stefnu að mínurn
dónV, túikun hans er látlaus og
varfærin og beinlínis- hljóðlát
i fyrstu, en æ sterkarj er á lið-
ur, og eðldeg stígandi í leikn-
um allt til loka. Samskiptj og'
viðræður Auðar við elskhuga
sinn og eiginmann eru ekki allt-
af lausar við le'ðígjarna til-
finningasemi, og yfir þá ann-
marka er breitt eftir beztu
föngum. í annan stað virðist
le!kur'nn ekki alstaðar nægi-
lega æfður og bar nokkuð á
hiki og missögnum, smávægi-
legum að visu; en slíkt á ekki
að koma fyrir á þessum stað.
Sviðsmyndir eru þrjár og
Gunnari Bjarnasynj tjl ótvíræðs
U) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 21. febrúar 1962